Vísir - 18.03.1974, Side 20
VÍSIR
Mánudagur 18. marz 1!)74
Boða prentarar
verkfall?
Trún'/aöarmannaráð
prentarafélagsins kemur saman i
kvöld til að fjalla um verkfalls-
boðun.
Á föstudaginn var felldu
prentarar tilboð vinnuveitenda
um launahækkun, nokkuð
hliðstæða þeirri sem aðildarfélög
ASl náðu fram um mánaðamótin.
Trúnaðarmannaráðið hefur
fengið heimild félagsfundar fyrir
verkfallsboðun, og ef til kemur,
að verkfall verði boðað, þá gerist
það með sjö daga fyrirvara.
-GG.
Seyðfirðingar
felldu Aust-
fjarðasamn-
ingana
Seyðfirðingar felldu það sam-
komulag, sem gert var milli at-
vinnurekenda og verkalýðs-
félaga á Austurlandi á fundi að
Egilsstöðum um helgina.
Samkomulagið var mjög i
svipuðum anda og heildar-
samningarnir, sem gerðir voru
hér i Reykjavik fyrir skömmu.
Austfirðingar vildu þó ekki ald-
urshækkun eftir eitt ár og var
þeirri upphæð dreift á alla taxta
og er það metið sama kjarabót.
Þetta er sama leið og Norð-
lendingar fóru.
Austfirðingar skáru sig út úr
við samningagerðina hér i
Reykjavik og voru þeir með
mjög margar sérkröfur milli 40
og 50 atriði. Fá eða engin atriði
af þeim komust þó inn i samn-
inga.
Samningarnir voru
samþykktir á Eskifirði og búizt
er við, að þeir verði samþykktir
á öðrum stöðum. Mjög illa var
mætt á félagsfundinn á Seyðis-
firöi, sem felldi samningsdrög-
in, og er ráðgert að halda nýjan
fund þar i kvöld.
Norðfirðingar voru ekki með i
þessum samningum, en þeir
hafa haft sérstöðu siðan 1961 og
eru launataxtar þar nú um það
bil 2,5% hærri en Dagsbrúnar-
taxtar. — ÖG-
Nóg af þeirri
grœnlenzku
— heildarloðnuaflinn
orðinn um 415.000
tonn
Þeir halda áfram að moka upp
loðnunni við Snæfellsnesið. ,,Og
væri slæmt ef þyrfti að handfjatla
hverja eina með gogg”, sögðu
þeir hjá Loðnunefnd I morgun.
Aflinn á laugardag og sunnudag
var samtals 24.000 tonn. Heildar-
aflinn á loðnuvertiðinni er þá
kominn nokkuð á fimmta hundrað
þúsund — 415.000.
42 bátar lönduðu þessum 24000
tonnum um helgina, og fékkst
loðnan skammt út af Ondverðar-
nesi og suður undir Malarrif.
Yfirleitt hefur veiðiskapurinn
þar vestra gengið þannig fyrir sig
þessa daga, að litil veiði hefur
verið um nætur og fyrri hluta
dags, en siðan hefst handagang-
urinn siðdegis og stendur fram
um miðnættið.
Loðnan sem þeir fá núna er
mjög góð til frystingar, og virðist
þvi eiga talsvert i land með að
hrygná.
Fiskifræðingar eru ekki alveg
vissir, hvaðan hún kom svo
skyndilega og öllum á óvænt — en
margir virðast hallast að kenn-
ingu Hjálmars Vilhjálmssonar,
þ.e. að hún sé hingað komin frá
Grænlandi.
Nú munu um 70 bátar af þeim
133 sem loðnuveiði stunduðu fyrr
i vetur, enn vera á loðnu, og eru
likur á að enn hækki hlutir sjó-
manna.
-GG
' YvyyYYTirirrrrrirrri*i*iMi*wa***^———^***^***^*1********—*****ft*iMniiTivririvirYYYTYYYvvvvv
Tólf vikna stöðvun á Siglu-
fjarðartogaranum
— vegna alvarlegrar vélarbilunar
Stálvík
Stálvík hinn nýi skut-
togari Síglfírðinga mun
fyrirsjáanlega ekki hefja
veiðar að nýju fyrr en
upp úr næstu mánaða-
mótum i fyrsta lagi.
Um áramótin kom i ljós bilun
i aðalvél skipsins og var það
sentút til Wichmann verksmiðj-
anna i Rubbestadt I Noregi, en
þar er vélin framleidd. Orsök
bilunarinnar var sú, aö járn-
svarf komst inn á vélina og
skiptibúnað og að sögn Þórðar
Vigfússonar, framkvæmda-
stjóra útgerðarfélagsins Þor-
móðs ramma, skemmdi svarfið
þó nokkuð út frá sér.
„Rétt þótti að senda skipið út,
þar sem allir varahlutir og
tækniþekking var fyrir hendi,”
sagði Þórður ,,en ábyrgð fram-
leiðendanna var runnin út, gilti
hún i tólf mánuði frá dag-
setningu reiknings 19. sept.
1972.”
Þórður sagði, að ýmsar
bilanir hefðu valdið smátöfum
strax i byrjun útgerðar
togarans, en hann hóf veiðar i
október siðastliðnum. Sjór olli
t.d. skemmdum i mannaíbúð-
um, en þangað komst hann
gegnum loftræstikerfið, vatns-
leiðslur frusu og sprungu, og
einnig brunnu mótorar við
grandaraspil yfir.
„Ef vel gengur með
viðgerðina, á Stálvik að geta
hafið veiðar aftur eftir nokkrar
vikur og vonandi gengur þetta
allt skaplegar þá,” sagði Þórður
Vigfússon. „Þegar bilanir
trufluðu ekki reyndist skipið
ágætlega, og ég tel ekki ástæðu
til að ætla annað en útgerðin eigi
að geta gengið skaplega.”
Hann sagði, að mjög vel hefði
gengið að manna Stálvik, og
væri skipshöfnin eingöngu
heimamenn. Siglfirðingar eiga
von á nýjum togara frá Spáni
upp ur næstu mánaðamótum.
Er hann af minni gerðinni, og
er þegar búið að fullráða
mannskap á hann, — allt heima-
menn. .óq.
Óbrjótandi
glerið malað
mélinu smœrra
„Það er alveg furðulegt hvað
fólk leggur á sig til aö skemma
simaklefana. En mér finnst þó
ganga út yfir allt, þegar óbrjót-
andi gler er malað mélinu
smærra.”
Þannig komst Hafsteinn Þor-
steinsson, skrifstofustjóri hjá
Bæjarsimanum, að orði i morgun.
Skemmdarvargar réðust á
simaklefann við Lækjargötu um
helgina, og tókst þá að brjóta
plastglerið I honum. Það gler er
geysisterkt og á að standast mik-
ið álag.
„Simaklefinn hefur oft verið
illa leikinn áður, en aldrei eins og
nú”, hélt Hafsteinn áfram.
„En það bregst ekki, að við
þurfum i hverri einustu viku að
fara til að gera við simana i sima-
klefunum.Stundum förum við oft i
viku. Mér finnst samt furðulegt,
að svona lagað skuli geta átt sér
stað á jafn fjölfarinni götu og
Lækjargata er. Ég held, að
borgararnir mættu gera meira af
þvi að skipta sér af unglingum
eða fullorðnum, sem eru að eiga
við simann til annars en að
hringja”.
Hafsteinn sagði, að þessi simi
væri til þjónustu fyrir almenning,
og það væri ekki hægt að gefast
upp fyrir óaldarlýð, sem herjaði á
hann.
„Nú er þetta ástand búið að
vara i mörg ár. Ég held, að fólk
verði að taka höndum saman um
að reyna að stemma stigu við
þessu. Það verður bezt gert
með þvi að stugga við skemmdar-
vörgunum eða kalla til lög-
regluna”, sagði Hafsteinn að lok-
um. — ÓH.
ÞÚSUNDIR í SÓLSKINI
í BLÁFJALLAGEIMI
Allir á skíði! Þaö var likt og herútboð hvetti Reykvikinga og nágranna upp I Bláfjöll I góða veðrinu um
helgina. í Bláfjöllum eru allar stærðir og gerðir af brekkum, og á stóru myndinni hérna sjáum við
nokkra skiðamenn biða eftir lyftu. A minni myndinni er liklega yngsti þátttakandinn I Bláfjallaferðum
þessa helgi. Hann sefur vært i buröarrúminu sinu á hlýju vélariokinu meðan fjölskyldan bregður sér
UPP í brckkur. —óH/Ljósm. VIsis: BG
Lézt hann af fíknilyfjaátinu?
— fannst látinn með pilluglös sér við hlið og upphrœrðum pillum í flösku
Sterkur grunur leik-
ur á, að maður, sem
fannst látinn á mið-
vikudagsmorgun, hafi
látizt af völdum of-
neyzlu fiknilyfja.
Maðurinn vann i fisk-
verkunarhúsi i Gerð-
um. Hann er úr
Reykjavik.
Hann bjó i Grimshól, sem er
verbúð nokkurra fiskverkunar-
húsa I Gerðum.
Hann kom þangað á mánu-
dagskvöld, og fór til herbergis
sins. A þriðjudag sást hann
hvergi. Bankað var á hurðina
hjá honum, en hann svaraði
ekki. Var þá talið að hann lægi i
vfmu, þvi hann var þekktur fyr-
ir pilluát. A miðvikudag sást
hann ekki heldur, og var her-
bergi hans þvi opnað um
hádegisbilið. Þá var maðurinn
látinn.
Inni hjá honum var flaska
með vökva i. Virtist svo sem
innihald hennar væri upphræra
af muldum pillum.
Á borði við hliðina á rúmi
hans voru margir staukar með
pillum, örvandi og deyfandi,
sjóveikispillum og fleiru. Oll
lyfin voru fengin úr apótekum,
flest úr Reykjavik. Næstum þvi
öll þessara lyfja er ekki hægt að
fá i apótekum nema gegn fram-
visun lyfseðils frá lækni.
Niðurstöður úr krufningu eru
ekki enn kunnar.
—ÓH