Vísir - 14.09.1974, Síða 5
Vísir. Laugardagur 14. september 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
Minnisvarði Krúsjeffs
Afhjúpaður var á þriðjudaginn minnisvarði Nikita Krúsjeffs,
fyrrum forsætisráðherra Sovétrfkjanna. Fór athöfnin fram við leiði
Krúsjeffs í Novodevichy-kirkjugarðinum i Moskvu. — Viðstaddur
var myndhöggvarinn Neizvestny, sem minnismerkið gerði.
Við þetta tækifæri lagði Nina, ekkja Krúsjeffs, bióm á leiði hins
framliðna, en þrjú ár eru liðin, siðan hann lézt. — Margir hafa siðan
streymt að leiðinu og vottað hinum látna virðingu sina.
Þeim getur þótt það leiðigjarnt
til lengdar, feguröardrottning-
unum, að slaka aldrei á bros-
böndunum framan I ljósmynd-
arana. Ungfrú Amerika 1975 lét
það þó eftir sér núna á dögun-
um, þegar hún var að skoða sig
um í New York og fékk engan
frið fyrir ljósmyndurunum.
Jarlinn af Snowdon, Tony
Armstrong, sem kvæntur er
Margréti, systur Elizabetar
Englandsdrottningar er ljós-
myndari, eins og allir vita.
Hann efnir i dag til sinnar fyrstu
sýningar i Bandarikjunum, og
var þessi mynd tekin af honum
við að koma myndunum fyrir.
Fótboltoaðdáendur
leiddir fyrir rétt
islenzkir sjónvarpsáhorf-
endur fengu á dögunum nasa-
sjón af þvi, hvernig það getur
gengið til á áhorfendapöllun-
um i brezku knattspyrnunni.
Munu þeir minnast þess, sem
sáu brezka framhaldsþáttinn
um „Viölagasveitina”.
Nýlega var frá þvi sagt i
fréttum, að einn af ungum
knattspyrnuáhugamönnum
hefði fundizt stunginn til bana
á áhorfendapöllunum.
i annan staö hefur veriö sagt
frá ofbeldi, árásum og
skemmdarverkum, sem
fylgja þessum unglingum, er
elta lið sitt frá ieikvelii til leik-
vallar, leik frá leik.
Það vakti mikil viðbrögð al-
mennings i Bandarikjunum,
þegar Gerald Ford forseti
náðaði Nixon forvera sinn af
öllum afbrotum, sem honum
kynnu hugsanlega að hafa
orðið á i starfi. — Bréfin hafa
hrannazt upp I Hvita húsinu.
Að langmestum meirihluta
hafa þau verið andvig þessari
ákvörðun Fords. Hér á mynd-
inni sjást um 16.000 skeyti,
sem honum bárust.
Missti höfuðleðrið
Þessi 21 árs skrifstofustúlka I
Melbourne brosir á ný eftir að
búið er að sauma aftur á hana
höfuðleðrið allt eins og það legg-
ur sig og hluta af andlitinu.
Astralskir læknar telja þetta
fyrstu aðgerð sinnar tegundar.
Stúlkan missti höfuðleðrið,
þegar hún festi hárið, sem hún
greiddi aftur i tagl, i vél.