Tíminn - 16.03.1966, Page 16
Bridgeklúbbur FUF
Spilað verður annað kvöld,
fiinnmtudagskvöld kl. 8.30 í Tjarn
argötu 26.
Ofærðin mest
á Austurlandi
Í FORINNI
Þeir, sem hafa lent í því ævin-
týri að aka um malargötur borgar
innar að undanförnu og þá einkan
lega Sogaveg og Grensásveg, hafa
furðað sig á, hvemig göturnar
eru útleiknar. Sogavegurinn er
ekkert annað en eitt forarsvað og
er hreinlega spennandi að sjá bíl
ana brjótast leiðar sinnar í aurn-
um. Aftur á móti er lftið spenn-
andi að vera þama fótgangandi,
eða ei'ga heimili í grennd við
göturnar. Myndina hér að ofan
tók ljósmyndari Tímans GE í dag
og sýnir hún hvernig umhorfs er
í námunda við strætisvagnabið-
skýli við Sogaveg. Það er kannski
óréttlátt að spyrja háttvirt borgar
yfirvöidin, hvort ekki séu einhver
ráð tiltækileg til að halda þess-
um götum akfærum í framtíðinni.
Yfirmenn gatnagerðar í bænum
ættu að taka sér ferð á hendur
um þessar götur, en þeir eru beðn
ir að aka mjög varlega og hafa
með sér stígvél, ef ökutækjum
þeirra kynni að hlekkjast á.
SJÓPRÓF í KAUPMANNAHÖFN VEGNA ÁREKSTURS GULLFOSS 0G MALMÖHUS
Sáu Malmöhus í radar rúmum 6
mínútum áiur en áreksturinn vari
Aðils-Khöfn, þriðjudag.
Sjóréttur hófst í dag út af árekstrinum sem varð milli Gull-
foss og Málmeyjarferjunnar Malmöhus fyrir nokkru i innsigling-
unni í Kaupmannahöfn. Stóð rétturinn í næstum sex klukkustundir
eða frá því klukkan 10.15 og fram til 16, og tóku menn
sér stutt hlé til þess að snæða hádegisverð.
Það var 2. febrúar síðast lið-
inn, sem Málmeyjarferjan Malm
öhus rakst á Gullfoss í innsigl
ingunni til Kaupmannahafnar.
Áreksturinn var mjög harður
og allmargir af farþegum. ferj
unnar meiddust. Sjóréttur hef
ur þegar verið haldinn i Málm-
ey yfir áhöfninni af Malmöhus.
f dag var síðan sjóréttur í Sjo-
og verzlunarréttinum í Kaup-
mannahöfn yfir áhöfninni af
Gullfossi. f forsæti í réttinum
var Jacobi réttarforseti. Kunn-
áttumenn um siglingar í réttin
um voru Saaby flotaforingi og
C. E. Nielsen skipstjóri. Af á-
höfn Gullfoss var mættur skip-
stjórinn Kristján Aðalsteinsson-
1. stýrimaður, Haukur Þórhalls-
son, 3. stýrimaður Grétar Hjart
arson, bátsmaðurinn Pétur Thor
arensen ásamt hásetunum Haili
Pálssyni, sem var við stýrið og
Matthíasi Matthíassyni. sem
var á vakt aftur á skipinu. Ás-
geir Magnússon vélstjóri var
mættur í réttinum og sömu leið
is 4. vélstjóri Þór Jónsson. Fyr-
ir hönd útgerðarinnar var mætt
ur Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar og S. Pet
ersen skrifstofustjóri Eimskipa
félagsins í Kaupmannahöfn. Fyr
ir hönd kaskótryggjenda jkips
ins var mættur Michael Remert
hæstaréttarmálaflutningsmaður
og Finn Hjalsted Landsrétts-
málaflutningsmaður. Túlkur
var Gunnar Björnsson ræðis-
maður í sendiráði íslands í
Kaupmannahöfn.
Fulltrúar Malmöhus-útgerðar-
innar voru Gert Jessen hæsta
réttarmálaflutningsmaður og
nokkrir sænskir lögfræðingar.
Réttarforsetinn las upp hma
stuttorðu skýrslu Kristjáns Að-
alsteinssonar skipstjóra um
slysið. Þar var sagt, að Gullfoss
hefði verið að koma frá Ham-
borg, og ákvörðunarstaðurinn
hefði verið Kaupmannahöfn.
Farið hafði verið mjög hægt yf-
ir sundið, þar sem skyggni var
slæmt. Þegar skipið nálgaðist
innsiglinguna til Kaupmanna-
hafnar var enn hægt á ferð
skipsins. Sldpstjórinn var yfir
heyrður sem aðalvitni varðandi
það, sem gerðist rétt fyrir og
þegar áreksturinn varð. flann
hafði sjálfur verið í brúnni með
nokkrum stýrimanna sinna. Allt
í einu komu þeir auga á Malmö
hus. Skipstjórinn gaf skipun nið
ur í vélarúmið um að setja ferð
aftur á bak, en það var árang-
urslaust. Á næsta augnabliki
sigldi Malmöhus þvert tyrir
framan Gullfoss og rakst með
bakborðshliðina á stefni GuU
foss. Þá var klukkan 14.06. Skip
stjórinn bætti við, að einn af
stýrimönnunum í brúnni hefði
tilkynnt rétt fyrir kl. 14 að
hann hefði séð skip í radarnurn.
Gullfoss hafði stuttu áður
breytt stefnunni. til þess að
komast í rétta stefnu til mn-
siglingar til hafnarinnar — ekki
með tilliti til skipsins, sem sézt
hafi í radaranum. Hraðinn var
ca 13 sjómílur 02 fjarlægðin
milli skipanna ca. 0.7 sjómílur.
Skyggni var um 100 metrar.
Þegar skipstjórinn hafði gefið
skipun um að stöðva skipið,
heyrði hann fyrsta þokumerkið.
Klukkan 14.03 gaf hann skipun
um hæga ferð aftur á bak, og
einni mínútu síðar um fulla
ferð aftur á bak, til þess að
stöðva skipið. Það stoðaði þó
ekki, því strax á eftir varð
áreksturinn. Þegar tveggja
tíma yfirheyrslu yfir Kristjáni
Aðalsteinssyni skipstjóra var
lokið, var matarhlé. Því næst
voru aðrir úr áhöfn Gullfoss yf
irheyrðir. Fyrst stýrimennirnir
tveir og á eftir hásetarnir. Skýr
ingar þeirra voru samhljóða orð
um skipstjórans, svo yfirheyrsl
urnar gengu töluvert fljótar fyr
ir sig, en verið hafði um morg
uninn. Ásgeir Magnússon vél
stjóri var yfirheyrður og að
lokum fjórði vélstjóri Þór Jóns-
son, og bar vitnisburði þeirra
lfka saman við vitnisburð hinna.
En við yfirheyrsluna kom mjög
skýrt fram, að við áreksturinn
hafði Gullfoss verið á nær því
engri ferð, lá svo til kyrr, en
aftur á móti hafði komið fram
Framhald á 14. sfðu
KT-Reykjavík, þriðjudag.
Færð er nú góð um mestallt
Suðurland, austur fyrir Vík í
Mýrdal og norður í Dali. Holta-
vörðuheiði var opnuð í dag og er
nú fært norður í Skagafjörð.
Ástandið er öllu verra þar fyrir
austan, reynt hefur verið að halda
aðalflutningaleiðum um Eyjafjörð
og Þingeyjarsýslur opnum, en
gengið misjafnlega.
Á Austfjörðum er allt lokað,
og að því er fréttaritari blaðsins
á Egilsstöðum sagði í dag er að-
eins fært um næsta nágrenni Eg-
ilsstaða og til Eiða. Hefur lítið
sem ekkert verið átt við að opna
vegi þar. Þó var reynt að opna
leiðina um Fagradal fyrir
skemmstu og var rudd leið upp á
dalinn frá báðum hliðum, en snjó
Framhald á 14. síðu
Kópavopr
Fransoknarféiogin 1 Kópavogi
gangast tyrlr spiiakvöldi 1 félags
heimiii Kópavogs 18. marz næst
komanai Vakir skai athygli á
sérstaK ega góðum verðlaunum
Fyrstu »erðlaun werðe flugfar fyr
ir 1 á Edinborgarhátíðina 27. ág-
úst n.k Þar að auki þrjú góð verð
laun. Kópavogsbúar eru sérstak-
iega hvattir til bess að mæta. Upp
lýsingar gefnar síma 12504.
Framsóknarkonur
Féla- Framsoknarkvenna held
ur fund í Tjarnargötu 26 í dag mið
vikudag kl. 8.30. Elsa Guðjónsson
safnvörður flytur erindi um þjóð
leg útsaum og sýnir skuggamynd
ir. Ýmislegt annað verður á dag-
skrá.
Árnessvsla
Aðalfundur Framsóknarfélags
Arnessýslu verður haldinn i ,am
komusal KÁ á Selfossi fimmtudag
inn 17. marz og hefst kl- 9,30 síð
degis. Dagskrá L venjuleg aðal
fundarstörf. 2. Þingmenn Fram-
sóknarflokksins í Suðurlandskjör
62. tbl. — Miðvikudagur 16. marz 1966 — 50. árg.
Fylkir hf. kaupir ekki togara
- breytingar gerðar á féiaginu
SJ-Reykjavík, þriðjudag.
Eins og kunnugt er af fréttum,
var togarinn Fylkir seidur úr
landi í fyrra, og var búizt við að
Fylkir h.f. myndu festa kaup á
nýjum togara í staðinn, en að því
er Sæmundur Auðunsson tjáði
Tímanum í dag, hefur verið hætt
við kaup á nýjum togara. Þær
breytingar hafa orðið, að Sæmund
ur mun ganga úr félaginu, en aðal-
eigendur verða synir Aðalsteins
hcitins Pálssonar, fyrrum skip-
stjóra og framkvæmdastjóra fé-
lagsins.
Enn er ekki ráðið á hvaða
grundvelli Fylkir h.f. mun starfa,
en líklegt að tilgangi félagsins
verði eitthvað breytt.
Félagið athugaði með kaup á
skuttogara, en hann reyndist dýr-
ari í innkaupi en gert var ráð fyr-
ir í fyrstu, og svo þykir ekki
ástæða til að vera bjartsýnn í
sambandi við togaraútgerð eins
og horfurnar eru núna.
Fylkir h.f. var stofnsett 1925
og hefur jafnan þótt traust fyrir-
tæki.