Tíminn - 20.03.1966, Qupperneq 9

Tíminn - 20.03.1966, Qupperneq 9
SUNNTJDAGTJR 20. marz 1966 TÍMTNN 9 „GuS veri meS okkur". Þessi teiknimynd birtist í New York Herald Tribune nokkrum dögum eftir aftöku Edith Cavell. ekki pínd til sagna. Að þvi er vinir herrnar sögðn, hryllti hana við að segja ósatt, en eins og á stóð stefndi þessi játning henni ar ekki aðeins henni sjálfri, heldur öllum öðrum í skólan- um í voða. Menn geta velt því fyrir sér, hvort hún hafi ef til vill unnið þýðingarmeira verk fyrir leyniþjónustuna brezku og þar af leiðandi ját- að á sig minni glæpinn til þess að leyna hinum stærri, en ekkert það hefur komið í ljós, sem styður þessa kenningu. Hagsmuna brezkra þegna í Belgíu gætti bandaríski sendi- herrann, fyrrverandi blaða- maður, Brand Whitlock. Við- brögð hans við handtökunni sem hann sagði sjálfur, að frétzt hefði fljótlega um alla Brussel, var að bíða frá 5. til 31. ágúst með að hafa samband við yfir- mann þýzku stjórnmáladeildar innar, von der Lancken barón. Whitlock sagði, að honum „hefði verið tilkynnt rótt í þessu“ um handtöku ungfrú Cavell, og hann óskaði eftir að mega útvega lögfræðing, sem gæti komið fram fyrir hönd hennar í herréttinum. Útskýringar þær, sem gefnar voru á þessari undarlegu töf, eru ekki sérlega sannfærandi. Whitlock var mjög fylgjandi því, að Bandaríkjamenn skær- ust í leikinn í styrjöldinni, og ef til vill hefur hann verið að vona, að Þjóðverjar gerðu eitt- hvað óskaplegt og vanhugsað við ungfrú Cavell og yrðu til þess að vekja óvild í Banda- ríkjunum. Þar sem ekkert sann ar þessa tilgátu, verður að hafna henni á sömu forsend- um og því, að Bretar hafi sjálf- ir sökkt Lusitaniu í sama til- gangi. Þegar öllu er á botninn hvolft, er það vafasamt, að íhlutun Whitlock fyrr hefði borið nokkum árangur. Von der Lancken lét ekki svo lítið að svara fyrstu málaleituninni, og í svari við öðru bréfi sendi- herrans, sem sent var 10. sept- ember, sögðu Þjóðverjar ein- faldlega, að þeir væru búnir að útvega lögfræðing. Lögfræðingnum var ekki veitt heimild til þess að sjá skjólstæðing sinn fyrr en dag- inn, sem réttarhöldin áttu að fara fram, en það hefði eflaust heldur ekki haft nokkur áhrif. Edith Cavell játaði enn allt. Réttarhöldin enduðu 11. októ- ber og ungur sendiráðsmaður Hugh Gibson var viðstaddur fyrir hönd Whithloek, sem var veikur. Búizt var við að dóm- urinn hljóðaði upp á fangelsis- vist, eða ef til vill að konan yrði flutt til Þýzkalands. Þjóðverjarnir sögðu Gibson, að dómurinn yrði ekki kveðinn upp, fyrr en eftir að minnsta kosti tvo til þrjá daga .Þeir neituðu öllu, þótt orðrómur væri kominn á kreik í borg- inni, að kveðinn hefði verið upp dauðadómur yfir Edith. Gibson flýtti sér til von der Lancken baróns og í fylgd með honum var spænski sendiherr- ann, en baróninn var í leik- húsinu. Baróninn neitaði í fyrstu, að orðrómurinn ætti við nokkur rök að styðjast, en játáði svo, að hann væri réttur. Gibson, sem var skapmikill maður, mót- mælti harðlega og sagði: .... „að ekkert væri áunnið með því að skjóta hana, og þetta mundi þvert á móti skaða Þjóðverja og ef eitthvað væri, bæta mál- stað Englendinga. Við bentum honum á, að málið allt kæmi sér illa fyrir Þjóðverja. Við bentum honum líka á hve'skelfi legt væri að skjóta konu, sama hvað hún hefði brotið af sér, og reyndum að leiða honum fyrir sjónir, hversu hræðileg áhrif þessi aftaka mundi hafa um allan hinn siðmenntaða heim. Með illa duldri fyrirlitn- ingu svaraði baróninn, að hann þvert á móti væri þess fullviss, að þetta hefði fyrirtaks áhrif.“ Einn af aðstoðarmönnum bar ónsins Harrach greifi, gerði þetta að enn eftirminnilegri degi fyrir utanríkisstefnu Þýzka lands með því að segja, að hon- um þætti verst, að þeir hefðu ekki „þrjár eða fjórar gamlar enskar konur til þess að skjóta.“ Gihson þrábað Þjóðverjana í eina og hálfa klukkustund. Að lokum bað hann um eins dags frest til þess að geta lagt málið fyrir Keisarann. Von der Lancken hringdi í þýzka her- stjórann, en kom aftur með þau skilaboð, að ekkert væri hægt að gera. Gibson fór aftur til sendiráðsins, þar sem hóp- ur grátandi hjúkrunarkvenna beið, og þar sem hann hafði ekki aðra huggun handa þeim, bauð hann þeim upp á „eitt- hvað sterkt að drekka.“ Ilanri gat ekki sofnað heldur gekk um göturnar alla nóttina. Enskum presti, séra Horace Gahan, var leyft að heimsækja hina dæmdu konu. Ungfrú Ca- vell sagði honum, að hún væri róleg og tilbúin, að þessar vik- ur, sem hún hafði eytt í fangels inu hefðu verið þægileg hvíld frá önnum dagsins. Klukkan 5 að morgni 12. október var hún vakin, og Eliza Framhaid a 14. síðu. Það eru margar skýringar á kraftaverkinu um brauð handa fimm þúsundum í auðninni. Sumir taka þetta beint og bókstaflega, hugsa og segja: Kristur bjó þarna til brauð úr steinum, fiska úr engu. Aðrir fara algerlega í hina áttina og segja: „Þetta er sagan um hið and- lega brauð, brauð lífsins, sem Kristur og kenning hans er, eða ætti að vera mannkyninu. Hún fyrirmyndar hið andlega kraftaveric, sem Kristur gerir á mönnunum. Hún er frumþátt ur hinnar heilögu kvöldmáltíð- ar, þess sakramentis. Þegar við njótum á táknlegan hátt líkama hans og blóðs í altaris- göngunni. En þessar skýringar báðar, svo fagrar og skáldlegar, sem þær annars eru, gleyma því, að þarna var lagt fram efni, bókstaflega fæða, fiskur og brauð. Og þetta gerði maður, ungur maður, sem gaf nestið sitt af fórnarlund og gestrisni í góðri trú að þótt lítið væri yrði það einhverjum að gagni og til góðs. Og þeir, sem leggja áherzlu á þennan þátt atburð- arins í auðninni þeir ganga lengra og segja: „Þetta hafa svo fleiri gert, þótt ekki sé þess beinlínis get- ið, einmitt til þess að draga ekki úr kraftaverki Krists í vitund og trú fjöldans. Sem sagt, þarna hafa þeir, sem eitt,- hvað höfðu minnsta kosti marg ir lagt það fram, lagt það sam- an handa öllum og látið Krist skipta með hugsun og kær- leika, úthluta eftir skipulögð- um hópum þar sem viss fjöldi settist niður í grængresið, ug var úthlutað af lærisveinunum á skipulegan hátt, svo að eng- inn yrði útundan. Þá segja aðrir, ef það hefur verið svona, þá hefur það ekki verið neitt kraftaverk. Þetta gætu allir, ekkert annað en skipta því, sem fram er lagt. En ég spyr, af því að ég er sannfærður um, að svona hefur það verið, jafnvel þótt ég viðurkenni réttmæti hinna tveggja fyrri og hefðbundnu skýringa að vissu marki: Er ekki heimurinn enn að bíða eftir slíku kraftaverki? Er það ekki einmitt slík fremd, slíkt afrek, sem allir heimsins stjórnmálamenn vilja vinna, en tekst misjafnlega? Gengur ein- mitt ekki mjög erfiðlega að gera þetta kraftaverk, skipta þannig við nægtaborð tilver- unnar, að allir fái nóg, og þó séu nægtir eftir, þar sem að ekkert virtist fyrir? En það leynir sér ekki að tölur þær, sem nefndar eru, þegar körf- urnar eru taldar sjö eða tólf eru táknrænar. En þær geta oáðar þýtt allt, hið yfirfljótan lega, hvort sem miðað var við Grikki eða Gvðinga Hvert sinn sem menn hafa reynt þessa leið í skipulagi og samfélagi, þá kemur í ljós speki þessarar frásagnar, al- mætti kærleikans í úthlutun Jesú, og gnægðin í auðlegð lífs ins og náttúrunnar. Þess eru dæmin, hvert sem litið er. Og er skemmst að minnast, að nú hefur verið stórafmæli þeirrar stefnu, sem bar þessa hugsjón fram til sig- urs, ef svo mætti segja í stjórn- málalífi íslenzku þjóðarinnar. En þar á ég við Alþýðusam- band íslands. Ekki þannig, að þar sé fullur sigur og fullkom- ið skipulag, en stórt já, vold- ugt spor stigið til sigurs á skorti og hungri, sem áður þjáði og þjakaði á útmánuð- um hvers vetrar þessa litlu fá- tæku þjóð. Og þannig verður alls staðar þar sem vizka og kærleikur skipta, hvort sem það var móðirin, sem í alls- lausu koti liðinna alda fæddi barnahóp sinn á furðulegan hátt og gjörði þannig sama kraftaverk og Kristur, með kærleika sínum og fórnfýsi, eða það eru sjúkrasamlög, trygging ar og barnalífeyrir, mæðra- laun, ellistyrkur og eftirlaun í nútíma þjóðfélagi. Það er sami andi, sami vilji að verki til að sefa hungrið og í auðninni forðum. Og einmitt þessi vetur sannaði með mynd- arlegu átaki unga fólksins, sbr. unga manninn með nestið sitt, sem guðspjallið seg ir frá, að við getum mikið í baráttunni til að kveða nið- ur hungurvofuna, sem nú þjak- ar mikinn hluta hins ekki Kristna hluta heims, þar sem fólkið hefur ekki enn tileink- að sér kraftaverkið í auðninni, kærleika þess og speki, kann ekki söguna enn á sama hátt og flestar svonefndar kristnar þjóðir. Við vorum margar aldir að læra þetta guðspjall og kunn- um það ekki vel enn, gætum líka gleymt því aftur. En til sigurs hungrinu dug- ir ekkert annað en speki kær- leikans og þeirrar fórnarlund- ar, sem tekur jafnvel bitann frá eigin vörum, til þess að allir verði öruggir gegn sulti og fátækt. Þetta er fjarstæða hins góða, eina von gegn ógn- um þeim, sem stafa af hungr- inu í heiminum og getur það leitt af sér styrjöld ægilegri en nokkuð það sem áður hefur skeð. Þess vegna þjóð mín, þess vegna menn á jörð lærið guð- spjall kærleikans um auðlegð- ina á auðninni, lærið það fljótt, lærið það vel, lifið það nú er ekki seinna vænna. Tak- ið sífellt þátt í herferð krist- ins dóms gegn hungri og böli mannkyns. Standið með rétt- læti, friði og frelsi gegn rang- læti, kúgun og styrjöldum. Og fyrir friði verður aldrei barizt með vopnum, heldur með brauði og fiski, sem lagt er í hönd hins hungraða. Árelíus Níelsson. Gripin — Fram til þess dags 1915, þegar Edith Cavell var hand- tekin hafSi hún notað hjúkrunarskóla sinn i Brussel, sem við- komustaS hermanna bandamanna, sem voru á flótta út úr Belgiu. Á þessri mynd eru Anna Neagel og George Sanders í kvikmyndinni „Hjúkrunarkonan Edith", sem tekln var árið 1939.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.