Tíminn - 03.02.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.02.1966, Blaðsíða 9
/ FIMMTUDAGUR *. febrúar 1966 Nokkur atriði úr skýrslu TÍMINN 9 Fjöldi erlendra ferðamanna hingað hefur fimmfaldazt á rúmum áratug Blaðinu barst í fyrradag skýrsla Ferðamálaráðs fyrir tímabilið 7. júlí 1964 til 31. des. 1965, ásamt yfirliti um fjölda erlendra ferðam'anna og gjaldeyristekjur þeirra vegna á tímabilinu. IJm síð- ustu áram. hafði Ferðam.ráð starfað í nærri hálft annað ár, og þótti eðlilegt að senda frá sér nú skýrslu um störf- in, svo að þeim, sem hlut eiga að máli, gefist kostur að kynn ast störfum Ferðamálaráðs. Ýmsar merkilegar upplýsing- ar koma fram í skýrslunni, og þykir blaðinu því rétt að birta hér nokkra kafla úr henni.. Ferðamálasérfræðingur ,Snemma á starfstíma Ferða- málaráðs var rætt um, hvort ekki væri rétt að fá hingað til lands erlendan sérfræðing um ferðamál til ráðuneytis um framtiðarskipu- lag ferðamálanna í landinu. Leitað var til Irish Tourist Board, Turistforeningen for Dan mark og Landslaget for reiselivet i Norge, og gerð fyrirspurn um, hvort þessir aðilar gætu bent á ferðamálasérfræðing, sem væri reiðubúinn að taka að sér það verkefni að gera áætlun um fram tíðarskipulag ferðamála á íslandi. Frá öllum ofangreindum aðilum bárust vinsamleg svör við mála- leitan vorri, hins vegar benti eng inn á ákveðna lausn málsins nema Turistforeningen for Danmark, sem tilnefndi þrjá aðila, sem hæf- ir væru að taka verkefnið að sér. Eftir að Ferðamálaráð háfði at- hugað málið, var ákveðið að leita til próf. Ejlar Álkjær í Kaup- mannahöfn, en hann hefur m.a. verið ráðunautur ríkisstjóma Nepal og Túnis um ferðamál. Sam göngumálaráðherra heimilaði Ferðamálaráði, að pi'ófessor Ál- kjær hingað til lands til skrafs og ráðagerða. Prófessorinn kom hingað 2. júlí og dvaldi hér í 4 daga. Sat hann fundi með Ferða- málaráði, og ferðaðist nokkuð um suðurland. Var fastmælum bundið milli Ferðamálaráðs og próf. Á1 kjær, að hann eftir heimkomu sína velti fyrir sér væntanlegu verkefni, svo og, hvort hann gæti annríkis vegna, tekið að sér að semja framtíðaráætlun um skip an ferðamála á íslandi. Þá óskaði Ferðamálaráð eftir að fá upplýst hvað nefnd áætlunargerð mundi kosta. Próf. Álkjær hefur þegar þetta er ritað, lofað að taka verk- efnið að sér gegn greiðslu, sem nemur 15 þús. dönskum kr., auk þess sem hann þarf að koma hing- að tvisvar, meðan á áætlunargerð inni stendur. Ferðamálaráð hefur samþykkt að taka tilboði prófess orsins með fyrirvara um samþ. samg.m.ráðh. Perðamálaráð telur það mikinn hag að fá að njóta þekkingar og reynslu prófessors Álkjær. Kynnisferð um landið Samgöngumálaráðherra gaf Ferðamálaráði heimild til að fara kynnisferð um landið s.l. sumar, enda skyldi sú ferð vera þáttur í heildaráætlunargerð um framtíðarskipan gistihúsamál anna í landinu. Ferðin stóð dag- ana 12.—17. ágúst. Sex af með- limum Ferðamálaráðs tóku þátt í ferðinni, auk eftirlitsmanns með gisti- og veitingahúsum.,Farið var um austur-, norður og vesturland. Komið var við á 31 veitinga- og gististað. Á öllum stöðunum voru húsakynni skoðuð og rætt við eig endur eða forráðamenn. Heildar- myndin af ástandi veitinga- og gistihúsanna á landsbyggðinni er sú, að hreinlæti og snyrtimennsku er mjög ábótavant. Enda þótt trassaskapur og kæruleysi sýnist oft vera undirrot þess, sem ábóta vant er, þá virðist oftar að van Unnið var að því að fá rétta mæla í leigubifreiðir. Rætt um verðlag á veitinga- og gistihúsum, og áhrifum beitt til að halda verðlagi innan hóflegra lakmarka Unnið að því að koma upp góðri aðstöðu í landi höfuðborgarinnar, þar sem gestir geta dvalið í tjöld um. Jafnframt þvi var bent á nauðsyn þess að koma upp gróður húsi þar sem hægt er að sýna gestum allan gróður, sem vex við jarðhita hér á landi. Rætt var am að auka fjölda vegaskilta á þjóðvegum og við vegi, sem liggja að og frá Reykja vík, og innan takmarka borgar- innar. Tillögur til úrbóta sendar Vegamálastjóra og borgarráði Reykjavíkur. Leitað var til viðkomandi yfir valda um breytt skipulag á ferð um almenningsvagna í höfuðborg kvikmyndir til landkynningar hafa verið rædd og komið á fót nefnd til að vinna að þeim mál- um í samvinnu við Ferðaskrif- stofu ríkisins og Upplýsingadeild utanríkisráðuneytisins. Á starfstímanum hafa Ferða málaráði borizt ýmsar kvartanir bæði frá íslenzkum aðilum og er- lendum. Nokkrir erlendir blaðamenn, sem hér dvöldu, komu á skrifstofu Ferðamálaráðs til að afla sér upp lýsinga um ráðið og starfsemi þess. Ferðamálaráð hefur lagt á það mikla áherzlu að svara öllum fyrirspumum eins fljótt og að stæður leyfa, einnig hefur verið lögð á það áherzla að bregða skjótt við, þegar óskað hefur verið eftir, að Ferðamálaráð beitti sér fyrir úrbótum þegar það hef ur verið á þess valdi. Fagrir staðir á landinu draga sífellt til sín fleiri ferðamenn. Myndin er frá Siúftnesi við Mývatn. kunnátta orsaki þann frumstæða aðbúnað og aumu afgreiðsluhætti sem upp á er boðið. Það er sam- dóma álit þeirra, sem þátt tóku í ferðinni. að þörf væri á að ráða farandkennara, sem gæti átt nokkra viðdvöl a hverjum stað, til að veita forráðamönnum og starfs liði þæi leiðbeiningar sem nauð synlegar eru. Þátttakendur í ferð inni eru einhuga um að ferðin hafi verið til mikillar nytsemdar og Ferðamálaráði til aukins skiln ings á þeim margvíslega vanda, sem úrlausnar biður. Önnur verketni Á starfstímanum hafa Ferða- málaráði borizt erindi frá erlend um og íslenzkum aðilum, þ.á.m. frá ýmsum ráðuneytum Stjómar- ráðsins. Með þessum erindum hef ur verið leitað álits ráðsins á ýmsum málum, sem snerta ferða mál. Á 65 bókuðum fundum Ferðamálaráðs hafa einstakir með limir lagt fyrir fjölda mála, þ.á. m. ýmis nýmæli, sem öll miða að því að bæta slæmt ástand í ferða málum okkar. Hér á eftir eru tal in nokkur mál sem Ferðacnálaráð hefur látið sig varða og rætt á fundum sínum. Er upptalningin gerð af handahófi. inni, vegna tilkomu umferðamið stöðvarinnar og gistihúss Loft- leiða h.f. Unnið var að því að fá sam ræmdan tíma þann, sem ákveðinn er um br-ottför gesta af gistihúsi að lokinni dvöl par. Tilraun var gerð til að fá breytt reglum um gjaldeyrismeð ferð í fríhöfn Keflavíkurflugvall- ar. Óskað var eftir, að borgarráð Reykjavíkur gæfi út kynningar- bækling um höfuðborgina. Óskað var eftir að Geysisnefnd og Náttúruvemdarráð beittu sér fyrir, að Geysir ; Haukadal yrði endurvakinn. Send var ósk til viðkomandi yf irvalda um, að vélar og tæki til gistihúsa fái sömu tollameðferð og vélar til iðnaðar. Erindi var sent til menntamála ráðuneytisins, þar sem óskað er niðurfellingar á 25 króna skatti þeim, sem innheimtur er á veit- inga- og gistihúsum enda er hann í mörgum tilfellum þannig fram- kvæmdur pð hann verður aðgangs eyrir að matborði. Gerðaæ varu tilraunir ttl að koma á framfæri kynningargrein mn um fsland við erlend blöð Landkynningarbæklingar og Erlendir ferðamenn Það verður að teljast eðliiegt og raunar sjálfsagt, að í skýrslu sem þessari sé gerð grein fyrir fiölda ferðamanna á árinu 1965 g gjaldeyristekjum, sem öfl uðust peirra vegna. Ferðamála- ráði þykir miður að nefndar upp lýsingar er ekki að finna í þess- ari skýrslu. Staiar þessi vöntun af því, að ekki ei hægt að fá rétt ar tölui um þessi efni fyrr en mik ið er liðið á árið 1966 Verður því nú og i framtíðinni að óbreyttum aðstæðum, að byggja a tölum frá árinu áður. Um allar tölulegar upplýsingar sem hér fara a eftir, er stuðzt við Fjármálatíðindi og Hagskýrsl- ur en um alla sundurliðun talna og samanburð á milli ára er að mestu stuðzt við greip, sem Hörð ur Sigurgestsson, viðskiptafræð- ingur riitaði og birt er i tímaritinu Frjáls verzlun, 4—5 hefti 1965. Á árinu 1964 komu 22.969 er- lendir ferðamenn til landsins, hér eru ekki talidr þeir ferðamenn, er komu með skemmtiferðaskipum, enda ekki aðrir taldir ferðamenn en þeir sem dvelja f landinu leng ur en 24 klukkustundir. Með skip um komu 3.157 ferðamenn, eða 14% af samanlögðum fjölda þeirra, en með flugvélum komu 19.812 eða 86%. Af samanlögðum fjölda ferðamanna voru 8.048 Norðurlandabúar, eða 35%. Næst á eftir Norðurlandabúum koma Bandaríkjamenn, sem voru 6.180 talsins. í þriðja sæti voru Bretar 2.980, en í fjórða sæti Þjóðverjar 2.603 talsins. Frakkar voru f fimmta sæti en þeir voru 537. Samtals er þessi hópur 89% af heildartölu erlendra ferðamanna á árinu 1964. Aðrir erlendir ferða menn komu frá rúmlega 30 þjóð- löndum og voru 11% af saman lögðum fjölda erlendra ferða- manna. Ef gerður er samanburð ur á árinu 1950 og síðasta ári, sem skýrslur eru til um, kemur í ljós, að á tímabilinu hefur fjöldi erlendra ferðamanna rúmlega fimmfaldazt, aukizt úr 4.383 árið 1950, í 22.969 árið 1964. Á þessu tímabili hefur þróunin ekki ver ið jöfn, langhörðust og vaxandi er þróunin seinni hluta tímabils ins. Sé litið á síðustu tíu árin sem eina heild er aukning á komu erlendra ferðamanna til landsins 142% eða 14.2% að meðaltali á árunum 1954-‘64. Það er athygl- isvert, að þegar lftíð er á tölur um fjölda ferðamanna árið 1950 og til ársins 1964, þá hefur flugið yfirhöndina um flutning erlendra ferðamanna til landsins og aukn ing á flutningum nær öll komið fram ■ fluginu. Á árinu 1950 komu 40% eriendra ferðamanna með skipum, en 60% með flug- vélum Á árinu 1964 komu 14% ferðamanna með skipum en 86% með flugvélum Það ar ekki oeðlilegt að draga þá ályktun af pessum' staðreynd- ■ um, að hinir miklu yfirburðir flugsins í fjölda og aukningu er lendra ferðamanna sé til kominn vegna hinna miklu og vel • skipu- lögðu auglýsingastarfsemi flug- félaganna erlendis Hins vegar má svo geta þess að flutningsgeta skipanna hefur Htið eða ekki auk izt á tímabilinu Þrjái þjóðir eru fjölmennastar i liópi skipafarþega á umræddu timabili. þær eru Danir Þjóðverjar og Bretar Voru þeir 30% af erlendum skioafar þegum á árinu 1964 ^ialdeyristekiur Samkvæmt 'ipglýsingum Seðla- bankans námu kaup bankanna á erlendum gjaldeyri ferðamanna á árinu 964 kr 31.700.000.00. Sam bærileg tala ársins á undan var kr. 56.300.000,00. nemur hækkun milli áranna kr. 25.400.000,00 eða 45% í þessum tölum eru aðeins talin kaup á seðlum og ferðatékk um, en ekki taldar tekjur flugfé- laga eða skipafélaga vegna far- miðasölu o.fl. Þá eru ekki í heild artölunum gjaldeyristekjur af frí höfninni á Keflavíkurflugvelli, en þær námu kr. 7.600.000 00 á árinu 1963, en kr. 13.100.000,00 á árinu 1964. Sé framanrituðum upphæðum deilt á samanlagða tölu erlendra ferðamanna kemur i ljós, að á árinu 1963 er eyðsla á hvem ferða mann kr. 3.203,41, en á árinu 1964 er sambærileg tala kr. 3.557. 00, eða 11% hækkun milli áranna. Framhaid á bls. 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.