Vísir - 17.09.1974, Qupperneq 2
2
Vísir. Þriðjudagur 17. scptember 1974
vísnsm:
Hvað kostar
mjólkurlítrinn?
(23,40)
Örn Helgason, dósent: — Láttu
mig sjá, ætli hann kosti ekki 22
krónur og f'ernan þá helmingi
meira.
Kinar Björnsson, starfsmaður
hjá Tryggingastofnuninni: —
Blessaður vertu, 48, nei, það er
benzinið. En hún fer i 48 með
þessu áframhaldi.
Guðbjörg Sigurðardóttir,
húsmóðir: — Veit það ekki
almennilega. 40eða 50 krónur, nei
þar á ég við fernurnar.
Hjörtur Guðjónsson, Saurbæ: —
Ég fæ mina mjólk heima við, svo
að ég veit ekki, hvað þið borgið
fyrir litrann.
Sigtryggur Þorsteinsson,
sjómaður: — Veit það ekki, svo
langt er siðan ég keypti mjólk sið-
ast, en vonandi ódýrari en benzin-
ið.
Gunnlaugur Árnason, kennari: —
Siðast þegar ég keypti kostaði
hann 20,50 kr., en það var fyrir
þrem vikum.
Tómas Sigurðsson, næturvörður:
— Um 23 krónur. Ég drekk frekar
súrmjólk en nýmjólk.
VINNUVELARNAR I UMFERÐINNI
Sveinn Ólafsson hringdi:
,,A leið minni eftir Hafnarfjarð-
arveginum einn morguninn lenti
ég á eftir heljarmikilli gröfu, sem
þar var á ferð. Ég var þvi 10
minútur að aka frá Silfurtúninu á
Kópavogsháls. Það, sem mér
finnst sjálfsagt að slik vinnutæki
geri, er, að þau viki af veginum
og hleypi annarri umferð fram
hjá sér. Það er feykinóg pláss
utan við malbikaða veginn til að
stærri tæki gæti notað það til að
hliðra til fyrir annarri umferð.
Slikt er sjálfsögð tillitssemi.
Þótt maður vilji kvarta yfir að-
ferðum slikra gröfubila, er skrá-
setningarmerkið ýmist það litið
eða þakið auri, að það er ómerkj-
anlegt. Það væri til mikilla bóta,
ef slikar vélar yrðu merktar með
stærra skilti en önnur ökutæki.
1 þessu sambandi vil ég einnig
benda á það, sem einn af þeim,
sem daglega verða að aka eftir
þessum vegi, að þar er hæglega
pláss fyrir 3 akreinar. Að brúm
undanskildum er metra breið
ræma öðrum megin við malbik-
aða veginn, nú og tveir og hálfur
eða þrir metrar hinum megin.
Með þvi að gera jafn einfaldan
hlut eins og að malbika þessar
ræmur, væri hægt að liðka mikið
til fyrir umferðinni. Mætti þá
stjórna þvi með ljósum eins og
svo viða er gert erlendis, i hvora
áttina þriðja akreinin er opin
hverju sinni og væri það eftir um-
ferðarþunga.
En þegar minnzt er á þessa
hluti við yfirvöld, er eins og verið
sé að tala við steina. Sömu sögu
er t.d. um svonefnd framhjá-
hlaup við gatnamót að segja. Nú
hefur sliku verið komið upp við
Vifilsstaðaveginn, en engu siður
er þörf á framhjáhlaupi við af-
Róbert Jack skrifar:
Ég las um daginn i Visi viðtal
við Englendinginn Tony Knapp,
sem hefur verið að þjálfa K.R. i
sumar i knattspyrnu. í viðtalinu
kastar hann miklum skugga á
knattspyrnudómara hérlendis og
gerir hann ekkert úr starfi
margra þeirra. Ég hefi miklu
meiri reynslu heldur en þessi góði
maður, bæði af islenzkri knatt-
spyrnu og islenzkum knatt-
spyrnudómurum, og er ég algjör-
lega ósammála honum.
Islenzka knattspyrnan er
áhugamannaleikur og er hún
leikin á svipuðu stigi og t.d.
Athenian-knattspyrnudeildin, i
London og úthverfi og eftir þvi,
sem ég veit um dómarahæfi-
leika þar, eru islenzku dómar-
arnir yfirleitt langtum betri.
Ennfremur hafa þeir dómarar
hérlendis, sem hafa á undanförn-
um árum dæmt leiki
erlendra liða á erlendri grund i
ýmsum bikarkeppnum, staðið sig
vel, með mjög fáum undan-
tekningum. En það er alltaf erfitt
fyrir knattspyrnudómara að
dæma leiki, þar sem leik-
mennirnir sjálfir kunna ekki að
fullu leikreglurnar. Án þess að ég
vilji á nokkurn hátt finna að okk-
ar knattspyrnumönnum, finnst
mér, að allt of margir þeirra
kunni ekki nógu vel knattspyrnu-
lögin. Sama má segja um áhorf-
endur. Það I sjálfu sér gerirstarf
dómara sérstaklega erfitt.
Árás Tony Knapp á islenzka
knattspyrnudómara er I hæsta
máta dónaleg. Hann var ráðinn til
þess, meðal annars aö kenna
strákum sinum að skora mörk og
honum tókst það ekki sem skyldi.
Hvi þá að kenna þeim um sem
dæma leikina?
Ég álit að FH hafi fengið bezta
knattspyrnuþjálfarann á Islandi i
sumar, ennfremur var knatt-
spyrnuferill hans athyglisverð-
astur þeirra erlendu þjálfara,
sem hér hafa verið i ár. Ekki var
hann yfirleitt óánægður með
knattspyrnudómara i annarri
deild, og liöi hans tókst að vinna
deild sina með yfirburöum.
tslenzkir knattspyrnudómarar
þurfa ekki að láta Tony Knapp
segja sér fyrir verkum. Gagnrýni
hans er hróp örvæntingar og
vonbrigöa, merki „Big Mouth”,
5^m við höfum ekkert með aö_,
gera hér á tslandi, hvorki i knatt-
spyrnu né ööru.
tslenzk dómarastétt er sivax-
andi i starfi sinu og afturför er
ekki til. Þegar islenzku knatt-
spyrnudómararnir hafa dæmt
leiki i Evrópumeistarakeppni á
Celtic-velli i Glasgow, hafa allir
verið ánægðir með þá. Það mælir
tvimælalaust með þeim, þvi
Celtic er bezta lið á Bretlandseyj-
um um þessar mundir, og hefur
formaður félagsins sagt mér það.
Að lokum vil ég segja, að löngu
áður en brezka knattspyrnan
vissi um Tony Knapp lék ég bæði i
Skotlandi og Englandi i minni-
háttar knattspyrnu upp i atvinnu-
mennsku og yfirleitt eru dómarar
hér i dag sizt verri, og oft betri, en
margir sem ég hafði reynslu af.
leggjarann úl Arnarnes, þar um veginn i Silfurtúnið. Það eru
sem mörg slys hafa orðið og um- þessir smáhlutir, sem geta bjarg-
ferðahnútar. Sama er að segja að svo miklu.
VEIT ÞJOÐVILJINN
EKKI, AÐ IÚÐVÍK
RÍÐ FISKMATINU?
,,t siðasta sunnudagsblaði
Þjóðviljans cr forsiðufrétt um
lögbrot Fiskmats rikisins varð-
andi mannaráðningar, og er það
haft eftir drengs ula sem verið
hefur I Fiskvinnsluskólanum.
Nú vil ég upplýsa Þjóðviljann
um það, að Lúðvík Jósepsson
hefur verið æðsti yfirmaður
Fiskmats rikisins þrjú siðustu
ár og látiö þetta viögangast
átöiulaust. Ég get lika upplýst
Þjóðviljann um það, að sam-
komulag hjá fyrrverandi ráð-
herra og fiskmatsstjóra var alla
tið mjög náið og gott, enda er
fiskmatsstjóri búinn að koma
vildarvini sinum, skrifstofu-
stjóranum, í það að hafa yfir-
umsjón með öllum grásleppu-
hrognum og hefur hann verið á
þönum um aUt land i þvi starfi
en unnið svo skrifstofustörfin i
yfirvinnu og mun hafa haft
nokkur hundruö þúsund krónur
á ári fyrir það. Þetta sýnir ráð-
deild og reglusemi fyrrverandi
ráðherra i starfi”.
Reykjavik 10. sept. 1974
Fiskimatsmaöur.
PS. Þvi miður get ég ekki
skrifað undir nafni þar sem ég
er fastráðinn hjá matinu og ekki
hátt settur.
Óþýdd fótboltaviðtöl
Akureyringur hringdi:
„Gætuð þið ekki komiö þeim
skilaboðum áleiðis til sjón-
varpsins fyrir mig að þýða við-
tölin sem fram fara á eftir ensku
knattspyrnunni i Iþrótta-
þáttunum .
Ég er mikil’.áhugamaður um
ensku knattspyrnuna, og viðtölin,
sem fara fram á eftir, finnst mér
allmerkileg. En þar sem ég er
lélegur enskumaður, vildi ég
gjarnan sjá texta með við-
tölunum. Ég er áreiðanlega ekki
einn um þetta, enda horfa svo
margirá iþróttaþættina, að þetta
er nauðsynlegt”.
MA EKKI NOTA
SÉR LIT-
SJÓNVARPIÐ
Þóra H. Jóhannesson I
Breiðholti simaði:
„Ég vil beina þvi til allra sem
vilja hafa valfrelsi og sjónvarp,
hvortþeiræ*' "'ki að taka upp
hanzkann Albert Guð-
mundsson -*r að berjast
fyrir rétti o. allra.
Nú, þegar ekki sést til Kefla-
vlkursjónvarpsins, sjáum við
vel, hversu ábótavant hinu
islenzka er.
Efnið, sem sýnt er i islenzka
sjónvarpinu, er það lélegt, að
ekki reynist unnt að halda ung-
lingunum he> . • á kvöldin. Nú,
þegar mikil hiuti sjónvarps-
tækja er að .erða úr sér
genginn, endurnýjar fjöldi
manna tæki sin. Ég býst við, að
flestir vildu fá sér litsjónvarps-
tæki. Þau koma hins vegar ekki
að neinum nolum i náinni fram-
tið, nema við sjáum Keflavikur-
stöðina. Þar verður án alls efa
mun fyrr boðið upp á litaútsend-
ingu en hjá þvi islenzka.
Reyndar geri ég einnig ráð
fyrir þvi, að almennt vildi fólk
borga hærra verö fyrir litsjón-
vörp sin, ef hluti þess verðs færi
I sérstakan litsjónvarpssjóð,
sem flýtti fyrir litútsendingum
frá islenzka sjónvarpinu
Ef ekkert verður að gert, er
alveg áreiðanlegt, að hér á
okkar heimili verður tækið inn-
siglað fyrir næsta borgunardag
afnotagjalds og ég skora á alla
áhugamenn að gera það sama.
Annars hefði ég mikinn áhuga
á að komast i samband við þá,
sem vilja setja upp loftnet sem
gerðu höfuðborgarbúum kleift
að ná Keflavikursjónvarpinu
eftir sem áður”.
Fjánnál útvarps
Þoli sjónvarpið komist oftlega ekki hjá þvi
að ausa út peningunum i stað þess að spara
eru Magnús og Gunnar og Andrés Lénharðir á þvi
að útvarpið kunni vel með seðlana að fara.
Ben.Ax.