Tíminn - 12.03.1966, Page 8
20
T8MINN
LAUGARDAGUR 12. marz 1966
Kveðjur af landsbyggðinni
Framhald af bls. 17.
heyja við harðsvírað peningavald
á fyrstu árum verkalýðsbaráttunn
ar, til að bæta kjör verkalýðsins
og lagði grunninn að þeim ár-
angri, sem hið vinnandi fólk nýt-
ur ávaxtanna af í dag.
Og einmitt vegna þess er hætt
við að hún sé ekki nægilega vökul
til að gæta þeirra kjarabóta, sem
náðst hafa, en láti glepjast af lýð-
skrumurum, sem gala fagurt í
eyra hennar, en ganga raunveru-
lega erinda peningavaldsins og er-
lendra auðhringa, sem sækja fast
á að ná hér fótfestu og njóta til
þess dyggilegrar aðstoðar núver-
andi vaidhafa og skósveina þeirra.
í dag er það fyrsta boðorð vinn
andi stétta til sjávar og sveita, og
verður alltaf, að halda vöku sinni,
láta ekki glepjast af fagurgala
fhalds og peningavalds, um um-
hyggju þeirra fyrir velferð ís-
lenzkrar alþýðu og verkalýðs, en
treysti á samtakamátt sinn og hafi
'ávallt í huga að „sameinaðir stönd
ram vér, en sundraðir föllum vér.“
□
Dagblaðið Tíminn hefur beðið
mig að svara nokkrum spurning-
um í tilefni af 50 ára afmæli Al-
þýðusambands íslands.
Tel ég sjálfsagt að verða við
þeim tilmælum. Þó að afstaða mín
til sambandsins nú á þessum tíma-
mótum, eða álit mitt á einstök-
um málum er sambandið varðar,
geti varla talizt forvitnileg.
— Hvern telur þú markverðast
an árangur af _ 50 ára starfi Al-
þýðusambands fslands?
— Það er erfitt verk að meta
það hver áfangi af mörgum í 50
ára starfssögu. eins félags er mark
verðastur.
í fyrsta lagi er ég því miður
ekki svo kunnugur 50 ára baráttu-
sögu ASÍ, að hver einstök atriði
liggi nægilega ljós fyrir.
í öðru lagi vill svo oft verða,
að mat samtíðar og frajntíðar á
einstökum athöfnum er gerólíkt.
f þriðja lagi skortir í raun og
vera allan samanburðargrundvöll,
því viðfangsefnin breytast á
skemmri tíma en 50 árum.
Ég mundi segja að aukinn skiln
ingur einstaklinganna á gildi sam-
takanna í hagsmunabaráttunni,
væri órækast vitni þess að starf
ASÍ fyrir bættum kjörum verka-
manna og sjómanna undanfarin
50 ár, hafi verið jákvætt.
— Hvernig telur þú að ASÍ hafi
tekizt að gera skyldu sína í bar-
áttunni fyrir bættum lífskjörum
og betra þjóðfélagi?
— Það fer ekki milli mála að
mörg spor hafa verið stigin í
framfaraátt s.l. 50 ár, og ég hika
ekki við að framfaraþróun, þátt,
þátt í þeirri framfaraþróun, þáttt,
sem er sízt ömukærri en framlög
ýmissa annara.
Annað mál er svo það að margt
er enn óunnið, eins og vera ber
í lýðræðislandi. Þar þrjóta verk-
efni, er stuðla að bættum lífskjör-
um alls almennings aldrei, þau
era í órjúfandi tengslum við hið
daglega Ixf.
— Hver telur þú að sé staða
ASÍ í dag, út á við og inn á við?
— Ég tel að hún sé sterk. Að
vísu eru skipulagsmál sambands-
ins enn að nokkru óráðin, og
nokkuð vefst fyrir ýmsum að taka
ákveðna afstöðu til þeirra. Þar
spila hagsmunir hinna einstöku
stjórnmálaflokka undir, en það
verður að segjast eins og það er,
að þó stjórnmálaflokkarnir geti
Guðmundur Björnsson
verið og séu mjög afgerandi afl
í hagsmunaharáttu fólks, þá geta
þeirra afskipti einnig orðið til
hins verra, þegar svo er komið
að hagsmunahóparnir verða tæki
í baráttu flokkanna um aukin völd,
en flokkarnir hætta e.t.v. að vera
sannverkandi afl hagsmunahóp-
anna um bætt lífskjör, eða aðrar
þjóðfélagsumbætur.
— Hvaða mál telur þú að ASÍ
eigi að leggja megináherzlu á í
framtíðinni?
-ir-i Hagsmunabaráttan er og
verður alltaf aðalmál ASÍ. Hvern-
ig hún verður háð og að hvaða
verkefnum hún beinist aðallega á
hverjum tíma, er matsatriði hverju
sinni.
En segja má að hagsmunabar-
átta launþeganna sé þvíþætt.
Annars vegar barátta fyrir því
að láta ekki taka það af sér, hvorki
í einni eða annarri mynd, sem þeg
ar hefur á unnizt.
Er sú barátta oft hörð. Miklu
harðari en magran grunar.
Skiptast þar á sigrar og ósigr-
ar eins og kunnugt er.
Hins vegar er sókn að því xnarki
að launþegar fái eðlilega og rétt-
láta hlutdeild í þeirri heildaraukn
ingu í verðmætasköpun þjóðarinn
ar, sem aukin tækni og verkmenn
ing megnar að veita árlega.
Er aukin menntun og fræðsla
um allt er varðar hina ýmsu
þætti þjóðlífsins líklegri til þess
að veita einstaklingunum það víð-
sýni, og það áræði, sem með þarf
til að skila niðjunum betra landi,
en tekið var í arf frá forfeðrun-
um.
Því hlýtur ASÍ að láta fræðslu
og menningarmál til sín taka í æ
ríkara mæli en verið hefur til
þessa.
— Telur þú að auka þurfi starf
semi ASÍ, og þá hvaða þætti henn
ar?
— Því aðeins getur ASÍ gert
kröfu um réttmæta hlutdeild
launþeganna í framleiðsluaukn-
ingu þjóðarinnar frá ári til árs,
að framkvæmdar séu á því athug-
anir, og það rannsakað hlutlaust,
hver hin raunverulega fram-
leiðsluaukning er, og hver séu á
hverjum tíma réttmæt hlutföll
milli fjármagns og vinnuafls ekki
aðeins í hinni árlegu aukningu
framleiðslu útflutningsverðmæta,
heldur í framleiðslu og útflutn-
ingsverðmætum þjóðarinnar í
heild á hverjum tíma.
Alþýðusamband íslands hlýtur
því að leggja á það höfuðáherzlu
á næstunni að framkvæmdar verði
hlutlausar rannsóknir á kaup-
greiðslugetu atv.veganna á skipt
ingu þjóðarteknanna milli fjár-
magns og vinnuafls, á því hvaða
þjónustugreinar atvinnulífsins eru
þarfar og nauðsynlegar og hverj-
ar óþarfar eða beinlínis skaðleg-
ar með tilliti til heildarverðmæta-
sköpunar þjóðarinnar, hvern þátt
vinnuhagræðing getur átt í bætt-
um lífskjörum, og mörgu öðra
sem of langt yrði upp að telja,
en samfara aukinni menntun og
verkmenningu hlýtur að verka til
bættra lífskjara alls almennings.
— Hver telur þú að eigi að
vera samvinna Alþýðusambands
íslands og samvinnuhreyfingarinn
ar?
— Sem allra mest. Verkalýðs-
hreyfingin og samvinnuhreyfingin
eru í raun og vera af sama stofni.
Hagsmunasamtök fjöldans at-
vinnulega og verzlunarlega séð.
Þeim mun báðum styrkur' af
því að au-ka samvinnu sín á milli.
Að lokum vil ég svo færa Al-
þýðusambandi íslands mínar
beztu kveðjur og árnaðaróskir á
þessum merku tímamótum og
minni á að í lýðræðisríki þar sem
hugur og hönd er frjáls, skortir
verkefnin aldrei.
Guðmundur Björnsson
Stöðvarfirði.
AÐALFUNDAHALD
Aðalfundur kvennadeilár Slysa-
varnarfélagsins í Reykjavík var
haldinn 7. febrúar 1966.
Tillaga deildarinnar á þessu ári
til S.V.F.Í., eru kr. 536.912.52, sem
er 3A hluti af ágóða deildarinnar.
Samþykkt var á fundinum að
gefa kr. 30.000.00 til Björgunar-
sveitar Ingólfs til kaupa á sjúkra-
börum í sjúkrabifreið er S.V.F.Í.
og S.V.D. Ingólfur í Reykjavík,
hafa fest kaup á.
Kvennadeild S.V.F.Í. í Reykja-
vík, vill við þetta tækifæri þakka
hjartanlega öllum þeim, er veitt
hafa deildinni stuðning á liðnu
ári.
Á aðalfundi deildarinnar mætti
forseti S.V.F.Í., Gunnar Friðriks-
son og ræddi um nýafstaðna um-
ferðarráðstefnu er haldin var í
Reykjavík 22. og 23. janúar s.l.
Urðu allmiklar umræður um slysa
varnir í umferð og starf félagsins
í þeim málum, og var í lok fund-
arins samþykkt eftiriarandi til-
laga:
Aðalfundur kvennadeildar S. V.
F. í. í Reykjavík lýsir stuðningi
sínum við þá stefnu stjórnar S.V.
F.í. að gerast ekki aðili á þessu
stigi málsins, að þeim samtökum,,
er Tryggingarfélögin hafa beitt
sér fyrir að stofnuð yrðu.
Fundurinn fagnar af heilum hug
þeim áhuga, sem fram hefur kom-
ið um auknar slysavarnir í um-
ferðarmálum og fagnar þeim að-
ilum er ganga vilja til samstarfs
við S.V.F.Í. í þessu mikla bar-
áttumáli félagsins um ára raðir.
Fundurinn telur eðlilegast, að
mál þetta verði tekið fyrir á 13.
landsþingi S.V.F.Í. á vori kom-
anda. og þá tekin endanleg af-
staða til þess.
Nýlega barst kvennadeildinni í
Reykjavík kr. 10.000.00 að gjöf frá
ÓFÆRÐ Á AKUREYRI
Framhald af bls. 24.
voru margir vegir orðnir færir
stórum bílum og jeppum. Nú
hefur verið ákveðið að ryðja ekki
fleiri vegi, unz fyrirsjáanlegt er,
að það beri einhvern árangur. Nú
er ástandið orðið þannig, að ekk
ert er fært frá Akureyri nema á
ýtum, sem aka ofan á lausamjöll
inni. Einnig er mjög þungfært um
Akureyrarbæ. Svo sem fyrr segir
byrjaði að kyngja niður snjó í
gær, og það af þeim feiknarkrafti,
að stórir bílar er voru á ferð milli
Akureyrar, Dalvíkur og Dagverð
areyrar festust unnvörpum í fönn
inni og sitja þar enn. Jafnvel snjó
plógar, sem sendir voru frá Akur
eyri bílunum til aðstoðar festust
einnig. Sýnt er, að ef snjókoman
heldur svona áfram skapast mik
il vandræði í sambandi við mjólk
urflutninga Þeir hafa að mestu
leyti farið fram á dráttarvélum
á þessum síðustu og verstu tím-
um, en í þessu kafaldi kemst eng
in dráttarvél leiðar sinnar. Þess
má að lokum geta, að síðan 27.
janúar hefur mjólkurbíll aldrei
komizt alla leið til Dalvíkur.
Georg Jónssyni, ættuðum frá Isa-
firði. Gjöfin er til minningar um
foreldra hans Hildi Sigurðardótt-
ur og Jónas Sigurðsson og þrjá
bræður hans er dóu ungir.
Fyrir þessa góðu gjöf þakkar
deildin innilega.
Aðalfundur Danskennarasam-
bands íslands var haldinn fyrir
nokkru. Félagið starfar í eftirtöld
um deildum: Ballett, samkvæmis-
og bamadönsum. Þeir einir geta
orðið meðlimir félagsins, sem lok-
ið hafa viðurkenndu innlendu eða
erlendu kennaraprófi í einhverj-
um af framantöldum greinum.
Eftirfarandi skólar staria undir
merki Danskennarasambands ís-
lands: Ballettskóli Eddu Scheving,
Ballettskóli Katrínar Guðjónsdótt-
ur, Ballettskóli Sigríðar Ármann,
Dansskóli Heiðárs Ástvaldssonar,
Dansskóli Hermanns R. Stefáns-
sonar og Listdansskóli Guðnýjar
Pétursdóttur.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir því, hve skólastjórar barna-
skólanna hefðu tekið vel í þá ný-
breytni sem D.S.Í. kom á fram-
færi, en það er: danskennsla 12
ára barna í skólum. Kennarar í
D.S.Í. hafa í vetur kennt í þeim
skólum, sem um slíka kennslu hafa
beðið og era mjög ánægðir með
árangurinn. Hins vegar væri æski-
legt að forráðamenn skólanna
sæju sér fært um að útvega full-
komið húsnæði fyrir slíka starf-
semi.
Danskennarasambandið telur sér
skylt að nefna hið lítt þekkta dans
fonm hér á landi „jazzballettt" sem
er eitt þeirra mörgu afbrigða út
frá klassiskum ballett. Af gefnu
tilefni vill sambandið benda for-
eldram á það, að undirstaðan fyr-
ir „jazzballett" er fyrst og fremst
fullkomin þjálfun í klassiskum
ballett. Sé nemandi ekkert eða lítið
þjálfaður í klassiskum ballett get-
ur jazzballettikennsla skaðað lík-
amann þannig, að hann beri þess
aldrei bætur.
Stjórn félagsins var einróma
endurkosin. Formaður er Her-
mann R. Stefánsson.
\
REIXJT
Halldór Kristinsson
gullsmiður — Sími 16979.
rulofunar
BINGIR
RMTHANNSSTIG 2,
BOLHOLTI 6
(Hús Belgjagerðarinnar)
* BILLINN
Rent an Ioeoar
S(ml 1 8 8 33