Tíminn - 12.03.1966, Blaðsíða 12
LINDARBÆ
Vegna 50 ára afmælis síns
hefur Alþýðusamband ísl. gesta
móttöku í Lindarbæ, húsi Bags-
brúnar og Sjómannafélags Reykja
víkur, Lindargötu 9 — kl. 4—6
e. h., laugardaginn 12. marz.
Miðstjóm Alþýðusambands
Islands.
59. tbl. — Laugardagur 12. marz 1966 — 50. árg.
Handleggur slitnar
aíbrezkum sjómanni
KT—Reykjavík, föstudag.
Um kl. 4 í nótt varð það slys
á togaranum Ross Duner frá Hull
að skipsmaður festi handlegg í
krók og missti hann. Togarinn
Nýr hæstaréttar
lögmaður
Guðjón Styrkársson, hrl. lauk í
gær fljtningi tilskilinna prófmála
fyrir Hæstarétti. Síðasta prófmál-
ið var „Einar Ingimundarson
gegn atanríkis- og fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs”, en
það mál höfðaði Einar Ingimund
arson, fyrrverandi lögregluþjónn
á Keiiavíkurflugvelli í tilefni
þess, að fækkað var lögreglustarfs
mönnum á Keflavíkurflugvelli úr
32 í 29 fyrir nokkrum árum. Ein-
ar var einn af þremur, sem sagt
var upp starfi.
Guðjón Styrkársson er fæddur
á Svalbarði í Miðdölum, Dalasýslu
12. desember 1931 sonur hjón-
anna Styrkárs Guðjónssonar og
Unnar Sigfúsdóttur. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri vorið 1953 með 1. ein-
kunn ug lögfræðiprófi frá Há-
skóla íslands vorið 1958 einnig
með i. einkunn. Við framhalds-
nám í Vestur-Þýzkalandi 1958—
1959. Skrifstofustjóri Samvinnu-
sparisjóðsins og síðar Samvinnu-
bankans 1960—1965. Héraðsdóms
lögmaður 17. júlí 1962. Rekur
nú lögiræðiskrifstofu að Hafnar-
stræti 22, Reykjavík.
_ Guðjón Styrkársson er kvæntur
Ágústu Einarsdóttur og eiga þau
þrjú böm.
sigldi þegar til Neskaupstaðar,
þar sem maðurinn var lagður á
sjúkrahús.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Guðmundur Sigfússon, umboðs-
maður fyrir togarann, gaf blaðinu
í dag, vildi slysið til með þeim
hætti, að hinn slasaði, Horace
Hodds, hafði af einhverjum or-
sökum fest handlegginn í krók,
sem var utan á vélarreisninni,
„keisnum”. Er sjórinn reið á skip
inu, missti Hodds fótanna og
brotnaði við það handleggur hans
og slitnaði af honum.
Eins og áður er getið, var þeg
ar siglt með hinn slasaða mann
til Neskaupstaðar, þar sem hann
var lagður á sjúkrahús. Sigldi tog
arinn siðan til Bretlands skömmu
eftir hádegið í dag.
Sjúkrahúslæknirinn á Neskaup
stað sagði í viðtali við blaðið í
dag, að sjúklingnum liði eftir at:
vikum sæmileg. Ekki væri hægt
að segja um, hve mikið blóð hann I
hefði •misst, en sennilega væri það j
ekki mikið. Til allrar hamingju
hefði ekki verið átt mikið við
sár hans á skipinu, en slíkt hefði |
getað haft slæmar afleiðingar.
Framsóknar
félögin á
Akureyri
Stjórnmálafund halda Fram-
sóknarfélögin á Akureyri á Hótel
KEA iaugardaginn 19. þessa mán j
aðar kl. 3.30 síðdegis. Frummæl |
endur alþingismennirnir Einar í
Ágústsson og Ingvar Gíslason.
Allt stoðningsfólk flokksins vel-
komið.
Framsóknarfélögin, Akureyri.
Framsóknarkonur
Félag Framsóknarkvenna held
ur fund í Tjamargötu 26 næst-
komanai miðvikudag kl. 8.30. Elsa
Guðjónsson safnvörður flytur er
indi um þjóðlegan útsaum og sýn
ir skuggamyndir. Ýmislegt annað
verður á dagskrá.
Herferi hafín gegn
hættulegum hílum
HZ— Reykjavík, föstudag.
f fyrradag gerði lögreglan
skyndiskoðun á akandi bifreið
um á götum borgarinnar í sam
ráði við bifreiðaeftirlitið og
varð árangur þessarar skoðun
ar allmikill. Af öllum hópi bif
reiða, sem lögreglan stöðvaði
og sendi tii skoðunar fyrsta
daginn, voru 12 þeirra teknar
úr umferð að fullu.
Var bifreiðaeigendunum gef
inn kostur á að láta lagfæra
bifreiðarnar, en í dag höfðu
sumir þessara eigenda ekki
gert það, og kom þá kranabíll
frá Vöku og fór með minnsta
kosti fjóra bila inn í Vökuport
ið. í dag var búið ag klippa
númerin af tveim bílum til við
bótar, enda ekki að ástæðu-
lausu. Blaðamaður og ljósmynd
ari Tímans skoðuðu nokkra af
bílunum, sem úr umferð voru
teknir. Einna ljótasta dæmið
var Volkswagen-bíll en stýrið
á honum var iaust á stýrisend
anum, þannig, að lít.ið þurfti
til, svo að það dytti ekki af.
Við náðum tali af nokkrum
lögregluþjónum og spurðum
þá, kvernig unnt væri í fljótu
bragði að sjá, hvað væri ábóta
vant á bifreiðunum. Þeir sögð
ust aðallega stöðva þá fyrir
útlitið, rás á götunni, ójöfn
hemlaför o.fl.
Þetta er fyrsta herferðin af
mörgum, sem umferðalögregla
Reykjavíkur hyggst gera á
næstunni, og þá er víst betra
að hafa bílana í lagi!
ÞaS þurfti ekki mikið til að stýrið faeri af í þessum fólksvagni.
ÓFÆRT ER flT
FRÁ AKUREYRI
GÞE-Reykjavík, föstudag.
Segja má ýkjalaust, að ailt sé
ófært frá Eyjafirði og allt aust-
ur um land. Reynt er að halda
uppi samgöngum yfir Holtavörðu
heiði og til Skagafjarðar, en held-
ur hefur það gengið treglega.
Undanfarna daga hefur verið út
lit fyrir batnandi færð þar nyrðra
en í gærdag kyngdi niður snjó og
hver einasti vegur og vegaruðning
ur er gersamlega ófær öllum
bílum, og nú er svo komið að
snjóbflar komast víðast hvar ekki
leiðar sinnar.
Tíminn hafði í dag samband
við fréttaritara sína víða á Norð
urlandi og þeir höfðu allir sömu
sögu að segja, allt er á kafi í
snjó, og ekkert fært á milli. Hjá
vegaeftirlitinu á Akureyri hefur
að undanförnu verið unnið að því
að opna vegi og um miðja vikuna
Framhald á bls. 20.
HeimaræktaS korn rúmum 2
kr. ódýrara en fóSurblanda
EÓ—Þorvaldseyri, föstudag.
f landi Drangshlíðar og Eyvind
arhóla í Austur-Eyjafjallahreppi,
hafa 6 bændur staðið saman að
ræktun korns á 20 hektara svæði.
Kostnaður á framleitt kíló er sem
hér segir: fræ 63 aurar, áburður
110 aurar, vinna 95 aurar, þresk
ing og heimakstur 24 aurar, þurrk
un 94 aurar, afskriftir af vélum
20 aurar, eða samtals 4,06, en nú
I er verð á fóðurblöndu um kr. 7.30 j
: á kíló, þannig, að verulegur verð j
I munur er á korninu og fóður-!
j blöndunni. Segja má, að kornið!
| sé ekki jafn fullkomið fóður og!
j fóðurbianda, en það er mjög gott i
i fóður. Við fengum 26 tunnur á;
j hektaia, miðað við fullþurrkað og i
i malað. Við notum kornið sjálfir i
j en markaður er nægur og hefur!
verið sótzt eftir korninu.
Myndina hér að neðan tók llósmyndari Tímans, GE, á fundi verzlunarmanna i fyrrakvöld, en bar var
greitt atkvæði um samkomulag það, sem gert hafði verið við kaupmenn. Var samkomulagið sam-
þykkt með 80 atkvæðum gegn 63, elns og frá hefur verið skýrt. Meðal þeirra kjarabóta, sem verzlunar
menn fengu, var stytting vinnutímans, og hefur KRON af þeim sökum auglýst, að hér eftir verði verzl-
anir aðeins opnar til kl. 12 á hádegi á laugardögum.
Héðan hefur verið selt mikið
hey, fyrst var það Kalnefndin sem
keypti mikið magn í haust, og síð
an hefur mikið verið flutt aust
ur í Skaftafellssýslur — þeir
hafa burft á töluverðu magni að
halda og er enn eftirspurn þaðan.
Veturinn hefur verið ljómandi
góður og höfum við varla séð
snjó. Vatnsleysi hefur ekki háð
bændum hér um slóðir.