Vísir - 01.07.1974, Side 5
FYRST SONURINN SKOTINN
NÚ MÓÐIRIN EFTIR 6 ÁR
Fjallið klofnaði og
féll yfir biðröðina
a veginum
Björgunarmcnn gizkuðu á það i
gærkvöldi, gð 250 manns hcfðu
farizt undir milijónum smálcsta
af leir og grjóti, sem féll i gifur-
legri skriðu á þjóðveg í Kólumbíu
og molaði undir sér fólksbila,
flutningavagna og rútur, rétt eins
og væru það leikföng ein.
Skriðan féll einmitt á bilalest-
ina, þegar hún beið eftir þvi, að
vegagerðarmenn lykju viðgerð
vegna skemmda frá smáskriðu,
sem fallið hafði á veginn fyrr.
„Fjallið hreinlega klofnaði i
tvennt, og hrundi siðan yfir fólk
og bila, malandi allt undir sér,”
sagði prestur einn, sem var sjón-
arvottur að slysinu. — Skeði þetta
aðeinsrúma 100 km frá höfuðborg
Kólombiu, Bogota.
Björgunarsveitir hófust þegar
handa við að grafa i skriðuna til
þess að bjarga fólkinu, en yfir
þeim vofði frekari skriðuföll úr
hliðunum fyrir ofan. Miklar rign-
ingar hafa gengið þarna yfir að
undanförnu og losað jarðveginn.
Luther Kings jr., sem var ráðinn
af dögum 1968, var skotin við
morgunguðsþjónustu i kirkju
Ebenezerar skirara. Hóf stúdent-
inn skothriðina um leið og kórinn
hóf sönginn.
„Honey, hvar finnurðu til?”
spurði eiginmaðurinn, hinn 74 ára
gamli sóknarprestur, sem hafði
ekki verið að predika að þessu
sinni, heldur setið i stúkunni
skammt frá og hlaupið til konu
sinnar, þegar hann sá hana hniga
fyrir skoti.
„Hún reyndi að segja mér eitt-
hvað,” sagði hann eftir á. „En
hún hafði það aldrei af.”
Þeir, sem viðstaddir voru,
sögðu að byssumaðurinn hefði um
orð, að hann hefði drepið prest-
frúna vegna þess „að hún er
kristin og allir kristnir eru óvinir
minir”. — Lögreglan segir, að
blökkustúdentinn hafi sagt þeim,
að i rauninni hafi hann ætlað að
skjóta séra Martin Luther King,
en frúin hafi verið næst honum.
Martin Luther King. jr. blökkumannaleiðtógi var myrtur 1968.
Móðir Martins Luthers
King var skotin til bana í
gær i sömu kirkjunni, þar
sem sonur hennar predik-
aði forðum frið með mönn-
um. — Hún var að leika á
orgelið, meðan á guðsþjón-
ustu stóð, þegar skothríðin
dundi skyndilega yfir.
Djákninn lét sömuleiðis
lifið, vegna skotárásarinn-
ar, og annar safnaðarmeð-
limur særðist.
Lögreglan handtók skotmann-
inn, 21 árs blökkustúdent Marcus
Wayne Chenault að nafni, en hann
sagðist hafa komið til Atlanta i
áætlunarbil á laugardag. Þegar
lögreglan gerði leit i ibúð hans
heimaiColumbus i Ohio, fann hún
lúða bibliu og lista með nöfnum
nokkurra leiðtoga úr mannrétt-
indabaráttu blökkumanna.
Telur lögreglan ekkert benda til
þess, að fleiri hafi verið i vitorði
með stúdentinum. „Hann er bara
brjálaður,” sögðu lögregluménn
aðspuröir um, hver mundi haifa
verið tilgangur morðingjans.
Þrir forvigismenn blökku-
manna segjast sannfærðir um, að
morðið á frú Kip(g sé liður i stærra
samsæri. Nöfn :þessara þriggja,
séra Ralp Abernathy, séra Jesse
Jackson og Hosea Williams, voru
reyndar á nafnalista Chenaults,
sem fannst i ibúð hans.
Nafnið King var lika á listan-
um, en ekkert fornafn.
Kunningjar Chenaults i Ohio-
rikisháskólanum lýsa honum svo,
að hann hafi fengið trúarbrögð æ
meir á heilann og( haldið þvi
fram, að kristnin hefði ekkert
fært blökkumönnum neitt gott.
Hin 69 ára gamla móðir Martin
Frú Isabel
tekur við
af Peron
Isabel Peron, varaforseti
Argentinu, sór á laugardaginn eið
sem bráðabirgðaforseti-landsins i
veikindaforföllum manns sins
Juan Perons, forseta. Hann þjáist
af alvarlegum blóðsjúkdómi, sem
hefur hrjáð hann um nokkurn
tima. Sagt er, að heilsu hans hafi
enn hrakað yfir helgina, en for-
sctinn er 78 ára.
Juan Peron varð forseti Argen-
tinu og kona hans varaforseti i
september s.l., þegar hann sneri
heim eftir 18 ára útlegð. Á þeim
tima kynntist hann konu sinni,
sem nú er 43 ára. Maria Estela
Peron tók upp nafnið Isabel eftir
að hún kynntist Peron i Panama,
tsabel varaforseti undirritar
nauðsynleg skjöl, áður en hún
tekur við embætti af Peron.
bar sem hún var dansmær.
A morgun bárust þær fréttir, að
æöstu menn hersins, leiðtogar
verkalýðshreyfingarinnar og for-
ingi stjórnarandstöðunnar hefðu
allir heitiö frú Peron hollustu.
Þessi mynd var tekin úti fyrir kirkjudyrum, meðan fólk beið frétta og skýringa á skothvellunum, sem
kváðu við inni i kirkjunni. ,
Visir. Mánudagur 1. júli 1974.
5
P/IMTB I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÖND I MORGUN
HERINN VID VÖLD í EÞÍÓPÍU
24 FÓRUST f BRUNA
Herinn i Eþiópiu tók völdin i
iandinu nú um hclgina. Eftir
vaidatöku sina hófust hermenn
handa um að fangelsa aðalsmenn
og stjórnmálaleiðtoga. Ýmsir af
nánustu ráðgjöfum Haile
Selassie, keisara, hafa verið
handteknir.
Talsmenn hersins hafa skýrt
frá þvi, að Abiye Abeba, utan-
rikisráðherra, og formaður keis-
araráðsins séu i hópi hinna hand-
teknu. 1 yfirlýsingu hersins, sem
lesin var i gær, segir, að herinn
styðji keisarann og beri hag þjóð-
arinnar fyrir brjósti. A laugar-
dagskvöld var fyrirskipað út-
göngubann i höfuðborginni Addis
Abeba. Um nóttina heyrðist slitr-
ótt skothrið nokkrum sinnum, en i
gær varalltmeðkyrrum kjörum i
höfuðborginni.
Valdataka hersins hófst með
þvi á föstud.kvöld, að hermenn
tóku yfirstjórn útvarpsstöðva,
bæði stöð rikisútvarps Eþiópiu og
stöð Lútherska heimssambands-
ins, sem er i Addis Abeba. Við þá
stöð starfar sr. Bernharður Guð-
mundsson. Fréttastofur greina
ekki frá beinum átökum við inn-
hlaup hersins i stöðvarnar. En
starfsmönnum þeirra var skipað
að senda út ákærur á hendur 25
fyrrverandi ráðherrum, herfor-
ingjum og öðrum embættismönn-
Richard Nixon, Bandarikjafor-
seti, var um helgina gestur
Leonid Brezhnev, flokksleiðtoga,
við Svartahaf. Þeir hittust þar á
löngum fundum, en litið hefur
verið látið uppi um árangur
þeirra. Forsetinn lét þau orð ein
falla, að þeim hefði miðað vel i
viðræðum sínum. Fréttamenn
scgja hins vcgar, að litið mark-
vert hafi gerzt i viðræðunum.
I morgun héldu bandarisku for-
setahjónin aftur til Moskvu, en á
leiðinni þangað hafa þau viðdvöl i
borginni Minsk, þar sem Nixon
um, sem herinn telur gjörspillta.
Fregnir benda einna helzt til
þess, að með valdatöku sinni ætli
-herinna.m.k. fyrst að hreinsa til i
embættismannakerfi Eþiópiu.
Ollum eþiópiskum rikisborgurum
hefur verið bannað að fara úr
landi.
leggur blómsveig á minnisvarða
um hermenn, sem féllu i heims-
styrjöldinni. Þeir Brezhnev og
Nixon hittast aftur i Moskvu á
morgun, en i dag munu þeir ræð-
ast þar við Henry Kissinger og
Andrei Gromyko, utanrikisráð-
herra Sovétrikjanna.
Nixon heldur til Bandarikjanna
á miðvikudag. Ferð hans hefur
fram til þessa einkennzt af undir-
ritun samninga um viðskipta- og
menningarmál. Hins vegar hefur
minna miðað i viðræðum um ör-
yggis- og hermál.
24 unginenni, sem voru að
skemmta sér i „diskóteki” i bæn-
um Port i New York, fórust, þeg-
ar hljómplötukjallarinn brann.
Önnur 27 unginenni urðu að
leita sér læknisaðstoðar vegna
reykeitrunar, og voru 15 lögð inn
á sjúkrahús.
Rokk-hljómsveitin The
Creation lék fyrir dansi, þegar
fyrirliði hennar var beðinn um að
tilkynna.að eldur léki laus. Fljót-
Dansari fíýr
Enn einn af meistaradönsunum
Kirov-ballettsins i Leningrad hef-
ur flúið til Vesturlanda. Hann er
fjórði flóttamaðurinn frá ballett-
flokknum á 13 árum. Dansarinn
heitirMikhail Barichnikov og er 26
ára gamall.
Hann er sagður hafa gerzt
flóttamaður, eftir að dansflokkur
hans „Stjörnurnar frá Bolshoi”
lauk sýningu sinni i Toronto i
Kanada á laugardagskvöld. Fór
lega varð fólk gripið örvænting-
aræði, þegar Ijósin slokknuðu og
salinn fyllti af reyk.
Troðust þá margir undir.
Þetta var i þriðja sinn, sem hús
þetta brennur. Aður brann þar
kaffihús Lucyar, og svo brann þar
matstofa OPG. Núna i þessari
þriðju eyðileggingu skemmdist
lika mikið aðliggjandi keiluspils-
salur.
að austan
hann i felur meö Christina Berlin,
sem er bandarisk vinstúlka hans.
Þau kynntust fyrir þremur árum i
London, þegar Barichnikov kom
fyrst fram á Vesturlöndum.
Rudolf Nureyev var fyrsti
flóttamaðurinn frá Kirov 1961.
Natalia Makarova fetaöi i fótspor
hans 1970. Valery Panov og kona
hans, Galina, fengu leyfi til að
flytjast til Israel fyrir þremur
vikum eftir 26 mánaða baráttu
viö sovézk stjórnvöld.
Nixon til Minsk