Vísir - 01.07.1974, Side 4

Vísir - 01.07.1974, Side 4
4 Vísir. Mánudagur 1. júli 1974. „Eðlilegt, að Sjálfstœðis- flokkurinn tak- ist á hendur forystu þjóðmálanna" r — segir Matthías A. Mathiesen „Við sjálfstæðis- menn i Reykjaneskjör- dæmi erum mjög ánægðir með þann mikla sigur, sem vannst i þessum kosn- ingum”, sagði Matthias Á. Mathiesen, efsti maður D-listans i Reykjaneskjördæmi, þegar Visir hafði sam- band við hann i morg- un. „ViB, sem valizt höfum til for- ystu fyrir sjálfstæöismenn, þökkum það mikla traust, sem kjósendur hafa sýnt okkur, og allt þaö mikla starf, sem fjöldi flokksmanna hefur lagt af mörkum og gert þennan sigur aö veruleika. Harðvitugri baráttu okkar við vinstri menn hefur lokið þannig, að við getum mjög vel við unað. Fjórir sjálfstæðismenn munu gæta hagsmuna Reykjanesbúa á Alþingi næsta kjörtimabil. Þaö er ljóst, að Sjálfstæðis- flokkurinn er sigurvegari þess- ara kosninga. Ég tel eðlilegt, að I framhaldi af þvi takist hann á hendur forystu þjóömálanna, enda ber að skilja úrslit kosn- inganna sem kröfu kjósenda um þaö”. — BB— Hér situr Axel og eiginkona hans, Guðrún Gisladóttir,, ihópi kunningja að heimili þeirra I nótt og hiusta spennt á nýjustu kosningatölur úr Reykjaneskjördæmi, þar sem D-listinn vann stóran sigur, stærsta sigur kosninganna. r/Beztu kosningaroð vinna í síðan '56 — segir Axel Jónsson, sem situr nú i fyrsta sinn i öruggu sœti ó Alþingi, þótt hann hafi verið þingmaður af og til i 12 ór Volkswagen — Passat — K70 — og Audi-eigendur Eigendum Volkswagen, Passat, K70 og Audi er bent ó að bifreiðaverkstœði okkar verður lokaðvegna sumarleyfa frá 15. júlí til 13. ágúst. „Það hefur ekki verið eins gott og auðvelt að vinna fyrir neinar kosningar hér i kjördæminu siðan 1956”, sagði Axel Jónsson, 4 maður á D-lista I Reykjaneskjör- dæmi I viðtali við VIsi I nótt. Þá var orðið nokkuð ljóst að Axel yrði fjórði þingmaður sjálf- stæðismanna i Reykjaneskjör- dæmi sem uppbótarþingmaður. Axel, sem hefur verið varaþing- maöur þrjú kjörtimabil, sagöi þó, að allur væri varinn góður, þvi að „við höfum verið að sveiflast út og inn um gluggann i hvert sinn, sem nýjar tölur birtast. En I heildina komum við sjálfstæðis menn nokkuð sterkir út hér i kjör- dæminu”. „En það hefur aldrei verið jafn áberandi og i þessum kosningum núna, hvað þingmenn kjördæmis- ins eru fáir miðað við fjölda á kjörskrá”, sagði Axel. „Bak við hvern þingmann hérna i kjördæminu eru um fjögur þúsund og fjögur hundruð atkvæði. Það eru fjórfalt fleiri at- kvæði en þarf til að kjósa hvern þingmann Vestfirðinga. Meðan þetta ástand er óbreytt, er það hreinn skripaleikur. 1 Reykjanes- kjördæmi búa 20% landsmanna, en við höfum aðeins 5 af 49 kjör- dæmakjörnum þingmönnum”. Til að bæta úr þessu taldi Axel, að þyrfti nýja og breytta kjördæmaskipan, jafnvel blöndu af einmenningskjördæmum, meö uppbótarþingsætum. „En það gæti orðiö bráða- birgöalausn að fækka uppbótar- þingmönnunum og fjölga þannig þingmönnum Reykjaneskjör- dæmis, og reyndar lika Reykja- vlkur”, sagði Axel. „Hvert verður aðal hagsmuna- mál Ibúa Reykjaneskjördæmis á næstu árum?” „Stærsta og lang veigamesta málið er það að koma hitaveitu sem viðast um Reykjanesið. Nú þegar er lagning hennar hafin um Kópavog, og næst tekur við Hafnarfjörður. En sér i lagi er það Suðurnesjaveita sem þarf að vinna aö. Stofnkostnaðurinn er mikill, en hann borgar sig á stuttum tima, sem sjá má af þvi, að hitunar- kostnaður I Reykjavik er ekki nema 30% af þeim hitunarkostn- aði, er fólk má almennt búa við á Reykjanesinu”, sagði Axel Jóns- son að lokum. —óH Þó mun deild sú, er framkvæmir skoðanir og eftirlit á nýaf- greiddum bifreiðum, vera opin með venjulega þjónustu. Reynt verður að sinna bráðnauðsynlegum minniháttar viðgerð- um. Ennfremur er viðskiptavinum okkar bent á7að umboðsverk- stæði okkar, Vagninn, Borgarholtsbraut 69, Kópavogi, simi 42285, rekur alhliða Volkswagen-þjónustu. Smurstöð okkar mun starfa á venjulegan hátt. Laugavegi 170—172 — Simi 21240 RÁÐAGÓÐIR ALÞÝÐU- BANDALAGSMENN Kosningafundir rétt fyrir kosningar þykja jafn sjálfsagðir og smjör ofan á brauð. Þvi iögðu fjórir Alþýðubanda- lagsmenn i Norðurlandskjör- dæmi eystra upp i það að halda almennan kosningafund i Hris- ey nokkrum dögum fyrir kosn- ingar. Þeir vissu fyrirfram að varla væri að vænta teljandi að sóknar að fundinum, þvi að i Hrisey errikjandi,,hið svartasta ihald”, eins og einn þessara Al- þýðubandalagsmanna komst að orði. Ekki bætti það úr skák, að þegar þeir komu út I eyna, var 29 stiga hiti og glampandi sól- skin. Ekki virtist viðlit að nokk- urn væri hægt að toga á fund. En innan um voru ráðagóðir menn, og var slegið upp útifundi að sið „Ihaldsins i Reykjavik”. 25% eyjabúa sóttu fundinn, sól- uðu sig og hlustuðu á ræður Alþýðubandalagsmannanna — samtals 50 manns. örugglega met á útifundi — að sjálfsögðú miðað við fólksfjölda. — ÓH.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.