Tíminn - 01.03.1966, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 1. marz 1966
Stórkaupmenn vilja
aukið verzlunarfrelsi
EJ—Reykjavík, mánudag.
Á aðalfundi félags íslenzkra
stórkaupmanna, sem haldinn var
laugardaginn 26. febrúar. voru
ýmis hagsmunamál félagsins
rædd. Fundurinn, sem var fjöl-
sóttur, samþykkti svohljóðandi
ályktun:
„Aðalfundur félags íslenzkra
stórkaupmanna 1966, skorar á rík-
isstjórnina að framkvæma nú þeg
ar eftirtalin atriði:
a. Afnema einkasölu ríkisins
á eftirtöldum vörum: Tóbaki, við-
tækjum, eldspýtum, bökunar-
dropum, ilm- og hárvötnum og
grænmeti,
Frá verðlagsráði
landbúnaðarins.
Vegna nýju kaupgjaldsvísitöl-
unnar breytist verð á landbúnaðar
vörum í fyrramálið þannig, að
súpukjöt 1. verðflokkur kostar
kr. 67.20 hvert kg., en kostaði áð
ur kr. 66.00 Verð á öðrum kjöt-
vörum hækkar sambærilega.
Hver mjólkurhyrna hækkar í
verði um 10 aura, þannig að hver
mjólkurhyrna kostar nú kr. 7.75.
Rjómi í lausu máli hækkar um 80
aura hver lítri og kostar nú kr.
85.40. 45% ostur hækkar úr kr.
124.50 í kr. 125.75 hvert kg. Verð
á smjöri helzt óbreytt.
b. afnema gildandi verðlags-
ákvæði með öllu,
c. lækka tolla enn frekar en
gert hefur verið,
d. rýmka heimild einkafyrir-
tækja til að flytja út framleiðslu
vörur þjóðarinnar,
e. stuðla að því, að Verzlun-
arbanki íslands h.f., fái heimild
til gjaldeyrisviðskipta og veita
bankanum aðstoð til að koma á fót
verzlunarsjóði til eflingar frjáls
ari verzlun í landinu.
Aðalfundurinn vísar til fyrri
röksemda, varðandi ofangreind
mál, sem hann telur, að eigi þurfi
að ítreka.
Aðalfundurinn vill færa ríkis-
stjórninni þakkir sínar fyrir það
mikla átak, sem gert hefur verið
í því að gera innflutningsverzlun-
ina svo til alfrjálsa, landsmönnum
öllum til hagsbóta.“
Árekstur í Svínahrauni
í gær var ekið á kyrrstæðan
bil í Svínahrauni á Hellisheiði.
Hafði ökumaður stöðvað bifreið
sína til þcss að huga að vélinni,
þegar ekið var aftan á bifreiðina.
Meiddust tveir farþegar í bifreið
inni, sem ók á hina en ekki munu
meiðslin hafa verið alvarleg. Á-
reksturinn varð á fjórða tímanum
í gær.
Nkrumah verður
dreginn fyrír rétt
— ef hann kemur
NTB-Accra, Addis Abeba og
Moskvu, mánudag.
Kwame Nkrumah, fyrrverandi
forseti Ghana, verður dreginn fyr
ir rétt, ef hann kemur til Ghana,
að því er leiðtogi byltingarmanna
Joseph Ankrah, hershöfðingi,
tjáði fréttamönnum í dag. „Sér-
hvert land, sem Nkrumah dvelst
í, verður beðið að afhenda okkur
hann,“ sagði Ankrah. Nkrumah
sjálfur fór frá Peking í dag í
sovézkri flugvél, en ekki er vitað,
hvert hann ætlar.
Ankrah hershöfðingi sagði þefta
á sínum fyrsta blaðamannafundi
frá því stjórnarbyltingin var gerð
á fimmtudaginn. Aðalmál fundar
ins var, að kynna Daniel Amihyia,
sem var í London, meðan bylt-
ingin var gerð og sem lýsti því
yfir þar, að hann væri maðurinn
á bak við byltinguna. Hann var um
kringdur hermönnum, og Ankrah
hershöfðingi sagði, að byltingar-
menn þekktu ekki Amihyia.
„Hann er glæpamaður, sem leitað
hefur verið að í Ghana,“ sagði
Ankrah.
Ankrah var að því spurður, hvað
gert yrði við Nkrumah, ef hann
kæmi aftur til Ghana, og sagði,
að hinir nýju leiðtogar vildu ekki
blóðsúthellingar. Við köllum hann
fyrir rétt fyrir afbrot hans, ekkert
annað, sagði hann. Jafnframt
sagði hann það ósatt, að nýju
leiðtogarnir ætluðu að slíta stjórn
málasambandi við Sovétríkin og
til Ghana að nýju
Kína. Við viljum reyna að hafa
gott samband við alla, sagði hann.
Nkrumah fór með flugvél frá
sovézka flugfélaginu Aeroflot frá
Peking í dag, en ekki er vitað um
ákvörðunarstað hans. Aukaflug-
vél frá Areflot kom í dag til Ur-
kutsk í Austur-Síberíu og hélt
síðan áfram til Moskvu, en ekki
hefur verið staðfest, að Nkrumah
sé um borð í vélinni, en talið er,
að svo sé. Talsmenn sendiráðs-
Ghana í Moskvu sögðu í dag, að
þeir vildu ekkert með hinn fallna
leiðtoga sinn hafa, ef hann kæmi
þangað.
Heimildir segja, að Nkrumah
muni ekki vera lengi í Moskvu.
í dag hófst ráðherrafundur Ein
ingarbandalags Afríku 45 mfnút-
um síðar en áætlað var. Töfinni
ollu umræður um, hverjir væru
hinir réttu fulltrúar Ghana á ráð-
stefnunni — sendimenn hinnar
nýju stjórnar, eða sendimenn
Nkrumah. en samkomulag náðist
ekki. Quaison Sackey, utanrikis
ráðherra Nkrumah, átti að vera
fundarstjóri, en með þegjandi
samkomulagi sendinefndar nýju
stjórnarinnar. hófst fundurinn
undir stjórn utanríkisráðherra
Sómalíu. Quaison-Sakey kemur til
Addis Abeba á morgun, og er tal
ið, að hann ætli sér að berjast
gegn því, að sendinefnd hinnar
nýju stjórnar verði viðurkennd á
fundi Einingarbandalagsins.
TÍMINN
Ætla að byggja
27 þús. ni3 hús
við Miklubraut
SJ-Reykjavík, mánudag.
Við Miklubraut er í bígerð að
reisa 27 þús. rúmmetra byggingu
er á að hýsa um 30 heildsölufyrir
tæki og mun skapast eins konar
heildsölumiðstöð í þessari bygg-
ingu, eftir því sem segir í frétta
tilkynningu frá Félagi íslenzkra
stórkaupmanna. Arkitcktarnir Jós
er Reynis og Gísli Halldórsson,
vinna nú að frumuppdráttum og
„samkvæmt þegar gerðum útlits
teikningum mun þetta verða ein
fegursta stórbygging borgarinn-
ar, sem setja mun svip sinn á hinn
nýja miðbæ“, eins og segir í
fréttatilkynningunni.
NÁMSKEIÐ í
STÆRÐFRÆÐI
Brezkur stærðfræðingur, Dr.
Michael Mather frá Manchester
Háskóla, mun halda fyrirlestra um
inngangsatriði tópólógíu við Há-
skóla íslands í marzmánuði.
Tópólógía er eitt af meginatrið
um nútímastærðfræði, og er þetta
í fyrsta skipti, sem hún er kennd
við Háskólann.
Viðtalstími og fyrsti fyrirlest
urinn verða í I. kennslustofu Há-
skólans miðvikudaginn 2. marz
1966 kl. 17.30.
Öllum er heimill aðgangur.
VeriS er aS handiárna Ásmund
á lögreglustöSinni í Reykjavík.
Nokkrum mínútum siSar hafSi
hann leyst af sér handjárnin.
Tímamynd—GE.
Islenzkur töframaður
sagar sundur kvenfólk!
GÞE—Reykjavík, mánudag.
Það er ekki svo ýkja langt
síðan, að menn voru í hrönn-
um dæmdir til dauða fyrir
galdra, og áttu allir þeir, sem
framkvæmt gátu hluti, sem
fjöldinn ekki skildi, að vera í
nánum tengslum við djöfsa
þann, sem bústað átti í iðrum
jarðar. Við, sem lifum á atóm
öld, álítum, að þessir fuglar
séu fullt eins mikil guðsbörn
og Pétur og Páll, og þetta séu
menn, sem eigi hæfni sína und
ir miklu viljaþreki og þjálfun
komna. Slíkir náungar eru
ekki á hverju strái, en að und-
anförnu hafa borizt sögur af
ungum kynjamanni, sem ku
geta leyst af sér handjám eins
og að drekka vatn, dáleitt sak
iaust fólk með augnaráði sínu
einu saman og stolið af fólki
bráðnauðsynlegustu hlutúm.
svo sem gervitönnum, án þess
að viðkomandi hafi um það
hina minnstu hugmynd. Þessi
furðufugl Ieit inn á ritstjóra
arskrifstofu Timans í dag. Hann
heitir Ásmundur Pálsson og er
'22j<- ára að aldri. ‘
Þetta virðisl hinn mesti still
ingarmaður, hægur og rólegur
með afbrigðucn, og bágt á ég
með að trúa því, að allar sög-
umar sem hann sagði mér séu
sannar en forvitinn lesandi get
ur komizt að raun um það, éf
hann lítur ínn í Austurbæjar-
bíó á fimmtudagskvöld kl.
11.15, en þar mun hann koma
fram ásamt 50 öðrum skemmti
kröftum. Skemmtun þessi vprð
ur á vegum Skrifstofu
skemmtikrafta.
— Hvað er það nú helzt sem
þér er til lista lagt, Ásmundur?
— Eg het fengizt talsvert
við dáleiðslu, sagað sundur
kvenmann, sem liggur í kassa
og lætur höfuð og fætur
standa út um sinn hvorn enda
kassans. Þá hef ég látið hafa
mig fyrir skotmark og komizt
alheill úr því, og farið ofan í
kassa og látið reka mig í gegn
með sverði. Eins hef ég leyst
af mér handjárn og verið með
ýmsar sjónhverfingar.
— Og hvai hefurðu lært
þessi ósköp7
- Pabbi kom mér upp á lag
ið, þegar ég var fjögurra ára.
Hann sýndi mér ýmsa spila-
galdra, og pai með var áhug
inn vaknaður. Síðan færði ég
mig upp á skaftið af eigin
rammleik, og það má heita, að
ég sé sjálfmenntaður í þessu.
Eg var bara smástrákur, þegar
ég byrjaði á dáleiðslu, og not-
aði hænurnar hans pabba fyrir
tilraunadýr. Einu sinni kom
litli bróðir minn hlaupandi ut-
an úr hænsnahúsi og tilkynnti
að allar hænurnar væru dauð
ar. Eg hafði bá dáleitt þær,
allar með tölu.
— Hefur pú komið eitthvað
fram opinberlega?
— Já, ég hef tvisvar komið
fram á skeonmtunum hér í
Reykjavík og svo víða úti á
landi. Einnig hef ég komið
fram erlendis, en þannig er
mál með vexti, að ég var á
togara, og pegar við vorum í
höfn Bremerhaven og Grims
by fórum við á skemmtistaði,
og pá var eg fenginn til að
leika listir mínar.
— Hefurðu gert eitthvað af
Framhald á 14. síðu.