Tíminn - 16.03.1966, Side 3

Tíminn - 16.03.1966, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 16. marz 1966 TÍMINN í SPEGLITIMANS Maðurinn hér á myndinni heitr Clifford Kizer og var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyr- Furstahjónin í Monaco, þau Rainer og Grace fengu að bíða árangurslaust eftir því að vera boðin í brúðkaupið í Hollandi. Ástæðan til þess að þeim þeim var ekki boðið er sögð sú, að Graoe furstafrú hafði látið svo ummælt að hún gæti vel skil- ið, að það væri langt frá því, að allir Hollendingar vildu við- urkenna Claus von Amsberg sem væntanlegan prins f Hol- landi. Bob Hope fór til Vietnam til þess að skemmta suðurvíet- aömskum hermönnum þar. Þeg ir skemmtuninni var lokið bakkaði hann túlknum fyrir að stoð hans með þessum orðum: Ég hef aldrei haft áheyrendur, sem hafa hlegið svo hátt. Túlk- ir morð. Stúlkan á myndinni er unnusta hans en þau eru ný- búin að fá giftingarleyfi og urinn svaraði þegar í stað og sagði: Þér töluðuð svo hratt, að ég gat ekki fylgzt með því sem þér sögðuð svo ég sagði þeim bara mínar eigin sögur í staðinn. Nýjasta kvikmynd gaman- leikarans fræga Jerry Lewis heitir _ Jerry frændi bjargar öllu. í kvikmyndinni leikur hann sjö mismunandi hlutverk og hann hefur sjálfur stjóm- að kvikmyndinni, séð um fram- leiðslu hennar og skrifað hand- ritið. Myndin er eins konar glæpamynd þar sem 30 milljón ir dollarar leika stórt hlutverk. Þetta er 32. kvikmynd Jerry, sem er nú orðinn fertugur. Hanvi byrjaði að leika í kvik- myndum fyrir 16 árum síðan. hyggjast nú ganga í hjónaband eins fljótt og unnt er. Ung stúlka í Florida, June Clark, hefur nú hnerrað í sjö vikur samfleytt og enda þótt það sé henni huggun að fá bréf víðs vegar að úr heim- inum hefur ekkert ráð fundizt énn til þess að stöðva hnerra hennar. June Clark fær daglega um 50 bréf og ekki færri símahring ingar og allir koma með góð ráð um það, hvernig hún eigi að fara að því að hætta að hnerra. Ekkert af þessum ráð- um hefur þó komið að tilætl- uðu gagni og ekki hefur lækn- unum neitt tekizt að lækna þennan stöðuga hnerra. Nú sem stendur hnerrar hún aðeins aðra hverja mínútu, seg- ir móðir hennar. — Þegar hún byrjar að hnerra tíundu hverja Stúlkan hér á myndinni er fyrrverandi ljósmyndafyrirsæta 1 Montreal. Nafn hennar er Gerda Munsinger og er hún bendluð við hneykslismál eitt, sem varðar kanadiska þingið og er því líkt við Profumo- hneykslið fræga, og telja þing- menn kanadiska þingsins það jafnvel enn verra en það. ★ sekúndu gef ég henni svefn- töflu og til allrar hamingju hnerrar June ekki, þegar hún er sofandi. Talið er að hjónavígsla þeirra Beatrix prinsessu Hol- lands og Claus von Amsberg sé ein umdeildasta hjónavígsla sem fram hefur farið eftir síð ari heimstyrjöldina konungborins fólks. meðal Lögreglan rak um það bil 1000 manns, frá ráðhúsi borg- arinnar, en þetta fólk var þang að komið til þess að mótmæla hinni fyrirhuguðu giftingu. Sjónvarpsstrengur, sem átti að nota við sjónvarpssendingar frá brúðkaupinu var eyðilagð- ur nokkrum tímum áður en brúðkaupið átti að hefjast. Hin ir ungu mótmælendur köstuðu reyksprengjum að vagni brúð- hjónanna eins og sést á mynd- inni sem hér fylgir og hróp- uðu: Lengi lifi lýðveldið! 3 Á VÍÐAVANGI Sjálfshuggun f blöðum borgarinnar, eins- um þó blöðurn þeirra flokki, sem eru í minnihluta í borgar- stjórn, birtast nú flesta daga kvörtunarbréf frá borgurtmum um ýmis atriði óstjórnarinnar í borgamálefnum. Þessi béf og kvartanir fara svo í taugarnar á íhaldsfulltrúunum og mál- gögnum þeirra, að þeir ta'ka ekki á heilum sér, og af því að þeir vita, að þessi bréf eru tal- andi tákn um hraðminnkandl fylgi íhaldsins í höfuðborginni, og hugsunin um að tapa þar völdum er mcsta skelfing, sem þessir menn geta hugsað sér, þá hafa þeir nú gripið til þess ráðs til þess að sefa eigin ótta og stramma sig svolítið upp, að segja að það séu bara borgar- fulltrúar minnihlutaflokkanna, sem sitji við að skrifa þessi borgarabréf, og enginn finni ástæðu til að kvarta nema þeir. Við þessa sjálfshuggun situr núna, en hætt er við, að hún verði honum léleg brynja 22. s maí í vor. Lýðræðistillaga Ný lýðræðishetja að nafni Magnús Þórðarson veður fram á síður Lesbókar Morgunblaðs ins til að sýna og sanna pjóð- inni, að það sé æðsta þjón- usta við lýðræði og frelsi að að veita bandaríska hernum einkaleyfi á íslandi tii þess að reka sjónvarpsstöð fyrir íslend inga og velja þeim sjónvarps- efni í samkeppni við þjóðarsjón varpið. Um þetta segir hann: „Verði almenningi meinað að horfa á varnarliðssjónvarpið, má alveg eins fara að banna innflutning á bókum og blöðum, sem ekki falla í kramið hjá kúltúr-gestapóinu“. Úr því að maðurinn nefnir er- lend blöð og bækur er rétt að bera hér fram þá tillögu, að til samræmis við það, að banda- ríski herinn hafi hér einkaleyfi til rekstrar erlendar sjónvarps stöðvar í landinu, verði t. d. brezka eða tyrkneska hernum falið að velja og flytja inn er- Icndar 1 bækur til íslands, og hafi sá aðili einkaleyfi á því vali. Það mundi vafalaust full- nægja frelsis- og lýðræðishug- sjón þessa Magnúsar, sem aug sýnilega er ekki f neinum sál- arháska. RauS rós Hannes á horninu rifjar upp þá sögu í gær, að í kröfugöngu árið 1923 hafi ung og fátæk hús móðir gengið í veg fyrir Al- þýðuflokksmerkisbera í farar- broddi og fest rauða rós í barm hans. Þetta er falleg minning, en ýmsir munu spyrja, hvaða Alþýðuflokksforingja í stjórnar göngunni með íhaldinu. FramtíSarsýn í blöðum og á þingi hefur undanfarið vcrið mjög rætt um alúmínbræðslu, sterkt S! minkaeldi, enda liggja frum- vörp um allt þetta fyrir þing- inu núna. Maður nokkur setti þá framtíðarsýn, sem við blasir, fram I eftirfarandi vísu: Gæfusólin glaðast skín á götu landsins barna, ef þau hafa alúmín öl og mink og — Bjarna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.