Tíminn - 29.01.1966, Side 14
14
TjMINN
LAUGARDAGUR 29. janúar 1966
BEN BARKA
Framhald at bls 1.
Gillet, heimsækir Hassan, konung
Marokkós.
6./11.: Fóstursonur Oufkirs hers
höfðingja. E1 Ghali E1 Mahi, hand
tekinn og ákærður fyrir hið sama
og Lopez. E1 Mahi sagður vera
sendimaður marókönsku lögregl
unnar.
8./11.: Lopez segir, að hann hafi
séð Oufkir á heimili sínu skömmu
eftir ránið. E1 Mahi segir, að
hann hafi sama dag verið með
Oufkir í húsi Boucheseiehes.
lO./ll.: Edgar Pisani, iandbúnaðar
ráðherra Frakka, hættir við heim
sókn sína til Marokkó. Sama er
að segja um fyrirhugaða heimsókn
Hassans konungs til Parísar.
13./11.: L. Zollinger, dómari, sem
stjórnar rannsókn málsins, kallar
Oufkir til yfirheyrslu, en Oufkir
neitar að hafa komið nálægt rán
inu og neitar að fara til Frakk-
lands. Hann leggur til, að Zolling
SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
M.s. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
з. febr. Vörumótttaka á mánu-
dag til Hornafjarðar, Djúpuvík
и. », Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
fjarðar, Mjóafjarðar. Borgar-
fjarðar, Vopnafjarðar, Bakka-
fjarðar, Þórshafnar og Kópa-
skers.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
SKÓR -
INNLEGG
Smiða OrthoD-skó og inn-
lege eftir mali Hef einnig
tilbúna barnaskó með og
án mnleggs.
Oavíð Garðarsson,
Ortop-skósmiður,
Bergstaðastræti 48,
Simi 18 8 93.
er komi og yfirheyri hann opin-
berlega í Marokkó.
17.11: De Gaulle, forseti, lofar því,
að rannsókn málsins haldi áfram
af fullum krafti svo að málið verði
fullkomlega upplýst.
18. /11.: Þingmaður Gaullista í
franska þjóðþinginu,. Pierre
Lomarchand, vísar á bug fullyrðing
um Lopezar um, að Lemarchand
hafi leyft ránið. Lemarchand er
einnig lögfræðingur glæpámanns
ins Georges Figon, einn þeirra
þriggja manna, som Ben Barka
ætlaði að hitta, þegar honum var
rænt. Hinir tveir voru kvikmynda
leikstjórinn Georges Franju og
blaðamaðurinn Philippe Bernier.
26./11.: Bernier handtekinn og
ásakaður um þátttöku í ólöglegri
handtöku.
10/1.: í viðtali, sem birtist í
vikublaðinu L‘ Express, fullyrðir
Figon, að hann hafi verið vitni að
því að Oufkir misþyrmdi Ben
Barka á heimili Boucheseiches.
Figon fullyrti einnig, að Ben
Barka hafi síðar verið kyrktur.
— Lögreglumaðurinn Souchon,
sem var handtekinn, fullyrðir
sama dag, að nánustu samstarfs
menn de Gaulles, Jacq-
ues Foccart, og einn af leið
togum frönsku gagnnjósnaþjónust
unnar, Marcel Leroy, hafi vitað
um ránsfyrirætlanir fyrirfram.
Souchon sagði einnig, að maður
einn, siem hefði kynnt sig sem1
Jacques Aubert, nánasti samstarfs
maður Roger Frey, innanríkisráð
herra, hafi beðið Souchon um að
framkvæma fyrirætlun þessa.
15./1. Marcel Leroy játar, að hinn
handtekni Antoine Lopez sé í
rauninni franskur njósnari.
17./1. Georges Figon finnst látinn
í heimili sínu, þegar lögreglan
I kom þangað til þess að handtaka
hann. Figon sagður hafa framið
sjálfsmorð.
19. /1L’Yfirmaður frönsku gagn
njósnaþjónustunnar, Paul Jacqui
er, hershöfðingi, rekinn. Eugene
Guibaud, hershöfðingi settur í
hans stað.
22. /1.: Marokkó vísar á bug alþjóð
legri handtökuskipun á Oufkir
hershöfðinga.
23. /1.: Frakkland kallar sendi-
herra sinn í París, Moulay Ali,
fursta, heim.
25./1.: Lemarchand játar, þrátt fyr
ir fyrri neitun, að Figon hafi sagt
frá ráninu 2. nóvember. Lemarc
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar þakkir færi ég hér með sveitungum mín-
um, vandamönnum og vinum, sem vottuðu mér vináttu
sína með gjöfum, heimsóknum og heillaskeytum á sjö-
tíu ára afmæli mínu 11. janúar s.l. Guð blessi ykkur
öll. '
Jón Gíslason, Norðurhjáleigu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Jóns Ásbjörnssonar
fyrrverandi hæstaréttardómara,
Vinir og vandamenn.
Útför
Jóhannesar Líndals Jónassonar
fyrrv. kennara, sem andaðist 24. janúar s. I., fer fram frá Fossvogs-
kirkju mlðvikudaginn 2. febrúar kl. 10.30.
Athöfninni verður útvarpað.
Margrét Guðmundsdóttir.
Útför
Pálínu SigríSar Sveinsdóttur
frá Steðja
sem léSt 23. þ. m., verður gerð frá Reykholtskirkju þriðjudaginn 1.
febrúar og hefst kl. 2 e. h.
Aðstandendur.
hand segir, að Marokkó hafi, sam
kvæmt Figon, boðið eina milljón
franka fyrir ránið á Ben Barka.
26. /1.: Franska stjórnin játar, að
vissir lögreglumenn séu blandaðir
í málið, og að sambandið milli lög
reglunnar og yfirvalda dómsmála
hafi ekki verið sem bezt. Jafnframt
segir stjórnin, að Zollinger dómari
sé viss um, að Oufkir standi á
bak við ránlð.
27. /1.: Þeir fimm, sem handteknir
hafa verið, — Lopezí Souchon,
Voitot, E1 Machi og Bernier ■—
koma í fyrsta sinn allir í einu fyr
ir Zollinger dómara. Segulbands
spóla, sem fannst f íbúð Figons,
hefur ekki að geyma þær játning
ar, sem við var búist.
28. /1: 49 ára gullistískur ríkis
starfsmaður segir Zollinger dóm
ara — að sögn L‘Express — að
hann hafi verið í hinni leynilegu
lögreglu „Barbouzes", sem hafi
tekið þátt í ráninu, og að Lemarc
hand hafi átt mikinn þátt í því
máli. Biður um lögregluvernd.
FÁNAMÁLIÐ
Framhald af bls. 1.
mál á fundum Norðurlandamáls,
yrði vikið.
Við umræðurnar kom í ljós, að
lítið hafði miðað í samkomulags
átt hvað snertir efnahagslegt sam
starf. Sænska tillagan um sam
ræmingu tolla fékk misjafnar
móttökur, og hið sama má segja
um tillögu Dana, ’ osr efnis,
að komið verði á sameiginlegum
norrænum landbúnaðarvaramark-
aði.
Tryggve Bratteli frá Noregi, sem
hóf umræðurnar, varaði mjög við
því að snúa til baka til þjóðernis
stefnu fyrri tíma 3 væri skref
afturábak. Hann sagði, að Norð
urlönd. yrðu nú að reyna að sam
eina afstöðu sína m. a. til efna
hagslegs samstarfs Norðurlanda
og afstöðuna til efnahagssam-
steypa Evrópu.
Urðu miklar umræður, og
sýndist sitt hverjum.
Á morgun verða nefndarfund
ir.
KRAG-HJÓNIN
Framhald af bls. 1.
óskað að Jens Otto Krag flytji.
ávarp kvöldsins. í gær barst
svo stjórn Blaðamannafélags-
ins svar forsætisráðherrahjón
anna, þar sem þau taka boði
félagsins með þökkum.
Verða þetta að kallast
ánægjuleg tíðindi, einkum að
það skyldu verða dönsku for
sætisráðherrahjónin, sem fyrst
erlendra manna koma hingað
á þennan ágæta fagna'J. Þau
eru boðin hingað af heilum hug
og verður áreiðanlega vel fagn
að.
ÓFÆRÐ
Framhaid ai 16 síðu.
f Fornahvammi eftir að komast
leiðar sinnar en verða að bíða þar,
sem þeir eru niður komnir og þá
einkum vegna veðurs, sem hefur
verið hið versta, snjókoma og
rok.
Vegurinn milli Akureyrar og
Húsavíkur er einnig lokaður og
til dæmis um akstursörðugleika
má geta þess, að mjólkurbílarnir
frá Svarfaðardal urðu að snúa við
skammt innan við Dalvík, en haft
er fyrir satt, að þá sé ekki öðrum
fært. í Þingeyjarsýslum eru vegir
einnig lokaðir.
Á Austurlandi er færðin í dag
svipuð og undanfarna daga, þ. e.
fært um Héraðið um Fagradal til
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, en
aðrir fjallvegir lokaðir.
Eins og áður er sagt, hefur víða
verið snjókoma og skafrenningur
í dag. Samkvæmt upplýsingum Veð
urstofunnar var norðaustan stór
hríð um allt norðanvert landið og
10—12 stiga frost á Vestfjörðum.
Náði snjókoman suður í Borgar
fjörð, en á Suður- og Suðaustur
landi var hvasst og skafrenningur
víða, en frostlítið.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 12. síðu
mörk yfir, 17:15. Þessi munur
hélzt fram yfir miðjan hálfleik, og
allt til síðustu mínútna ógnuðu
Ármenningar Rvíkurmeisturunum,
sem þó að lokum náðu undirtökun
um — með hjálp markvarðarins
— og sigruðu verðskuldað.
Fraimliðið fær ekki ennþá það
út úr sér, sem liðið á að geta
sýnt. Þegar hið „taktiska" línuspil
bregzt, eru langskytturnar ekki
nógu virkar. Gunnlaugur og Sig
urður Einarsson voru beztu menn
Fram í leiknum fyrir utan Þor
geir. Athygli vakti góður leikur
nýliðans, Sigurbergs Sigsteins-
sonar. Mörkin: Gunnl. 7, Sig. E: og
Gylfi 5 hvor, Guðjón Hákonarss.
3, Guðjón J. 2 og Sigurbergur og
Frímann 1 hvor.
Þrátt fyrir 3 töp í fslandsmótinu
til þessa, virðist Ármanns-liðið
vera að korna til. Töpin hafa ekki
verið stór og á Ármann án efa eft
ir að krækja í nokkur stig í mót
inu. Nýliðarnir Pétur og Hreinn
lofa góðu og eru styrkur fyrir lið
ið, sem annars mótast mikið af j
Herði Kristinssyni. Mörkin: Hörð I
ur 10, Pétur og Hreinn 4 hvor,
Árni, Hans og Jakob 1 hver.
Leikinn dæmdi Björn Kristjáns
son og dæmdi yfirleitt vel, nema
hvað gagnrýna má hann fyrir ó-
ákveðni í einu eða tveimur til-
vikum. Það er líka slaamur ávani
að hlaupa til markdómara í tíma
og ótima til að fá ráðleggingar.
ÍÞRÓTTIR
^ramnah it 12. síðu
landsliðsmaðurinn Ágúst Ög-
mundsson skoraði jöfnunar-
markið. Síðustu mínúturnar
höfðu Valsarar tögl og hagldir
og unnu verðskuldað 25:21.
í heild var leikurinn nokkuð
skemmtilegur. Ásgeir í Hauka-
liðinu kom Valsmönnum úr jafn-
vægi í fyrri hálfleik með því að
skora 8 mörk, en í síðari hálfleik
var hans betur gætt og skoraði
aðeins 1 mark. Ljóður á ráði
Hauka í s.h. var óstjórnleg skot-
græðgi, sem liðið tapaði mikið á.
í liði Vals bar mest á þeim
félögum Bergi og Hermanni, eins
og svo oft áður, og vissulega eru
þeir aðalburðarásar liðsins, eink-
ar skotvissir, og kæmi mér ekki á
óvart, þótt annar hvor þeirra
hlyti sæti í landsliði. Her-
mann skoraði 6 mörk og Bergur
7.
Guðjón Magnússon dæmdi leik
inn og gerði það vel.
Ung kona kom fyrir stuttu
í heimsókn til kunningja-
konu sinnar og báru launa-
mál á góma í viðræðum
þeirra. Unga konan hálfvor
kenndi vinkonu sinni, sem
var gift menntamanni, sem
þ|egi þau laun, er opinberir
aðilar bjóða yfirleitt slíkum
mönnum. Hún sagði t.d., að
frændi sinn, sem væri rétt
índalaus pípulagningamað-
ur,.hefði stundum 60 þús-
und krónur í mánaðarlaun
án þess að leggja mjög hart
að sér við vinnu.
Fullyrt er, að margir iðn
aðarmenn hafi 10-15 þús-
und krónur á viku, og er þá
vinnutíminn frá því kl. 8 að
morgni til 7 á kvöldin, en
ekki unnið á laugardögum.
Úr því farið er að nefna
þessi dæmi sem lið í bygg
ingarkostnaði, þá þætti
kannski einhverjum fróð-
egt að vita, að maður, sem
byggði stóra og dýra íbúð,
taldi sig hafa tapað á ann-
að hundrað þúsund krónum
aðeins vegna þess, að hann
gat aldrei fengið iðnaðar-
menn til að mæta á tilsett-
um tíma og stilla saman
vinnu sína, þannig að oft
þurfti að vinna upp aftur
það, sem búið var að gera.
Þá þótti það tíðindum
sæta í stóru sambýlishúsi
hér í bænum, sem byrjað
var að byggja 1959, að þeg-
ar um koll keyrði í sam-
bandi við pípulagnir húss-
ins, kom í ljós, að sá sem
að allra' áliti og mótmæla-
laust af hans hálf u hafði
verið talinn pípulágningar-
meistarinn, vísaði frá sér
allri ábyrgð og benti á rétta
meistarann! Þetta gerðist
nú í vikunni, árið 1966!
Og enn má halda áfram
að nefna dæmi: Opinber
embættismaður varð fyrir
því tjóni fyrir skömmu, að
vatnsleiðsla í vegg á íbúð
hans fraius. Þegar farið var
að rannsaka tenginguna kom
í ljós, að það, sem átti að
vera forhitari, reyndist 1
framkvæmdinni forkælir!
Oft hafa menn imdrazt,
hve tilboð í ákveðin verk
í byggingariðnaðinum
hafa verið mismunandi. At
hyglisvert er, að þegar gerð
voru tilboð í innréttingu á
stóru húsi hér í bænum var
mismunur á lægsta tilboði
og því næst lægsta um 2
milljónir króna, og var þá
ekki um að ræða mismun-
andi gæði efnis, heldur var
aðalmunurinn fólginn í hag
stæðari samningsaðstöðu
við erlent fyrirtæki.
ÍÞRÓTTIR
Framhalu af 12. síðu
mæti á leiknum og hvetji hver
li5 sitt til dáða.
Á sunnudagskvöldið kl. 21,
minnast körfuknattleiksmenn af
mælis sambandsins, með dans-
leik í Tjarnarbúð. Við það tæki-
færi verða landsliðsmönnum af-
hent lanósliðsmerki KKÍ í fyrsta
skipti. Körfuknattleiksunnend
ur eru hvattir til að sækja dans-
leikinn, en aðgangur er frjáls,
eftir þvi sem húsrúm leyfir.
60 ÞÚSUND
Framhald af 16. síðu.
mælingarkerfinu er óspart
beitt. Ýmsar sögur eru á
kreiki um laun iðnaðar-
manna og fullyrt er, að
smiðir fáist ekki til að
vinna fyrir undir 100 kr. á
timann sem, er í sjálfu sér
ekki mikið miðað við tekj
ur, sero menn geta haft sam
kvæent uppmælingataxta.
SKINNHANDRIT
Framhald af bls. 3
ungis tvö, og vantar ofan á það
fyrra. Bæði handritin eru 16,4
x 11,9 cm að stærð, og á þeim
báðum er ritað framan og aftan
á blöðin. Handritinu hefur verið
valinn staður í handritadeild Þing
bókasafnsins í Washington og
verður það til sýnis í lestrarsal
þeirrar deildar í febrúar og
marz.
Á 12. öld sendu Noregskonung
ar oft og tíðum skrifara sína til
Frakklands til að láta þá þýða og
endursegja sögurnar af Karla-
magnúsi og aðrar sögulegar skáld
sögur. Ein þessara sagna er Sag-
an af Tristram og ísold, og þegar
hún hafði verið býdd' á norrænar
tungur, varð hún að norrænu
söguljóði, sem varð geysi vinsælt
á Norðurlöndum og óskylt írum-
texta sögunnar. Vitað er, að þrjár
norrænar þýðingar þessarar sögu
hafa varðveitzt og ein þeirra er
á íslenzka tungu.