Vísir - 01.07.1974, Side 11

Vísir - 01.07.1974, Side 11
.Visir. Mánudagur 1. júlí 1974. 11 l/MM 74 Heimsmeistarakeppnin 13. júní — 7. júlí 1974 Hreinir úrslitaleikir háðir í báðum riðlum! en Hollendingum nœgir jafntefli gegn Brazilíu, og V Þýzkalandi gegn Póllandi Aðeins ein umferð er nú eftir i riðlakeppninni á HM í Vestur-Þýzkalandi/ en samt er ekki hægt að segja með nokkurri vissu hvaða tvö lið koma til með að leika til úrslita í keppninni. Eftir leikina i gær eru þó aðeins f jögur lið/ sem koma til greina/ heimsmeistarar Brazilíu, Holland, Pólland og gest- gjafarnir Vestur-Þýzka- land. Fjögur lönd heltust úr lestinni i gær eftir tap- leiki — það eru Júgó- slavía, Argentína, Sví- þjóðog Austur-Þýzkaland Svlinn Edström skoraöi fyrsta markiö I leik Vestur-Þýzka- lands og Svíþjóöar í gær. — þau koma ekki til greina í fjögur efstu sæt- in, þar sem þau hafa tap- að baðum leikjum sínum í Aog B riðlunum. Holland vann Austur-Þýzkaland 2- 0 og Brazilia vann Argen- tinu 2-1 í A-riðlinum, Pól- land vann Júgóslaviu 2-1, og Vestur-Þýzkaland vann Svíþjóð 4-2 í B-riðl- inum í leikjunum í gær. Svo skemmtilega vill til, aö það verða hreinir úrslitaleikir I báðum riðlum um það hvaða lið komast i úrslit I keppriinni. 1 A- riðlinum leika Holland og Brazi- lia og i B-riðlinum Pólland og Vestur-Þýzkaland. öll löndin hafa fjögur stig i riðlinum — hafa unnið báða sina leiki, en Hollendingar og Vestur-Þjóð- verjar standa að þvi leyti betur að vigi, að þeim nægir jafntefli i leikjunum á miðvikudaginn til að komast i úrslit. Holland hefur mun betri markatölu en Brazi- lia i A-riðlinum og sama er að segja um Vestur-Þýzkaland gagnvart Póllandi i B-riðlinum. Markatala kann þvi að ráða úrslitum — og þá vaknar sú spurning hvort hið nýja keppnisfyrirkomulag sé ekki lakara en það, sem áður var keppt eftir. Það er útsláttar- keppni, þar til tvö lið stóðu uppi, sem léku til úrslita. Segjum til dæmis að Pólverjar geri jafn- tefli við V-Þýzkaland. Það næg- ir Þjóðverjum, en hins vegar verða Pólverjar þá úr leik i keppninni um heimsmeistara- titilinn, þó svo liðið hafi ekki tapað leik i HM-keppninni. Litið réttlæti i þvi — og sama á alveg við um Hollendinga eða Brazi- liumenn. Hvorugt liðið hefur enn tapað i keppninni og verði jafntefli dettur annað út — án taps. En hvað sem þessum hug- leiðingum liður þá verður ekki aftur snúið. Þegar hafa taplaus lið orðið að halda heim — samanber Skotland. En við skulum nú lita á stöð- una i riðlunum. A-riðill Holland Brazilia A-Þýzkaland Argentina 2 2 0 0 6-0 4 2 2 0 0 3-1 4 2 0 0 2 0-3 0' 2 0 0 2 1-6 0 B-riðill V-Þýzkaland 2 2 0 0 6-2 4 Pólland 2 2 0 0 3-1 4 Sviþjóð 2 0 0 2 2-5 0 Júgóslavia 2 0 0 2 1-4 0 Siðasta umferðin verður svo á miðvikudag og leika þá Holland og Brazilia i Dortmund, en Vestur-Þjóðverjar og Pólverjar i Frankfurt. Auk þess leika Austur-Þjóðverjar og Argen- tinumenn i Gelsenkirchen og Júgóslavia og Sviþjóð i Dusseldorf. Þessir tveir siðast- töldu leikir skera úr um röðina frá 5.-8. i keppninni. Keppnin um 3ja sætið i keppn- inni verður svo næstkomandi laugardag i Munchen, og daginn eftir verður sjálfur úrslitaleik- urinn — sunnudaginn 7. júli á Olympiuleikvanginum i Munchen. — hsim. Gæzla lögreglunnar hefur aukizt meö hverjum degi á HM, enda moröhótanir gagnvart einstökum leik- mönnum eöa heilum liöum nær daglegir viðburðir. A myndinni streyma lögregiumenn á Wald-leikvang- inn i Frankfurt. SPAHNAÐUR Stórlækkun á byggingakostnaði. Thoroseal, múrhúðun, Thoroseal endist eins og steinninn, sem það er sett á. Það er ekkert "undraefni" heldur efni, sem byggingariðnaðurinn i 42 löndum hefur viðurkennt. Nú á timum sihækkandi byggingarkostnaðar er Thoroseal merkilegt framlag til lækkunar kostnaðar við ytri sem innri frágang húsa. í stað þess að múra húsið að utan, bera á það vatnsþétting og litun þéttiefni og mála það siðan 2-3 sinnum, getur húsbyggjandi unnið sjálfur við að bera Thoroseal á veggina og er hann þá í senn búinn að vatnsþétta, múrhúða og lita. Thoroseal er til I 10 litum. Thoroseal flagnar ekki af. Thoroseal "andar” án þess að hleypa vatni í gegn. Thoroseal er áferðarfallegt. Thoroset Metallic stálgólf Thoroset Metallic er sett á gólfið um leið og þat er steypt. Þetta efni inniheldur stálagnir, sem fjórfalda slitþol gólfsins og eykur höggstyrk um 50%. I vinnusölum, þar sem þungar vinnuvélar fara um gólf, hefur efnið reynst framúrskarandi vel. P&W Það er sett á gólf eftir að platan hefur verið steypt. Þetta efni er glær vökvi, sem er borinn á gólfið. Slitþol þrefaldast og höggstyrkur eykst um 25°o. steinprýði BORGARTÚNI 29 SÍMI 28290

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.