Vísir - 17.09.1974, Síða 16
VISIR
Þriðjudagur 17. september 1974
„Gildir einu
hvorum
megin þeir
eru"
— Rauði krossinn
hefur söfnun til
hjólparstarfs á Kýpur
„Okkur hafa borizt hjálpar-
beiönir, en kveikjan að þessu
varð eiginlega að það komu
nokkrir Grikkir og griskumæl-
andi Kýpurbúi að máli við okkur.
Einn er giftur islenzkri konu
hérna. Norðurlöndin hafa nú um
margra mánaða skeið aðstoöað á
Kýpur, og Danir og Sviar hafa til
dæmis sent iækna og lyf þangað.
Þeir fá styrk beint frá rikinu.”
Þetta sögðu þau meðal annars,
Hilmar Sigurðsson skrifstofu-
stjóri og Dóra Jakobsdóttir ritari
hjá Rauða krossinum, þegar við
ræddum við þau, en Rauði kross-
inn hefur nú ákveðið að hafa for-
göngu um söfnun til hjálparstarfs
á Kýpur. Gildir þar einu hvort i
hlut eiga griskumælandi ibúar
eyjarinnar eða tyrkneskumæl-
andi ibúar.
Rauði krossinn hefur aðstoðað
yfirvöldin við að veita hjálp um
150 þúsund Kýpur-Grikkjum, sem
misst höfðu heimili sin, einkum i
Larnaca, Limassol og I Troodos
fjöllunum. Þá hafa læknar annazt
hjálp við 25 þúsund tyrknesku-
mælandi menn, sem búa á grisku
yfirráöasvæði. Fleira mætti upp
telja, til dæmis hefur leitarþjón-
ustan starfað af fullum krafti og
leitazt við að sameina sundraðar
fjölskyldur og koma boðum milli
fólks sem aðskilið er af viglinu, og
læknar Rauða krossins hafa
heimsótt alla spitala á Kýpur til
aö ganga úr skugga um að full-
nægjandi læknishjálp sé veitt.
Rikisstjórnir margra landa
hafa heitið hjálp og hið sama gild-
ir um Rauðakross-félög viða um
heim. Lofað hefur verið um 400
milljón krónum, þar af nálega
helmingi i vörum. En mikil
hjálparþörf er enn og hefur verið
leitað til rikisstjórnar og Rauða
kross félaga um viðbótarhjáip.
Tekið er á móti framlögum til
hjálparstarfsins á Kypur i skrif-
stofu Rauða kross íslands, öldu-
götu 4. Þá má leggja framlög inn
á giróreikning 90.000 i pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum.
—EA
á
t'egar nernaoaraogeröir brut-
ust út að nýju þurfti að einkenna
hlutlaus svæði eins og fyrir er
mælt I Genfarsáttmálum. Hér
sjást fulltrúar Rauða krossins
mála rauðan kross á lök utan
viö Hilton hótelið, sem var yfir-
lýst hlutlaust svæði.
íbúarnir loka veginum sínum:
Þriggja tíma akstur til
Hveragerðis á vegleysunni
Börnin I skólabflnum voru mótmælum fullorðna fólksins ein
dregið fylgjandi. —Ljósm. Visis B.G
Fjöldi bila með X-
númerum stóð i alla
nótt og i morgun á af-
leggjaranum niður f
Þorlákshöfn og lokaði
veginum. Þetta voru
ibúar Þorlákshafnar,
sem tóku sig saman til
þess að vekja athygli á
slæmu ástandi vegar-
ins.
Vegurinn til Þorlákshafnar
hefur lengi verið talinn mjög
slæmur, og er þar fremur um
kennt vondum ofaniburði en þvi,
aö of sjaldan sé heflað. Menn
hafa jafnvel haldið þvi fram, að
það sé þriggja tima akstur frá
Þorlákshöfn til Hveragerðis eft-
ir veginum eins og hann er.
„Það er enginn sérstakur for-
svarsmaður fyrir þessu,” sögðu
„verðirnir,” sem Visir hitti þar
að máli i morgun. „Þetta eru al-
menn samtök borgaranna og
fyrir okkur vakir að vekja at-
hygli á þvi, að þetta gengur ekki
svona lengur.”
Þeir, sem við hittum þarna að
máli, voru sammála um, að við
núverandi ástand yrði ekki unað
lengur. Þar við bætist, að fram-
kvæmdir við höfnina i Þorláks-
höfn eru nú að hefjast, og þeir
hafa með sér gifurlega grjót-
flutninga eftir afleggjaranum.
Þegar það bætist við núverandi
álag, eiga notendur vegarins
ekki von á góðu.
Auk fjölda einkabila, sem stóð
þarna á veginum i morgun, var
m.a. stór áætlunarbill, sem var
á leið með börn úr Þorlákshöfn i
sundtima i Hveragerði. Börnin
höfðu beðið á annan klukkutfma
eftir að vera hleypt i gegn, og
Efst á afleggjaranum niður f Þorlákshöfn var komin röð blla, sem beið þess aö komast á leiðarenda. —
en X-biIarnir lokuðu — Ljósm. VIsis B.G.
var nærri liðinn sá timi, er þau
áttu að vera i sundi. Visir gerði
fljótlega könnun i bllnum um
áhuga barnanna á aðgerðum
fullorðna fólksins og kom i ljós,
að 39 voru fylgjandi lokun veg-
arins, en 5 á móti.
Olfubilstjóri, sem beið eftir að
komast með oliu til húsahitunar
til Þorlákshafnar, var á önd-
veröum meiði. Hann taldi þetta
frumhlaup af hálfu ibúanna og
sagðisérskapi næst að snúa við
án þess að afgreiða oliuna.
Þessi vegur væri ekki lakari en
aðrir vegir i Árnessýslu.
En hinn mikli fjöldi þátttak-
enda I þessari aðgerð sýnir, að
Þorlákshafnarbúar eru á ann-
arri skoðun. A það má lika
minna, að vörubilstjórarnir,
sem mestnota þennan veg, hafa
mótmælt honum með þvi að
leggja niður vinnu um tima.
Meðan á þessari lokun stend-
ur, flytja Ibúarnir sjálfir far-
þega frá lokunarstaðnum til
Þorlákshafnar og aftur til baka,
ef mikið liggur við. —SH—
„Ekki verri en aðrir
malarVegÍr"- segir .egogerðh.
Blaðið hafði samband við
Vegagerð rfkisins og bað Jón
Birgi Jónsson deildarverkfræð-
ing um að segja álit sitt á þess-
um aðgerðum.
„Umferð er mikil um Þor-
lákshafnarveginn og viðhald
dýrt, þar sem sækja þarf allt
efni i ofaniburð langt upp i
Þrengsli. Þessi vegur er þó
ekkert verri en margir aðrir
malarvegir, sem minna heyrist
kvartað undan.
í vegaáætlun var gert ráð
fyrir 6,6 milljón króna fjárveit-
ingu til nýbyggingar vegarins,
siðar var sú fjárveiting hækkuð
i 11,6 milljónir samkvæmt
bráðabirgðaáætlunum. Fyrir
þessa upphæð er áætlað að
vinna núna á þessu ári.
Þessi fjárveiting ein er þó að-
eins litill hluti af þvi, sem til
þessa vegar þarf, ef um varan-
legar bætur á að vera að ræða.
Það er þvi i höndum fjárveit-
ingavaldsins hver framvinda
þessara mála verður.” -JB
Loks fékk Hvammstangi kjallarann:
KOSTAÐI 47 ÞÚS. í SÍMTÖLUM
0G FJÖLMARGAR FERDIR SUÐUR
Frá þvi i marz hefur staðið I
miklu stappi milli sjúkrahús-
nefndarinnar á Ilvammstanga
og Innkaupastofnunar rikisins
um kjallara, sem nefndin vildi
fá undir nýjan læknabústað.
Nokkuð var ritað um málið i
VIsi fyrir nokkru og hvort sem
það hefur gert herzlumuninn
eða ekki, þá hefur nú fengizt
samþykki fyrir kjallaranum.
Viö spurðum Guðbrand
Kjartansson héraðslækni um
álit hans: „Sjúkrahúsið á að fá
kjallarann sem geymslurými
og vissulega er ég ánægður með
aö leyft skuli að nota kjallarann
af einhverju viti i stað þess að
fylla hann upp með sandi eins og
til stóð.
Það var þrýst á þessar stofn-
anir fyrir sunnan úr öllum átt-
um og þá fékkst samþykkið
loks. Húsnæðið verður að visu 60
sentimetrum lægra en við
ætluðum okkur i fyrstu. Við
vildum bara að þetta húsnæði
yrði ekki fyllt af möl.
Við kröfðumst þess alls ekki,
aö húsnæðið bættist við lækna-
bústaðinn, heldur yrði notað á
einhvern hagnýtan hátt t.d. fyr-
ir sjúkrahúsið.
Það er bara verst hversu
miklu af opinberu fé hefur verið
kastaö þarna á glæ. Það hefði
verið hægt að byrja fram-
kvæmdir i marz en vegna alls
konar stapps er fyrst hægt að
byrja að byggja núna.þegar all-
ir hlutir eru orðnir margfalt
dýrari.”
„Þetta pex hefur kostað okkur
47 þúsund krónur I simtölum og
margar ferðir suður”, segir for-
maður sjúkrahúsnefndarinnar,
séra Robert Jack. „Þeir spyrja
okkur fyrir sunnan af hverju
þeim hafi ekki verið sagt það
strax að kjallarinn ætti ekki að
tilheyra lækninum heldur t.d.
sjúkrahúsinu. En það lá bara
alltaf ljóst fyrir.”
Blaðið spurði Skúla Guð-
mundsson hjá Innkaupastofn-
uninni um þessa breyttu af-
stöðu.
„Þetta er ákvörðun heil-
brigðismálaráðuneytisins, og
við höfum ekkert út á hana að
setja. Málið strandaöi á þvi að
það var lagt fyrir mjög illa
undirbúið. Svo var hringlað með
það fram og til baka af hálfu
þeirra, sem það lögðu fram.
Ekki var vitað hvar húsið ætti
að standa, hversu hátt það ætti
að vera, hvergötuhæð yrði eða
um önnur atriði, sem ollu þvi, að
um málið urðu nokkuð meiri
sviptingar en annars hefðu
þurft. En nú er málið afgreitt.”
—JB