Vísir - 18.03.1974, Page 11

Vísir - 18.03.1974, Page 11
Það voru tíðindi: Ekkert íslands- met í lyftingum Fátt var um stór afrek á ís- landsmótinu í lyftingum, sem haldið var i anddyri Laugar- dalshallarinnar s.l. laugardag. Ekki eitt einasta Isiandsmet var sett á þessu móti, og er það öfugt við fyrri mót, þar sem sannkallað metaregn hef- ur ávallt sett mestan svip á mótin. Að þvi hlaut að koma, að þetta regn hætti, eða a.m.k. minnkaði —en margt má nú á milli vera. Stóru nöfnin i iþróttinni, Kári Elisson, Skúli Öskars- son, Guðmundur Sigurðsson og Gústaf Agnarsson, reyndu allir við ný met, en öllum mistókst. Guðmundur var næst- ur þvi og var árangur hans I mótinu i heildina mjög góður. Þá var árangur Skúla einnig ágætur, en þeim Gústafi og Kára mistókst gjörsamlega. Þeir misstu ekki aðeins af metunum — heldur misstu þeir einnig af Islands- meistaratitlinum i sinum flokkum — titlum, sem þeir áttu örugglega að hafa ef þeir hefðu fyrst húgsað um að tryggja sér þá og síðan að reyna við metin. Gústaf byrjaði að snara 150 kg og tókst það auðveldlega. Siðan hækkaði hannil65kg og þar mistókst honum i báöum tilraununum. 1 jafnhending- unni mistókst honum alveg i öllum tilraununum og var þar með úr Snörun FLUGUVIGT: Trausti Gunnarsson, HSK 30 DVEKGVIGT: Sigurður Grétarsson, HSK 70 FJAÐURVIGT: Kristinn Asgeirsson, HSK 60 LÉTTVIGT: Jón Pálsson, HSK 60 MILLIVIGT: Skúli Óskarsson, UIA 95 LÉTTÞUNG AVIGT: Árni Þ. Helgason, KR 100 MILLIÞUNGAVIGT: Guðmundur Sigurðsson, A. 137,5 ÞUNGAVIGT: Sigurður Stefánsson, KR 75 keppni. Sigurvegari i hans flokki, þungvigt, varð Sigurður Stefánsson KR, sem lyfti samtals 195 kg., eða 235 kg. minna en Gústaf á bezt. Sama var upp á teningnum hjá Kára. Hann náði ekki upp byrjunarþyngdinni og var þar með úr leik. Árangur Guðmundar Sigurðssonar i milliþungavigt var góður, en hann var aðeins 5 kg frá sinu bezta i saman- lögðu. Þá var árangur Skúla Óskars- sonar i millivigt einnig nokkuð góður. Hannsetti skemmtilegan svip á mótið með framkomu sinni og höfðu áhorf- endur mikið gaman af honum og til- tækjum hans. Arangur i léttari vigtunum var ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, en þar röðuðu ungir menn frá HSK sér i hvert sætið á fætur öðru. Hlaut félagið 4 íslandsmeistara og er það vel gert hjá félagi, sem ekki hefur haft lyftingar á stefnuskrá sinni lengur en HSK hefur gert. Yfirdómari i þessu móti var einn af forráðamönnum sænska lyftingasam- bandsins, Folke Garbon. Var hann hér m.a. til að kynna sér aðstæður fyrir NM-mótið i lyftingum, sem fyrirhugað er að halda hér á landi á næsta ári. Leist honum vel á salinn i Laugardals- höllinni og eru þvi allar likur á að mót- ið fari hér fram. Islandsmeistarar i einstökum þyngdarflokkum urðu þessi: (Snörun, jafnhending, samtals og núgildandi Is- landsmet samtals). Guðmundur Sigurðsson. Ljósmynd Bjarnleifur Vlsir. Mánudagur 18. marz 1974 Vísir. Mánudagur 18. marz 1974 Islandsmeistararnir I blaki 1974 — nemendur íþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Ljósmynd Bjarnleifur. Nemarnir í íþróttum hlutu gullið í blaki! Töpuðu engum leik ó íslandsmótinu, sem lauk í gœrkvöldi Þróttur og Grótta munu leika aukaleik um sigur i 2. deild karla i handknattleik og jafn- framt sæti i 1. deildinni næsta ár, i iþróttahúsinu i Hafnarfirði n.k. laugardag. Þróttur sigraði KRiLaugardals- höllinni i gær, 24:16, og náði þar með sömu stigatölu og Grótta. Ekki var leikurinn neitt sér- stakt fyrir augað, enda sýnilega lftill áhugi hjá KR-ingunum að sigra i þessari viðureign. Þróttararnir höfðu aftur á móti allt að vinna, og var mikil barátta f þeim —stundum af meira kappi en forsjá. Þeir höfðu tvö mörk yfir i hálf- leik, 8:6, en KR náði að jafna 10:10snemma isiöari hálfleik. Þá fóru þeir að slaka á og Þróttararnir skoruöu næstu sjö mörk án þess að hinir kæmust á blaö. Af þessum 7 mörkum skor- aði hinn skemmtilegi unglinga- landsliðsmaður Friðrik Friðriks- son 4 fyrstu mörkin i röð, flest úr hraðupphlaupum. Eftir þetta forskot Þróttar fóru KR-ingarnir aftur i gang og var leikurinn jafn siðustu minúturn- ar, en honum lauk með sigri Þróttar 24:16. Hin gamla landsliðskempa, Þorsteinn Björnsson, stóð i marki Þróttar nær allan leikinn og varði oft stórglæsilega — þó þungur sé og þykkur um mittið. Geta Þróttarar mikið þakkað honum árangur liösins i vetur, en hann hefur hvað eftir annað bjargað þeim úr kröppum dansi, þegar allt hefur gengið á aftur- fótunum hjá útispilurunum. islandsmótinu í blaki lauk í Laugardalshöllinni í gærkveldi með þrem síð- ustu leikjum þessa skemmtilega móts, sem staðið hefur yfir með mikl- um glæsibrag í allan vetur. Þá tryggði lið UMFB, sem er skipað íþróttakennara- nemum frá Laugarvatni, sér sigur í mótinu. Lið Laugdæla hlaut silfurverð- launin og lið stúdenta bronsið. Þessi „úrslitahrina” mótsins hófst á laugardaginn er UMFL sigraði lið Menntaskólans á Akur- eyri (IMA) 3:1... 15:11 — 15:12 — 14:16 — 15:2. Þá léku einnig UMFB og Eyfirðingar, (UMSE) og sigruðu iþróttakennaraefnin i þeim leik 3:1.... 15:2 — 15:1 — 21:23 — 15:10. Þriðja hrinan i þeim leik er einhver sú skemmti- legasta sem sézt hefur i blaki i þessu móti en henni lauk með hin- um óvenjulegu tölum i svona keppni 23:21. Keppnin i gærkveldi hófst með leik UMFL og UMSE. Eyfiröing- ar sigruðu i fyrstu hrinunni 15:8, en þá tóku Laugdælir, með Anton Bjarnason i fararbroddi, sig loks til og sigruðu i næstu þrem hrin- tveim hrinum.... 15:11 — 15:10. Fimmta og siðasta hrinan var hápunktur kvöldsins, en henni lauk eftir æðisgengna baráttu með sigri stúdenta 15:13. Þá var komið að siðasta leik kvöldsins, og jafnframt siðasta leik mótsins, en hann var á milli UMFB og IMA. I þeim leik fór ekki á milli mála hvort liðið væri betra.. Piltarnir úr Iþróttakennaraskólanum sýndu þar eins og i öðrum leikjum i þessu móti, að þeir eru beztir i þessari ört vaxandi iþróttagrein, og sigruðu Akureyringana 3:0.... 15:9 — 15:9 — 15:10. Lið þeirra er mjög jafnt og vel þjálfað, enda eru þeir i iþróttum alla daga vikunnar. Þar fyrir utan eru allir i liðinu fæddir „boltamenn” má þar t.d. nefna Asgeir Eliasson handknattleiks- og knattspyrnumann úr 1R og Fram, Pálma Pálmason, hand- knattleiksmann úr Fram og Snorra Rútsson knattspyrnu- mann úr Vestmannaeyjum, svo að einhverjir séu nefndir. Lokastaðan i blaki '74: UMFB UMFL ts Vlkingur ÍMA UMSE 15-4 272:189 10 13-7 281:213 8 11-10 265:254 6 10-12 255:272 4 8-13 256:285 2 4-15 160:276 0 um... 15:2— 15:2 — 15:6. Þar með höfðu þeir tryggt sér silfurverð- launin og höfðu möguleika á gull- inu, ef IMA sigraði UMFB í slö- asta leiknum 3:0. Þá hófst leikur 1S og Vikings og var þar barizt um bronsverðlaun- in i mótinu. Þessi leikur var mjög skemmtilegur og spennandi og höfðu áhorfendur mikið gaman af honum. Stúdentarnir sigruðu i fyrstu hrinunum... 15:4 — 15:7. En þá tóku Vikingarnir heldur betur við sér og sigruðu i næstu Asgeir Eliasson, sá kunni iþróttamaður, á miðri mynd, skellir gegn Eyfirðingum. IppsÉg . deild! Fram tryggði sér titilinn - og Víkingur úr fallhœttu! — eftir úrslit í 1. deild kvenna á íslandsmótinu í handbolta Fram tryggði séi| is- landsmeistaratitilinn i 1. deild kvenna i hand- knattleik i gær með þvi að gera jafntefli við Vik- ing 10-10 i sínum næst siðasta leik i mótinu. Má liðið tapa siðasta ieikn- um, sem er gegn Val, en heldur samt titlinum. Stigin urðu Valsmanna! gegn Þór í 1. deildinni í handboltanum Valsmenn tryggðu sér sigur gegn Þór á loka- mínútum leiksins í 1. deild á laugardaginn. Lokatölur urðu 24-21 fyrir Val í iþróttaskemmunni á Akur- eyri í þessum leik í 1. deild- inni í handboltanum— leik, sem lengstum var mjög jafn, eiginlega alveg til loka og eins marks munur var Val í hag, þegar fimm mínútur voru eftir. Áður en leikurinn hófst minntist Haraldur Helgason, formaður Þórs, Jónasar Þórarinssonar, en hann var aðalforustumaður Þ5rs ihandknattleiknum. Jónas lézt sl. miðvikudag mjög snögglega — aðeins þritugur að aldri. Hann var kvæntur og átti tvö börn, og er mikill söknuður að þessum unga, efnilega manni. Þrátt fyrir sorglegan ramma leiksins var hann fjörugur fyrir áhorfendur, en afar illa leikinn. Mistök voru mikil á báða bóga — knötturinn gekk oft mótherja á milli, og það meira að segja i hraðaupphlaupum. Valsmenn byrjuðu betur og skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins — en siðan komu fjögur Þórs mörk i röð. 4-2 fyrir Þór. Um miðjan hálfleikinn hafði Valur náð forustu, 7-6, en i leikhléi var allt jafnt, 12-12. Það vakti tals- verða athygli hve varamarkvörð- ur Þórs, Ragnar Þorvaldsson, varði vel — en aðalmarkvörður liðsins, Tryggvi Gunnarsson, var i Reykjavik — en hans var ekki saknað. Spennan hélzt lengi vel i siðari hálfleiknum og það var ekki fyrr en 5-6 minútur voru eftir, aö Vals- menn gerðu út um leikinn. Þeir komust i 21-20 og skoruðu svo næstu tvö mörk og þá var greini- legt að hverju stefndi, 23-20 fyrir Val og bæði lið skoruðu svo eitt mark hvort lokaminútuna. Niu leikmenn Vals skoruðu mörk liðsins og er slikt heldur fá- gætt. Gísli Blöndal var mark- hæstur með 6 mörk og voru tvö þeirra skoruð úr vitaköstum — en eitt misnotaði Gisli. Það ein- kennilega átti sér stað i leiknum að ekkert viti var dæmt á Vals- menn — slikt mun einsdæmi i 1. deildarleik i vetur. Dómarar voru Ingvar Viktorsson og Þórir Úlfarsson og dæmdu þeir vel. Nú, önnur mörk Vals i leiknum skor- uðu Ólafur H. Jónsson 4, Ágúst ögmundsson 3, Stefán Gunnars- son 3, Bergur Guðnason 2, Jón Karlsson 2, Gunnsteinn Skúlason 2, Jón Jónsson 1 og Þorbjörn Guð- mundsson 1. Fyrir Þór skoruðu fimm leik- menn. Þorbjörn Jensson var markhæstur leikmanna liðsins með sjö mörk, Benedikt Guð- mundsson skoraði séx, Sigtrygg- ur Guðlaugs 5, Aðalsteinn Sigur- geirsson 2 og Ólafur Sverrisson eitt. —AE. Á morgun verður staðan i 1. deildinni birt svo og markahæstu leikmenn deildarinnar. Ágúst ögmundsson með knöttinn — ólafur Sverrisson til varnar I leik Þórs og Vals á laugardag. Ljósmynd Jón Einar Guöjónsson. Þetta var erfiður leikur fyrir Fram-stúlkurnar, sem höfðu ekki aöeins sett sér það takmark að sigra I mótinu heldur einnig að sigra með fullu húsi. Máttu þær þakka fyrir að halda öðru stiginu i þessum leik og ekki verið ósann- gjarnt úr þvi sem komið var að Vikingur fengi þau bæði. Fram hafði yfir I hálflgik 8-3. En i siðari hálfleik gekk allt á afturfótunum hjá þeim og Viking- ur byrjaði að saxa á fimm marka forustu þeirra. Skömmu fyrir leikhlé jafnaði Vikingur, en þá hafði Þórdis Magnúsdóttir (systir Jóns Hjaltalins) m.a. varið tvö vitaköst frá hinum skothörðu Fram-stúlkum. Vikingur fékk nokkra mögu- leika á að komast yfir á loka- minútunum, en þá var boltinn hvað eftir annað dæmdur af Fram vegna vandræðaspils, en taugarnar hjá Vikingsstúlkunum voru þá litið betri og þær mis- notuðu hvert tækifærið á fætur öðru. 1 gær léku einnig i 1. deild kvenna Valur og FH og sigraði Valur i þeim leik með 11 marka mun, 17:6, eftir að hafa haft 5 mörk yfir i hálfleik, 8-3. Eftir þessa leiki er staðan i deildinni sem hér segir: Fram 11 10 1 0 160: : 102 21 Valur 11 9 0 2 158: : 113 18 Ármann 11 5 2 4 126: : 127 12 FH 12 5 2 6 147: : 145 12 KR 10 4 1 5 114: : 117 9 Vikingur 11 1 2 8 101: : 131 4 Þór 9 0 0 9 77: : 136 0 Vill ekkert félag fó meistarana? Strákarnir úr iþrótta- kennaraskólanum, sem urðu islandsmeistarar I blaki, út- skrilast allir i vor. Þeir vilja gjarnan halda áfram i þess- ari grein — a.m.k. þeir sem eru úr Reykjavik og ná- grenni — en hafa ekkert félag til að fara i. Þcir hafa bæði talað við KR og Fram og einhver fleiri félög og boðizt til að keppa fyrir þau, ef þau stofni blakdeild, en ekkert þeirra hefur sýnt neinn áhuga á aö fá þá — og kenna um húsnæðisskorti? SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Innflutningsdeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080 anddte straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.