Tíminn - 22.01.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.01.1966, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 22. Janúar 1966 2 Á myndinni sjást (f. v.) Guðsteinn Einarsson, forstjóri Hraðfrystihúss Grindavíkur h. f.,-en hann festi kaup 'á einni humarsflokkunarvél í dag, Sigmund Jóhannsson, uppfinningamaður og Árni Ólafsson, umboðsmaður fyrir íslenzkar Sjávarafurðir. Þelr virða fyrir sér humarsfiokkunarvélina BÝÍu. (Tímamynd HZ) Sf LDARSKIPST JÖRAR VONDAUFIR EYSTRA SJ-Reykjavík, föstudag. Dagfari frá Húsavík var eina síldveiðiskipiS, sem var úti á miðunum fyrir A-usturlandi, er blaðið hafði samband við síldar- radíóið á Neskaupstað í dag. Veð ur hefur verið óhagstætt að und anförnu og lítið verið lóðað á síld. Skipstjórinn á Dagfara var að tilkynna, að hann hefði lóðað á allstóra torfu, en hún var niðri á 90 faðma dýpi, og veður ekki gott til veiða. Dagfari var staddur um 140 mílur frá landi. Sovézki flotinn er nú norðaust ur af Færeyjum, en veiðihorfur eru ekki góðar þar fremur en á heimamiðum. Skipstjórarnir eru orðnir held ur vondaufir, og hafa haft við orð að ef ekkert veiddist í nótt, myndu þeir senn hætta. Aust- fjarðahátarnir eru allir í höfn, nema Hoffell, sem er á leið út á miðin. bankastjóri Reykjavík, föstudag. Á fundi í bankaráði í Lands banka íslands í dag var Jór Axel Pétursson ráðinn bankastjór: við Landsbankans í stað Emils Jónssonar utanrikisráðherra, serr að eigin ósk var veitt lausn frá sama starfi. Jón Axel Pétursson hefir verið settur bankastjóii í stað Emils Jónssonar síðan 10. apríl 1961. Jón Axel Pétursson Skipað í nýjar lögreglustöður HZ föstudag. Á fundi borgarráðs s.l. þriðjudag var Bjarki Elíass. skipaður yfirlög regluþjónn almennrar löggæzlu, og Óskar Ólason yfirlögreglu- umferðarmála. Einnig voru þeir Guðmundur Hermannsson og Sig urður M. Þorsteinsson skipaðir aðstoðaryfirlögregluþjónar við al menna löggæzlu og Sverrir Guð- mundsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn umferðarmála. Þessir fimm menn munu taka við störfum, seih aðeins tveir menn önnuðust áður. Þessi skipu- lagsbreyting á lögregluliðinu er til þess, að verkaskiptingin verður meiri og störfin meira sundurlið uð. Lögergluþjónarnir, sem nú er búið að skipa í nýjar stöður, hafa allir gegnt störfum varðstjóra og hafa tekið próf frá erlendum lög- regluskólum og tekið þátt í ýms um námskeiðum erlendis og hér- lendis. Mennirnir njóta allir mik- ils trausts enda allir starfað meira en áratug við lögreglustörf. Vænta þeir þess, að samvinna við almenriing og samstarfsmenn sína megi verða sem bezt. TÍMINN Fyrsta humarflokkunarvélin í heimlnum tekin hér / notkun? HZ-Reykjavík, föstudag. í dag voru blaðamenn boðnir suður í Kópavog til þess að skoða nýja flokkunarvél til að flokka í humar. Eftir því sem bezt er vitað et þetta sú fyrsta sinnar tegund- ar í heiminum. Sigmund Jóhann- son, vélaeftirlitsmaður í Vest- mannaeyjum hefur teiknað þessa vél, en hún er smíðuð í Vélsmiðj- unni Þór í Vestmannaeyjum. Sig- hvatur Bjarnason, forstjóri Vinnslustöðvarinnar h.f. í Vest- mannaeyjum hefur átt veg og vanda að því að hugmyndin væri framkvæmd og stutt hana fjár- hagslega. Framkvæmdir í Hvalfirði á byrjunar stigi SJ-Reykjavík, föstudag. Blaðið hafði i dag samband við Hörð Helgason hjá Varnarmála- deild og spurðist fyrir um fyrir- hugaðar framkvæmdir í Hvalfirði á vegum Aðalverktaka. Hörður sagði, að málið væri enn á byrjunarstigi, og ekki væri enn farið að gera samninga við verkalýðsfélagið Hörð og staðhæf ingar um yfirborganir verka- manna væru út i hött. Óhætt væri að segja, að í ár yrðu ekki fleiri menn í vinnu hjá Aðalverktökum en voru í fyrra við vegalagningu. Að lokum sagði Hörður að kaup samningar Aðalverktaka yrðu sam hljóða þeim kaupsamningum, er Sementsverksmiðjan og Hvalur h. f. hafa gert við verkamenn á þessu félagssvæði. Rafmagnslaust á Akureyri HS-Akureyri, föstudag. Klukkan 9.15 í dag bilaði rofi á aðalspennistöð hér á Akureyri með þeim afleiðingum, að bær- inn varð rafmagnslaus. Eftir tvær klukkustundir var þetta þó komið í lag, og ekkert tjón mun þetta hafa haft í för með sér. Enginn vatnsskortur er við orkuverið, þrátt fyrir hörkufrost, og allt er þar í eðlilegu ástandi eftir því sem rafveitustjórinn upplýsti. Sigmund Jóhannsson, sem teikn aði vélina, sagðist hafa unnnið sem verkstjóri í frystihúsi í Vest- mannaeyjum í mörg ár og gert sér Ijósa hina knýjandi þörf fyrir frekari vélvæðingu i humarvinnsl unni. Hann hefði skyndilega feng ið þessa hugmynd í kollinn og í samráði við vélsmiðjuna hefði hann teiknað og smíðað flokkun- arvélina. Flokkunarvélin, sem ber heitið „SIGMUNDS“-humarflokkunarvél, tekur ekki nema 1,5 fermetra gólf rými og er einföld í sniðum. Vél- in er knúin af þrem rafmótorum, einn þeirra knýr færibandið, sem flytur humarinn að og hinir sinn spíralinn hvor, sem liggja næst um samsíða með sívaxandi milli- bili. Eftir þesum spírölum flyzt humarinn unz bilið er orðið það breitt að hann fellur niður. Þá fer hann eftir rennum niður í bakka, sem eru sex talsins. Þann- ig fást út sex stærðarflokkar hum ars og er sá stærsti verðmætastur. Kostir vélarinnar eru margvísleg- ir, m. a. má nefna, að vinnan er hljóðlaus, dagleg smurning er á Reykjaborgin seldi vel SJ-Reykjavík, föstudag. Síldarradíóið á Neskaupstað náði í gær sambandi við Reykja- borg, er skipið var á siglingu út af Elbufljóti. Reykjaborgin seldi sildarafla í Þýzkalandi og kvaðst skipstjórinn, Haraldur Ágústsson vera anægður með söluna, og sagði, að síldin hefði verið góð. Reykjaborgin náði beztri sölu, en markaður fór versnandi, og seldu hinir bátarnir fyrir lakara verð. Reykjaborgin var á leið til Nor egs, og Jörundur 2. er einhvers staðar austur í hafi, annaðhvort við Noregsstrendur eða út af Fær eyjum. Eldur í gripahúsi HS-Akureyri, föstudag. Kl. 2 í dag kom upp eldur í gripanúsum í Lækjargili, þar sem 25 kindur og 3 hross voru geymd. Tókst að bjarga skepnunum, en annað gripahúsið brann alveg, en hitt skemmdist mikið. Eigendur gripahúsanna eru Ingólfur Magn- ússon og Sigurður Stefánsson. átta smurstöðum, raflar eru sér- staklega vatnsvarðir og grind v>ö- arinnar er úr galvanfsemBnm „prófílum", klædd ryðfrínm sfeál- plötum. Við vélina geta unnið ein eða tvær stúlkur, og munu afköst á mínútu nema 2—2% kg ef ein stúlka vinnur við hana, en helm- ingi meiri ef tvær vinna við hana. Vélarnar eru ódýrar, þær kosta um 87.000 krónur, og borgunar- skilmálar eru góðir. Búizt er við, að framleiddar verði 12 slíkar flokkunarvélar fyrir humarvertið- ina, sem hefst í maí. f dag voru seldar 11 af þessum vélum, þar af tvær á meðan blaðamenn stöldr- uðu við. Einn útgerðarmaður hringdi og spurði hvort vélin væri góð. Var honum tjáð að svo væri og festi maðurinn þegar kaup á einni — óséðri. Humarinn, sem yið íslands- strendur veiðist, nefnist leturhum- ar og er hann einungis veiddur við suðurströnd íslands við Færeyj ar og Danmörku. Reynt verður annaðhvort að framleiða vélar fyr ir þessa aðila eða selja einkaleyfið Umboðsfyrirtækið fyrir vélamar er íslenzkar sjávarafurðir og um- boðsmaður félagsins, sem annast söluna er Ámi Ólafsson. Framhald á bls. 14 Kvikmyndasýning Varðbergs og SVS í Nýja Bíói f dag, laugardag, efna Varð berg og Samtök um vestræna sam vinnu til kvikmyndasýningar í Nýja Bíói í Reykjavík og hefst hún kl. 2 e. h. Sýndar verða þrjár kvikmyndir. Endurreisn Evrópu, Saga Berlínar og Yfirráðin á hafinu og eru þær allar með íslenzku tali Bjarna Guðmundssonar, blaðafulltrúa. Kvikmyndir þessar hafa verið sýndar víða um land við góða aðsókn í tilefni þess, að skammt er síðan liðin voru 20 ár frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Er þetta í fyrsta skipti, sem myndirn ar eru sýndar fyrir almenning í Reykjavík og er öllum heimill að gangur að sýningunni, meðan hús rúm leyfir, börnum þó aðeins í fylgd með fullorðnum. Myndin var tekin í reisugildinu í barnaskólanum byggingunni er sagt á baksíðunni í dag. að Hallormsstað, sem haldið var nú nýlega. 'Frá skóla- (Ljósmynd SJ)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.