Tíminn - 20.04.1966, Page 13
ÍÞRÓ7TIR
ÍÞRÓTTÍR
MIÐVIKUDAGUR 20. april 1966
TÍMIWN
13
Þetta er „Top of ttie Scots": Efst til vinstri er Alex Smith, Dunfermline, a3 neðan George Murray, Mother-
well. IFyrir miðju a3 ofan er John Gemmel, Celtic, og Peter Buchanan, Queens Park. Fyrir miðju blaði er John
McCormick, Aberdeen, og neðst Þórólfur Beck, Rrangers. Og til hægrl er John Wright, Clyde.
FOOTBALL MONTHLY:
ÞÓRÓLFUR meðal topp-
manna Skotlands
Alf—Reykjavík, þriðjudag.
Ili'ð víðlesna enska knattspyrnu
blað, „Football Montlily", birtir
í apríl-blaði sinu myndir af leik
mönnum á Skotlandi, sem blað
ið nefnir „Top of the Scots“ (Topp
menn Skotanna) og er Þórolfurl
Beck þar á meðal, en alls eru
birtar myndir af 7 leikmönnum,
sjá mynd að ofan, sem tekin er
úr blaðinu.
Íþróttasíðan átti nýlega stutt
samtal við Þórólf og sagði hann,
að mikið væri um að vera í her
búðum Rangers um þessar mund
ir. Á lauigardaginm kemur mætir
Glasig. Rangers erki'óvini sínum,
Celtic í úrslitaleik í skozku bikar-
keppninni, en í deildakeppninni
er staðan nú þannig að Celtic hef
ur hlotið 51 stig, en Rangers er
tveimur stigum á eftir, með 49
sti'g. Bæði liðin eiga eftir að leika
3 leiki, og er þvf keppnin geysi
hörð, þótt Celtic standi óneitan
lega betur að vígi.
Framhald á bls. 12.
IR tókst nær allt,
en Þrðtti ekkert
Þrjú lið verða að leika að nýju
Alf—Reykjavík.
Þrótturum tókst ekki að verða
sér úti um sæM í 1. deild í hand-
knattleik í gærkvöldi, því að þeir
töpuðu fyrir ÍR í leik, þar sem ÍR
tókst nær allt, en Þrótti ekkert.
Lokatölurnar urðu 32:24 fyrir ÍR
og fyrir bragðið eru 3 li® jöfn og
efst í 2. deild, þ.e. Þróttur, ÍR og
Víkingur, öll með 12 stig og verða
því að leika upp á ný um sæti í
1. deild.
Fjórðungsglímumót
Vestfirðingafjórð-
ungs háð 23. apríl.
Fjórðungsglímumót Vestfirðinga
fjórðungs verður háð í Stykkis
hólmi laugardaginn 23. apríl n.
k. Héraðssamband Snæfells- og
Hnappadalssýslu sér um mótið.
Keppt verður um fagran silfur
bikar, sem Sigurður Ágústsson, al-
þingismaður hefur gefið til
keppninnar. Auk þess verða þrenn
verðlaun veitt.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Fjórðungsglímumót Vestfirðinga-
fjórðungs er haldið og er von
andi að góð þátttaka verði í keppn
inni.
Þátttöku skal tilkynna til Más
Sigurðssonar, íþróttakennara í
Stykkishólmi.
Það verður ekki annað sagt, en
ÍR-ingar hafi staðið sig vel í gær
kvöldi, og það voru einkum 3
menn, sem voru á bak við sigur-
inn, hinn gamalkunni Hermann
Samúelsson, Guðmundur Gunnars
son, markvörður, sem stóð sig af
bragðsvel, og síðast en efcki sízt
Vilihjálmur Sigurgeirsson, ungur
nýliði, sem átti snjallar línusend-
ingar.
í hálfleik hafði ÍR yfir 19:12 og
jók það bil ffjótlega í síðari hálf
leik upp í 23:14 og náði því 9
marka forskoti. Sigur liðsins var
því aldrei í hættu. Þróttar-liðið
var mjög miður sín og lék sinn
langversta leik, reyndi t.d. allan
tímann misheppnað línuspil og
fráleit langskot.
Daníel Benjamínsson dæmdi
leikinn nokkuð vel, en mistókst í
nokkrum tilvikum.
Liverpool í úrslitum
Ensku bikarmeistararnir Liver-
pool tryggðu sér í gær rétt til að
leika úrslitaleikinn í Evrópu-
keppni bikarhafa, er þeir sigruðu
skozku meistarana, Celtic, með
2:0 á Anfield Road. f hálfleik var
staðan 0:0. Celtic sigraði í fyrri
leik liðanna 1:0, Til úrslita leik-
ur Liverpool gegn Borussia Dort
mund, sem sigraði bikarhafana,
West Ham, í undanúrslitum, sam
anlagt 5:2.
Menntaskóla-
nemar á skíðum
Hið árlega skíðamót Mennta-
skólans í Reykjavík var haldið í
VILJA RAÐA
FRAMKV. STJ.
Útbreiðslunefnd Körfuknattleiks
sambands íslands óskar að ráða
framkvæmdastjóra vegna fyrirhug
aðs útbreiðslustarfs.
Væntanlegir umsækjendur hafi j
samband við Ásgeir Guðmundsson j
sími 24558 fyrir 1. maí en hann ;
veitir allar nánari upplýsingar.
Útbreiðslunefnd,
Körfuknattleikssamb. íslands.
Hamragili við ÍR-skálann og
hófst mótið kl. 4 e. h. Mót þetta
er svigmót og er keppt um bikar
sem Skíðadeiid ÍR gaf til keppni
í svigi karla. Gísli Erlendsson f.
R vann bikarinn í annað skipti,
áður hafa unnið bikarinn Júlíus
Magnússon og Ingólfur Eyfells,
en þetta er fjórða árið, sem keppt
er um bikar þennan. Mótsstjóri
var Sigurjón Þórðarson formaður
Skíðadeildar ÍR og brautarstjóri
Valdimar Örnólfsson. 7 keppend
ur voru skráðir til leiks, en að-
eins 3 luku keppni, enda veður
mjög óhagstætt til keppni.
Úrslit urðu þessi:
1. Gísli Erlendsson, 5-R
2. Trausti Eiríksson, 6-U
3. Bragi Jónsson, 4-R
Keppendur á Skíðamóti MR, talið frá vinstri: Valdimar, íþróttakennari.
Auður, Gísli, Trausti, Bragi, Ragnar, Júlíus og Pétur. (Ljósm. Bragi Jónss.)
Þátttakendur á dómaranámskeiði KDR um helgina.
(Tímamynd — BB)
KDR efndi til helgarráðstefnu
Alf-Reykjavík, þriðjudag.
S. I. laugardag og sunnudag
efndi Knattspyrnudómarafélag
Reykjavíkur til ráðstefnu með
knattspyrnudómurum í Reykjavík
og nágrenni. Er þetta fyrsta helg-
arráðstefnan, sem KDR gengst
fyrir ,en ætlunin er að efna
til fleiri slikra í framtíðinni. Þarf
ekki að fara mörgum orðum um
gagnsemi ráðstefna eins og þess-
ara og á Knattspyrnudómarafélag-
ið þakkir skildar fyrir framtak sitt.
Það er skemmst frá því að
segja, að ráðstefnan heppnaðisí í
alla staði vel. Þátttaka var góð,
en yfir 20 dómarar sátu ráðstefn-
una. í upphafi var ráðgert, að
kunnur sænskur dómari, Áke
Brom, héldi fyrirlestur, en á síð-
ustu stundu tilkynnti hann forföll
og gat ekki mætt. Varð því KDR
að breyta dagskránni, þrátt fyrir
stuttan fyrirvara og er það mál
þeirra dómara, sem ráðstefnuna
sátu, að hún hefði í alla staði verið
til fyrirmyndar.
Á laugardaginn hélt Guðjón
Einarsson, fyrsti milliríkjadómari
íslands, erindi um starf, hlutverk
og mikilvægi knattspyrnudómar-
anna. Að því búnu hafði Hannes
Framhald á bls. 12.
r ,lff »■ ■■■ ■■ —
Ingólfur ekki með Fram
Ailf-Reykjavík, þriðjudag.
Eins og kunnugt er, fer úr-
slitaleikurinn milli FH og
Fram í 1. deild fslandsmótsins
í handknattlcik fram n. k.
sunnudagskvöld. Fram hafði
mikinn hug á því, að fá Ingólf
Óskarsson til að leika með lið-
inu og var búið að ganga frá
því. En nú hefur það hins veg
ar skeð, að Ingólfur hefur sent
skeyti, þar sem hann tilkynn
ir, að hann geti ekki komið frá
Svíþjóð. Ingólfur er íþróttakenn
ari í Malmberget og hafði út
vegað mann til að kenna fyrir
sig meðan hann skryppi tU fs
lands, en sá, sem hann var
búinn að útvega, fótbrotnaði
fyrir nokkrum dögum og fær
Ingólfur engan til að hlaupa
í skarðið. — Má segja, að
með þessu vænki sigurvonir
FH, sem er í mjög góðri pjálf
un um þessar mundir.