Vísir - 14.09.1974, Blaðsíða 16
16___________ ____ Visir. Laugardagur 14. september 1974.
| I PAB | í KVÖLD | í DAG | í KVÖLP | í DAG ~
Sjónvarpið í kvöld kl. 21.40:
Leyndarmál konu
Biómynd frá 1949
Ung söngkona, Marion
(Maureen O’Hara), veröur fyrir
þvi óláni aö hún missir röddina.
Hún og vinur hennar Luke
(Melvin Dougias), sem er
þekktur lagasmiöur og
planóleikari, rekast af tilviljun
á stúlku aö nafni Susan (Gloria
Grahame) og kemur þaö i ljós,
aö hún hefur mjög fallega
söngrödd.
Marion tekur nú Susan upp á
sfna arma og vill gera hana aö
stjörnu og láta þannig á ein-
hvern hátt draum sinn rætast
um mikla frægö. Susan er hins
vegar ekkert allt of hrifin af aö
láta skipuleggja lff sitt fyrir sig
og heföi frekar kosiö aö lifa
venjulegu lffi.
Susan fer i feröalag til New
Orleans, og þegar hún kemur til
baka er hún breytt manneskja.
Vill hún hætta viö sönginn, en
Marion reynir á allan hátt aö
tala um fyrir henni. Allt i einu
heyrist skot, og Marion játar á
sig aö hafa ætlaö aö drepa
Susan, sem ekki deyr, en er flutt
hætt komin á spftala. A
spftalann heimsækir Susan
maöur, sem kemur mikiö viö
sögu viö að upplýsa ákvöröun
Susan um aö hætta viö aö veröa
stjarna. — Þýöandi er Sigrún
Helgadóttir.
Cortina 1300 ’72.
Mazda 1300 ’74.
Fiat 128 Hally ’74.
Mazda 818 ’74.
Citroén Special ’71.
Opel Caravan ’68.
Austin Mini '74, nýr, óskráöur.
Opið á kvöldin kl. 6-10
iaugardaga kl. 10-4 e.h.
f
Félagsstarf eldri borgara að Norðurbrún 1.
■ " ^
verður þannig fyrst um sinn:
Mánudagar:
Fótsnyrting, handavinna, leirmunagerð
(byrjar 16. sept.)
Báðir salir opnir.
Þriðjudagar:
Fótsnyrting, teiknun — málun (byrjar 17.
sept.)
Félagsvist annan hvorn þriðjudag (byrjar
17. sept.)
Miðvikudagar:
Fótsnyrting, handavinna
bókmenntir — leshringir (byrjar 18. sept.)
Stóri salur opinn.
Fimmtudagar:
„Opið hús”, spilað, lesið bókaútlán, upp-
lýsingaþjónusta.
Handavinna, böð (með aðstoð hjúkrunar-
konu),
Skákkennsla (byrjar 19. sept.)
Föstudagar:
Hársnyrting, föndur, tauþrykk.
Báðir salir opnir.
Aðrir þættir félagsstarfsins auglýstir
siðar.
Ath. kaffiveitingar alla daga, húsið opnað
kl. 1 e.h.
Upplýsingar i sima 18800 kl. 10-12 f.h.
Geymið auglýsinguna.
_______________________________________J
fFélagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 sími 25500
Ævar Kvaran kynnir fyrir okkur Vestur-tslendinga I þætti I
kvöid. Ljósm. Bj.Bj.
Útvarpið í kvöld kl. 20.30:
Hinn dœmigerði
vesturfari
Frá Vestur-íslendingum
„Þátturinn i kvöld
er i léttum og gaman-
sömum dúr. M.a. ætla
ég að kynna höfundinn
Gunnstein Eyjólfsson
og mun Gisli Halldórs-
son leikari lesa upp
skemmtilega sögu eftir
hann,” sagði Ævar
Kvaran, sem segir
okkur hálfsmánaðar-
lega i útvarpinu frá
Vestur-íslendingum.
Saga Gunnsteins er um
sveitarlim, sem sendur er vest-
ur um haf til aö losna viö hann,
og heitir sagan „Hvernig ég lék
á sveitarráðiö”. Titillinn segir
til um efni sögunnar, enda hún
sögö af sveitarlimnum sjálfum.
Ævar les upp ritgerö eftir
Jóhann Magnús Bjarnason um
„Jón vesturfara”. Sagöi Ævar,
aö Jón þessi væri eins konar
samnefnari fyrir þá semfluttust
vestur. Gefin er lýsing á klæða-
buröi hans og störfum. Ævar
sagöi, aö til gamans mætti geta
þess, aö Jónarnir 3 f íslands-
klukku Halldórs Laxness og
Jón Daviös Stefánssonar i
Gullna hliöinu hefðu veriö hinir
dæmigeröu tslendingar þeirra
tima I hnotskurn, en Jón vestur-
fari hans Magnúsar er glöggt
dæmi um vesturfarana.
—EVI—
Útvarpið í
kvöld kl. 21.40:
Maður,
sem
var ó-
drepandi
„Ég skrifa fyrst og fremst
með þaö i huga, aö sá sem
hlustar eöa les hafi ánægju af
þvi. Þaö er enginn sérstakur
boöskapur I sögunum”, segir
Einar Logi Einarsson sem les
upp sögu slna Maöur, sem var
ódrepandi, I útvarpinu.
Einar Logi er tónlistar-
kennari, sem kennt hefur mikiö
úti á landi. Sl. ár var hann I
Húnavatnssýslu. Hann kennir
stundum á 8 hljóöfæri, en mest á
pianó. Hann æfir líka kóra bæöi
börn og fulloröið fólk, senrsiðan
skemmtir ýmist á árshátiöum
eöa þorrablótum. Einar er
einnig áhugamaður um leiklist
og hefur skrifað og sett upp
smáþætti fyrir skólaskemmt-
anir úti á landi. Þá hefur hann
veriö leikstjóri aö heilskvölds-
sýningum bæöiá Hvammstanga
og Blönduósi. Leikfélag Blöndu-
óss flutti barnaleikritiö Dverg-
riki eftirEinar og hefur hann nú
samið sögu upp úr þvi, sem
hann mun lesa upp i morgun-
stund barnanna i vetur.
A eyðiey, Útilegumennirnir
og Myndastyttan eru leikrit sem
flutt hafa verið I útvarpinu, og
hefur A eyöiey verið endurflutt
og til stendur að flytja aftur
Útilegumennina á næsta ári.
Sagan, sem Einar Logi les i
kvöld, er um mann, sem legið
hefur veikur i rúmi sinu og ekki
getað hreyft sig þaðan nema i
brýnustu nauðsyn. Þá kemur til
hans persóna, sem segist geta
læknað hann og gert hann
ódrepandi. Hann geti lifað i 100
ár 1000 eða 1000000. Eina skil-
yrðið sem persónan setur er aö
hann eigi hann, þegar að þvi sé
komið að hann veröi leiður á lif-
inu. Sjúklingurinn furðar sig á
þvi, hvað hann vilji með dauðan
likama, en svarið við þvi er, aö
sálin lifi þótt likaminn deyi.
Samningar takast, og
sjúklingurinn kemst að raun
um, að hann er orðinn alheill.
Hann kastar sér út úr flugvél,
hendir sér fyrir járnbrautarlest
o.fl. og fær ekki svo mikið sem
skrámu. Hvort hann verður
leiöur á lifinu fáum við að heyra
um i kvöld.
—EVI-
Einar Logi Einarsson les fyrir
okkur sögu sina Maöur, sem
var ódrepandi, I kvöld.