Tíminn - 20.04.1966, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 20. aprfl 1966
árfegi sum
arfagnaður Fram
na í
verð-
ur haldinn í Sel-
fossbíói í dag
miðvikudag.
vetrar-
dag) kl. 21 Dag
Einar skrá: 1. ræðaEin
ar Ágústsson alþingism,, 2. Karla-
kór Selfoss syngur, undir stjórn
Guðmundar Gilssonar. * 3. Alli
RÍSts skemmtir. 4. Hljómsveit Þor
steins Guðmundssonar leikur fyrir
dansi. Borðapantanir í Selfossbíói
xnilli kl. 16—18 sama dag.
Á VfÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
um einkarekstrarins í efstu
sæti. En leit að slíkum mönnum
þar er dálítið erfið. í þeim sæt
um, er von er um að nái kosn-
ingu í borgarstjórn, er eng
inn slíkur maður. Fyrsti mað-
urinn sem eitthvað er kennd-
ur við sjálfstæðan atvinnurekst
ur er í 11. sæti. Það er Þor-
bjöm kaupmaður í Borg.
Næstu menn, sem eitthvað er
hægt að kenna við sjálfstæðan
atvinnurekstur eru svo ekki
fyrr en í 15. sæti (annar kaup-
maður), 20. sæti, 21. sæti, 23.
sæti og 26. sæti — samtals sex
menn, og eru f jórir þeirra kaup
menn Virðist auðsætt, að Sjálf
stæðisflokkurinn telji varla
aðra einkarqjcstrarmenn hæfa
til að vera á lista en kaup-
menn. Einn iðnrekandi er á
listanum, og fær 20. sætið, svo
og einn útgerðarmaður, og fær
hann 21. sætið. Er varla furða,
þótt dugandi einkarekstrar-
menn telji þetta ekki sinn Jista
í borgarstjúrnarkosningunum,
og telji réttast, að einkenn-
ismerki hans væri hið sama og
á kjötbúðinni Borg.
MJÓLKURBÚIÐ
Framhald af bls. 1.
Flóabúið á árinu og hafði fækk
að um 25 frá árinu áður.
Seld nýmjólk á árinu var 22.297.
730 lítrar á mlóti 21.784.000 lítrum
árið áður.
Seldur rjómi var 507.483 lítrar,
árið áður 501.123 lítrar. Framleitt
smjör var 338.958 kg. á sl. ári
á móti 232.016 kg. árið áður.
Framleitt skyr var 783,766 kg.
á móti 846.013 kg. árið áður. af
mjólkurmijöli var framleitt 543.
715 kg. á þessu ári á móti 613.
095 kg. árið áður.
Af mjólkurosti voru framleidd
422.848 bg á árinu á móti 290.
392 kg.
Heildarvörusala búsins á árinu
nam kr. 294.388.471,00.
Meðalinnlegg á dag 1965 var
106.473 kg.
Verið er að undirbúa byggingu
að bifreiðaverkstæði og verður
hin nýja bygging reist í nágrenni
mjólikurbúisins og hefur hlotið
nafnið Samvinnusmiðjan. Stjörn
fyrirtækisins, sem er sameign
Mjölkurbús Flóamanna og K. Á.
ihefur þegar verið kosin. Formaður
stjórnarinnar er Þórarinn Sigur
jónsson, Laugardælum.
Á þessu ári verður hafinn flutn
inigur mjólkur til Flóabúsins frá
framleiðendum er hafa mjólkur-
geyma. Verður byrjað á að koma
upp flutningakerfi í fjnsta áfanga
úr Eyjafjallasveitum, Hraungerðis
ihreppi og hluta af Skeiðahreppi.
Um 80 heimilismjólkurgeymar eru
þegar fullsmíðaðir I mjólkurbúinu,
verða þeir rafkældir og skapa mik
ið öryggi í meðferð mjólkurinnar.
Eftir kaffihlé flutti Stefán
Björnsson, forstjóri Mjóliknrsam
sölunnar, yfirlit yfir störf sam-
sölunnar á s. 1. ári. Sveinn Tryggva
son, fraimkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs, flutti erindi um verð
lagsmál og söluhorfur iandbúnað
arafurða, og Grétar Símonars., for
stjöri mjólkurbúsins, flutti skýrslu
um floMom og fitu mjólkurinnar.
Áætlað er að u,m 500 manns hafi
sótt fundinn.
Guðlaugur Jóhannesson
kennari frá Klettstíu
Verður iarðsunginn að Skarði á Landi laugardaginn 23. apríl kl.
2 e. h.
Bllferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11. f. h. Minningarat-
höfn verður f iFossvogskirkju föstudaginn 22. þ. m. kl. 3 e. h.
Vilborg Jóhannesdóttir, Jón Jóhannesson,
Páll Jóhannesson,
■HTírífflii— iii iii i iiiiiiiHiraiiraiiwnnTiMBirTirwiinwi
Símon Pétursson
frá Vatnskoti, Þingvallasveit, andaðist 19. þ. m.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar-
för,
Einars Þorsteinssonar
fyrrum bónda á Skammadalshóli í Mýrdal.
Halldóra Gunnarsdóttlr,
Steinunn Stefánsdóttir, Einar H. Einarsson.
Faðir mlnn,
Guðjón Jónsson
frá Tóarseli, Breiðdal,
andaðist mánudaginn 18. aprfl á Elliheimilinu Grund.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðmundur Guðjónsson.
Móðir okkar
Anna Björg Benediktsdóttir
frá Upsum
andaðlst að Elll- og hjúkrunarhelmilinu Grund þann 18. þ. m.
Þórunn Þorsteinsdóttir, Hólmfríður Þorsteinsdóttir,
Benedikt Þorsteinsson, Helgi Þorsteinsson.
TÍMINN
HANDRITAMÁLIÐ
Framhald af bls. 1.
og í þessu tilfelli ætti ekki að
greiða neinar bætur, þar sem ráðu
nejrtið sem ríkisstofnun ætti ekki
að fá neinar bætur.
Schmitih hæstaréttarlögmaður
sagði, að handritin væm gersem-
ar, íslenzkar að uppruna og upp-
haflega hafi þau verið lítið þekkt
utan fslands. Því næst rakti hann,
hvernig handritin urðu til á fs-
landi, og söfnun þeirra þar í landi
og flutning þeirra til Danmerkur,
sem margir hafi staðið að, en þó
einkum Árni Magnússon. Einkum
vegna hins mikla verks Árna end-
aði það svo, þegar hann hafði lok
ið söfnun sinni og var látinn, að
ísland hafði misst öll sín handrit,
flest til Danmerkur, sagði hæsta-
réttarlögmaðurinn.
Þá sagði Schmitih einnig í sam-
bandi við hinn mikla áhuga fslend
inga á handritunum: — „Að fs-
lendingar hafa ekki hugsað til
hreyfings með handritin fyrr en
nú, á rætur sínar að rekja til þess,
að í þau ár, sem ísland_ var bund-
ið Danmörku, höfðu fslendingar
annað við krafta sína að gera —
menn geta ekki beint kröftum sín
um að menningu, þegar þeir verða
að berjast við náttúruhamfarir og
sjúkdóma".
Því næst rakti Schmith orðsend-
ingar íslands til Danmerkur í
sambandi við handritin, og nefndi
marga þekkta stjórnmálamenn,
sem hefðu verið jákvæðir í af-
stöðu sinni til kröfu íslendinga,
og stuðningsmenn þess, að málið
yrði leyst — aftur á móti hefði
Viggo Starcke þegar frá fyrstu
stund lýst sig andstæðing þess, að
eitt einasta handrit yrði afhent,
sagði Schmith.
Síðar í ræðu sinni kom Schmith
að lagalegri hlið á kröfu íslands,
og sagði, að íslendingar hefðu eng
an lagalegan rétt á að fá hand-
ritin afihent. í því atriði var hann
andstæðingi sínum sammála.
Schmith sagði einnig, að ýmsir
nefndarmanna í Árnanefndinni
hefðu áður verið reiðubúnir að
afhenda nokkurn veginn það, sem
afhenda á í dag, og einn hefndar-
manna hefði lagt til, að afhenda
skyldi svo til allt. Hann benti á,
að lögin hafi verið samþykkt með
jrfirgnæfandi meirihluta — 110
atkvæðum gegn 31 — í þjóðþing-
inu, og atkvæðagreiðslan ekki far-
ið eftir flokkslínum. — Þetta er
hlutur, sem taka verður tillit til,
þegar hinn hái réttur tekur
ákvörðun um, hvort lögin séu
andstæð stjórnarskránni, — sagði
hann.
Schmitih sagði, að sú staðreynd,
að beðið hafði verið um álit há-
skólans á því, hvort afhenda ætti
handritin, sýndi. að menntamála-
ráðuneytið væri æðsta yfirvald í
þessu efni. Ilann kvaðst vilja
benda á, að fjnrsta ríkisstjórnin,
sem hafi talað um að afgreiða
handritamálið á lagalegan hátt,
hafi verið stjórn Vinstri flokksins.
Schmith vitnaði í margar ræður
sem fluttar voru í þjóðþinginu,
þegar afhendingarlögin voru til
umræðu, þar sem vísað var til
þess, að tillit yrði að taka til
vináttubanda íslands og Danmerk
ur. Þetta hefði þó ekkert að segja
í sambandi við lausn þess vanda-
máls, hvort hér væri um þvingun-
arafhendingu að ræða eða ekki.
Lögin byggjast aðeins á ósk
manna um, að auka og bæta hið
vísindalega samband milli Dan-
merkur og íslands, sagði hann, og
benti á, að þegar lögin voru sam-
þykkt í annað sinn, var enn mikill
meirihluti með samþykkt laganna.
Lokakafii ræðunnar var lög-
fræðilegs eðlis og var vitnað í
ýmsa hina þekktustu og lærðustu
lögfræðinga allt frá tíð Örsteds til
vorra daga. Snerist þessi kafli um
ýmsar túlkanir á stjórnarskránni,
og þó einkum 73. grein hennar,
og í ljós kom, að aldrei hafði ver
ið kveðinn upp dómur, sem næmi
úr gildi lög, sem löggjafaþingið
hafði samþykkt.
Schmith sagði, til stuðnings full
yrðingu sinni um, að afihending-
in væri ekki andstæð stjórnar-
skránni, að ekki væri hér um
eignarnám að ræða, þar sem um
væri að ræða ríkiseign en ekki
einkaeign. Hann ræddi hina lög-
fræðilegu hlið málsins frá ýmsum
'hliðum, og komst að þeirri niður-
stöðu, samkvæmt sönnunargögnum
þeim, er hann lagði fram, að Árna
safn væri ekki, réttarlega séð, að-
skilið ríkinu, og því væri ekki
hægt að tala um neinn eignarrétt,
sem vernda ætti, og því ekki held
ur um eignarnám. Hann undirstrik
aði það sérstaklega, að frá sjón-
arhóli ráðuneytisins séð, ætti sér
ekki stað nokkur eiginleg breyt-
ing í sambandi við Árnastofnun-
ina, einungis af því, að þeim stað,
þar sem handritin skuli geymd,
er breytt.
Að lokum kom Schmith inn á
þann möguleika, að mál þetta
hefði verið hægt að afgreiða með
stjórnarathöfn, og samkvæmt
þeim rökum, sem hann lagði fram,
hefði það verið auðvelt í fram-
kvæmd. Hann kvað þó þann kost-
inn hafa verið valinn, að láta and-
stæðingana koma fram með sín
sjónarmið, og láta dómstólana
þannig hafa síðasta orðið, svo að
ekki væri síðar hægt að draga í
efa, að rétt hefði verið með málið
farið.
HRAFN
Framhald af bls. 1.
eystra vissi til að hrafn hefði
gert sér hreiður í útihúsum og
hefðu sumir á orði að þetta
hlyti að boða hart vor.
Hrafnarnir komu í fjárhúsið
fjrir einni viku og hafa síðan
haft nóg að sýsla við að koma
upp hreiðrinu og kennir margra
grasa í því, m. a. bein og
gaddavír!
Hrafnarnir hafa fram að
þessu verið ákaflega rólegir,
enda eru útihúsin á Bakkakoti
um tvo kílómetra frá bænum,
og menn koma þar jrfirleitt ekki
nema einu sinni á dag til gegn-
inga.
Jón sagði að lokum að hann
myndi forðast að styggja hrafn
ana og vonaðist til að þeim
tækist að unga út í hlöðunni.
MARGIR
Bkamhald af bls. 1.
eins sagt fólki, að hann vissi
ekkert um hana. Virtist svo,
sem þetta væri enn eins konar
feimnismál, þótt sögur heyrð-
ust stundum um yfirboð í fólk
í þessu sambandi.
Stefán sagði, að unnið hefði
verið við tunnuverksmiðjuna
fram í marz, en þar störfuðu
um 40 manns. Þá hefði síldar-
niðursuðan bjargað miklu í vet
ur, en við hana starfa rúmlega
100 stúlkur.
Þó væri alltaf töluvert af
fólki, sem þjrfti að leita annað
eftir atvinnu, og nokkrir nytu
atvinnuleysisbóta. Hefðu um
400.000 krónur farið í bætur í
vetur. En í heild væri atvinnu-
ástandið gott miðað við það,
sem gerðist stundum áður fyrr.
Iðnskólanum á Sauð-
árkróki slitið
GÓ—Sauðárkróki.
Iðnskólanum á Sauðárkróki
var sagt upp í tuttugasta skipti
hinn 6. apríl s.l. Nemendur
voru 32 í tveim bekkjum. Þar
af 18 í öðrum bekk. en 14
brautskráðust.
Kennarar voru 7 auk skóla
stjórans. Skólaslit fóru tram
að þessu sinni við hátiðlega at-
höfn þar sem viðstaddir vor
fjölmargir af eldri nemendum
skólans.
Tildrög að stofnun skólans
voru þau, að tveir eða fleiri
ungir menn vildu læra iðn á
Sauðárkróki, en gátu það ekki
fullkomlega nema iðnskóli
væri starfandi á staðnum. Séra
Helgi heitinn Konráðsson á-
samt nokkrum iðnaðarmönnum
gerði hugmyndina um iðnskóla
að veruleika í ársbyrjun 1947.
Á þessu 20 ára tímabili hef-
ur skólinn útskrifað á annað
hundrað iðnnema, sem starfa
nú sem iðnaðarmenn víðs veg
ar um landið.
Fjusti skólastjóri var séra
Helgi heitinn Konráðsson og
gegndi hann því hlutverki i
4 ár. Friðrik Margeirsson, mag
ister var skólastjóri í 13 ár og
núverandi skólastjóri, Jóhann
Guðjónsson, múrarameistari,
hefur annazt starfið í 3 ár. —
Kennarar hafa verið margir,
allan tímann Ámi Þorbjörns-
son, lögfræðingur.
Erlendur Hansen, rafvirki,
skýrði frá því fyrir hönd fyrstu
nemenda skólans, að þeir ætl
uðu að gefa skólanum máb'crk
af fyrsta skólastjóra hans, séra
Helga Konráðssyni.
Málsvari 10 ára nemenda,
Stefán Petersen, Ijósmyndari,
lagði fram kr. 5.500,00, .sem
vera skyldu stofn að tæknibóka
safni skólans.
Skólastjórinn þakkaði hin-
ar virðulegu gjafir og skýrði
jafnframt frá þeirri vitneskju
sinni, að lóð undir væntanleg-
ar byggingar Iðnfræðsluskóla í
Norðurlandskjördæmi vestra
yrði ákveðinn staður í sam-
ráði við sMpulagsyfirvöld ríkis
ins, en mikill og almennur á-
hugi er á því að sá skóli verði
á Sauðárkróki.
Iðnskóla Siglufjarðar
slitið
Nýlega var Iðnskóla Siglu-
fjarðar slitið, og lauk þar með
30. starfsári skólans. Iðnskól-
inn var óskabarn Iðnaðar-
mannafélags Siglufjarðar, og
jafn gamall því. Iðnaðarmanna
félagið rak skólann fyrstu
nítján árin, eða þar til ríkið
tók við rekstri iðnskólanna, og
hefur ætíð síðan verið honum
stoð og stytta, bæði með útveg
un á kennaraliði, og öðru því
sem til þess hefur verið sótt.
f vetur voru rúmlega 40 nem
endur í skólanum, er star/aði
í tveim deildum, 1. og 4. bekk.
27 nemendur tóku burtfaiar
próf úr skólanum að þessu
sinni, og mun það vera stærsti
hópurinn, sem hann hefur út-
skrifað í einu. Hæstu einkunn
ir úr 4. bekk hlutu: Birgir Vil-
helmsson, húsasmíðanemi, er
hlaut einkunnina 9.43 i aðal-
einkunn, sem mun vera önnur
hæsta burtfarareikunn, sem
tekin hefur verið frá skólan-
um frá byrjun, annar var Sig-
urður Þorsteinsson, húsasmíða
nemi. með 9.28. f fyrsta bekk
varð Guðmundur Bjarnasun,
húsasmíðanemi, hlutskarpastur
með 8.90. — Allir eru þessir
nemar í námi hjá sama fyrir-
tækinu, Byggingaverkstæðinu
h.f., Grundargötu 1. Við skól-
ann störfuðu sex kennarar auk
skólastjórans, Jóhanns Þor-
valdssonar.
Nú eru í þinginu lög um
iðnfræðslu. og ef þau ná fram
að ganga. er efni þeirra á
þann veg, að aðeins einn íðn
skóli skuli vera starfandi í
hverju kjördæmi. Það er ósk
og von allra Siglfirðinga. að
skólinn þeirra megi enn um
hríg gegna því hlutverki, sem
hann hefur gert í s.l. 30 ár í
þessu byggðarlagi, og eru sigl
firzkir iðnaðarmenn staðráðnir
i að slá um hann skjaldborg,
og eru þegar farnir að undir-
búa verknámsdeildir við hann.