Tíminn - 27.04.1966, Blaðsíða 3
MIÐVfKUDAGTJR 27. apríl 1966
TfMINN
f SPEGLITÍMANS
Eíns og kunnugt er gengu
þen í hjónaband fyrir
skemmstu þau Sophia Loren og
Það kemur engin ný kvik-
mynd með bítlunum á markað
inn árið 1966. Til stóð að hef ja
skyldi kvikmyndatöku á þriðju
kvikmynd bítlanna í maílok
eða júnfbyrjun, en henni hef
ur nú verið frestað þar til í
haust, en það þýðir það að
kvikmyndin kemur ekki á mark
aðinn fyrr en í byrjun 1967.
Þessi seinkun á rætur sínar að
rekja til þess að ekkert hand-
rit, sem bítlarnir eru ánægðir
með hefur fundizt.
Kúrekahetjan Roy Rogers lét
það nýlega uppskátt, að hinn
frægi hestur hans Trigger,
lézt í júlí í fyrra, af elli. Trigg
er hafði tekið þátt í 188 kvik
myndum. Roy Rogers sagði,
þegar hann tilkynnti dauða
hans: — Ég vildi ekki segja
frá þessu fyrr til þess að
hryggja ekki aðdáendur hans.
Á uppboði í París keypti
mexikanskur milljónamæring-
ur málverk, sem heitir Svartir
svanir. Keypti hann málverk
ið, sem sir Winston Churchill
hafði málað, á um það bil 400
þús. íslenzkra króna.
Hinn nýi borgarstjóri New
York borgar John Lindsay hef
ur ráðið unga stúlku, Katrina
Thomas til þess að taka mynd
ir af honum, þegar hann kem-
ur frám opinberlega. í árslaun
á hún að fá ca 400 þús. ísl
kr., sem teknar verða af fram
lagi ríkisins til fátækra.
Lord Bernhard Montgomery
hefur nú tilkynnt að hann hygg
ist selja málverk, sem Churc
hill gaf honum að gjöf. — Ég
Carlo Ponti. Hjónavígslan átti
sér stað í einni útlborg Parísar
Sévre og það var borgarstjór-
er sannfærður um það að Win
ston hefði þótt vænt um það,
að ég seldi málverkið og gæfi
andvirðið til líknarstarfsemi,
— sagði lávarðurinn.
Margaret Danaprinsessa var
eins og kunnugt er fyrir stuttu
á ferðalagi um Suður-Ameríku
Þegar hún var að fljúga með
tveggja hreyfla flugvél frá
Ohile stanzaði annar hreyfill-
inn og vélin varð að nauð-
lenda. Síðan skipti hún um
flugvél og sú vél varð að snúa
við sökum veðurs. Eftir þess
inn þar sem framkvæmdi vígsl
una. Þessi mynd var tekin af
þeim hjónum sama dag.
ar flughrakningar var prinsess
unni nóg boðið og tók sér bíl
til þess að komast á leiðar-
enda.
★
Hóteleigandi nokkur í Las
Vegas í Nevada, sem er frægur
bær af því, að þar er hægt að
fá fljótan skilnað, hefur nú
höfðað mál á einn fyrrverandi
gest sinn, og krafizt skaðabóta
fyrir það, að gesturinn hafði
eyði'lagt dýra innréttingu í
hótelinu. Hér var um að ræða
hátalara. Þegar menn hátta sig
ofan í rúm í hótelinu segir rödd
í hátalarann: „Við vonum að
þér sofið vel“. Sá sem ákærð
ur er, hefur lýst sig sekan í
málinu. Hann segir, að bað sé
rétt að hann hafi eyðilagt hátal
arann, því það hafi ekki verið
nóg, að einhver bablaði í tækið,
þegar hann gekk til sængur,
heldur hafi sama setningin
kveðið við í hvert sinn sem
hann sneri sér við í rúminu.
Sean Connery öðru nafni
James Bond hyggst nú láta
taka af sér allar tattóveringar
af hendleggjum og bringu. Þess
ar tattóveringar eiga rætur sín
ar að rekja til þess tíma, þeg
ar hann var til sjós. í kvik-
myndum þessum eru tattóver
ingarnar huldar með sminki.
Margaret prinsessa er nú orð
in góður viðskiptavinur tízku
kóngsins fræga, Cardin, og er
það sagt í Bretlandi, að það sé
eiginmanni hennar, Snowdon
lávarði að þakka. En í Banda-
rfkjunum er því haldið fram,
að það sé Mia Farrow — vin-
konu Frank Sinatra — að
þakka, en hún var önnur í röð-
inni á eftir Margaret á listan-
um yfir verst klæddu konur
heims. Eftir að listi þessi var
birtur skrifaði Mia prinsess-
unni bréf og sagði meðal ann-
ars: — Að við skyldum báðar
vera kjörnar á þennan lista,
orsakar það, að við þurfum að
vinna saman gegn öllum snohb
unum. Og þetta — að því er
sagt er í Bandaríkjunum — féll
prinsessunni ekki í geð.
Peter O’Toole, sem er ís-
lenzkum bíógestum vel kunnur
úr myndunum Beckett og Ara-
bíu-Lawrence, hefur nú leyst
mikinn vanda í sambandi við
klæðaburð, að minnsta kosti
hvað viðvíkur sokkum. Hann
hefur tekið það ráð að klæðast
eingöngu grænum sokkum,
hvort heldur hann klæðist
smóking eða sportfötum. Sjálf-
ur segir hann, að það sé af því
að grænt er litur sorgarinnar og
hann ferðist mikið og honum
finnist lífið oft ömurlegt. En
konan hans gefur aðra skýr-
ingu. Peter er svo latur, að
hann nennir ekki að leita að
sokkum, sem fara við fötin,
sem hann fer í.
Hér sjást fjórir Óscarsverð-
launahafar ásamt verðlaunun
um. Talið frá vinstri: eru Lee
Marvin. sem kjörinn var bezti
leikari ársins, Julie Christie,
sem var kjörin bezta leikkona
ársins. Shelley Winters bezta
leikkona í aukahlutverki, og
Martin Balsam, bezti leikari í
aukahlutverki.
3
Á VÍÐAVANGI
„Lýðræðisleg ný-
breytni"
íhaldið í Reykjavík hefur
tekið upp nýja áróðursaðferð í
borgarstjórnarkosningum. Sést'
á því að nú þykir mikils við
þurfa, og nú er að duga eða
drepast. Þessi nýja aðferð er í
því fólgin, að borgarstjórinn,
en ekki Sjálfstæðisflokkurinn
(honum þykir varla veifandi
núna) boðar til funda í stórum
samkomuhúsum, og eru fund-
irnir ætlaðir íbúum ákveðinna
hverfa borgarinnar. Morgun-
blaðið er að vonum ákaflega
f hrifið af þessu og skrifar um
það leiðara, þar sem blaðið
u kallar þetta „lýðræðislega ný-
| breytni".
Það má til sanns vegar færa
að þetta sé „lýðræðisleg ný-
ií breytni“, og verður það ljósara,
í þegar tilhögun og allt, sem
fram fer á fundunum, er athug-
að nánar.
Fundarboðið er þannig, að
birtar eru stórar myndir af
borgarstjóra, sem flytja skal
ræðu (langa), og einum dilk
(íhaldsborgarfulltrúa), sem
fær að flytja ávarp. Síðan eru
birtar myndir af einum fundar
stjóra og tveimur fundarritur-
um. Það er sem sagt helzta
„lýðræðislega nýbreytnin“ í
þessu að jafnvel fundarritarar
eru flokksskipaðir fyrir fram,
en gamla lýðræðisreglan (úr-
elt) er að fundir kjósi sér sjálf
ir a. m. k. fundarritara og helzt
fundarstjóra líka.
Pantaðar fyrirspurnir
Þegar á fund er komið held-
ur borgarstjóri nær klukku-
stundar áróðursræðu fyrir
ágæti íhaldsstjórnar í Reykja-
vík. Að því loknu fær fylgdar-
dilkurinn að flytja ávarp. Eft-
ir það er fundarmönnum boð-
ið að gera stuttar fyrirspurnir,
ekki að flytja gagnrýnisræður,
aðeins stuttar fyrirspurnir, scm
borgarstjóri svarar. Margar
þessar fyrirspurnir eru búnar
til í skifstofu borgarstjóra og
menn fengnir til að bera þær
fram, og þeim svarar borgar-
stjóri greiðlega og hiklaust.
Eru þær sérstaklega til þess
Iagaðar, að íhaldið geti haldið
á lofti því sem á að gera. Aðrar
koma og fram frá fundarmönn-
um sjálfum, þær spurningar
eru miklu betri og þýð-
ingarmeiri fyrir íbúana. Þá
stendur stundum í borgarstjóra
að svara, og hann segist „ekki
geta tímasett þetta“, eða að
þetta „verði rannsakað“. í gær
mátti lesa spurningar og svör
í Mogga, og var furðulega auð-
velt að sjá, hvaða spurningar
voru tilbúnar á borgarskrifstof-
um og hvaða spurningar voru
frá borgurunum sjálfum.
Gætu verið góðir
fundir
Ekki er vafi á þvi, að slíkir
samtalsfundir milli borgara og
stjórnenda borgarinnar gætu
verið góðir og gagnlegir og um-
talsverð „lýðræðisleg ný-
breytni", ef til þeirra væri
stofnað af réttsýni og sann-
girni. en því miður er ekki því
að heilsa. Hér er aðeins um
íhaldsáróður að ræða á kostn-
að borgarsjóðs. Ef fundirnir
ættu að ná tilgangi sínum, ætti
borgarstjóri aðeins að svara
fyrirspurnum og gagnrýni, sem
fram kæmi, en ekki að eyða
meirihluta fundartímans i áróð
Framhald á bls. 15