Tíminn - 20.04.1966, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.04.1966, Blaðsíða 5
MIÐVIKCDAGUR 20. aprfl 1966 5 Otgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN FramJkvœmdastjóri: Kristján Benedi.kt.sson Ritstjórar- Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fuiltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason Ritstj.skrifstofur 1 Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur Bankastræti 7 Af- greiðslusimi 12323 Auglýsingasimi 19523 Aðra? skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr 95.00 á mán lnnanlands — t lausasSlu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA hl. Fjórir framboðslistar Þeir fjórir flokkar, sem hafa átt fulltrúa í borgar- stjóm Reykjavíkor á yfirstanaandi kjörtímabili,, hafa nú fengiS frá framboðslistum sínum Ekki er kunnugt um, að aðrir aðilar séu að hugsa um framboð. í seinustu borgarstjórnarkosningum voru framboðslistarnir sex, því að þá buðu bæði Þjóðvarnarmenn og bindindismenn fram sérstaklega. Ber að fagna því, að framboðslistum hefur fækkað, því að það dregur úr þeim klofningi, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur grætt mest á. Fullvíst má telja, að andstöðuflokkar Sjálfstæðisflokks- ins munu allir halda þeirri fulltrúatölu, sem þeir hafa nú. Þótt líklegt sé, að fylgi Alþýðuflokksins hafi haldið áfram að hraka, mun fylgistap hans ekki vera svo mikið, að hann haldi ekki einum fulltrúa. Þótt mikil óeining sé innan Alþýðubandalagsins, eru ekki heldur líkur til þess, að það tapi fulltrúa. Hins vegar er ljóst, að hjá því er ékki um neina vinningsmöguleika að ræða. Öllum kemur hins vegar saman um, að Framsóknarflokkurinn sé ekki aðeins viss um að halda hinum tveimur fulltrúum sínum heldur sé hann langlíklegastur til að vinna fulltrúa af borgarstjómarmeirihlutanum Milli hans og Sjálfstæðis- flokksins verður því höfuðbaráttan í þessum borgar- stjórnarkosningum. Slíkt er ekki heldur undarlegt. Reykvíkingar hafa áð- ur fyrr bæði eflt Alþýðuflokkirin og Alþýðubandalagið til aðalforystu gegn Sjálfstæðisflokknum í borgarstjórn- inni. Fyrst var það Alþýðuflokkurinn, síðan Alþýðu- bandalagið. Hvort tveggja hefur reynzt illa. Því hafa þessir flokkar verið að tapa undanfarið. Alþýðuflokkur- inn hafði einu sinni sex fulltrúa í borgarstjórninni, en hefur nú aðeins einn. Alþýðubandalagið hafði einu sinni fimm fulltrúa. en hefur nú þrjá Reynslan af starfi þess- ara flokka í borgarmálum hefur verið sú, að þeir hafa verið að missa fylgi. Hins vegar hefur Framsóknarflokk- urinn aukið stöðugt fylgi sitt 1 undanförnum borgar- stjórnarkosningum, og bætti við sig borgarstjórnarfull- trúa í seinustu kosningum Fleiri og fleiri Reykvíkingar hafa gert sér Ijóst að hanr, er vænlegasta aflið til for- ustu gegn Sjálfstæðisflokknum. \ Framsóknarmenn í Revkjavík ganga því bjartsýnir til þessara kosninga. En bjartsýnin má ekki verða til þess, að menn liggi á liði sínu. Sigur, sem vekur athygli og markað getur spor í stiórnmálasögunni, vinnst ekki, nema allir peir, sem veita vilja íhaldinu verðugt aðhald og áminningu. gangi einbeittlega að verki og láti ekk- ert ógert til að ná því marki Dýrtíðarófreskjan Hinar geysilegu verðhækkanir sem orðið hafa síðustu daga á neyzlufiski í landinu, eru táknrænt dæmi um það, hvernig uppgjafastjórnin sleppir dýrtíðarófreskjunni lausri á almenning, og fyrst og fremst á þá, sem sízt mega við slíkum áföllum. Þegar neyzlufiskurinn hækkar í einu stökki um 40—80%, svo að veldur í fyrstu lotu 3—4 vísitölustigum, þá blasa tvær staðreyndir við al- menningi: Að völdum situr ríkisstjórn sem hef'ur ger- samlega gefizt upp í baráttu við dýrtíðina. og hún skirr- ist ekki við að hleypa dýrtíðarófreskjunni. sem hún hef- ur alveg misst haid á, beint á þá, sem vanbúnastir eru við sljkri heimsókn. TÍMINN Walter Lippmann ritar nm alþjóSamál: Beita veröur Samein. þjóðunum gætilega í Rhodesiudeilunni Þær hafa enn ekki náð lengra en að vera hvítvoðungar SAMEINUÐU þjóðirnar hafa nú í fyrsta sinn beitt ákvæðum VII kafla stofnskrárinnar. Það var gert samkvæmt beiðni Stóra-Bretlands og með stuðn- ingi Bandaríkjanna. Þama var farið inn á alveg nýtt svið, þar sem VII. kaflinn fjallar um beitingu hervalds til þess að knýja fram frið. Öll önnur ákvæði stofnskrár innar fjalla um friðsamlegar athafnir, svo sem sættargerðir og málamiðlanir. En VII. kafl inn gerir ráð fyrir, að Samein- uðu þjóðirnar grípi sjálfar til hervalds, til þess að koma í veg fyrir „ógnanir gegn friðin- um friðrof og árásir'. Aðildar ríki Sameinuðu þjóðanna hafa ávallt hliðrað sér hjá að draga VII. kaflann inn í deilur sínar þar til í þetta sinn. Öryggisráðið hefur nú, sam kvæmt VII. kafla stofnskrárinn ar tekig á sig skuldbindingar i deilunni milli kynþáttastjórna arinnar í Rhodesíu, uppreisnar stjórnar Ians Smiths og stjórn ar drottningarinnar í Breta- veldi. Játa ber, að öryggisráðið varð að teygja orð stofnskrár innar og „skýra“ þau til þess að koma þesu fram. Ekki verð ur sem sé um það deilt, að deila Breta og Rhodesíumanna er deila innan Bretaveldis. Uppreisn Ians Smiths gegn brezku krúnunni er ekki árás fullvalda ríkis gegn öðru full- valda ríki. TIL ÞESS að þoka Rhodesíu málinu inn á vettvang VU- kafla stofnskrárinnar hafa lög fræðingar haldið fram, að stjórn Smiths í Salisbury sé „ógnun við friðinn” vegna kyn þáttastefnu sinnar og tilveru. Þegar Öryggisráðið var búið að ganga inn á þessa skilgrein- ' ingu hafði það lagalegan rétt til að heimila Bretum að koma ■ veg fyrir að olía, sem ætluð var Rhodesíumönnum, væri flutt í skipum til portúgalskra hafna. Að minu viti verður því ekki móti mælt að raunveruleg ógn- un við friðinn felist í kraum- Harold Wilson andi kynþáttadeilum í þeim hluta Afríku, sem lýtur valdi Rhodesíumanna, Suður-Afríku- manna og Portúgala, Öryggis- ráðið á ekki i höggi við tíma- bundna, óvænta atburði, held- ur raunverulega en ekki í- myndaða ógnun gegnvart fram tíðinni. f Suður-Afríku og Rhodesíu rikir yfirdrottnunarstefnu hvítra manna, sem í raun og veru setur allri von hins inn- fædda meirihluta Afríkumanna stólinn fyrir dyrnar. Samt á þetta í enn ríkari mæli við á landsvæðum þeim, sem lúta Portúgölum. Á ÞVÍ er mjög veruleg hætta að þessi undirokun innfæddra af hálfu hvítra manna valdi ó- eirðum, uppreisnum og fjölda- vígum, og leiði til kynþátta- styrjaldar. sem bæði ríki svartra manna í Afríku og ríki hvítra manna f Evrópu dragist inn í. Hættunni verður ekki vísað á bug með axlaypptingum ein um saman. Hún er raunveru- ieg. Hitt er ekki jafn augljóst, hvort nauðsynlegt var eða hyggilegt að draga Sameinuðu þjóðirnar inn í deiluna um upp reisnarstjórn lans Smiths á þessu stigi. Aðildin dregur þann dilk á eftir sér, að bæði Sameinuðu þjóðirnar og Bretar verða um ieið aðilar að deilu, sem einskorðast ekki við Rhod esíu heldur nær einnig til’Port úgals og Suður-Afríku. Hefði ekki verið ákjósan- legra að ríkisstjórn Wiisons hefði farið með Rhodesíumálið sem brezkt vandamál? Gátu Bretar ekki beitt brezkum að- gerðum, sem hefðu aðeins náð til aðildarríkja samveldisins, áður en Sameinuðu þjóðimar voru kvaddar til aðildar að deilu, sem er ekki alþjóðleg — ekki enn að minnsta kosti? MIKILVÆGARA flestu öðru er. að Sameinuðu þjóðimar séu ekki notaðar sem skálka- skjól við erfiðar ákvarðanir. sem eru óvinsælar heima fyr- ir Vissulega eru Sameinuðu þjóðirnar ekki á neinn hátt heimsstjórn. sem getur gengið tran fyrir skjöldu, þegar þjóð- legar stjómir eru hræddar við að grípa í taumana. Sameinuðu pjóðirnar geta til dæmis ekki kveðið niður styrjöldina í Víet- nam Meðan stórveldin greinir lafn mikið á og raun ber vitni er höfuðverkefni Sameinuðu ojóðanna hið sama og hvers annars hvítvoðungs, eða að life af til þess að geta vaxið or broskazt Þegar búið er að ráða til ’.ykti, meginmálum kalda stríðs ins bæði í Evrópn og Aslu. og. Sameinuðu þjóðimar eru í '•aur og sannleikt orðnai að ailsherjar samfélagi, er fyrst unm að treysta á þær sem meg invarðveitandá friðarins, en fyrr ekki. Ji

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.