Tíminn - 30.03.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 30.03.1966, Blaðsíða 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. marz 1966 Litlar breytingar á ísl. landsliðinu fyrir leikinn gegn Dönum á laugardaginn - hætt er við að hafa aukalandsleik, sem fyrirhugaður var á sunnudaginn. Gunnlaugur Hjálmarsson. Alf—Reykjavík. Landsliðsnefnd HSÍ hefur nú valið ísl. landsliðið, sem allir treysta á að sigri Dani á laug ardaginn í síðari leik landanna í heimsmeistarakeppni’nni. Og í Ijós kemur, að litlar breyt- ingar eru á liðinu frá síðari leiknum gegn Rúmenum. Að- albreytingin er sú, að Guðjón Jónsson er settur út, en í hans stað kemur Ingólfur Óskars- son. Ástæðan fyrir því, að Guð- jón er settur út úr liðinu er sú, að hann hefur ekki getað stundað æfingar síðustu vik- urnar atvinnu sinnar vegna, en hann starfar á vegum Aðal verktaka í Hvalfirði. Er vissu lega slæmt, að Guðjón skuli ekki vera í æfingu, því hann hefur staðið sig vel í síðustu landsleikjum. Annars er liðið þannig skip- að: Þorsteinn Björnsson, Fram Hjalti Einarsson, FH Gunnlaiugur Hjálmarss., Fram, (fyrirliði) Sigurður Einarsson, Fram Ingólfur Óskarsson, Fram Geir Hallsteinsson, FH Auðunn Óskarsson, FH Hermann Gunnarsson, Val Stefán Sandholt, Val Karl Jóhannsson, KR Hörður Kristinsson, Ármanni. Fyrirhugað var, að á sunnu- daginn færi fram aukalands- leikur, en nú hefur verið horf ið frá þvj, þar sem dönsku leik mennimir eru á hraðri ferð og fara utan á sunnudagsmorg un aftur. Eiga þeir fyrir hönd um ferð til Sovétríkjanna í næstu viku. ísl. landsliðsmennimir eiga erfitt verk fyrir höndum, nefni lega að gefa Dönum skell. Fá ir búast við því, að þeir sigri með 9 marka mun, sem nægir til þess að hljóta sæti í loka keppni HM, en sigur, þó ekki væri nema eins til tveggja marka, væri kærkominn. En það er varasamt að vera of bjartsýnn — og hyggið ráð er að búast við því versta en vona það bezta. Leikurinn á laugardag hefst kl. 17 og verður dómarinn sænskur, Hans Carlsson, sem dæmdi leiki fslands og Rúss lands. Þess má geta, að sala aðgöngumiða hefst í dag í Bókabúð Lárusar Blöndal í Vesturveri og Skólavörðustíg. Ellert taldi sig ekki eiga erindi Alf—Reykjavík. Síðasta æfingin áður en lands- liðsnefnd valdi endanlega lands- liðið gegn Dönum, var haldin í Laugardalshöllinni á mánudags- kvöld, og jéku þá fyrir luktum dyrum tilraunalið landsliðsnefnd ar og pressulið. Nokkur forföll voru í báðum liðum, og vantaði t.d. báða mark verðina í tilraunaliðið, þá Þor- stein Björnsson og Ellert Schram. Þorsteinn mun hafa verið lítillega meiddur, en forföll Ellerts vom nokkuð annars eðlis, því Ellert taldi sig ekki eiga erindi í pressu leikinn af persónulegum ástæð- um. Mun hann hafa láiið þau orð falla, að einhverjir aorir, með meiri kunnáttu í handknattleik, ættu frekar erindi í pressuleik en hann. Eins og kunnugt er, hefur Ellert lítið stundað handknattleik og hefur aðeins hlaupið í skarðið þegar illa hefur árað hjá KR og sýnt góð tilþrif. :mf.vxiit-sr* ao t Pressuleikurinn á mánudags- kvöld var frekar slakur og sigraði landsliðið með 3ja marka mun, 21:18. í marki tilraunaliðsins léku þeir Sveinbjörn Ármannsmark- vörður og Logi Haukamarkvörður en Hjalti og Jón Breiðfjörð, Val, léku í marki pressuliðsins. Stjórnarmenn SKÍ, sem mættir voru á 500. fundlnn og þrlr af þeim, sem sátu stofnfund sambandsins. í neðri röð frá hægri: Sveinn Sveinsson, Stefán Kristjánsson, form. SKÍ, Einar B. Pálsson og Ketill Ólafsson. í aftari röð eru stjórnarmennirnir Gísii Kristjánsson, Þórir Lárusson og Ólafur Nilsson. Á myndina vantar Þóri Jónsson. (Tímamynd HZ) Ársþing Í8R Ársþing ÍBR verður haldið þriðju daginn 5. apríl í húsi Slysavarna- félagsins við Grandagarð. Chelsea sigr- aði með 1:0 ( . *; Chelsea og Munchen léku síð- ari leik sinn í borgakeppni Evr ópu í gærkvöldi í Ltmdúnum. Svo fóru leikar, að Chelsea sigraði 1:0, og er með þeim úrslitum kom ið í undanúrslit keppninnar og mætir Barcelona. Fyrri leiknum lauk 2:2. Elzta sérsambandið innan I.S. I. heldur 500. stjórnarfund sinn Tæp 20 ár liðin frá stofnun Skíðasambands íslands Alf—Reykjavík. í gær, þriðjudag, var haldinn 500. fundurinn hjá stjórn Skíða- sambands íslands, sem er elzta sérsambandið innan ÍSÍ, stofnað fyrir tæpum 20 árum. Og í tilefni af því bauð núverandi stjórn SKf ] fréttamönnum á fundinn, en auk þess sátu fundinn Gísli Halldórs- son, forseti ÍSÍ, Hermann Guð- mundsson, framkv.stj. ÍSÍ og ýms ir forvígismenn skíðaíþróttarinn- ar. Stefán Kristjánsson, formaður Skfðasambands fslands, bauð gesti velkomna og rakti í stórum dráttum sögu sambandsins á 20 ára tilveruskeiði. Stefáni fórust svo orð: „Eg býð ykkur velkomna til þessa fundar, sem er hinn 500. í stjórn Skíðasambands íslands. Mér þykir hlýða af þessu tilefni að minnast með nokkrum orðum aðdraganda að stofnun sambands- ins og fyrsta fundar þess. Það var hinn 23. dag júnímánaðar 1946, að 9tofnfundur Skíðasambands ís lands var saldinn í Atvinnudeild Háskólans. Fulltrúar á fundinum voru 6 frá þrem skíðaráðum. Frá skíðaráði Reykjavíkur voru Stein- þór Sigurðsson og Einar B. Páls- son, frá skíðaráði Akureyrar Her mann Stefánsson og Bjarni Hall- dórsson og frá skíðaráði Siglu- fjarðar Ketill Ólafsson og Sveinn Sveinsson. Forgöngu um stofnun Skíða- sambands íslands höfðu þeir Stein þór Sigurðsson og Einar B. Páls- son. Allmörgum árum áður höfðu þeir skrifað stjórn íþróttasam- bands íslands og bent á nauðsyn þess, að stofnað yrði sérsamband innan ÍSÍ, sem færi með sérgrein armálefni skíðaíþróttarinnar. Þessi hugmynd hlaut ekki góðar undirtektir og þurftu mörg ár að líða þar til nógu mörgum yrði ljóst, hver þörf var á stofnun sér ^alfundur KRR Aðaifundur KRR verður hald- inn í Félagsheimili Vals við Lauf- ásveg fimmtudaginn 31. marz og hefst kl. 20.30. sambanda fyrir hinar ýmsu grein ar fþróttanna. Þó kom þar, að lögum ÍSÍ var breytt, og hinn 23. júní 1946 heimilar stjórn ÍSÍ, að stofna megi sérsamband sem fari í um- boði ÍSÍ með málefni skíðaíþrótt arinnar. Sama dag boða þeir Stein þór og Einar til stofnfundar Skíða sambands íslands. Skíðasamband Íslands er því Framh. á bls. 10. Leipzig og HG keppa um Evrópubikarinn Danska kvennaliðið HG og austur-þýzka liðið Leipzig leika til úrslita i Evrópukeppninni i handknattleik. Danska liðið sigraði Sparta Prag í siðari leik liðanna með 6:5. en hafði unnið fyrri leikinn með yfir- burðum, 10:3. Leipzig lék gegn ungverska liðinu Spartacus og gerði jafntefli í síðari leiknum 5:5, en hafði unnið fyrri leik- ínn 10:4. F'ns og kunngt er lék kvenna lið Vals gegn Leipzig og tap- aði báðum leikjunum. Þvj er spáð, að Leipzig verði Evrópu bikarmeistari og tald þar með titilinn af HG, sem vann hann sfðast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.