Tíminn - 20.04.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 20.04.1966, Blaðsíða 7
MIBVIKtlDAGlHt 20. apríl 1006 ÞÍNGFRETTIR TÍMINN ÞÍNGFRETTIR Árangur baráttu Framsóknar- manna fyrir byggðajafnvægi Frumuarpið um Atvinnuijöfnun- arsj’óð var til 2. umræðu í efri deiW í gær. Karl Kristjánsson mæiti fyrir nefndaráliti Framsótoi armanna í fjárhagsnefnd deildar- innar (ÍKK og Helgi Bergs) og ibrey,tmgartiliögum þeim, sem Fcarnsókrtarmenn flytja við frum varpið. Nefndaráiitið fer hér á eft ir: Frarnsóknarflokksmenn hafa mörg undanfarandi ár lagt fram á Alþingi frumvörp um, að ríkið hefji stopulega starfsemi til þess að vinna að byggðajafnvægi í land inu. Meðal annars hafa framsókn- armenn í neðri deild í fjögur ár samfleytt flutt þar frumvarp um, að stofnaður skuli jafnvægissjóður með allmfklu fjármagni af árleg- um tekjum og sérstök jafnvægis- nefnd kosin af Alþingi cil þess að hafa með höndum stjórn sjóðs- ins og beita sér fyrir víðtækum opinberum aðgerðum til að stuðla að byggðajafnvægi. Um bæði sjóð- inn og nefndina er fyrirmynda að leita til Norðmanna, svo að ekki er hægt að segja, að blint þurfi í sjóinn að renna með þvílíka starfsemi. Meiri hluti sá, sem ráðið hefur Iögum og lofum á Alþingi þessi ár, hefur hindrað framgang frum varpaima. Svæfði hann þau ým- ist eða vísaði þeim frá með þeim fráleita rökstuðningi, að starfsemi Atvinnubótasjóðs gerði þau óþörf. Vitanlega var þetta fyrirsláttur hinnar óforsjálu íhaldssemi og um bótatregðu. Hins vegar er nú loksins svo komið, að meiri hlutinn — eða ríkisstjórnin, sem hann styður — leggur fram frumvarp þetta um Atvinnujöfnunarsjóð, sem kalla Frumvarpið um Atvinnujöfnunarsjóð gengur þó of skammt í því að hamla gegn öfugþróun byggðajafn- vægismálanna. mætti jafnvægissjóð. Á hann að 1 Meiri hluti fjárhagsnefndar, hafa þingkjörna stjórn, er kalla stuðningsmenn ríkisstjórnarinn- mætti jafnvægisnefnd. Er því með , ar, fellst aðeins á minni háttar frumvarpinu farið, þótt seint sé, lagfæringar á frumvarpinu, sem í slóð frv. Framsóknarmanna. Geta að vísu er til bóta og nefndin legg Framsóknarmenn hér greinilega ur sameiginlega fram tillögur um. séð nokkurn árangur baráttu sinn Aðrar breytingartillögur fókkst ar í þessum efnum. Enn fremur meiri hlutinn ekki til að fallast ætti stuðningsflokkum ríkisstjórn arinnar að skiljast við flutning þessa frumvarps, hve seinheppin afstaða ríkisstjórnarinnar og liðs- afla hennar á Alþingi hefur verið til þessara þýðingarmiklu og ört aðkallandi mála. Hvert afhafnaleys isár af hálfu ríkisins í því að vinna af alefli á móti öfugþróun byggða- jafnvægismálanna veldur óútreikn anlegu tjóni. Það er svo torvelt á þessum sviðum að kippa í lið- inn því, sem úr lið gengur. Miklu hægara er að koma í veg fyrir lið- hlaupið, eins og hægra er að styðja en reisa. Af framansögðu gefur að skilja, að við Framsóknarmenn hljótum að styðja framgang þessa frum- varps um Atvinnujöfnunarsjóð og fagna því, það sem það nær. Hins vegar teljum við, að frumvarpið gangi of skammt og þurfi breyt- inga með, ef að sæmilegu gagni eigi að koma. Frumvarpig ber það með sér, að það er lagt fram af klofnum hug, eins og oft vill verða hjá þeim, sem ganga nauðugir til athafna. Á ÞINGPALLI ★★ f neðri deild í gær var frumvarpið um almennan frídag 1. maí afgreitt til 2. umr. og nefndar, frumv. um meðferð opinberra bála til 3. umr., frumvarp um eignarnám lands í Flatey til 3. unir., frum- varp um veitingu ríkisborgararéttar til 3. umr. með breytingum, frum- varp um lögheimili til 3. umr. ★★ í efri deild mælti Gylfi Þ. Gíslason fyrir frumvörpunum um verðtryggingu fjárskuldbindinga og stofnlánadeild verzlunarfyrir- tækja. Frumvarp um síldarleitarskip var afgreitt til neðri deildar. Frumvarpið um aðild að alþjóðasamningi um lausn fjárfestingar- deilna var samþykkt til 3. umr. ★★ Þeir Sigurður Bjarnason, Benedikt Gröndal, Þórarinn Þórarins- son og Einar Olgeirsson hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að skora á ríkisstjórnina að undirbúa fyrir næsta Alþingi löggjöf um úthlutun listamannalauna og skuli við það starf haft samráð við Bandalag íslenzkra listamanna. irir Fundir voru í fyrrakvöW ; báðum deildum Alþingis. Á fundi efri deildar var frumvarpið um alþjóðasamning um lausn fjárfest.ing- ardeilna til 2. umræðu og töluðu þeir Ólafur Björnsson, Ólafur Jóhannesson og Gils Guðinundsson. í neðri deild var álsamningurinn til 2. umræðu og talaði Jónas Rafnar að lokinni framsöguræðu Ingavrs Gíslasonar fyrir nefndaráliti Framsóknarmanna, en ræða hans var rakin hér í blaðinu í gær. Umræðunni var haldið áfram í gær, síð- degis og töluðu þeir Einar Olgeirsson, Benedikt Gröndal, Þórarinn Þórarinsson. Var umræðunni lokið, en atkvæðagreiðslu frestað. irk Við 1. umræðu um hægri umferð í efri deild í gær andæfði Alfreð Gíslason gegn frumvarpinu og Ólafur Jóhannesson taldi ófært að afgreiða málið úr deildinni, þar sem aðeins 3 vikur lifðu þings. Þetta mál þyrfti góðrar athugunar við og neðri deiW hefði velt málinu fyrir sér i allan vetur. Efri deild þyrfti að eiga þess kost að kalla fyrir sig sérfræðinga eins og neðri deild hefði gert og því væri rétt að fresta afgreiðslu málsins til næsta þings. Við atkvæða- greiðslu eftir 3. umræðu í neðri deild í fyrradag var dagskrártillaga Gísla Guðmundssonar um að fresta málinu felld. á, og skilum við þess vegna sér- áliti og flytjum breytingartillögur sem minni hluti nefndar á sér- stöku þingskjali. Sökum þess, hve orðið er áliðið þings og því naum ur tími til afgreiðslu mála, göng- um við þó skemmra en ella í til- lögum um lagfæringar á frum- varpinu, því að ekki viljum við stofna til afgreiðslutafa, er hindr- að gætu það, að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi, þrátt fyrir vankanta þess. Fyrsta breytingartillaga okkar er við 2. ' málsgr. 1. gr frv og miðar fyrst og fremst að því, að skýrar komi fram, að hlutverk sjóðsins verður að vera víðtæk- ara en að „styðja og styrkja" at- vinnulífið, heldur einnig, ef með þarf, hvers konar menningarlegt afhafnalíf, sem gerir staði á nú- tímamælikvarða búsetuhæfa fyrir fólk Önnur breytingartillagan er við 3. gr. frumvarpsins, sem fjall- ar um það, hverjar skuli vera ár- legar tekjur sjóðsins. Er hún að- albreytingartillaga okkar. Augljóst er af þessari grein og athugasemdum, er henni fylgja til skýringar með frumvarpinu, að sök bítur sekan. í athugasemdun- um segir ríkisstjórnin orðrétt: „Eðlilegt þykir, að meginhluti skatttekna af væntalegri álbræðslu renni til Atvinnujöfnunarsjóðs í því skyni að stuðla að eflingu atvinnulífs víðs vegar um landið til þess að koma í veg fyrir óeðli- legan samdrátt landshyggðarinn- ar.“ , Með því að heimila — eins og nú er fyrinhugað af meiri hluta TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegh póstkröfu. GUÐM. ÞORSTEINSSON, gullsmiSur, Bankastræti 12. Alþingis — erlendum aðila að setja á fót og reka stóriðju á þéttbýlasta svæði landsins, veit ríkisstjómin og lið hennar, að ver ið er að stofna til „óeðlilegs sam dráttar landsbyggðarinnar." Það aukna aðdráttarafl, sem þéttbýlasti hluti landsins fær með stóriðjuframkvæmdunum, verkar margfalt, af því að það kemur snögglega til viðbótar því misvægi, sem nú er við að stríða í búsetu- vandamálunum. Það er algerlega óraunhæft, ef koma á „í veg fyrir óeðlilegan samdrátt landsbyggðarinnar," að ætla ekki Atvinnujöfnunarsjóðn- um öruggari og meiri tekjur, samkv. umræddri grein, en frum- varpið gerir ráð fyrir. Þær tekj- ur eru einvörðungu: a. Meiri hluti — eða allt upp í ca. % — skattgjald áltoræðslu við Straumsvík. b. Vextir. Fyrst og fremst er á það að líta, að tekjur af skatti frá ál- bræðslunni verða engar næstu þrjú ár eða þar til hún tekur til starfa, en áhrifin frá henni til ójafnvægis byrja strax og farið er að byggja hana í öðru lagi eru áætlaðar skatt- tekjur ekki eins og fugl í hendi, heldur eins og fugl í skógi. Eng- inn veit hvað lítið kann að verða úr áldraumi ríkisstjórnarinnar. í þriðja lagi eru skattgjalds- tekjur þessar, eins og þær eru áætlaðar í athugasemdum frum- Kad Kristjánsson varpsins, alveg ófullnægjandi fyr- ir sjóðinn. Miðað við núverandi gengi er áætlað, að skattgjaldstekj ur sjóðsins verði: millj. kr. á ári 1970—1972 11.3 1973—1975 rúmar 17 1976—1978 36.2 1979—1984 38.7 1985—1987 53.9 HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR OpiS alla daga (líka laug- ardaga og sunnudaga frá kl. 7.30 til 22). Sími 31055 á verkstæÖi og 30688 á skrifstofu). GÚMMlVINNUSTOFAN hf Skipholti 35 Reykjavík. Þetta eru allt of litlar fjárihæð- ir handa Atvinnujöfnunarsjóði, eins og viðhorfin eru. Okkur virð- ist sjálfsögð raunhæfni og skylda Alþingis að tryggja sjóðnum miklu rfflegri tekjur strax á næsta ári og framvegis beint úr ríkissjóði, en ætla ríkissjóðnum aftur á móti skattgjaldstekjur áldraumsins eft ir því, sem hann rætist, — auð- vitað að frádregnu því, sem Hafn- arfjarðarkaupstaður og Iðnlána- sjóður eiga að fá af þeim tekj- um, eins og skýrt er frá í um- ræddri frumvarpsgrein. Við leggjum þar af leiðandi til, að a-liður 3. gr. frv. orðist þannig: „2% af árlegum heildartekjum ríkissjóðs, í fyrsta sinn 1967, og miðist framlagið hvert ár við tekj- umar, eins og þær voru áætlaðar skú fjárlögum næstliðins árs.“ Ef þetta fyrirkomulag hefði gilt á yfirstandandi ári, mundu tekjur sjóðsins af a-liðnum hafa orðið um 70 millj. kr., en árið 1967 mundu þær verða um 75 millj. kr., vegna dýrtíðarhækkun- arinnar, nákvæmar sagt: hækkun- ar fjárlaganna, enda verður sjóðn- um vegna hlutverka sinna nauðsyn legt, að tekjur hans hækki með hækkandi dýrtíð Við 6. gr. flytjum við tvær breyt ingartillögur, aðallega til lagfær- ingar á framsetningu. Loks flytjum við tillögu um ákvæði til bráðabirgða, er gildi til 1968 og heimili stjórn sjóðsins skyndiaðgerðir þar, sem stuðnings þörf vegna eyðingarhættu byggð- ar álízt svo aðkallandi, að enga bið þoli. Þess skal getið, að við teljum nafnið Atvinnujöfnunarsjóður of þröngt, af því að hlutverk hans er áformað víðtækara en atvinnu- jöfnun og þarf að vera það. En sökum þess að formaður fjárhags- nefndar féllst á, að nefndin skyldi tato til athugunar milli 2. og 3. umræðu málsins, hvort samkomu- lag gæti orðið um að breyta nafn- inu, flytjum við ekto að þessu sinni breytingartiilögu um það.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.