Vísir - 01.07.1974, Side 12
t
Vísir. Mánudagur 1. júli 1974.
Umsión: Hall
þrívegis hjá
sínum gamla markverol
— og Akureyringar sigruðu Fram á Laugardalsvelli 3:2
Þeir eru mark-
hœstir á HM!
Gregorz Lato, sem skoraði sigur-
mark Póllands i leiknum gegn Júgó-
slaviu I HM-keppninni I gær, er nú
markhæsti maður keppninnar með 6
mörk i fimm leikjum. Annars eru
markhæstu menn þessir:
Gregorz Lato, Pólandi
Andrzej Szarmach, Póllandi
Jonny Rep, Holiandi
Ralf Edström, Sviþjóð
Dusan Bajevic, Júgósl.
Johnny Neeskens, Hollandi
Kazimierz Deyna, Póliandi
Rivellino, Brasiliu
Þú koma eliefu menn með 2 mörk
hver og eru þar m.a. Cruyff Hollandi,
Houseman, Argeninu, Muller, Breitner
og Overath Vestur-Þýzkalandi og Ro-
land Sandberg Sviþjóð, svo aö ein-
hverjir séu nefndir.
Holland
og Pólland
í úrslit!
Alfredo di Stefano, hinn fyrrum
frægi leikmaður meö Real Madrid,
segipaðPólland og Holland leiki til úr-
slita I heimsmeistarakeppninni á
Ólympiuleikvanginum I Múnchen hinn
7. júli. Hann segir:
„önnur lið i keppninni hafa ekkert
sýnt nýtt, en það hafa hins vegar
Ólympiumeistarar Póllands og Holl-
endingarnir fljúgandi gert. önnur lið
hafa ekki átt svar við leikni þeirra
hingað til”.
Sveik út 100
þúsund mörk!
Saksóknari Múnchen-borgar hefur
nú hafið rannsókn á ákærum á hendur
manni nokkrum, sem sagður er hafa
svikið 100 þúsund mörk af knatt-
spyrnuáhugamönnum. Maðurinn hafði
lofað fólki miðum á heimsmeistara-
keppnina — en svikizt um það. Lög-
regla borgarinnar segir, að maðurinn
hafi þegar eytt öllum peningunum i
spilavitum.
Orðinn plötu-
sali í Munchen
Henry Francillon, markvörður Haiti
á HM, selur nú fólki plötur með „heitri
músik” i verzlun i Múnchen. Hann
segir, að það muni hafa ofan af fyrir
honum, þar til hann byrjar að æfa og
leika með þýzka 2. deildarliðinu
Múnchen 1860 næsta keppnistimabil.
Francillon fékk á sig 14 mörk i HM-
leikjunum þremur, en sýndi þó snilld-
armarkvörzlu — það svo, að mörg
félög reyndu að fá hann til sin.
Otlitið hjá bikarmeistur-
' unum Fram eftir fyrri um-
ferð 1. deildarkeppninnar
er nú orðið heldur Ijótt.
Þeir eru aðeins með 3 stig
eftir 7 leiki — 2 stigum á
eftir næsta liði, sem er IBA
og 8 stigum á eftir efsta
liðinu, sem er ÍA.
A föstudagskvöldið versnaði út-
I litið hjá þeim allverulega, en þá
töpuðu þeir — „á heimavelli” —
) fyrir Akureyringum, en það tap
kom mörgum mjög á óvart.
\ Almennt var talið, að Akureyr-
ingar næðu ekki stigi af Frömur-
I um i þessum leik. Sjálfsagt hafa
Framarar sjálfir verið fremstir i
I flokki og þvi vanmetið andstæð-
ingana, sem voru á allt öðru máli.
i Þeir byrjuðu leikinn af miklum
krafti — fengu einar 6 hornspyrn-
I ur á fyrstu 10 minútunum — og
skoruðu svo mark á 20 minútu...
i að visu með aðstoð eins Framara.
Það var Jóhannes Jakobsson,
l sem skaut lausu skoti á markið,
,en boltinn kom við varnarmann
I Fram, og missti Árni Stefánsson,
fyrrum markvörður Akureyringa
i þar með af boltanum, sem skopp-
aði i markið.
i Eftir þetta mark áttu þeir ekki
eitt einasta færi i fyrri hálfleik.
i Framarar tóku öll völd á vellin-
1. deild
Staðan i 1. deild Islandsmótsins
i knattspyrnu að lokinni fyrri um-
ferð:
Valur-VIkingur 2:1
Akranes -KR 1:1
Fram-Akureyri 2:3
IBV-Keflavik 1:3
Akranes
Keflavik
KR
IBV
Valur
Vlkingur
Akureyri
Fram
12:4
9:6
6:5
8:7
9:9
7:7
7:17
8:11
Markhæstu menn:
Jóhann Torfason KR
Steinar Jóhannsson, Keflav.
Matthias Hallgrimss. Akran.
Ingi Björn Albertss. Val
Sveinn Sveinss. ÍBV
Kári Kaaber, Viking
Teitur Þórðars. Akran.
um og óðu i tækifærunum en fóru
hroðalega með þau. Það bezta af
þeim öllum átti Jón Pétursson, er
hann stóð um einn metra frá
marki — en náði samt ekki að
skora.
í siðari hálfleik hélduFramarar
áfram sömu látunum og tókst
loks að jafna á 55 min. Guðgeir
Leifsson gaf þá á Sigurberg Sig-
steinsson, sem skallaði laglega i
markið.
Eftir þetta mark æstust Fram-
arar enn meira og ætluðu sýni-
lega allir að skora. En kapp er
bezt með forsjá, eins og máltækið
segir. í öllum hamagangnum
gleymdu þeir þvi, að hinir gátu
skorað lika, sem og þeir gerðu.
Einn leikmanna Fram var aö
gaufa með boltann á 60. minútu,
er hann var tekinn af honum og
Sigbjörn Gunnarsson brunaði upp
og skoraði... 2:1 fyrir Akureyri.
Aðeins 2:0 hjó
FH ó ísafirði!
FH-ingar sigruðu Isfirðinga I 2.
deild á Isafirði á laugardaginn
með tveim mörkum gegn engu,
og var það mun minni sigur en al-
mennt var búizt viö.
Það fór ekki á milli mála, að
Hafnfirðingarnir i hvitu peysun-
um voru mun betri en heima-
menn, sem þó stóðu vel fyrir sinu.
Þetta var allskemmtilegur
leikur, þrátt fyrir að mörkin
væru ekki nema tvö, og voru Is-
firðingar almennt hrifnir af
FH-ingum, sem þeim þótti leika
góðan fótbolta.
Þeir skoruðu eitt mark i hvor-
um hálfleik. Janus Guðlaugsson
það fyrra, en markakóngur FH,
Ólafur Danivalsson þaðsiðara, og
voru þetta bæði góð mörk.
FH-ingar áttu mörg góð tæki-
færi til að skora, en tækifæri
heimamanna, sem nú hafa loks
fengið nýjan þjálfara, Guðmund
Ólafsson, nýútskrifaðan iþrótta-
kennara, voru fá. Það bezta kom
á siðustu minútunum, en Ómar
Karlsson markvörður FH bjarg-
aði þá vel.
-klp-
Tvð opin golfmót á
Akranesi um helgina
Um næstu helgi fara fram tvö
opin golfmót á velli Golfklúbbsins
Leynis á Akranesi, Garðavelli.
Þessi mót eru Unglingakeppni
GSt og S.R. mótið svonefnda, en
það mót er haldið á vegum
klúbbsins og Sementverksmiðju
rikisins.
Unglingamótið fer fram á laug-
ardag og er það fyrir alla pilta á
aldrinum 15 til 21 árs, og má bú-
ast við að þar verði allir þeir, sem
æfa með unglingalandsliðinu og
fleiri.
S.R mótið hefst einnig á laugar-
daginn. Þá verða leiknar 18 holur
12. og 3. flokki karla og veitt verð-
laun með og án forgjafar.
Daginn eftir verður leikið 11. og
meistaraflokki karla. Leika þeir
18holur en 15 beztu halda siðan á-
fram,enda gefur þessi keppni stig
til landsliösins.
Búast má við mörgum kepp-
endum I báðum þessum mótum,
enda er völlurinn á Akranesi —
þar sem er vökvunarkerfi við all-
ar flatir — nú i fullum skrúða og
mjög góður miðað við árstima.
Einnig geta yngri mennirnir, sem
eru með lægstu forgjafirnar, tek-
ið þátt I báðum mótunum.
Ferðir frá Reykjavik verða
með Akraborginni fyrir hádegi
báða dagana — og ekki má
gleyma landleiðinni, sem ekki er
nema rétt 100 km — og það þykir
ekki mikið hjá golfmönnum.
Aðeins tveim minútum siðar
missti sami maður boltann til
Akureyrings, og þeir þutu með
hann á stundinni upp að marki,
þar sem Gunnar Blöndal sendi
hann i netið fram hjá Arna Stef-
ánssyni.. 3:1 fyrir Akureyri.
Við þetta var eins og kaldri
vatnsgusu væri skvett yfir Fram-
ara, sem sáu sína sæng út-
breidda. Þeim tókst þó að rétta
örlitið úr kútnum á 83. min. er
Kristinn Jörundsson skoraði eftir
að hafa fengið boltann óvaldaður
á vitateig eftir mikið skot Jóns
Péturssonar, sem fór i þverslána
og út til Kristins.
Akureyringar böröust eins og
ljón á lokaminútunum — minnug-
ir leiksins við Val á dögunum, er
Valsmenn jöfnuðu 3:3 á siðustu
sekúndunum — og þeir létu það
ekki koma fyrir i þetta sinn.
Leikurinn i heild var mjög slak-
ur. Mikið um langspörk, aðallega
hjá Akureyringum, en Framarar
gerðu af og til tilraun til að spila
án þess þó/að fá nokkuð út úr þvi.
Nokkur harka var I leiknum,
enda var hann slaklega dæmdur
af Guðjóni Finnbogasyni, sem
var með rólegra móti i þetta sinn.
Hann átti tvímælalaust að gefa
þeim Gunnari Austfjörð og
Kristni Jörundssyni áminningu —
ef ekki visa þeim báðum útaf —
en þeir stóðu I stanzlausum slags-
málum allan leikinn.
2. deild
Staðan i 2. deild tslandsmótsins
I knattspyrnu að lokinni fyrri
umferö:
lsafjöröur - FH 0:2
Þróttur - Selfoss 2:1
Breiðablik - Völs*. v__ 3:2
Haukar-Ármann 2:0
FH
Þróttur
Breiðablik
Haukar
7430 15:2 11
7430 11:6 11
7421 8:5 10
7 3 2 2 9:7 8
Völsungur 7 3 1 3 13:14 7
Selfoss 7 3 0 4 8:12 6
Ármann 7 1 0 6 7:19 2
tsafjörður 7 0 1 6 2:18 1
Markhæstu menn:
Ólafur Danivalsson, FH 6
Guðmundur Þóröars. Breiðab. 6
Sumarliði Guðbjartss. Self. 5
Guðjón Sveinsson, Haukum 4
JúlIusBessason. Völsung. 4
ÓlafurFriðriksson,Breiðabl. 4
Jóhann Hreiðarsson, Þrótti 4
Leifur Helgason, FH 4
Hollendingar léku sér
að Austur- Þjóðverjum!
— Hafa enn ekki fengið á sig mark í A-riðlinum
Johann Cruyff, fyrirliði
hollenzka HM-liðsins,
leiddi Hollendingana sína
fljúgandi í enn einn sann-
færandi sigur í gær. Það
var í Gelsenkirchen, þegar
Holland lék við Austur-
Þjóðverja. Frábær sóknar-
leikur hollenzka liðsins
færði því sigur 2-0. Það var
meistari leiksins og hefði
auðveldlega getað unnið
stærri sigur á hálum og
blautum vellinum.
Hollendingar hafa nú unnið
báða leiki sina I A-riðlinum og
markatalan er 6-0. Þeim nægir
þvi jafntefli gegn Braziliu á mið-
vikudag til að komast i úrslit — en
eftir tapið eru Austur-Þjóðverjar
úr leik.
Yfir 70 þúsund áhorfendur sáu
leikinn i gær — þar af 10 þúsund
Hollendingar, eða mun færri en
áður, og nú vantaði aðgöngumiða.
Vörn Austur-Þjóðverja var grátt
leikin á blautum vellinum og hol-
lenzku sóknarloturnar dundu nær
stöðugt á henni.
Fyrra mark Hollands var skor-
að á niundu minútu. Jansen tók
þá hornspyrnu og Johnny Rep
skallaði á mark. Varið — en
knötturinn hrökk til Johanns
Neeskens, sem skoraði auðvela-
lega 3ja mark sitt á HM. Rétt fyr-
ir leikinn hafði Neeskens ásamt
Suurbier, bakverði, komizt I
gegnum læknisskoðun. Báðir áttu
við meiðsli að striða.
Johan Cruyff stjórnaði sóknar-
aðgerðum Hollands, þó svo hann
væri með „yfirfrakka” allan leik-
inn — Konrad Weise fylgdi honum,
hvert sem hann fór, og tókst það
hlutverk að ýmsu leyti betur en
öðrum.sem það hafa fengið að
leika. En það er engin leið að
stöðva Cruyff — hvaða brögðum
sem er beitt — og oft voru 11 leik-
menn I vörn A-Þýzkalands. Það
var Cruyff, sem sendi á Resen-
brink, þegar hann skoraði annaö
mark Hollands á 60. min. Eftir
það fóru Hollendingar hægar i
sakirnar — leikmenn forðuðust að
taka nokkra áhættu. Þeir léku sér
með knöttinn og létu Þjóðverjana
hlaupa i „hringi”.
Austur-Þjóðverjar léku illa að
þessu sinni — og það virtist eina
markmið þeirra að halda tapinu
niðri. Liðið átti varla marktæki-
færi — og Jan Jongblood hefur
sjaldan átt rólegri dag i hollenzka
markinu. Hins vegar var Jurgen
Croy nær stöðugt i bardaganum
og varði oft vel i þýzka markinu.
í síðari hálfleiknum voru tveir
varamenn sendir inn á I austur-
þýzka liðið á 55. min., þeir Peter
Ducke og Hans Kreische en allt
kom fyrir ekki. Hollendingar
sóttu — Cruyff mataði meðherja
sina, en talsverð heppni og oft
grófur leikur hélt markatölunni
niðri hjá Þjóðverjum.