Tíminn - 30.03.1966, Page 2

Tíminn - 30.03.1966, Page 2
2 TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 30. marz 1966 Hildarleikur í þéttsetinni farþegaþotu Flugstjórinn skotinn er þotan var að lenda Frá verðlaunaafhendingunni í gærmorgun. Oskar Ólason, yfirlögregluþjón flytur ávarp, bak við hann stend- ur sveit Laugarnesskólans sem sigraði í keppninni, en hana skipuðu: Inga R. Ingólfsdóttir, Páll Hermanns- son, Sigríður Á. Ingólfsdóttir, Reynir Vignir, Sigurbjörg Á. Jónsdóttir, Hllý H. Gunnarsdóttir, Herdís Ástráðs- dóttir. Ennfremur eru á myndinni Eglll Gestsson, fulltrúl bifreiðatryggingafélaganna, Ásmundur Matthiasson, lögregluflokksstjóri og Pétur Sveinbjarnarson, fullt. Umferðarnefndar Reykjavfkur. LAUSARNESSKÚLABÖRN SI6RUÐU I SPURNINGAKEPPNI UM UMFERÐARMÁL Reykjavík, þriðjudag. í dag fór fram verðlaunaafhend ing f spurningakeppni skólabarna um umferðamál. í keppninni tóku þátt börn úr 12 ára bekkjardeild- um bamaskólanna. Sigurvegari var sveit Laugarnesskólans. Samstarfsnefnd bifreiðatrygg ingafélaganna gaf fagran bikar til keppninnar, sem er farandbikar og vinnst ekki til eignar, nema sami skólinn vinni bikarín þrisv ar i röð eða fimm sinum alls. Ennfremur gáfu vátryggingafélög in,(minni bikar,,sem vinnst til eignar. Keppnin var þrískipt. í fyrsta' hluta hennar voru lagðar tuttugu skriflegar spurningar fyrir öll 12 ára börn í barnaskólunum, en síð- an voru valin 7 börn úr hverj- um skóla til þess að keppa fyrir hönd skólans. Allir barnaskólar borgarinnar sendu sveit til keppn- innar og voru lagðar fyrir börn- in munnlegar spurningar. Þeir skólar sem urðu stigahæstir í þeirri keppni voru: Laugarnesskól inn og Æfinga og tilraunaskóli skóli Kennarasleóla íslands, sém kepptu síðan til úrslita. Þeirri keppni var útvarpað og lauk henni með sigri Laugarnesskólans. Verðlaunaafhending fór fram í dag á sal Laugarnesskólans að við stöddum nemendum og kennurum skólans. Egill Gestsson afhendi fyr ir hönd bifreiðatryggingafélag- anna Gunnar Guðmundssyni skóla stjóra farandbikarinn sem varð- veitast á í skólanum í eitt ár, og síðan keppnissveit skólans bik ar til eignar mð áletruðum nöfn- um keppenda. Óskar Ólason, yfir- lögregluþjónn fjutti ávarp við þeíta tækifæri og afhenti skólan- um viðurkenningarskjal frá lög- reglustjóranum í Reykjavfk fyrir góða frammistöðu og ennfremur mun Æfinga og tilraunaskóli Kenn araskóla íslands fá viðurkenning- arskjal. Ásmundur Matthfasson lög- regluflokksstjóri hefur haft stjóm keppninnar með höndum, sem er einn þáttur í þeirri viðleitni lög- reglunnar og Umferðarnefndar Reykjavíkur í að auka umferðar- fræðsluna í skólum Reykjavíkur- borgar. NTB—Havana, þriðjudag. Vélamaður um borð í kúbanskri farþegaþotu, sem í voru 90 far- þegar myrti á sunnudaginn flug- stjórann og vaktmann um borð I vélinni í misheppnaðri tilraun til þess að ræna vélinni og neyða hana til að lenda í Miami í Flór- ída, að því er innanríkisráðuneyt- ið á Kúbu tilkynnti í dag. Atburður þessi átti sér stað um borð f Iljusjin-18 flugvél, sem var á leið til Havana frá Santiago de Cuba í austurhluta landsins á sunnudaginn. Flugvirkinn, Angel Maiia Betancourt Cueto sló fyrst niður vaktmanninn og tók frá honum byssu, sem hann bar. Því næst skaut hann vaktmanninn og reyndi að þvinga flugstjórann til þess að fljúga til Miami. Flugstjórinn lét sem hann færi að skipun flugvirkjans en stefndi þess í stað til Havana. Það var fyrst rétt 1 því, að lending var gerð, að flugvirkinn tók eftir þestsu. Hann skaut flugstjórann og reyndi að komast að stýrinu en aðstoðarflugmaðurinn réðst á flugvirkjann. Meðan á slagsmál- Framhald á 11. síðu Bekkjaráð Menntaskólans í Reykjavíkur hefur nýlega gefið út Faunu 1966 og eru í bókinni nál. 220 teikning- ar af nemendum og kenn- urum sjötta bekkjar skólans. Eru meðfylgjandi myndir úr bókinni. Almenningi gefst kostur á að eignast Faunu 1966, en hún verður seld næstu daga í Menntaskólanum 1 löngu frímúnútunum á morgnana, þ.e.a.s. frá kl. 10.40—11. Vít.Ua«m<X éb 5*:» •» f t-T i«n |*T"“ h-Jn Ufcr. }* tnc»' If bi Mlri nti »'• * John Nicholson látinn Rafmagnsleysi KT-Reykjavík, mánudag. Að undanförnu hefur gætt rafmagnstruflana á suðaustur- hluta Vestfjarðarkjálkans frá Hólmavík til Gilsfjarðar. Hpfa truflanir þessar verið allveru- legar og hefur þuft að skammta rafmagn til neytenda á þessu svæði, en rafmagn á svæðinu kemur frá Þverárvirkj un í Steingrímsfirði. Blaðið hafði í dag samband við Guðjón .Guðmundsson, rekstrarstjóra hjá Rafmagns- veitu ríkisins, til þess að spyr; ast fyrir um orsakir aður- nefndra truflana. Sagði Guð- jón, að vegna óvenjulega lít- illar úrkomu á síðasta ári væri svo komið, að vatnsgeymir Þverárvirkjunar væri að tæm- ast og hefði af þeim orsökum orðið að skammta rafmagn til notenda á svæðinu. Fljótlega mætti búast við bót á þessu ástandi, vegna þess að send hefði verið dísilvól áleiðis til Hólmavíkur og skyldi hún koma ástandinu í samt lag aft ur. Þá sagði Guðjón, að það hefði komið mjög á óvart, að truflanir hefðu orðið á raf- magni frá Þverárvirkjun, þar sem mjög litla úrkomu þyrfti til þess að fullnægja vatns- þörf hennar. Aflinn saltaður um borð GM-Stöðvarfirði, þriðjudag. Fyrir skemmstu kom hingað báturinn Heimir SU 100, sem verið var að stækka í Noregi. Mun hann nú orðinn um 220 tonn, en var áður 193 tonn. Er nú verið að búa bátinn út á netaveiðar, en sú nýlunda verður tekin upp í útgerð báts ins, að aflinn verður saltaður um borð. Vinna stendur nú yfir við síldarverksmiðjuna, sem taka á til starfa hér í sumar. Er það vélsmiðjan Héðinn, sem sér um bygginguna, en veðurfar hefur tafið framkvæmdi tals- vert. Grunnurinn hefur nú ver ið undirbúinn að mestu leyti. 145 lendingar SE-Þingeyri, þriðjudag. Hér er enn allt hvítt af snjó og talsverður snjór á lág- lendi, en tiltölulega litill í fjöllum. Ekkert hefur verið mokað enn, hvorki vegurinn fyrir Dýrafjörð, né fjallvegir, en menn eru farnir að vona, að ekki líði á löngu áður en það verður gert. Afli hefur verið tiltölulega góður, en virðist hafa minnk- að fyrir helgina, og er nú að glæðast aftur. Hannes kom hingað í dag með 33 tonn. Hér var skemmtun barna- skólans á laugardaginn. Er hún orðinn árlegur viðburður og hefur verið það í mörg ár og talin ein bezta skemmtun ársins. Koma skólabörnin fram með skemmtiatriði sjálf, upp- lestur og söng, leikfimi og leik þætti. Er mjög lofsvert, hve Framhald á 11. siðu HZ-Reykjavík, þriðjudag. Fyrir fimm árum síðan barst Tímanum bréf frá John Nichol- son byggingaverkfræðingi í Ne- vada, þar sem hann bað Tímann að birta bréf sitt, svo að hugsan- legir ættingjar gætu gefið sig fram. John bárust tvö bréf, ann- að frá Benedikt Gíslasyni frá Hof- teigi, en hitt frá Kristjáni Jökli Péturssyni, sem tjáðu sig ætt- ingja hans. John hafði vitað að afi sinn, Gunnlaugur Pétursson, bjó á Hákonarstöðum í Jökuldal svo að ekki reyndist mjög erfitt fyrir ættingjana að gefa sig fram. Það var úr, að John Nicholson og kona hans komu til íslands sumarið 1962. Dvöldu þau hér í 3 vikur og sögðu að þeim hefði aldrei liðið dásamlegar. John mundi ennþá íslenzkuna, sem afi hans hafði kennt honum. Eftir þriggja vikna dvöl hérlendis sneru þau aftur til Bandaríkjanna, þar sem John notaði hvert tækifæri til þess að prísa hið dásamlega ís- Framhald á 11. siðu Á myndinni eru John og Lucie Nicholson I góðu yfirlæti hjá Kristjánl Jökli Péturssyni, sem staðið hefur í stöðugu sambandi við þau hjónin. jp Myndin var tekin fyrir 5 árum siðan.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.