Tíminn - 01.03.1966, Qupperneq 14

Tíminn - 01.03.1966, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 1. marz 1966 NÝ KViK/WYND geirsson, sem einnig ritaði text- ann. Tónlist samdi Leifur Þórar- insson, en Þorsteinn Ö. Stephen- sen var þulur. Svo sem nafnið ber með sér, er mynd þessi frá Grænlandi, nánar tiltekið frá austur- strönd landsins, en þangað flýgur Flugfélag íslands nokkrum sinn- um á ári. Fyrsti staðurinn, sem heimsóttur er, er Scoresbysund, en síðan er haldið norður á bóg- inn. Þorgeir tjáði blaðamönnum, að myndin hafi verið tekin fyrir þrem árum síðan, og verið í fram- leiðslu allan þann tíma. Gæfi það góða hugmynd um, hvernig búið væri að þessari grein hér á landi, en undir eðlilegum kringum- stæðum væri gerð kvikmyndar- innar þriggja vikna verk. Þó taldi Þorgeir, að fjárhags legur grundvöllur væri fyrir gerð slíkra stuttra kvikmynda hér á landi, ef góð samvinna næðist við eigendur kvikmyndahúsa, en slíkt væri ekki fyrir hendi enn sem komið er. Þorgeir gat þess, að Geysis- myndir hefðu nú tvær myndir smíðum, og auk þess væru þeir að byrja á gerð kvikmyndar um Kópavog. 53 VERKFRÆÐINGAR vinnslu sjávarafurða, sem gert er ráð fyrir að halda síðar á árinu. í undirbúningi er útgáfa nýs Verkfræðingatals á vegum félags ins og annast Stefán Bjarnason, verkfr., ritstjórn þess. Skuldabréfaeign Lífeyrissjóðs VFÍ var um sl. áramót 26.355, 426,03 og fengu 23 félagsmenn l!án að upphæð 5.548,000,00. í stjórn voru kosnir til næstu tveggja ára: SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS M.s. Herðubreíð fer vestur um land í hringferð 3. þ.m. Vörumóttaka á þriðjudag til Kópaskers, Þórshafnar, Bakka fjarðar, Vopnafjarðar, Borgar- fjarðar, Stöðvarfjarðar, Breið- dalsvíkur og Djúpavogs. Farseðlar seldir á miðvikudag. Herjóltur fer til Vestmannaeyja og Homafjarðar á miðvikudag. Vörumóttaka til Hornafjarðar í dag. Árni Snævarr, formaður, Bragi Þorsteinsson og Haraldur Ás- geirsson, meðstjórnendur. Auk þeirar eiga sæti í stjórninni Guð mundur Pálmason, Agnar Nor- land, Baldur Líndal og Gunnar Ólason. Einar B. Pálsson er fráfarandi formaður félagsins. Framkvæmdastjóri félagsins er Hinrik Guðmundsson. MATVÖRUBÚÐIR Framhaid af 16. sfða menn telja atvinnurekendur ekki bjóða nógu háa almenna launa hækkun. Mun hæsta boð þeirra hafa verið 2% kauphækkun, með því skilyrði, að samið yrði til tveggja ára. Sáttafundur verður annað kvöld, þriðjudag. WILSON / Framhaid af bls. 1. þriggja þingmanna meiri- hluta í þinginu, og mun hann væntanlega benda á, að hann þurfi aukinn meiri hluta til þess að geta fram kvæmt umbótaáætlanir sín- ar sérstakiega þó áætlunina um að koma á áhrifamikilli „stöðvunarstefnu” í sam- bandi við launa- og verð- hækkanir. Skoðanakannanir að und anförnu hafa bent til þess að Verkamanaflokkurinn muni sigra með verulegum meirihluta í kosningunum, og aukakosningar þær, sem farið hafa fram að undan- förnu, hafa einnig bent í sömu átt. Auk þess er talið að Verkamannaflokkurinn ætti að geta fengið fylgi vegna hárra launa, sem nú ' eru almennt í Bretlandi, lít ils atvinnuleysis og deilunn ar innan íbaldsflokksins út af Rhódesíumálinu. Leiðtog ar íhaldsflokksins munu aft ur á móti reyna að byggja kosningabaráttu sína á inn anríkismálunum eins og t.d. hækkandi verðlagi. Úrslit kosninganna verða mjög þýðingarmikil fyrir Ed- ward Heath, leiðtoga íhalds flokksins, því búast má við að han muni verða að segja af sér sem leiðtogi flokks- ins, ef flokkurinn bíður verulegan ósigur í kosning unum. Verkamannaflokkurinn mun líklega byggja á vin- sældum Wilsons í kosninga baráttunni, enda verður að- alslagorð þeirra: Win with Wilson. ÞAKKARÁVÖRP Þakka innilega ykkur öllum, sem mijmtuzt. sjötíu ára af mælis míns. Sigurjón Jónsson, Snæhvammi. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Kristínar Vigfúsdóttur Gullberastöðum, Sérstakar þakkir faerum við læknum og hjúkrunarliði Akranes- spítala fyrir góða aðhlynningu i veikindum hennar. Ennfremur þökkum við Kvenfélagi Lunddæla fyrlr sérstaka aðstoð vlð útförina. Þorsteinn Kristleifsson, fósturdætur og fjöiskyldur þeirra. Eiginmaður minn og faðir okkar, Páll Eyjólfsson bifreiðastióri, Þórsgötu 20B Andaðist 25. febrúar. Slgriður Einarsdóttir og dætur. TÍMINN TÖFRAMAÐUR Framhald af bls. 2. því að fremja töfrabrögð á al saklausu fólki, sem á sér einskis ills von? — Já, það hef ég mjög oft gert. Sérstaklega, þegar ég er á skemmtistöðum og fólk er í góðu skapi. Fyrir skömmu var ég staddur á skemmtun í Vest mannaeyjum, og þá komu að borðinu til mín hjón og röbb- uðu við mig góða stund. Síðan bauð eiginmaðurinn frúnni upp í dans, og þegar þau komu aftur að borðinu, varð eigin- maðurinn skyndilega var við, að það vantaði í hann tennurn ar. Þær hafði ég tekið úr hon um' og fengið frúnni til varð veizlu. Þú segist geta leyst af þér handjám, hefurðu oft komizt í tæri við lögregluna? — Ekki nema í gamni, nei, ég er enginn afbrotamaður, og handjárn hafa aðeins verið sett á mig til að vita, hvort ég geti leyst þau af mér. — Heldurðu, að allir geti orðið sjónhverfingamenn, ef áhuginn er fyrir hendi? — Áreiðanlega ekki. Fólk, sem ætlar að leggja þetta fyrir sig verður að hafa óbilandi sjálfstraust og vera alltaf í sál arlegu jafnvægi. Ef fólk vill leggja stund á dáleiðslu, verð ur að koma til mikil einbeit- ing hugans, svo mikil, að það þarf að geta hugsað stíft um einhverja mynd mínútum sam- an. , — Ertu að hugsa um að ger ast atvinnusjónhverfingamað- ur? — Eg er ekki ákveðinn enn- þá. Eg heí áhuga á cnörgu öðru, þótt þetta sé kannski mitt aðaihugamál. Eg kann vel við mig á sjónum, og svo hef ég mjög mikinn áhuga á ljós myndun. Annars er ég mjög mikið að hugsa um að fara ut an ug verða mér úti um ýmis- leg áhöld og græjur, sem nauð synlegar eru fyrir sjónhverf- ingamenn. Eg hef líka fullan hug á að fara á skóla úti í Lon don, þar sem töfrabrögð eru kennd. Kannski fer ég strax í vor. FÍ OG BOEING Framhald af bls. 1. k. 3—4 flugfreyjum. Boeing 727 mundi fljúga héðan til Glasgow á tæpum tveim tím um og til Kaupmannahafnar á þremur tímum. Fullhlaðin vegur flugvélin um 70 tonn. Þegar hafa verið seldar 470 —480 vélar af þesari tegund. og er Tímanum kunnugt um, að afgreiðslufrestur er óvenju langur vegna hinnar miklu eft irspiumar. Tekið skal fram, að Örn Johnson gaf alls ekki í skyn, að Boeing 727 yrði fyrir valinu þegar kaupin yrðu ákveðin. ÍÞROTTIR Clyde—Kilmarnock 1:4 Dundee—St. Mirren 3:2 Dunfermline—St. Johnstone 5:1 Hibernian—Partick 2:0 Morton—Dundee Utd. 2.0 Motherwell—Falkirk 3:0 Rangers—Hamilton 4:0 Stirling—Celtic 1:0. Rangers hefur nú forustu á Skotlandi, hlotið 39 stig. Ekki er okkur kunnugt hvort Þórólfur lék með á laugardaginn. Celtic er í öðru sæti með 37 stig. Dunferm- line er 1 þriðja sæti með 33 stig, Kilmarnock í fjórða með 32 stig, þá Hearts í fimmta sæti með 30 stg. Dundee Utd.. — Liðið, sem Fram fær upp í júní — er í sjötta sæti með 29 stig. Þar á eftir koma Hibernian með 25 stig og Aber- deen með 22 stig. -alf. Á VÍÐAVANG Framnaid h ols 3 vænjega skýrsla fiskifræðing- anna sýnir gerla, að þess hefði verið mikil þörf að ríkisstjórn in sýndi einhvern Iit á því að standa við það loforð. En því var ekki að heilsa. En lengur verður ekki setið. Tillaga Fram sóknarmanna, nýkomin fram á Alþingi er því næsta brýn. IÞRÖTTIR Framhald af bls. 13. Þá sigruðu íslendingar með tveggja marka mun, 13:11. Rúm- enar hafa verið í keppnisför og koma hingað frá Noregi. í för- inni eru flestir af beztu leikmönn- um þeirra, þ.á.m. Ion Moser, sem af mörgum er talinn snjallasti handknattleiksmaður, sem nú er uppi. Alls koma 14 leikmenn og fjórir fararstjórar. Sala aðgöngumiða verður í bóka búðum Lárusar Blöndal og hefst á morgun (þriðjudag.) Verð að- göngumiða er kr. 125 fyrir full- orðna og kr. 50 fyrir börn. Er fólki ráðlagt að tryggjá sér miða tímanlega, því eftirspurn verður örugglega mikil. IÞRO-TIR Framhald af bls. 13. línusendingar hvað eftir annað, svo ævintýralegar, að maður freist ast til að halda, að viðúrkenn- ingarorð fyrir línuspil, sem Hauk- ar hafa fengið í blöðum nýlega, hafi stigið þeim til höfuðs. FH hafði yfir í hálfleik 13:8, en Haukar jöfnuðu stöðuna um miðj- an síðari hálfleik, 17:17. FH náði svo fjögurra marka forskoti, 22: 18, en Haukar söxuðu á forskot ið, komust í 20:22. Hvort liðið um sig skoraði eitt mark til við- bótar og lyktaði leiknum 23:21 fyrir FH, sem voru sanngjörn úr- slit. Páll Eiríksson er aðalskotmað- ur FH. Hann skoraði að þessu sinni 6 mörk. Guðlaugur skoraði 5 mörk, Geir 4 og aðrir leikmenn færri. Matthías og Ásgeir skoruðu flest mörk Hauka. Matthías 6 og Asgeir 5. ÍÞRÓTTIR Framhalu af 12. síði) Haukum. Ármann á hi«a vegar eftir 1 leik gegn Val, FH og Hauk- um. En það fer víðsfjarri, að fall- baráttan sé að komast á lokastig, og meira að segja ekki víst, að sú barátta standi eingöngu milli Ármanns og KR. En nóg um það og snúum okk- ur að gangi leiksins. Til að byrja með var um jafna baráttu að ræða. Ármann komst í 3:1, en KR jafnaði og komst í 4:3. En eftir það náði Ármann forustu, sem liðið hélt allt til leiksloka, Þótt oft væri munurinn lítill. í hálfleik var staðan 11:9 og minnsti munur í síðari hálfleik 12:11. Síð- ustu mínúturnar lék Ármann bezt, en þá náði liðið um tíma 8 marka forskoti, 23:15, en lokatöl- ur urðu 24:18. Hörður Kristinsson var nottur- inn og pannan í leik Ármanns og hann skilaði álíka hlutverki og Gunnlaugur Hjálmarsson í leik- Fram og Vals á dögunum. Án Harðar færi lítið fyrir Ármanns- liðinu, en þó skal þess getið, að um framfarir er' að ræða hjá yngri leikmönnum liðsins, sérstak- lega Hreini og Pétri. Árpi Samú- elsson er góður hlekkur, en Hans var of skotgráðugur. Sveinbjörn í markinu er farinn að verja þokka lega — og með hans tilstilli, auk þess, sem vörnin í heild var nú þéttari — er nú sett fyrir þann mikla leka, sem einkennt hefur Ármanns-vörnina í fyrstu leikjun- um. Mörk Ármanns* Hörður 14 (2 víti), Hans 3, Árni, Hreinn og Olfert 2 hver og Baldvin 1. KR lék hvorki betur né ver en í fyrri leikjum í mótinu. Hilmar og Reynir voru lítill styrkur, enda hvorugir æft með liðinu. Það virð- ist ekki ætla að birta til hjá KR í handknattleiknum, því ekki fást nógu góðir piltar úr yngri flokk- unum til að fylla í þau skörð, sem áberandi eru í meistaraflokkn um. Meinsemdina virðist því vera að finna í unglingastarfinu, en á þann lið ætti KR að leggja meiri áherzlu en verið hefur. Mörk KR: Karl 9, Heinz 3, Reynir og Herbert 2 hvor, Sigurður Ó. og Hilmar 1 hvor. Leikinn dæmdi Daníel Benja- mínsson og dæmdi hann sérstak- lega vel. Er langt síðan, að sá, sem þetta ritar, hefur séð leik jafn vel dæmdan að Hálogalandi. Daníel er vinsæll dómari og ættl að gera miklu meira af því að dæma, því hörgull er á góðum dómurum. UNGÞORSKUR Framhaíd af bls. 5. um á íslandsmiðum í 130 m.in. til samræmis við það sem gildir í Barentshafi og auk þess verð ur að teljast nauðsynlegt að hætt sé algerlega við klæðningu pokans að ofan ffieð hlífðamet um eða þeim þá þannig hagað að ekki sé til skaða, enda eru hin nýju gerviefni sem notuð eru í dag sterkari en hampur- inn, sem áður var notaður. Það er ekki vafamál að ís- lendingar græða þjóða mest á aukningu möskvastærðar hér við land, en hér er þó ekki um háar tölur að ræða og er hætt við að frekari aðgerðir séu nauðsynlegar til verndunar og viðhalds stofnsins. íslendingar taka einungis 18 af hverjum 100 óþroska fiskum sem landað er af fslandsnoiðum, hitt taka útlendingar aflhllega Bretar. Veiðisvæði þeirra eru vel þekkt og eru þau aðallega út af Norðaustur- og Norðvestur- landi öé má segja að fiskur sá sem þeir afla sé nokkuð stað bundinn þar til hann verður kynþroska og leitar í heita sjó inn til hrygmngar. Tel ég per sónulega að við verðum að kom ast að alþjóðasamkomulagi um frekári friðun þessa hluta stofnsins, annaðhvort með tíma bundinni lokun ákveðinna svæða eða þá lakmörkun á há marksafla. Eg tel, að lokun á- kveðinna hrygningarsvæða komi ekki að þeim notum, sem menn ætla. Se hins vegar hægt að sýna fram á með vísindaleg um rökum, að nauðsynlegt sé að takmarka veiðina á hrygning arfisknum, þa álít ég að raun- veruleg skömmtun sé hið eina, sem til greina kemur og veiði sé nætt þegar ákveðnu marki er náð. Nú er það staðreynd að inga fæst á vetrarvertíð og það yfir 75% af þorskafla íslend- þurfa því að vera veigamikil rök fyrir hendi, til þess að við förum að skammta þá veiði. Nefndin gerði einnig athugun stofnanna við ísland, en ekki er á ástandi ýsu- ufsa og xorfa- tími til þess að gera þeim athug unum skil að þessu sinni. Þó vil ég aðeins nefna að ýsustofn inn á íslandsmiðum hefur auk- izt mjög síðan 1952 og segir nefndin berum orðum að þetta megi þakka lokun þýðingarmik illa uppeldisstöðva eins og t. d. Faxaflóa og má segja að viðbrögð þessa stofns sé veiga mikil rök fyrii stefnu íslend inga í friðunarmálum undanfar in hálfan annan áratug. Nefndin telur að ufsastofn- inn við ísland sé ekki í hættu, en híns vegar er hægt að sýna fram á, að veiðarnar hafa haft all veruleg neikvæð áhrif á karfastofninn á íslandsmi^um.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.