Tíminn - 20.03.1966, Blaðsíða 14
SUNNUDAGUR 20. marz 1966
14
TÍMINN
RÆÐA JENS OTTÓ KRAG
Framhald af bls. 1
nokkru sinni fyrr. Ræða forsætis
ráðherrans mun birtast í heild hér
í blaðinu á þriðjudag.
í kvöld færði Blaðamannafélagið
forsætisráðherrahjónunum gjafir.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Jens Otto Krag fékk forláta bók
að gjöf, en Helle Virkner fékk
armband úr íslenzku víravirki.
Á morgun er fyrirhugað að þau
hjónin fari til Þingvalla, en síð
an býður Bjarni Benediktsson, for
sætisráðherra, þeim til hádegis-
verðar. Síðdegis koma þau í síð
degisboð, sem Gylfi Þ. Gíslason,
settur utanríkisráðherra, heldur
þeim í Nausti. Kvöldverðar neyta
þau hjá Birger Kronmann, sendi
herra og um kvöldið sjá þau
Gullna hliðið. Forsætisráðherra-
hjónin fara utan á mánudagsmorg
un. í skemmtinefnd B. í„ sem auk
formanns félagsins, Emils Björns
sonar, hafa undirbúið þessa heim
Skákþing islands
1966
verður haldið að Hótel Sögu (í nýjum salarkynn-
um) og hefst mánudaginn 4. apríl n. k. kl. 13.00.
Teflt verður í landsliðs, meistara, fyrsta og
öðrum flokki svo og unglingaflokki. — Þátttöku-
tilkynningar sendist Skáksambandi íslands í póst-
hólf 674, Reykjavík, eigi síðar en 27. þ.m.
AÐALFUNDUR
Skáksambands íslands verður haldinn fimmtu-
daginn 7. apríl n.k. — Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
MóSir okkar
Helga Gísladóttir
Unnarholti,
andaðist að heimiii sínu föstudaginn 18. marz.
Börnin.
MaSurinn minn
Guðmundur Sæmundsson
frá Nikulásarhúsi í 'Fliótshlíð
til heimllis að Þórsgötu 21 verður jarðsunginn frá Fossvogskapelt
unni þriðjudaginn 22. marz kl. 10,30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Margrét Kristjánsdóttir.
sókn, forsætisráðherrahjónanna,
eru þau Elín Pálmadóttir, Agnar
Bogason og Atli Steinarsson.
ÍSVANDAMÁL
Framhald af bls. 1.
aðgerða ofar í ánni, yrði frá
9 til 15 GWh á ári fyrstu
þrjú starfsár virkjunarinnar,
eða rúmlega 1% af áætlaðri
heildarorkusölu Landsvirkjun-
ar.
Tíminn mun birta fréttátil-
kynninguna í heild í blaðinu á
þriðjudaginn.
RAFMAGNSVERÐ
Framhald af bls. 5.
ópólitískum sérfræðingum, að
rafmagnsverð hljóti að hækka
stöðugt — þó ef til vill smátt
og smátt eftir að aluminverk-
smiðjan tekur til starfi, verði
samningar gerðir á þeim grund
velli, sem nú er talið.
BREZK KVENHETJA
Framhald af bls. 9.
- beth Wilkins, sem beið við
fangelsishliðið, kom sem snöggv
ast auga á hana, þar sem hún
sat teinrétt í sætinu, þegar
henni var ekið að aftökusvæð-
inu.
Hún hafði aðeins eina ósk
fram að færa, að fá sjö stórar
nælur. Hún notaði þær til þess
að festa pilsinu sínu þétt um
ökla sér. Sex menn voru í
skotsveitinni. Klukkan sjö gaf
Bulke ofursti skipun um að
skjóta og fjórar kúlur hittu í
mark.
Aftur verður undarlegur
dráttur á að málið sé tekið
fyrir. Stjórnin í Washington
hlýtur að hafa vitað um aftök-
una sama daginn, en fjórir dag-
ar liðu þár til sagan var birt
á forsíðu í New York Times!
Það var 16. október:
Edith Cavell, ensk kona,
tekin af lífi fyrir þá
sök, að hafa aðstoðað
bandamenn í Brussel.
Hinn 18. október sagði Tim-
es frá því, að skotsveitin hefði
af ásettu ráði miðað lágt, og
Bulke ofursti hafði orðið að
nota skammbyssu sína til þess
að ljúka verkinu. Whitlock
sagði svo sína sögu 22. októ-
ber, og fyrisögnin var með
stóru letri:
Skýrsla Whitlock:
Flýttu sér að taka Edith
Cavell af lífi að nætur-
lagi, og létu sig engu
skipta mótmæli sendi-
ráðsins, reyndu meira að
segja að koma í veg fyr-
ir að fréttist um dóm-
inn yfir henni.
Um öll Bandaríkin skrifuðu
leiðarahöfundar um þennan fyr
irlitlega verknað. Aðeins 18
mánuðir áttu eftir að líða, þang
að til Bandaríkin voru komin
í styrjöldina, og sagan um af-
töku Edith Cavell sneri hlut-
leysi manna upp i hatur gegn
Þjóðverjum.
Skopteiknarar sendu frá sér
myndir af Þjóðverjum með
apaandlit standandi yfir líki
konunnar. „Verknaður dýrslegr
ar stríðsvélar," stóð í Times.
Washington Star skrifaði: „Það
er ómögulegt að meta það
tjón, sem þessi aftaka hefur
valdið Þýzkalandi.“
Eftir stríðið var líkami þess-
arar veikbyggðu konu, sem
„minnsti vindblær hefði getað
borið á brott“ fluttur heim til
Bretlands. Hún var jörðuð með
mikilli viðhöfn, og stytta var
reist af henni á St Martins
Place rétt við Trafalgar Square.
Á fótstallinum stóðu þessi orð:
„Mannúð, hugrekki, fórnfýsi."
En það átti eftir að letra
þýðingarmeiri orð á stallinn í
minningu Edith Cavell, en
þessi orð ritaði George Bern-
hard Shaw í inngangi sínum að
Heilagri Jóhönnu. „Rannsókn-
arherréttur nútímans dæmdi
hana til dauða, og landar henn-
ar, sem sáu þarna gott tæki-
færi til þess að predika um
umburðarleysi óvinarins, reistu
henni minnisvarða, en gættu
þess sérstaklega að rita ekki
á fótstallinn „Föðurlandsást er
ekki nóg,“ en vegna þessarar
gleymsku og lyginnar, sem hún
felur í sér, munu þeir þarfnast
aðstoðar Edith sjálfrar, þegar
þeir verða að lokum dregnir
fyrir æðri dóm.“
Árið 1924 beygðu landsmenn
sig fyrir þessum orðum og
bættu við á fótstallinn „Föð-
urlandsást er ekki nóg!“