Vísir - 01.07.1974, Side 7
Vísir. Mánudagur 1. júli 1974.
7
Leiðin að hjarta konunnar
Sennilega eru nú
margir vansvefna, en
þurfa samt að halda
upp á daginn vegna
kosningasigra. Svo eru
aðrir, sem hafa orðið
fyrir vonbrigðum með
kosningarnar. Báðum
er þó það sammerkt, að
ekki veitti af góðri mál-
tið, helzt með gómsætu
borðvini með, og
slappa svo vel af, eins
og við segjum.
Þó a6 Burt Reynolds sá frægi
kvikmyndaleikari og einn af
þeim fyrstu, sem lét tilleiðast að
sitja fyrir nakinn, gefi sinar
uppskriftir aðallega svo, að
karlmennirnir geti komizt að
hjarta sinnar heittelskuðu, þá er
ekkert athugavert fyrir kven-
fólkið að fara eftir uppskriftun-
um. Að visu segir Burt Reynolds
okkur, að fleiri leiðir séu að
hjarta konunnar en að gefa
henni gott að borða. Blóm, gefin
af svo sem engu tilefni, litill
koss á kinnina, skilningur og
gáfulegar samræður eiga mjög
vel við. Hvort kvenfólkið á að
fara eftir þessum ráðlegg-
ingum? Hvi ekki? 1 stað blóm-
anna gæti komið einhver smá-
gjöf, sem kæmi sér vel.
Það gildir það sama um bæði
kynin, að það þarf að búa til
matinn með einlægum vilja til
að fá sem skemmtilegast and-
rúmsloft. Það þarf að vera lagt
fallega á borð, kertaljós saka
auövitað ekki, þó að þau eigi
kannski ekki við núna, þegar
lengstur er dagurinn.
Maturinn þarf ekki endilega
að vera margbrotinn. Og auð-
vitað eiga svo bæði að vaska upp
saman á eftir.
Hér koma svo uppskriftirnar:
Marineruð
grilluð steik
Nautakjöt, sem er um 7 sm
þykkt. Marinerið steikina i 1
msk. sitrónusafa, 1/2 bolla
soyusósu, 1/2 teskeið Wor-
chesterhire sósu, um 1/2 tsk. af
papriku og enn minna af engi-
fer , 1 tsk sykur, 1/2 hvitlauks-
bátur marinn og 2 matskeiðar af
góöu koniaki.
Látið steikina marinerast i
þessu i að minnsta kosti 30
minútur, jafnvel i klst. Eitt sem
þarf að muna vel i sambandi við
steik, er að fólk vill hafa hana
mismikið steikta. Ef nú annað
ykkar vill hafa hana vel steikta
en hitt ekki, þá er hér ráð: Steik-
ið fyrst steikina i heilu lagi, eins
og sá vill hafa hana, sem vill lit-
ið steikt. Siðan eru skornar
sneiðar af, sem hæfa hinum.
Panna er hituð vel, sett á hana
smjör og sneiðarnar steiktar
báðum megin, svona eins og i
minútu hvorum megin. Takið
steikina af pönnunni, setjið að-
eins sitrónusafa út i smjörið,
aðra skeið af koniaki og aðeins
Worchestershire sósu. Látið
þetta sjóða saman og hellið yfir
steikina ykkar.
Bakaðar
kartöflur
ALA Reynolds
Ef þið ætlið að hafa bakaða
kartöflu með steikinni, þá mun-
ið, að hún þarf að bakast i 1 klst.
Hafið hitann á 250, þegar hún er
sett inn i. Penslið hana með oliu
áöur, það gerir hýðiö (skrælið)
stökkt, ef þið ætliö að borða það
Ferskt grœn-
metissalat
IIMfiM
IM
Umsjón:
Erna V.
Ingólf sdóttir
ar, 1/2 tsk dálitið sterkt sinnep
og 1 bátur marinn hvitlaukur.
Ostabrauð
inni í ofni
10 minútum áður en þið berið
fram matinn, setjið þið inn i ofn-
inn með kartöflunum 4 þykkar
sneiðar af franskbrauði smurt
með smjöri og rifnum osti,
ásamt svoiitlu hvitlaukssalti og
papriku, til þess að fá fallegan
lit.
Þar sem litið er um fersk
jarðarber hér á Islandi en við
getum yfirleitt alltaf fengið
banana, stingum við upp á ban-
ana-desert.
Bananar
með ís
1 msk. smjör, 2 msk. púður-
sykur, 1 vel þroskaður banani, 1
msk. af koniaki eða einhver
góður likjör, 1/2 1 is.
Bræöið smjörið á pönnu, setj-
ið sykurinn saman við. Þegar
það hefur samlagazt, skerið þið
bananann niður langsum og
setjið út i. Látið hann steikjast
við vægan hita, þangað til hann
er meyr. Setjið vinið yfir og
hellið yfir isinn.
Eins og tvo salathausa 1/4
agúrka og nokkrar sneiðar af
lauk. Salatið er þvegið vel og
þurrkað og skorið niður, gúrkan
skorin i þunnar sneiðar. Ef þið
notiö ekki beikon i kartöfluna,
þá setjið það i salatið. Það er
mjög gott. Ef hægt er að fá
ferska sveppi, þá er gott að
skera þá þunnt og setja nokkra
saman við. Setjið salt og pipar
og svolitinn sitrónusafa yfir.
Rétt fyrir matinn er hrært upp
i salatinu og sósan sett yfir.
Sósan.6 msk. matarolia, 2 og
1/2 tsk sitrónusafi eða edik, 1
tsk. sykur, 1 tsk salt, 1/2 tsk pip-
Leikarinn Burt Reynolds er m.a. frægur fyrir að vera með fyrstu karlmannafyrirsætum i
Bandarfkjunum, sem sat fyrir nakinn.
Burt Reynolds segir okkur, hvernig eigi að kokka fyrir sfna heittelskuöu, hvort sem það er nú kærastan
eða eiginkonan.
meö. Bakið kartöfluna, þangað
til hún er orðin mjúk i gegn eða
u.þ.b. 1 klst.
Aður en þið berið fram
kartöfluna, setjið hana i dálitið
þykkan pappir t.d. margfalda
þurrku. Haldið fast utan um
hana og skerið i hana með gaffli
yfir miðjuna. Kreistið kartöfl-
una varlega neðan frá og upp.
Þetta gerir alla kartöfluna
mjúka i staðinn fyrir aðeins
yfirborðið, þar sem þið setjið
smjörklump á eða svolitið
creame fraiche. Gott er að setja
lika ofurlitið steiktan beikon-
bita ofan á eða t.d. kaviar.
Með máltiðinni passar vel að
bera fram niðurskorna tómata,
stráðum ofurlitlum sykri, eða ef
þið viljið ekki bara sykur, þá
salt og pipar, ásamt dálitlum
sykri. Eða lika að bera fram
ferskt grænmetissalat með.