Vísir - 02.08.1974, Blaðsíða 8

Vísir - 02.08.1974, Blaðsíða 8
8 Vlsir. Föstudagur 2. ágúst 1974. S/r},,.; |gj-cTl:'“T ■■E Sigrum, en tví- sýnt verður það — sagði Örn Eiðsson um landskeppnina við íra á Laugardalsvelli á mánudag og þriðjudag — Átta ár síðan landskeppni hefur verið háð hér Þingað í Elmars- málinu t gær kom Dómstóll KRR saman og var þingaö I Elmarsmálinu — kæru Vais á hendur Fram. Málsaöilar fóru fram á frest til gagna- söfnunar og var hann veittur. Vikufrestur, sem er hámarkstlmi I sllku tilfelli. Dómurinn kemur þv( saman aftur nk. fimmtudag. Myndin aö ofan var tekin I gær af dómendum og fulltrúum Fram og Vals. Frá vinstri Hannes Þ. Sigurösson (Fram), Hans Guömundsson (Val) og þeir, sem skipa dóminn, Baldur Marlusson, Bergur Guönason, formaöur, og Vilberg Skarphéöinsson. Fundurinn var I iþróttamiö- stööinni og Bjarnleifur tók myndina. KR-ingar runnu létt gegn - Sigruðu Ármann 7-0 í Bikarkeppni KSÍ í gœrkvöldi Ekki reyndist Laugardals- völlurinn Ármenningum happa- drjúgur, þegar liö þeirra keppti þar i fyrsta skipti I gærkvöldi. 7 uröu mörkin, sem þeir fengu á sig áöur en yfir lauk i viöureigninni viö KR-inga I Bikarkeppni KSt og þau heföu svo hægiega getaö oröiö mun fleiri. KR-ingar voru i ham — og ekki bætti úr fyrir Ármenninga, aö einum bezta ieikmanni iiösins, Kristni Peder- sen, var vlsaö af leikvelli af dómara leiksins, Eysteini Guömundssyni. Þaö skeði nokkuð snemma i slöari hálfleiknum, þegar staðan var oröinn 5-0 fyrir JCR, svo ekki breytti þaö miklu um gang leiksins. Var reyndar furöulegt, aö KR-ingar skoruðu ekki nema tvö mörk þaö sem eftir var — eins og tækifærin hrönnuðust upp. Baldvin Eliasson var á skot- skónum i leiknum — skoraði fjögur mörk, eitt þeirra sérlega fallegt. Atli Þór Héðinsson skoraði fyrsta mark KR, og auk þess skoruðu Ólafur ólafsson og Guðjón Hilmarsson. Mark Guöjóns var sannkallaður „þrumufleygur” — knötturinn lenti efst I markhorninu eftir spyrnu hans talsvert fyrir utan vítateig. öll 1. deildarliðin — nema Akureyri — eru þvi komin I átta- liða úrslit I bikarkeppninni ásamt Völsungum frá Húsavlk. Dráttur I næstu umferð verður þvi spenn- andi, en mótanefnd KSI kemur fljótlega saman til að fram- kvæma hann. — hsim. Það eru átta ár síöan viö háðum landskeppni I frjálsum iþróttum hér heima i öllum greinum — gegn Skot- landi 1966 — og það er þvi mikið til- hiökkunarefni aö eiga von á slikri keppni á ný. Það veröur á mánudag og þriöjudag þegar írska landsliðiö keppir við þaö ielsnzka á Laugardalsvellinum — og ekki þarf að efa aö þar veröur mikið fjör, sagöi Þóröur B. Sigurðsson I gær, en hann hefur manna mest unniö aö undirbúningi landskeppninnar viö tra. Við ætlum að sigra I þessari keppni, sagöi örn Eiðsson, formaöur , Frjáls- tþróttasambands Islands, en hún verður tvisýn, bætti hann við. trar eiga prýðilegum hlaupurum á að skipa og þau verða mörg góð hlaupin á Laugar- dalsvellinum. Hins vegar eru þeir ekki eins góðir I stökkurh og köstum, en eiga þó einn og einn mann góðan innanum. Já, loksins eftir átta ár fáum við að sjá landslið okkar í keppni hér heima, þar sem keppt verður i öllum hinum venjulegum landsliðsgreinum, tuttugu að tölu. TIu greinum hvorn dag. Eftir ágæta frammistöðu Islenzka landsliðs- ins I Kalott-keppninni I Sviþjóð um slðustu helgi má búast við, að það geri einnig vel gegn irska liðinu. Landskeppnin hefst á mánudag kl. fimm með setningarathöfn — en hálf- tlma fyrir keppnina byrjar Skólahljóm- sveit Kópavogs að leika á Laugardals- vellinum, jafnframt þvi sem keppni I hástökki hefst um svipað leyti Islenzka landsliðið hefur verið valið og er þannig skipað: 100 m Bjarni Stefánsson — Vilmundur Vilhjálmsson 200 m Bjarni Stefánsson — Vilmundur Vilhjálmsson 400 m Bjarni Stefánsson — Vilmundur Vilhjálmsson 800 m Ágúst Ásgeirsson — Jón Diðriks- son 1500 m Ágúst Asgeirsson — Jón Diðriksson 5000 m Sigfús Jónsson — Erlingur Þor- steinsson 10.000 m Sigfús Jónsson — Jón H. Sigurðsson 3000 m hindr. Einar Óskarsson — Gunn- ar Snorrason 110 m grind. Stefán Hallgrimsson — Hafsteinn Jóhannesson 400 m grind. Stefán Hallgrimsson — Hafsteinn Jóhannesson 4x100 m Bjarni - Vilmundur - Marinó Einarsson —■ Sigurður Sigurðsson 4x400 m Bjarni Stefánsson — Vilmundur Vilhjálmsson • Stefán Hallgrimsson — Gunnar Páll Jóakimsson Kúla — Hreinn Halldórsson — Erlendur Valdimarsson Kringla — Erlendur Valdimarsson — Óskar Jakobsson Spjót — óskar Jakobsson — Snorri Jóelsson Sleggja — Óskar Sigurpálsson — Erlendur Valdimarsson Langstökk — Stefán Hallgrimsson — Friðrik Þór Óskarsson Hástökk — Karl West Fredriksen — Ellas Sveinsson Þrlstökk — Friðrik Þór Óskarsson — Helgi Hauksson Stöng — Guðmundur Jóhannesson — Karl West Fredriksen Sveitarstjóri Sigurður Helgason Fró Akranesi á Stórhlaupari Svíana rétt við heimsmet! — Frábœr árangur í Helsinki í frjálsum í gœr iluuparinn Anders Evrópumetið á vegalengdinni sem fékk sama tii Sænski stórhlauparinn Ánders Gærderud setti glæsilegt Evrópu- met I 3000 m hindrunarhlaupi á aiþjóölegu frjáisiþróttamóti á Olympiuleikvanginum I Heisinki I gær. Hann hljóp vegalengdina á hinum frábæra tima 8:14.2 min., sem er aöeins tveimur sckúndu- brotum lakara en heimsmet Ben Jipcho, Kenýa, og þaö afrek var I fyrra I algjörum sérflokki. Gærderud átti sjálfur gamla Evrópumetið á vegalengdinni 8:18.4 mln. svo hann bætti tima sinn um 4.2 sekúndur. Annar I hlaupinu var Finninn kunni, Tapio Kantanen, á 8:21.8 min. Heimsmelhafinn Rick Wohl- huter, USA, hljóp enn eitt stór- hlaupið I Helsinki — nú I milu- hlaupi, þar sem hann sigraði á 3:54.4 min. eftir hörkukeppni við Ný-Sjálendingana Rod Dixon, 3:54,9 mln. og Johnny Walker, Tvöfalt þríhyrningskerfi Þó aö annað hemlakerfi Volvo bili skyndilega, er um þaö bil 80% af hemlunargetu virk eftir sem áður. Sérstakt viövörunarljós í mælaborði segir til um hemlabilun. sem fékk sama tima. Mike Boit, Kenýu, varð fjórði á 3:55.4 mln. og Ulf Högberg, Svlþjóð, fimmti á 3:56.7 mín. Stórkostlegt hlaup. Steve Williams, USA, sigraði I 100 m hlaupi á 10.1 sek. Landi hans Mark Lutz varð annar á 10.3 sek. og Raimo Vilen, Finnlandi, og Christer Garpenborg, Sviþjóð, hlupu á sama tima. I spjótkasti sigraði Jorma Jaakkloa, Finn- landi, með 84.28 m og Hannu Siitonen, Finnlandi, kom skammt á eftir með 83.50 metra. I stangarstökki sigraði Carrigan, USA, — stökk 5.20 metra, en Finninn Antti Kalliomæki varð annar með 5.10 metra. Drengja- stúlkna- sveina- og meyjameistaramót ís- lands i frjálsum iþróttum, sem fram átti að fara á Akra- nesi dagana 10. og 11. ágúst verður ekki haldið þar, þar sem völlurinn er ónothæfur. í þess stað fer mótið fram á íþróttavelli Ármanns v. Sig- tún sömu daga og hefst kl. 2 báða dagana. Keppnisgreinar — fyrri dagur: Drengir (f. 1956 og 1957) 100 m: hlaup kúluvarp, hástökk, 800 -m hlaup, spjótkast, langstökk, 200 m grinda- hlaup. Stúlkur (f. 1956 og 1957) 100 m hlaup, hástökk, kringlukast, 400 m hlaup, 4x100 m boðhlaup. Sveinar ( f. 1958 og 1959 ) 100 m hlaup, 7 Ég verð aö sanna að ég stend . undir nafni 400 m hlaup, 1500 m hlaup, hástökk, þri- stökk, kúluvarp, spjótkast, og 4x100 m boðhlaup. Meyjar (f. 1958 og 1959) 100 m hlaup, 400 m hlaup, hástökk, kringlukast, spjótkast, 4x100 m boðhlaup. Slöari dagur: Drengir: 110 m grindahlaup, kringlu- kast, stangarstökk, 400 m hlaup, þrl- stökk, 1500 m hlaup, 4x100 m hlaup. Stúlkur: 200 m hlaup, 800 m hlaup, 100 m grindahlaup, kúluvarp, spjótkast, langst. Sveinar:200m hlaup, 800 m hlaup, 100 m grindahlaup, stangarstökk, þristökk og kringlukast. Meyjar: 200 m hlaup, 400 m hlaup, 100 m grindahlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk. Þátttökutilkynningar sendist skrif- lega I pósthólf 1099 ásamt þátttökugjaldi kr. 50,00 fyrir hverja grein og kr. 100,00 fyrir boðhlaupssveit I slðasta lagi 8. ágúst. Æææi / Fyrsta gagnárásin., z-zz J Kui| Fr*4urr« Srndrr.K. |nc |97S World n«kli Vlsir. Föstudagur 2. ágúst 1974. 9 Nær allir þeir piitar, sem eru á þessari mynd, leika meö unglingalandsliöinu, sem mætir unglingalandsliöi Færeyja á Akranesi I kvöld. Þetta er liðiö, sem tók þátt I Evrópukeppni unglinga I Svlþjóöl vor, og stóö sig þar meö sóma. Færeyingar gera sér samt vonir um aö vinna þetta liö 1 kvöld. Brœðurnir frá Klakks- vík beztir í liðinu! — Leika á Akranesi í kvöld I kvöld fefla Færeyingar og ts- lendingar slnum yngstu lands- liðsmönnum I knattspyrnu fram I landsleik, sem háöur verður á grasvellinum á Akranesi. tslenzka liöiö verður aö mestu skipaö þeim piitum, sem léku I lokakeppni Evrópumóts unglinga I Sviþjóö I vor, og stóöu sig þar með ágætum —enda eru nú flest- ir af þessum piitum ieikmenn meö meistaraflokksliðum félaga sinna. Færeyska liðið kom til landsins I gær. Þetta er svo til sama lið og tapaði naumlega ..2:1.. fyrir is- lenzka unglingalandsliðinu I Fær- eyjum I fyrrasumar, en nýir leik- menn hafa þó komið inn, sumir þeirra mjög skemmtilegir, að sögn Eggerts Jóhannessonar, Is- lenzka knattspyrnuþjálfarans I Færeyjum. Liðið hefur æft reglulega saman siðan i marz og leikið marga æfingaleiki, þar á meðal við mörg 1. deildaríið, sem máttu leggja sig öll fram til að standa I strákunum. Eitt þeirra varð meira að segja að þola 6:2 tap fyrir þeim. 1 liðinu eru stórir og sterkir strákar, sem allir leika með 1. deildarliðum — beztir þeirra eru bræöurnir Mikael og Birgir frá Klakksvik, sem eru taldir efni- — Leika á Akranesi í kvöld legustu knattspyrnumenn Fær- eyja, en einnig eru þar margir aðrir ágætir leikmenn. Blöð I Færeyjum hafa nokkuð skrifað um þéssa ferð liðsins og gera þau sér vonir um, að strákarnir sigri Islendingana I þetta sinn. Þótt óttast þau, að ef leikurinn fari fram á grasvelli, geti það orðið erfitt fyrir þá, þvl að þeir eru óvanir að leika við slikar aðstæður. -klp- Fimm norsk sundmet í Evrópu- klassanum Mjög góöur árangur náöist á norska meistaramótinu i sundi. sem hófst i Lilleström i gær — afrek unnin. sem eru á góðan Evrópumælikvarða. Fimm norsk met voru sett og mesta athygli vakti árangur hinnar 16 ára stúlku, Björg Jensen. Hún bætti metið I 800 m skriðsundi um 20 sekúndur synti á 9:23.7 min. Það er langtundir lágmarksafreki á vegalengdinni fyrir EM, sem háð verður i Vinarborg eftir 14 daga. Norskir reikna með henni þar I úrslitum. Þá náði Atle Malberg EM- lágmarkinu i 200 m flug- sundi, setti norskt met 2:10,6 min., sem er glæsilegur árangur. 1 100 m bringusundi kvenna setti Elln Knag norskt með 1:18.3 min. Gunnar Gundersen bætti met sitt I 400 metra fjórsundi um tvær sekúndur synti á 4:47,8 mln.m en EM-lágmarkið er 4:46.0 min. Gunnar féll þar á slöku bak- sundi. Fimmta metið var i 4x100 m skriðsundi kvenna, þar sem sveit BSC synti á 4:26.6 min. Muniö FRt-skokkiö Sala minnispenings Þjóðhá- tíðarnefndar 1974 er hafin. Söluna annast bankar og helstu mynt- salar. Fornar vættir og landnáms- eldur prýða peninginn, sem hann- aður er af Kristínu Þorkelsdóttur teiknara. Peningurinn er 7 cm í þvermál, hátt upphleýptur og þykk- ur. Slegnar voru tvö þúsund samstæður af silfur- og bronspen- ingi, sem kosta kr. 18.000,00, og ellefu þúsund eintök af stökum bronspeningum á kr. 1.900,00. Hver peningur er númeraður. Pen- ingarnir eru seldir í öskjum, og fylgir hverri þeirra smárit, sem gerir grein fyrir landvættum ís- lands og útgáfu peningsins. v-,. • r >6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.