Tíminn - 22.01.1966, Blaðsíða 11

Tíminn - 22.01.1966, Blaðsíða 11
LAtTGARDAGUUR 22. janúar 1966 TÍMINN 11 ðrvænti nú um málefnið. Einnig má það vera að þessi mikla reiði hafi verið síðasta kraftbirting sálar hans í lokin. Law- rence gaf enga skýringu á þessari breytingu. Þegar hann hélt með liði Nuri el Saids norður á bóginn, mátti sjá haturs- og heiftarglampa í augum hans, sem var í andstöðu við þá mildu sál, sem áður hafði hryllt við blóðbaði og mann- drápum. Örvæntingin hafði ummyndazt í heiftar reiði, hann var orðinn vígamaður, og hirti ekki lengur um að hamla vígum og manndrápum Bedúínanna. Það mátti halda að hirðuleysi hans um öryggi sitt í átökum næstu daga benti til sjálfsmorðs óska. Hann hafði aldrei áður hætt sér svo í átökum né tekið þátt í jafn fífldjörfum aðgerðum. Hann gerði lítið til að dyljast og fór svo nálægt bæn- um að það mátti lítið nær því sjá hann þaðan. Bærinn var var- inn af þrjú þúsund manna liði, meðal þeirra voru þýzkar og austurrískar sveitir. Hvenær sem var mátti búast við því að tyrkneskir útverðir kæmu auga á nokkur hundruð manna lið hans og það hefði verið hægt að þurrka það út með útrás úr bænum. En óvinirnir héldu kyrru fyrir innan víg- girðinganna, þeir trúðu sögunum um að átján þúsund manna vel vopnað arabískt lið væri í þann veginn að setjast um bæinn. Lawrence valdi staðinn, þar sem átti að sprengja upp járnbrautarlínuna. Það var járnbrautarbrú, hættulega nálægt bænum, aðeins sex mílum fyrir norðan hann. En hamingjan fylgdi honum, Tyrkir álitu að enginn myndi hætta sér svo nálægt bænum og þeir höfðu ekki sterkari varðhöld en vanalega. Þeir gerðu árás á brúarstöðina með aðstoð Pisani og drápu alla varðsveitina. Þegar þeir voru að vinna skemmdarverkið gerðu tyrkneskar flugvélar árás, Junor reyndi að hamla árásinni á sinni vél, en var skotinn niður. Lawrence lauk sjálfur við skemmdarverkið, hann hafði sett lið sitt, þar sem það gat varið hann, þegar hann kom til baka frá brúnni, síðan var haldið til línunnar, sem lá til Haifa, en með því að eyðileggja línuna þar, einangraðist Deraa meir og komið var í veg fyrir að Tyrkir gætu sent sjöunda og áttunda tyrkneska hemum liðsauka, sem nú varð að standa af sér áhlaup Allenbys. Það fór eins og All- enby og Lawrence höfðu búizt við, Tyrkir voru nú á verði og álitu að allar þessar aðgerðir bentu til allsherjar sóknar gegn Deraa. Þýzki hershöfðinginn Liman von Sanders, sem hafði verið sendur til Palestínu til að herða Tyrki í vörn sinni lét blekkjast af þessum árásum og gildrunni í Jórdan dalnum og sendi liðsauka til Deraa svæðisins. Þegar þessar liðsveitir voru komnar á áfangastað, lauk Lawrence við að loka samgönguleiðinni til Deraa. Hann kaus tvo staði. Mezrib stöðina og Yarmuk brúna, sem honum hafði misheppnast að eyðileggja í nóvember síðasta ár. Hann hélt með lífverði sínum.nokkrum hermönnum Nuri el Said og deild úr stórskotaliði Pisanis til Mezerib og náði stöð- inni eftir mikla skothríð, flestir féllu af varðliðinu. Hann skildi hermenn Nuri el Saids eftir, þeir gátu lokið við rán- in. Hann hélt svo áfram til brúarinnar. í þetta skipti von- aðist hann til að geta tekið. brúna með svikum, liðsforingi varðsveitarinnar var Armeníumaður, sem vildi allt til vinna að gera Tyrkjum bölvun. En svikin tókust ekki, liðsfor- inginn var grunaður um svik og handtekinn og Lawrence hélt til annarar brúar, sem lá yfir Yarmuk ána. Tyrkir voru fjölmennir og þótt Písaní tækist að eyði- leggja virkið, leituðu varnarliðsmennirnir í skotgrafir, sem lágu meðfram skothríðinni. Skemmdarverkamennirnir lögðu ekki í að koma sprengiefninu fyrir, þeir óttuðust að skot- hríðin myndi lenda í sprengiregningu og sprengja þá í tætl- ur, svo að lífvörðurinn tólT þetta að sér, og með aðstoð þeirra tókst honum að koma sprengiefninu fyrir við brúar- stöplana. Lawrence vandaði mjög þetta verk, þar sem þetta var hernaðarlega þýðingarmikil brú og sú sjotugasta og ni unda, sem hann sprengdi. Þegar sprakk, voru það átta hundi uð pund af sprengiefni, sem sprungu í einu. Það var ekkert eftir af brúnni, hola og járnarusl voru leyfarnar. Lawrence hafði lokið við undirbúninginn og undanfarann að sókn Allenbys á tuttugu og fjórum tímum. Deraa var einangruð og Tyrkir gátu ekki hreyft sig úr eða til Palestínu með járnbraut. Tyrneskju liðsveitirnar urðu annað hvort að halda stöðu sinni eða verða útþurrkaða^, þar eð þær komust ekkert og það var engin von skjóts liðsauka. Lawrence hafði unnið það sem honum hafði verið falið og hann hafði skipanir um að bíða frekari fyrirmæla. En C The New Amerlcan Librarv J UNDIR FÖLSKU FLAGGI ANNE MAYBURY ið, til að heimsækja einhverja kunningja, en bauðst til að vera heima, og gefa Felix kvöldverð- inn, ef ég vildi. Það fannst mér vera ónauðsynlegt, þvi að hún gæti tekið eitthvað til og látið það inn fyrir til hans, áður en hún færi. Þegar ég kom heim um kvöldið, gerði ég eins og ég var vanur, áður en ég gengi til náða. Ég gægðist inn í vinnustofuna til að vita, hvor.t dyrnar út í garð- inn væru lokaðar. Ég kveikti ljós- ið — hann þagnaði, setti glasið frá sér, hallaði sér fram á við og spennti greipar yfir hnén — og þarna lá Felix á gólfinu. Hann var dáinn. — En, ságði Fenella, um leið og hún bar glasið yfir í stól sinn — fyrst kom engum til hugar, að þetta gæti verið morð. Hann hafði ekki einu sinni orðið fyrir skoti, ekki stunginn, ekki kyrktur. Vonnie starði á þau öll þrjú, ókunnugar manneskjur, sem voru að segja henni frá morði. — Allt benti til þess, að Felix hefði dáið úr slagi, hélt Joss áfram. En það voru alls staðar á honum stórir, ljótir, bláir flekk- ir. Mér kom til hugar, hvort hann hefði dottið og meitt sig, og orðið svo hverft við það, að hann hefði fengið slag. — En það hafði ekki skeð þann ig, sagði Fenella hægt, og það var hræðilegt, að Joss frændi skyldi verða til að finna hann. Slíkt áfall hefði getað gert út af við hann. Hefði bara Rhoda eða Ralph komið fyrst að honum. — Þó ég hefði komið fyrstur heim, hefði mér ekki komið til hugar að fara að gægjast inn í vinnustofu frænda þíns, sagði Ralph, eins og hann væri að verja sig. Eg hefði farið beina leið inn til sjálfs mín. En Rhoda hefði sjálfsagt gert það til að huga að gluggunum. — En — Vonnie var dálítið hikandi — hver hefur myrt hann? — Hingað til hafa engin verks- ummerki fundizt. Það eina, sem við vitum, er það, að í fyrrakvöld, þegar allir voru að heiman, var einhver hérna á slangri. Sennilega einhver alókunnugur. í fyrrakvöld! Nú heyrði Vonnie ekki meira af því, sem Joss Ash- lyn sagði. Yfirkomin af hræðslu skildi hún aðeins eitt, í fyrra- kvöld var ég í garðinum Hver veit nema einhver í nágrannahús- unum hafi komið auga á mig, þegar ég kom og fór, séð andlitið við götuljósið svo vel, að hægt sé að þekkja mig aftur. Ég var hér og rétt fyrir innan stóra vinnustofugluggann, sem hún hafði staðið og gónt á, hafði lfk- lega verið dauður eða deyjandi maður... Hún strauk um ennið. Henni varð sjóðandi heitt og æðin við gagnaugað hamaðist. Joss veitti henni athygli. Mér þykir leitt að þurfa að segja þetta. Þú ert ekkert við málið riðin, en ef þú býrð í húsinu, vill lög- reglan sjálfsagt hafa tal af þér. — En Myra var ekki, þegar þetta skeði, sagði Ralph. — Nei, en rannsóknarlögregl- an er vön að vilja grafast fyrir mestu smáatriði. Þeir ónáða þig sjálfsagt ekkert, góða mín, ef þeir bara fá að ganga úr skugga um það, hvaða dag þú hefur kom- ið til landsins. Hann brosti til hennar eins og til að sefa hana. Vonnie starði á hann óttasleg- in. Ef þeir færu að grafast fyrir um það, myndu þeir uppgötva, að hún hefði komið til landsins fyrir tveimur dögum og að hún væri ekki Myra Ashlyn! Gott og vel. Þá væri draumurinn búinn. En þrátt fyrir það yrði engin ástæða til að gruna hana um morð. Sem Vonnie Horne yrði enn minni ástæða til að gruna hana, þar sem hún hvorki var skyld né kunnug Joss Ashlyn. Sem Vonnie Horne gat hún ekki fundið til neinnar beizkju, hvað þá haturs í garð Ashlyn-fjölskyldunnar, svo að hún fyndi sig knúna til að fram- kvæma neitt svo brjálæðislegt sem morð. Þegar upp kæanist það, sem hún hafði gert, myndi þa$ að vísu verða til að gera þessum virðulega, gamla herramanni hverft við, koma Myru í örvænt- ingu og verða henni sjálfri til skammar. Það yrði ekki við því að búast, að neinn legði trúnað á göfugan tilgang hennar. Hún yrði sökuð um að vera ábyrgðar laust ævintýrakvendi eða ákærð fyrir að sækjast eftir peningum. Joss Ashlyn svaraði hinni löngu þögn með því að útskýra, hvernig dauða bróðurins hefði borið að. — Það eru margar djöfulleg- ar aðferðir við að fremja morð, Myra. Þessi var á sinn hátt mjög óvenjuleg. Þessi byggðist á því, að við Felix nöfðum ýmislegt sam eiginlegt, af því að við erum tvíburar. Hann þagnaði. Vonnie hafði setið með spennt- ai greipar. Þá tók hún eftir því, að Ralph stóð hjá henni og bauð upp á sígarettu. Hún tók eina og gerði ekki lengur neina tilraun til að leyna því, að hún væri skjálf- hent af geðshræringu. Ralph virt ist skilja hana. Hann brá upp kveikjaranum og hélt un, hönd- ina á henn’ i.anr. gat henn' -i-’.iv um að sér og haliaði sér aftur á bak. í sama bili ■rætti hún hin- um bláu. íhugulu aus'um Fenellu. Vonnie þakkaði Ralph. en gætti þess að horfa ekki á hann. — Ég hef alltaf f.'ösku af koní- aki í vinnustofunni. sagði Joss, Felix hefur sennileía snuðrað um húsið, þegar ég var úti við, og einhvern daginn núna undanfar- ið hefur hann fundið flöskuna og fengið sér rækilegt bragð úr henni. Lögreglan heldur, að hann hafi ekki getað vitað um hana fyrr en tvo eða þrjá síðustu dag- ana, áður en hann dó. Hún var full, þegar ég setti hana í skáp- inn og nærri því tóm, þegar lög- reglan fann hana. Einhvem tíma hefur einhver blandað meðölum í koníakið. — Eitri? — Nei, nei. Gamli maðurinn hristi höfuðið. — Það er nú það, sem er furðulegast. Það er meðal, sem stundum hefur verið notað sem róandi inntaka, og í því er efni, sem unnið er úr úrin. í níutíu og níu tilfellum af hundr- að er það skaðlaust, en þetta eina tilfelli, það er ég sjálfur. Ég er svo ofnæmur fyrir því, að fáeinar inntökur myndu nægja til að gera út af við mig. — Og var þetta meðal í kon- íakinu? i Hann kinkaði kolli. Þetta var mjög sjaldgæfur ofnæmissjúk- dómur. Meðalið verkar á blóð- kornin og afleiðingin verður eins konar blóðþynning. Þegar ég sá stóru flekkina á líki Felixar, kom mér þetta meðal ekki í hug. Það voru mörg ár síðan ég hafði not- að það sem svefnlyf og í þá daga gat hver maður viðsíöðulaust far ið inn í lyfjabúð og keypt það. Nú verður að fá ávísun frá lækni. Ég tók það einu sinni þrjú kvöld í röð, og það lá við, að það kostaði mig lífið. Og það er svo langt síðan, að ég var ',eg bú- inn' bð gleyma því, Af því að við Fellk vorum tvíburar, er mjög sennilegt, að við höfum báðir ver- ið næmir fyrir þessu sama efni. Hvernig svo sem þessu er farið, segir læknirinn, að Felix hljóti að hafa drukkið af þessu tvo— þrjá síðustu dagana, og síðasta inntakan hafi drepið hann. Bróð- ir minn hefur aldrei getað gizkað á það, sem að honum var — það fylgir þessu enginn sársauki, held ur aðeins þessir stóru ljótu flekk- ir — stærri — já, miklu stærri o” bandarbakið manní Tann Otvarpið Laugardagur 22. janúar 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg isútvarp. 13.00 Óska- lög sjúklinga Kristín Anna Þórarinsdóttir kynn ir lögin. 14.30 í vikulokin Þátt ur undir stjórn Jónasar Jónas- sonar. Tónleikar o. fl. 16.00 VeS urfregnir 16.05 Þetta vil ég heyra. Arnór Guðlaugsson verka maður velur sér hljómplötur. 17.00 Fréttir A nótum æskunnar Jón Þór Hannesson og Pétur Steingrímsson kynna létt lög. 17. Í5 Tómstundaþáttur barna og unglinga. Jón Pálsson flytur 18. 00 Útvarpssaga barnanna: „A krossgötum" eftir Aimée Somaner felt. Guðjón Ingi Sigurðsson les þýðingu Sigurlaugar Björnsdótt ur. 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Söngvar 1 léttum tón 18.45 Til kynningar 19.30 Fréttir 20.00 Djassinn fer út til sveita Jónas Jónasson þýðir skýringarnar og flytur þær 20.45 Leikrit „Hvísl aðu þvf að mér“ eftir William Hanley. Þýðandi: Bjarni Bene- diktsson frá Hofteigi Leikstjóri: Benedikt Árnason. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.15 Þorradans útvarpsins. 02.00 Dacskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.