Tíminn - 02.04.1966, Qupperneq 3
Tónleikar á
Pálmasunnu-
dag á Selfossi
LG-Selfossi, fimmtudag.
Lúðrasveit Selfoss heldur hljóm
leika í Selfossbíói á Pálmasunnu-
dag, 3. spríl, kl. 15._ Stjórnandi
hljómsveitarinnar er Ásgeir Sig-
urðsson, og verður flutt bæði er-
lent og innlent efni.
Einleikari með lúðrasveitinni
verður að þessu sinni Stefán Stepf
ensen, en hann hefur verið kenn
ari sveitarinnar í vetur. í lúðra-
sveitinni eru 21 hljóðfæraleikari,
og hafa þeir að undanförnu æft af
kappi.
Lúðrasveit Selfoss er átta ára 1
gömul. Þess má geta, að landsmót g
Landssambands lúðrasveita verð- |
ur haldið á Selfossi í sumar.
Kvennadeild stvrkt-1
arfélags lamaðra
'*«' fatlaðra
Mánudaginn 21. marz, sl. ^ar
haldinn stofnfundur Kvennadeild-
ar Styrktarfélags lamaðra og fatl
aðra í Tjarnarbúð. Mættar voru
60 konur. Ávarp flutti frú Matt-
hildur Þórðardóttir og skýrði frá
tilgangi með stofnun kvennadeild
ar innan þessa félagsskapar. Frú
Jónína M. Guðmundsdóttir, for-
stöðukona æfiflgastöðvárinnar að
Sjafnargötu 14, sagði frá starfi æf
ingastöðvarinnar og væntanlegum
verkefnum deildarinnar. Fundar-
stjóri var kosin frú Guðlaug Svein
bjárnardóttir og voru kosnar í
stjórn: Frú Jónína M. Guðmunds-
dóttir, formaður frú Matthildur
Framhald á 14. síðu
Veggmyndir úr hraunleir
komnar á markaðinn
G®-Reykjavík, föstudag.
Veggmyndir úr hraunleir er
helzta nýjungin í listiðnaði, sem
leirbrennslan Glit sendir á mark-
aðinn þessa dagana, og var blaða
mönnum í gærkvöldi boðið að
skoða þær, þar sem sýning þeirra
og sala er hafin í Húsgagnaverzl
un Reykjavíkur, Brautarholti 2,
fjórtán veggmyndir, sem límdar
eru á þar til gerðan ramma, svo
að hægt er að hengja þær upp
eins og venjuleg málverk. Höf-
undar þessara fjórtán hraunvegg-
mynda eru listmálararnir Hring-
ur Jóhannesson og Þorbjörg Hös-
kuldsdóttir, er starfað hafa í þrjú
ár við listmálun hjá Gliti.
Fyrstu veggmyndirnar úr þessu
efni, sem gerðar hafa verið hér,
voru þrjár veggmyndir til skrauts
í Hótel Holti, er það var opnað
í fyrra, feiknastórar myndir, sem
þar hanga á þrem stöðum, hver
1,8 ferm. að stærð, tvær þeirra eft
ir Ragnar Kjartansson, leirkera-
smið og ein eftir Hring Jóhannes-
son.
Einn útlendur gestur í hótel-
inu varð svo hrifinn af þessum
myndum, að hann pantaði vegg-
mynd úr hraunleir hjá Ragnari,
og er sú mynd nú komin til Þýzka
lands, á heimili þessa fyrrverandi
hótelgests í Holti. En langstærsta
veggmyndin, sem Ragnar hefur
gert, er keramikmynd sú, er nú
prýðir vegg í Stapa, félagsheimili
Njarðvíkur, hún er tuttugu fer-
metrar. Forráðamenn Glits hafa
orðið varir við mikinn áhuga og
og eftirspurn eftir keramik-
veggmyndum. Því var ákveðið að
framleiða svo margar myndir sam-
tímis, svo að kostur gæfist á að
sjá dálítið úrval mynda, og hefur
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur tek
ið að sér sýningu og sölu vegg-
myndanna. Sögðu ráðamenn Glits
við fréttamenn, að þau íslenzku
efni, sem notuð eru í mótun mynd
anna, gæfu möguleika til sköpun-
argleði og listtjáningar í ríkum
mæli. Utan sölutíma verzlunarinn
ar verða myndirnar hengdar
þannig, að hægt er að skoða bær
inn um glugga verzlunarinnar.
IdMBGMtÐAGUR 2. aprfl 1966
TÍMINN
Tvær veggmyndanna frá Gliti í Húsgagnaverzlun Keykjavikur og höfundar þeirra, listmátararnir Hringor
Jóhannesson og Þorbjörg Höskuidsdóttir. Tímamynd—GB
WILSON
Sigurvegarinn, Wilson, skor-
aði í dag á brezku þjóðina að
sýna samhug á næstu árum svo
að hægt sé að leysa þau miklu
og alvarlegu vandamál, sem
landið á við að etja, og for-
sætisráðherrann kom með
fyrstu aðvörun sína eftir sigur-
inn: — Hin nýja stjórn er
reiðubúin að grípa til óvinsælla
ráðstafana, ef þær eru nauð-
synlegar til þess að gera efna-
hagslíf Bretlands heilbrigðara
og samkeppnisfærara.
— Ákvörðun þjóðarinnar um
að gefa ríkisstjórninni greirii-
legt umiboð mun, — að mínu
áliti — vera til hins bezta ryr-
ir ríkisstjórn Bretlands og
framtíð landsins, sagði Wilson
á tröppum Downing Street
10, hinum opinbera bústað for-
sætisráðherrans. — Ég tel, að
okkur beri skylda til þess að
vinna saman, — brezku ríkis-
stjórninni og brezku þjóðinni,
að því að leysa þau vandamai,
sem enn bíða úrlausnar, —
sagði hann.
Fréttin um hinn yfirgnæi-
andi sigur Wilsons hækkaði
pundið í verði í kauphöi.inm
í London. Telja fréttaritarar,
að þetta sé merki um, að al-
þjóðlegum fjármálamönnum
hafi létt við, að flokkur W'il-
sons skyldi fá svo öntggan
meirihluta. eftir óvissu síðustu
17 mánaða.
Wilson mun væntanlega ekki til
kynna hverjir verði í hinni nýju
stjórn fyrr en í næstu viku, en
talið er, að ýmsar breytingar verði
gerðar. M.a. er talið víst, að
Patrick Cordon Walker, fyrrver-
andi utanríkismálaráðherra, verði,
að nýju ráðherra — líklega fái
hann evrópsk málefni til að fjalla
um.
Edward Heath, leiðtogi íhalds-
manna, beið þar til Verkamanna-
flokkurinn hafði opinberlega unn
ið 316 þingsæti sitt, með að til-
kynna ósigur sinn.
Ýmsir nánustu samstarfsmenn
hans féllu í kosningunum. Meðal
þeirra var Ohristopher Soames,
helzti talsmaður flokksins í utan-
ríkismálum, Peter Thorneycorft
fyrrverandi varnarmálaráðherra
Henry Brooke, fyrrverandi inn-
anríkisráðherra og Julian Amery,
fyrrverandi flugmálaráðherra, en
frambjóðendur Verkamannafl.
felldu þá alla.
Frjálslyndi flokkurinn mun að
öllum líkindum auka þingmanna
tölu sína úr 10 í 12, vegna óvænrra
sigra í Skotlandi og Vestur-Eng-
landi, og þrátt fyrir fylgistap,
sem nemur um 750.000 atkvæðum
miðað við tölur, sem fyrir iágu í
kvöld. Samkvæmt þessum töium,
var atkvæðaaukning Verkamanna
flokknins rétt innan við 3%
Kosningaþátttakan var aðeins
minni en 1964, eða 75.28%
gegn 77.03% síðast.
Er talið hafði verið i 626 kjör
dæmum af 630, skiptust atkvæð
in þannig milli flokkanna:
Verkamannafl. 13.027.800,
(12.177.314 í fyrra) — 48.0%
(44.2% í fyrra). íhaldsflokkur
11.387.832 (11.971.345) — 41.9%
(43.4%) Frjálslyndi flokkurinn
2.293.422 (3.061.843) - 8.4%
(11.1). Aðrir 452.689 (349415) —
1.7% (1.3%).
Knappasti sigurinn féll t hend-
ur íhaldsmönnum, sem unnu eitt
kjördæmið með aðeins þriggja at-
kvæða meirihluta. Sjö sinnum
þurfti að telja í því kjördæmi, áð
ur en niðurstaða fékkst. Komm
únistaflokkurinn komst hvergi
nærri því að fá þingmann.
í miðstöð Efnahagsbandalagsins
Brussel er sagt, að vonandi
muni Wilson forsætisráðherra
taka fyrsta skrefið í átt til athug
unar á möguleikum að aðild Breta
að EBE. Minnt er á, að Wilson
hafi lofað að skipa Evrópumála-
ráðherra í nýju stjórninni sinni.
Slíkur ráðherra hlýtur að fá það
fyrsta verkefni að hafa samband
við EBE-ríkin og fá nákvæmar
upplýsingar um, hvaða skilyrði
verði sett við inngöngu Breta í
bandalagið, er sagt í Brussel.
í París telja fréttaritarar, að sig
ur Verkamannaflokksins hafi dreg
ið úr möguleikum þess, að Bretar
gangi í EBE. En formaður utan
ríkismálanefndar franska þings-
ins, Maurice Schumann, sagði, að
hann teldi vandamálin í sambandi
við inngöngu Breta yrðu leyst á
kjörtímabili því, sem nú er að
hefjast.
Tage Erlander, forsætisráðherra
Svíþjóðar, og Jens Otto Krag, for
sætisráðherra Danmerkur, sendi
heiUaskeyti til Wilsons. í skeyti
frá Willy Brandt. leiðtoga Vestur
þýzkra jafnaðarmanna, segir, að
sigur brezkra sósíalista sé mikill
atburður, einnig fyrir sósíalista-
flokka í öðrum ríkjum. Talsmað-
ur Bonn-stjórnarinnar sagði. að
stjórnin vonaði. að Bretland
myndi ekki láta hjá líða tækifæri
til þess að tengjast fastari bönd
um við Evrópu.
Opinberlega hefur ekkert kom
ið frá Bandaríkjastjórn um úrslit
in, en víða þar í landi var sigri
Wilsons fagnað, einkum þó, að
sigur hans var það mikill, að hann
gæti gripið til þeirra ráðstafana, j?
sém nauðsynlegar væru til þess að |
koma að nýju fjöri í efnahagslíf »
Bretlands. Kenneth Kaunda, for- |
seti Zambíu, fagnaði sigri Wil- f
sons, og kvaðst vona, að stjórn '
hans myndi, með svo mikinn meiri
hluta á bak við sig, gera það, sem
hún teldi náuðsynlegt, í Rhodesíu
málinu. Ian Smith, leiðtogi hvíta »
minnihlutans í Rhodesíu, vildi lít '
ið segja um úrslitin, annað en, B
að ef brezkir kjósendur væru 9
ánægðir, þá væri hann einnig 1
ánægður. Margir hvítir menn þar S
í landi telja, að stefna Wilsons K
gegn Smith- stjórninni muni
harðna.
Izvestija skrifar í dag, að sigur
inn þýði ekki, að brezkir kjósend
ur séu fylgjandi stefnu Wilsnns
í utanríkismálum, einkum þó
stefnu hans í Vietnammálunu.
Bendir blaðið á, að fylgisaukn
ing hjá Verkamannaflokknum
hafi mjög styrkt vinstrisinna
flokksins. og muni bað væntan- |
lega auka áhrif þeirra á stjórnar- ,
stefnuna.
Hið nýja þing verður mun f
„yngra“ en hið gamla, einkum á I
þetta þó við um þingflokk verka j
manna Mikill fjöldi nýrra þing- I
manna á aldrinum 25—35 ára eru |
komnir á þing, en aðrir eldri hafa |
vikið fyrir þeim. Konum hefur
fækkað — þær eru nú 27, en voru
29. Tvær kvennanna hafa eigin-
menn sína líka á þingi — eru
bæði hjónin frá verkamönnum.
Einnig verða einir feðgar i þing-
inu og bræður eru þar nokkuð
fjölmennir — eða sex. ■
3
Á VÍÐAVANGI
Smán Sir Mogga
Það vakti að vonum allmikla
athygli, þegar ljóst var, að Sir
Moggi — þetta öndvegis frctta-
blað með allt frjálslyndið i
málflutningi — lét sig hafa það
að stinga undir stól því atriði
úr viðtali blaðamanna við
Meyer forstjóra Swiss Alumin-
ium, að ákvæðið um erlendan
gerðardóm í álsamningnum við
íslendinga væri algert eins-
dæmi í svipuðum samningum
hringsins við önnur ríki. Öll
önnur blöð og útvarpið sögðu
greinilega frá svörum Meyers
um þetta. En Morgunblaðið lét
þessa aðalatriðis í viðtalinu
ekki getið. Þannig auglýsti það
uppgjöf sína og smán.
í fyrrad. birtist svo allt í einu
leiðari, þar sem reynt er að
réttlæta þetta, sem Morgun-
blaðið sagði ekki frá á þriðjud.
Þar er því haldið fram, að
gerðardómsákvæðið sé nauð-
synlegt í samningnum við fs-
lendinga vegna þess, að ál-
hringurinn beri hér fjárliags-
ábyrgð á hinu „íslenzka“ dótt-
urfélagi, en ekki t. d. á hinu
norska dótturfyrirtæki, og því
hafi ekki þurft ákvæði um er-
lendan gerðardóm þar.
Allir, sem lásu viðtöl blaða-
anna við Meyer, vita þó vel,
að hann gaf allt aðra skýringu
á þessu, sem sé þá, að „hér
væri því ekki fyrir að fara eins
og víða’ erlendis, að dómstólar
hefðu fjallað um mörg deilu-
mál af þessu tagi, og hér væru
engir dómar í þessum efnum
til að styðjást við", éins Og Al-
þýðublaðið hafði eftir Meyer.
Meyer sagði nefnilega hrein-
Iega, að hann vantreysti íslenzk
um dómstólum í þessu efni.
Aumingja Sir Moggi, sá á
bágt um þessar mundir.
„Hóflegt raforkuverð71
Þessi merkilega klausa er í
leiðara Sir Mogga í fyrradag
um álsamningana:
„En væntanlega skilja menn,
að samningar nást ekki, nema
báðir aðilar telji sér hag að
þeim. Hóflegt raforkuverð var
það eina, sem við fslendingar
gátum boðið í samkeppni við
aðra, og við höfum mikinn hag
af því að selja raforkuna á
2,5 mill.“
Það skilst á þessari klausu,
að ríkisstjómin og Moggapiltar
hennar hafa talið, að þeir yrðu
um fram allt að ná samningum
um álbræðsluna, hvað sem það
kostaði, og þeim finnst kynlegt,
að menn skuli ekki skilja það,
að raforkuverðið varð að vera
svona lágt, því að annars hefðu
samningar bara alls ekki náðst
— guð hjálpi okkur. Og „hóf-
Iegt raforkuverð" var hið eina,
sem hægt var að bjóða. Það
leynir sér ekki sársaukinn yfir
því að hafa ekki haft meira „að
bjóða“. Auðvitað telja þessir
menn það enga fórn, þótt selja
verði íslenzka lögsögu f hend-
ur erlendra aðila. Það var auð-
vitað ekki nema sjálfsagt, enda
var hið einá, Sehl máli skipti,
að „ná samningum", en að
„sjálfsögðu hefði engin von
verið til þess, ef við hefðum
krafizt þess hagkvæmásta úr
öllum samningum um ál-
vinnslu", eins og Sir Moggi
segir.
Það var sem sagt ekki aðalat-
riðið að ná hagkvæmum samn-
ingum, heldur bara að ná samn
ingum.