Vísir - 01.07.1974, Síða 10
Sá bezti hér
y
á landi í ár
— og Reykjavíkurúrvalið sigraði með 3-0
Úrvalsliö Reykjavikur i knatt-
spyrnu vann mjög sannfærandi
sigur á úrvalsliði „landsins” á
Laugardalsvellinum um miðjan
dag I gær, en leikurinn var liður i
hátiðahöldum þjóðhátiðarársins.
Lokatölur urðu 3-0 fyrir
Reykjavikurúrvalið — en leikur-
inn var bráðvel leikinn, bezti
knattspyrnuleikur, sem háður
hefur verið hér á landi i ár.
Talsverð forföll voru i báðum
liðum frá þvi sem þau voru
upphaflega valin — einkum þó hjá
„landinu”, þar sem Vestmanna-
eyingar komust ekki til leiks, og
þrir Keflvikinga meiddir. Liðið
hafði enga varamenn og lék Þor-
steinn ólafsson, markvörður
Keflavikur úti á vellinum framan
af leiknum og var einn sterkasti
maður liðsins — en ómar Karls-
son, FH, lék i marki. í siðari hálf-
leiknum kom landsliðsþjálfarinn
Tony Knapp hins vegar i lið
„landsins” og Þorsteinn fór i
markið.
Lið Reykjavikur var að mestu
skipað leikmönnum úr Viking og
Fram, auk tveggja Valsmanna.
Fimm Vikingar — svo þeir fengu
að leika þrátt fyrir ummæli þjálf-
ara liðsins hér i föstudagsblaðinu
— og fjórir úr Fram. Kjarninn i
liði „landsins” var frá Akranesi
fimm, þrir úr FH, tveir úr Kefla-
vik og einn frá Breiðabliki, auk
Knapps.
Bráðskemmtilegum köflum brá
fyrir i leiknum, en Reykjavikur-
liðið var þó alltaf skerkari aðil-
inn. Fyrsta mark leiksins var
skorað á 24. min. Eirikur Þor-
steinsson, bakvörður, lék upp og
inn að vitateig. Þar spyrnti hann
á markið. ómar hélt ekki knettin-
um og Jóhánnes Bárðarson, sem
fylgdi fast á eftir, renndi honum i
markið. Rétt á eftir átti Reykja-
vik stangarskot, en „landið” svo
sitt bezta tækifæri, þegar Leifur
Helgason, FH lék i gegn — á Arna
markvörð, en hikaði svo við að
ýta knettinum i opið markið, að
varnarmanni tókst að spyrna
knettinum i hórn.
I siðari hálfleiknum lék
Reykjavikurliðið undan snörpum
vindinum og skoraði þá tvivegis.
Fyrst Kristinn Björnsson, eftir
hornspyrnu, sem Gunnar Orn
Kristjánsson tók vel og Marteinn
Geirsson skallaði fyrir fætur
Kristins. Af siðara markinu átti
Kristinn allan heiður. Hann lék i
gegn — framhjá Þorsteini og gat
svo rennt knettinum i markið.
Valdi heldur að senda á Jóhannes
Edvaldsson, sem einnig stóð fyrir
opnu marki, og Jóhannes skoraði.
Þarna var vörn „landsins” illa á
verði.
Vörn Reykjaikurliðsins var
sterk með Vikingsbakverði og
Frammiðverði — og þar vakti
einkum stórgóður leikur Eiriks
mikla athygli. Þá voru Jóhannes,
Asgeri Eliasson og Gunnar örn
góðir framverðir — og framlinu-
mennirnir hættulegir, Jóhannes
Bárðarson eldfljótur og ungu
piltarnir úr unglingalandsliðinu,
Kristinn og Óskar Tómasson,
eflaust með hverjum leik.
Matthias Hallgrimsson lét
langmest að sér kveða hjá
„landinu” og var óheppinn að
skora ekki. FH-ingarnir Leifur og
Janus Guðlaugsson, kornungir
piltar, stóðu vel fyrir sinu — en
vörnin var heldur slöpp. Óli Olsen
dæmdi leikinn. —hsim.
Matthias Hallgrimsson, Akranesi, var skæðastur framlinumanna „landsins” þótt honum tækist ekki að
skora i leiknum. Hér er hann með knöttinn — kominn framhjá Jóni Péturssyni, Fram, en Grétar
Magnússon, Keflavik, fylgist með. Ljósmynd Bjarnleifur.
Fyrstí sigur Póllands gegn
Júgóslavíu á réttum tíma!
Pólverjar mœta nú Vestur-Þjóðverjum í hreinum úrslitaleik í B-riðlinum á HM
Pólland — drifiö áfram
af stórgóöum leik vinstri
útherjans, Gadocha, — hélt
sigurgöngu sinni á HM
áfram í gær í Frankfurt,
þegar pólska liðið vann
Júgóslavíu meö 2-1 og er
þar meö enn eina liðið á
HM, sem sigrað hefur í öll-
Knútur
sig við
Knut Kvalhcim setti
norskt met i 3000 metra
hindrunarhlaupi á móti i
Veserás i Sviþjóð á föstu-
dagskvöld. Það er annað met
hans á þremur dögum.
Knut hljóp vegalengdina á
8:25.2 min. og bætti eigið met
um sex sekúndubrot. A mið-
vikudag bætti hann norska
metið I 5000 m glæsilega,
hljóp á 13:20.4 á móti I
Heisinki, en bróðir hans
Arne áttieldra metið á þeirri
vegalengd.
um leikjum sínum. Nokkur
heppnisstimpill var á hin-
um pólska sigri að þessu
sinni — Júgóslavar voru
óheppnir, þó mest að þurfa
að leika án sinna tveggja
beztu leikmanna megin
hluta leiksins. Nú er aðeins
ein hindrun eftir á vegi
Knut varð i öðru sæti i
hindrunarhiaupinu i Vestar-
ás — Anders Gærderud, Evr-
ópumethafinn, sigraði á
8:24.2 min. Bezta afrek
mótsins vann Jim Boldin,
USA, i 400 m. grindahlaupi —
hljóp vegalengdina á 48,6
sek. sem er bezti timi i heim-
inum I ár. Len Hilton, USA,
sigraði i 1500 m. hiaupi á
3:40.4 min. en Arne Kval-
lieim varð annar á sama
tima.
pólska liðsins í úrslitin —
og það er erfið hindrun,
vestur-þýzka landsliðið.
Pólverjar úáðu forustu i leikn-
uih i Frankfurt á 26. min. þegar
dæmd var vitaspyrna á Stanis-
sval Karasi, sem felldi Szarmach
innan vitateigs, þó svo knötturinn
væri tiu metra frá þeim — og
Deyna, fyrirliði Póllands, skoraði
úr vitinu. Þessi vitaspyrnudómur
kom áhorfendum mjög á óvart.
Karasi bætti brot sitt upp á 43.
min. þegar hann jafnaði fyrir
Júgóslaviu með föstu skoti af átta
metra færi. Hann hafði sjálfur
leikið I gegn á glæsilegan hátt.
Sigurmark Póllands skoraði Lato
á 63. min. — skoraði með hreint
frábærum skalla eftir að Gadocha
hafði tekið hornspyrnu. Þetta var
sjötta mark hans á HM — hann er
þar nú einn markhæstur.
Sigurinn færði Pólverjum fjögur
stig i riðlinum eins og Vestur-
Þjóðverjar hafa, en Vestur-Þjóð-
verjum nægir jafntefli i leiknum á
miðvikudag vegna betri marka-
tölu. Júgóslavar eru hins vegar úr
leik — siðasti leikur þeirra á HM
við Svia breytir engu.
Fyrirliði Júgóslaviu og bezti
maður liðsins, Dragan Dzajic,
veiktist hastarlega fyrir leikinn
og gat ekki leikið — og á 16. min. i
leiknum varð Júgóslavia fyrir
öðru áfalli. Hinn frábæri fram-
vörður Oblak meiddist og var
borinn af velli. Varamaður hans,
Jure Jerkovic, lék þó mjög vel —
og hann átti sendinguna, þegar
Karasi skoraði.
En Pólverjar sluppu heldur
ekki heilir frá leiknum. Szarmach
meiddist og varð að vikja af velli i
siðari hálfleik, en ekki var vitað
hve meiðsl þessa markakóngs eru
alvarleg — og rétt i lok leiksins
meiddist markvörðurinn frægi,
Tomaszewski, og var studdur út
af haltrandi. Hann slasaðist á
ökkla.
Eftir mark Lato lögðu Pólverj-
ar megináherzlu á vörnina —
jafnvel ánægðir þó svo leikurinn
færi niður i jafntefli. En sóknar-
lotur Júgóslava höfðu litla hættu i
för með sér — þar féllu Slavarnir
oftast á þvi að reyna einni send-
ingu of mikið fyrir framan mark-
ið. Tomaszewski réð einnig mjög
vel viðhásendingar fyrir markið.
t vörn Póllands vakti Gorgon
eins og áður mesta athygli — hik-
laust einn bezti miðvörðurinn á
HM — en maður leiksins i pólska
liðinu var þó Gadocha, Legia-
leikmaðurinn frægi. Þetta er i
fyrsta skipti, sem Pólverjar sigra
Júgóslava i landsleik i knatt-
spyrnu — og ekki er hægt að segja
annað en hann hafi komið á rétt-
um tima.
Áföll hjá
KR-ingum
— Tveir menn
fótbrotnuðu
í síðustu viku
t leik Akraness og KR á
laugardaginn fótbrotnaði
hinn harðskeytti miðherji
KR, Jóhann Torfason, og
mun hann verða frá I a.m.k.
tvo mánuði.
Hann lenti i samstuði við
markvörð Akurnesinga, og
var höggið það mikið að
leggurinn brotnaði. Þetta er
mikið áfali fyrir KR-inga,
þvf Jóhann hefur verið
drjúgur að skora fyrir liðiö —
skoraði m.a. I leiknum á
Akranesi — og ætið skapaö
mikla hættu við mörkin.
Fyrr i vikunni misstu KR-
ingar annan mann, Þorvarð
Höskuldsson vinstri bakvörð
liðsins, sem var skorinn upp
með brotna hnéskei daginn
eftir leikinn viö Fram.
Hann lenti i samstuði
snemma i leiknum, en hélt
samt áfram að leika og lék i
einar 70 minútur með aðra
hnéskelina brotna.
Tony Knapp sagöi I viðtali
við blaðið i gær, að þetta
væri mikið áfall fyrir liðiö,
en viö svona löguðu mætti
alltaf búast I hörðum leikj-
uin. 1 báðum tilfellunum
væri engum um að kenna,
þetta hafi verið hrein ó-
heppni. „En við klórum okk-
ur fram úr þessu á einhvern
hátt og verðum áfram með I
baráttunni”, sagði hann.
-kip-