Tíminn - 17.02.1966, Síða 3

Tíminn - 17.02.1966, Síða 3
FIMMTUDAGUR 17. febrúar 196G TÍMINN Nemenda- mót Verzló Þrítugasta og fjórða nemenda- mót Verzlunarskólans var haldið í Sigtúni í fyrrakvöld — og var ó- venju vel til jiess vandað vegna 60 ára afmælis skólans. Ljósmynd ari Tímans GE var staddur á nem endamótinu og tók myndir þær sem birtast hér. Efst er nemenda mótskórinn, og stjórnandi hans, Jan Moravek, við hljóðfærið. Þar næst er Verzlunarskólahljómsveit- in, og þá atriði úr leikritinu DeJe rium Boubonis. Neðst sjást nokkr ir nemendur, sem skemmta sér vcl. Eindálka myndin er úr leikritinu „Tjara 2“. Mótið var endurtekið i gærkvöldi, en sérstök sýning verður fyrir foreldra nemenda nk. sunnudag. 3 Á VÍÐAVANGI Er Vísir skynsamari en Moggi? Vísir hefur undanfarna daga birt iðnaðarræðu Jóhanns Haf steins í köflum, en Morgun- blaðið birti hana sem kunnugt er í einu lagi, og svo herti hann á niðurlagsorffum henn- ar með því að prenta í leiðara tilmæli Jóhanns um, að menn þegðu upi ávirðingar stjómar- innar i garð iðnaðarins. Undir þennan merkilega boðskap kvaðst Moggi vilja taka alveg sérstaklega og var ekki sams konar yfirlýsing birt um aðra þætti ræðunnar. í gær birti Vísir lokaþátt sinn af ræðu Jóhanns, en viti menn. Hann setti punkt við, þegar kom að hinu merkilega niðurlagi ráðherráns, þar sem hann bað menn að halda sér saman, þessu atriði sem Moggi taldi hámark snilldarinnar og frelsisins. Hvernig stendur á þessu? Hvað gengur Vísi til að stinga þessu undan?Effa get ur verið, að hann sé vitrari en Moggi og hyggist láta sér fall hans að kenningu verða? Eða bað Jóhann Vísi að vera ekki að flíka þessn? „Ósæmilegir dómar" Þjóðviljamenn mtfnnuðu sig upp í það í gær að taka hreina afstöðu móti dómunum yfir rússnesku rithöfundunum. Batnandi mönnum er bezt að lifa. Leiðari Þjóðviljans um þetta bar ofangreinda fyrir- sögn og hljóðaði svo: „Vandséð er, að hinir þungu refsidómar yfir tveimur sovézk um rithöfundum geti orðið til nokkurs annars en valda So> vétríkjunum stórfelldum álits hnekki og verða vatn á myliu þess áróðurs gegn alþýðurík- inu. sem seint slotar. Aðal- ákæran virðist hafa verið sú, að bækurnar, sem þeir sendu úr landi og gefnar voru út er- lendis hafi verið notaðar sem efni í árásir gegn sovézku þjóðfélagi. Svo fjarri fer því, aff þeim árásum sé skynsam- lega svarað með því að daéma rithöfundana til þungrar fang elsisvistar, að hitt er einmitt líklegra, að ekkert, sem þessir tveir menn hafa skrifað eða eiga óskrifað, gæti gefið ann að eins tilefni til áróðurs og árása á Sovétríkin og réttar- höldin og dómamir yfir þeim. Það er ekki fyrr en þessi at- riði koma til, réttarhöldin og dómurinn að Slnjavksí og Dan íel <ærða helmskunnir menn. f ákærunum gegn rithöfund unum og dómunum yfir þeim kemu> fram sá einstrengings- háttur og skortur á umburðar lyndi sem oft hefur sett mark sitt á afstöðv ráðamanna til bókmennta og lista í Sovétríkj unum. Einmitt á því sviði hef ur verið um verulega breyt- ingu að ræða á selnni árura, sem fagnað hefur verið af sós íalistum og öðrum vinum So- vétríkjanna hvarvetna. Þeim mun hörmulegra er, að með hinum þungu dómum yfir rit höfundunum tveimur skuli haf inn sá ósæmilegi óvinafagnað ur að Iáta svipu refsidóma og fangelsana svara rituðu orlH. — s.” k

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.