Tíminn - 03.02.1966, Page 13
FIMMTUDAGUR 3. febrúar 1966
BRIDGE
Rvíkurmótið í kvold
Sveitakeppni meistaramóts
Reykjavíkur í bridge hefst í Brcið
firðingabúð í kvöld kl. 8, og er
þetta í tíunda sinn, sem mótið er
háð, Spilað er í tveimur flokkum,
meistara- og 1. flokki og eru átta
sveitir í hvorum flokki, frá öllum
bridgefélögum í Reykjavík. Efsta
sveitin í meistaraflokki hlýtur
meistaratitil Reykjavíkur.
í meistaraflokki skiptast svtitir
þannig milli félaga. Frá Bridge
félagi Reykjavíkur sveit Halls Sím
onarsonar, núverandi Reykjavíkur
meistari, sveit Gunnars Guðmunds
sonar, sveit Ólafs Þorsteinssonar
og sveit Róberts Sigmundssonar.
Frá Bridgefélagi kvenna. Sveit
Eggrúnar Arnórsdóttur og sveit
Elínar Jónsdóttur, og frá Bridge
deild Breiðfirðinga sveit Jóns
Stefánssonar og' sveit Ingibjargar
Halldórsdóttur. í kvöld spila meðal
annars þessar sveitir saman í
flokknum. Sveit Gunnars og sveit
Róberts, og sveit Halls og Jóns
Stefánssonar.
f 1. flokki eru einnig átta sevit
ir og færast tvær þær efstu upp í
meistaraflokk að keppni lokinni.
Þrjár þeirra eru frá Bridgefélagi
kvenna, tvær frá Tafl- og bridge
iklúbbnum, tvær frá Bridgedeild
Breiðfirðinga og ein frá Bridgefé
lagi Reykjavíkur.
Eins og áður segir verður keppn
in í Breiðfirðingabúð og verður
spilað á fimmtudögum. Strax að
sveitarkeppninni lokinni hefst tví
menningskeppni mótsins, en R-
víkurmeistarar í tvímennings-
keppni eru Eggert Benónýsson og
Þórir Sigurðsson en þeir eru einn
ig meistarar í sveitakeppni ásamt
Halli, Stéfáni Guðjohnsen, Símoni
Símonarsyni og Þorgeiri Sigurðs
syni.
ÍÞRÓTTIR
TJMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Kemur stjórnmála-
þras í veg fyrir
komu A-Þjóðverja?
A-Þjóðverjar reiðubúnir að leika hér.
unni og A-Þjóðverjar fengju til-
skilin leyfi.
Eins og kunnugt er, hefur oft
komið til árekstra, þegar a-þýzkt
íþróttafólk hefur ætlað að keppa
í NATO-ríkjum, en upp á síð-
kastið liefur þó borið minna á
slíku. Og verður því ekki trúað
að óreyndu, að a-þýzkt íþrótta-
fólk verði meinað að koma hing-
að vegna stjórnmáladeilna.
KSÍ-menn gátu um, að nú væri
á umræðustigi landsleikur gegn
Noregi ytra, en ekkert væri búið
að ákveða um það. Þá var að
lokum minnzt á Norðurlandsmót
unglijiga í knattspyrnu, sem hald-
ið vérður í Noregi í júlí n.k., en
ísland sendir lið í mótið eins og
í fyrra.
Fengu leyfi
Ákveðið hefur verið, að Dukla
Prag leiki gegn tilraunalandsliði
í iþróttahöllinni í Laugardal á
laugardaginn. Upphaflega var FH
synjað að halda aukaleik í íþrótta-
höllinni og voru horfur á, að leik-
urinn yrði að fara fram á Kefla-
víkurflugvelli. En nú hafa HKRR
og ÍBR breytt afstöðu sinni og
veitt FH leyfi til að halda leik-
inn í Reykjavík.
Knattspyrnukvikmynd í
sérflokki á vegum KSI
- verður sýnd annan laugardag.
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
Annan Iaugardag mun Knatt-
spyrnusamband fslands hefja sýn-
ingar á knattspyrnukvikmynd í
sérflokki, en það er mynd af leik
West Ham og Miinchen í Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa, úrslita-
leiknum, sem fram fór í London
í fyrra og lauk með sigri West
Ham 2:0.
Þegar talað er um knattspyrnu
kvikmynd í sérflokki er ekki endi
lega átt við sérstaklega vel tekna
mynd, heldur sérlega góðan knatt
spyrnuleik. Það er mál manna, að
leikur West Ham og Miinchen hafi
verið í sérflokki, mjög vel leikinn
Framhald á bls. 12
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
Á fundi með blaðamönnum í
dag, skýrði stjórn Knattspyrnu-
sambands íslands frá ýmsum verk
efnum, sem framundan eru. Búið
er að scmja um tvo landsleiki hér
heima næsta sumar. Fyrri leikur
inn verður gcgn Dönum (leik-
menn yngri en 23ja ára) 4. júlí
og síðari leikurinn vcrður gegn
áhugamönnum Frakka 18. septem-
ber.
Björgvin Schram, formaður KSÍ
tjáði blaðamönnum, að samningar
stæðu yfir um landsleik gegn A-
Þjóðverjum hér í Reykjavík næsta
sumar. Sagði hann, að A-Þjóðverj-
ar væru fúsir til að koma og
byðu hagstæð kjör. Ekki hefur
verið hægt að ganga endanlega
frá þessum léik, sagði formaður-
inn, þar sem Á-Þjóðverjum hefur
ekki enn tekizt að afla sér farar-
leyfis hjá v-þýzkum yfirvöldum.
Sagði Björgvin, að stjórn KSÍ von-
aði, að greiðast mundi úr flækj-
Nýr varamaður skipaður
Eins og sagt var frá hér á síð-
unni í gær, mótmæltu landsdóm-
arar í knattspyrnu því, að héraðs-
dómari ætti sæti sem varamaður
í dómaranefnd KSI. Á fundi með
blaðamönnum í gær, tilkynnti
stjórn KSÍ, um nefndir á vegum
Framhalo a ois 12
Bandarískir körfuknattleiksmenn:
Jerry West
Los Angeles Lakers er nú
sem stendur efst í vesturdeild
bandarísku atvinnumannakeppn
innar í körfuknattleik, og það
er engin tilviljun. Liðið hefur
nefnilega innan sinna vénanda
leikmann, sem enginn getur
stöðvað, komist hann á annað
borð í gang. Þessi leikmaður
er Jerry West, ein skærasta
stjarnan í bandarískum körfu
knattleik í dag. Af 46 leikjum,
sem Los Angeles Lakers hef-
ur leikið á þessu keppnistíma
bili, hefur liðið unnið 26, og tíu
sinnum hefur Jerry West skor
að yfir 40 stig í leik.
Mesti heiður, sem Jerry West
hefur hlotnazt, þegar hann var
valinn í bandaríska Olympiu-
liðið er keppti í Róm ‘60. Það
lið er álitið vera sterkasta lið,
sem Bandaríkjamenn hafa teflt
fram í keppni á erlendri grund
fyrr og síðar. Jerry West stóð
sig vel í Róm, varð þriðji stiga
hæsti í bandaríska liðinu, og
fjórði yfir öll liðin.
Eftir heimkomuna var hann
keyptur til Los Angeles Lak
ers, og má segja. að þá hefjist
uppgangur Los Angeles Lakers
fyrir alvöru. Lakers hafði í i
mörg ár staðið í ströngu gegn
St. Louis Hawks, en nú er svo
komið, að Lakers eru ókrýndir
meistarar vestursins, og austur
deildarliðin óttast þá. Má í því
sambandi minna á ummæii Red
Auerbach, þjálfari Boston Celt
ics, sem er núverandi „World
Champion“, en hann sagði ný-
lega: „Það er aldrei að vita
hvað tvíburarnir í vestri geta
gert.“ Tvíburarnir eru þeir
Jerry West og Elgin Baylor.
Þessi ummæli frægasta og
reyndasta körfuknattleiksþjálf
ara Bandaríkjanna þurftu ekki
að koma á óvart, því tvö síðustu
keppnistímabilin hafa þeir fé-
lagar West og Baylor skorað
að meðaltali 64 stig' í leik. En
gæfan hefur ekki alltaf verið
þeim hliðholl Þannig var
keppnistímabilið 1963—1964
mikið óhappatímabil. Baylor
meiddist í hnéi og lék ekki með
Laskers í einn og hálfan mán
uð. Hann var ekki fyrr byrjað
ur að leika en Jerry West varð
fyrir því óhappi að nefbrotna
svo harkalega, að hann gat
ekki leikið í 3 vikur. Þetta var
meiri blóðtaka en Los Angeles
Lakers þoldi með góðu móti,
og ekkert gat hindrað sigur
andstæðingaliðsins, St. Louis.
Á þessu sama keppnistímabili
skoraði Jerry West samtals
2064 stig í 72 leikjum, eða 28,7
stig að meðaltali í leik. Þegar
þetta var, þá var West 26 ára
gamall og upp voru háværar
raddir, sem vildu skipa honum
á bekk í „All Time“ liðinu.
Síðasta keppnistímabil var
glæsilegt fyrir Jerry West. Þá
vann Lakers vesturdeildina og
komst áfram í undanúrslit, f
undanúrslitum missti Lakers
Baylor, — þar sem gömul
meiðsl í hné tóku sig upp
Og þá reyndi á hæfni Jerry
West. í fimm leikjum liðsins
gegn Baltimore Bullets, skoraði
hann að meðaltali 41,6 stig í
leik, á meðan Wilt Chamberlain
var með 32,4 stig. En þrátt fyrir
góða framgöngu West, sigraði
Baltimore Bullets í þremur
leikjum af fimm.
Það hefur verið sagt um
Jerry West, að hann reyni skot
á körfuna í tíma og ótíma, en
um þetta segir hann sjálfur:
„í sannleika sagt er ég í eðli
mínu töluverður einstaklings-
hyggjumaður. Það segja marg
ir, að ég skjóti of mikið, en
hver ætlar sér að verða góður
körfuknattleiksmaður án þess
að skjóta á körfuna? Eg tek
skot á körfuna einfaldlega
vegna þess, að ég veit, að helm
ingurinn af 40 eru 20 og helm
ingurinn af 70 eru 35. Því fleiri
skot, sem ég á, því fleiri stig
hlýt ég að skora, ef reiknað er
með sömu hittniprósentu.“
Svo mörg voru þau orð. Jerry
West lýsti því yfir í blaðaviðtali
nýlega, að takmark hans væri
að verða „World Champion"
með Lakers. Hvort það tekst,
er óvíst, en eitt er víst. að Los
Angeles Lakers hefur aldrei
mætt sterkara til leiks en ein
mitt á þessu keppnistímabili
með þá félaga Jerry West og
Elgin Baylor í broddi fylking
ar. (GG tók saman).
JERRY WEST