Tíminn - 27.04.1966, Side 11
MEÐVIKUDAGUR 27. apríl 1966
TÍMINN
n
VERÐIR LAGANNA
TOM TULLETT
47
einhverju móti yfir peninga. Hann drakk bjór en sagði fátt.
Sjálfsaðdáunar gætti í fari hans, enginn vafi var á að hann
var hreykinn af að hafa komizt hjá gálganum og gerði sér
ekki minnstu rellu út af því, að nú ætlaði hann að skýra
heiminum frá þvi út í yztu æsar hvernig hann myrt mann.
Eitt sinn í samræðunum sagði maður í hópnum eitthvað sem
reitti Hume til reiði. Heiftarglampi kom í brún augu hans og
andartak var andlit hans illilegra en nokkurt annað, sem
borið hefur fyrir mín augu. Svo leið kastið hjá og dauft bros
kom aftur á varirnar. Honum voru greidd 2000 sterlings-
pund fyrir frásögnina af því hvernig hann myrti Stanley
Setty, og með þá fúlgu hvarf hann um stund.
Alltaf neitaði hann að skýra frá heimilisfangi sínu, hann
fór úr leigubílum við einhverja stöð neðanjarðabrautarinnar.
Eitt fyrsta verk hans var að breyta um nafn og taka' upp
nafnið Brown. Hvernig átti hanna ð geta lifað, sagði hann,
undir flekkuðu nafni Hume? Hann fengi ekkert tækifæri
til að bæta ráð sit£ en það sagði hann lögreglunni að væri
ásetningur sinn. Nú ætlaði hann að leggja land undir fót.
Endurminningar sínar gat hann birt án minnstu áhættu,
þvi að rann vissi vel að samkvæmt enskum lögum má ekki
draga sýknaðan mann aftur fyrir lög og rétt fyrir sömu
sök.
Hume tók brátt að villa á sér heimildir eins og fyrri
daginn. Með einhverjum brögðum tókst honum að ná í nýtt
vegabréf með nafninu „Stephen Bird.“ Með það í höndum
komst hann til Zúrich í maílok 1958 og þóttist vera flug-
nemi. Raunar var Hume eitt sinn flugnemi í brezka flug-
hernum, en hann var leystur úr herþjónustu sökum meiðsla.
Síðan var hann svo dæmdur fyrir að. látast vera herflugmað-
ur, bera tignarmerki liðsforingja í heimildarleysi og skreyta
sig með heiðursmerkjaborðum. Fyrsta daginn, sem hann
dvaidi í Sviss hitti hann stúlkuna, sem hann trúlofaðist síðar.
,í>®tta var gullið tækifæri fyrir mann, sem minntist æsku
sinnar með beiskju .Hann var óskilgetinn og óíst að mestu
upp í barnaheimilum. Nú kynntist hann sannri ástúð, því
Trudy Sommer varð bálskotinn í honum. Hún veitti honum
hlýju og umhyggju, sem hann þráði og ýtti undir sjálfs-
traust hans.
í þrjá mánuði gat hann hegðað sér eins og efnaður maður.
Hvorki vinkona hans né foreldrar hennar vissu neitt um
fortíð hans, og þau lögðu fúslega trúnað á mikilfenglegar
sögurnar, sem hann sagði þeim.
Hann bar upp bónorð við Trudy, kvaðst vera kanadiskur
reynsluflugmaður og í góðum efnum. Ekki bar á öðru en
hann héldi sig ríkmannlega og virtist ekki þurfa að gera
sér neinar áhyggjur út af morgundeginum. En aðeins þrem
dögum eftir að þau Trudy kynntust, lagði hann af stað til
Kanada, kvaðst þurfa að reka þar háskalegt erindi. Líklega
hefur hann ætlað að láta líta svo út sem hann væri þýðingar-
mikill njósnari. Stúlkunni, sem var afar ástfangin, þótti
þetta leitt en grunaði ekkert.
Hann kom til Montreal undir nafninu Stephen Bird, var
búinn aö setja upp gleraugu og fékk mánaðar landvistar-
leyfi. Efth viku dvöl ákvað hann að halda áfram til Kali-
forníu, þar sem hann snuddaði í kringum kvikmyndatöku-
verin í þeirri von að kynnast fólkinu sem lifir á að skapa
þann gerviheim glits og harðneskju sem hann dáði og öfund-
aði. Hann mataðist í frægum veitingahúsum við Sunset Strip,
flatmagaði og svnti í Santa Monica og sat tímunum saman
við drykkju og horfði á öldur Kyrrahafsins gjálfra við glugg-
ana á Albatross Bar, samkomustað fína fólksms.
Af lestri bóka um afrek bandarískra bófa fékk hann þá
hugmynd að ræna peningaflutningsbíl í Los Angeles, en
komst að þeirri niðurstöðu að áhættan væri of mikil. Hann
lét við það sitja að sigla umhverfis Alcatraz, fangelsiseyjuna
alræmdu í San Francisco-flóa. Loks fór honum að leitast
í Kaliforníu og flaug heim til Trudy. Nú var fé hans á
þrotum og á því þurfti að ráða bót. Manninum er rétt
lýst í þvi að aldrei datt honum í hug að leita sér atvinnu.
Hann þóttist eiga inni hjá umheiminum og ákvað að hafa
bækistöð í Zurich en efla sér fjár í öðrum Evrópulöndum.
Fyrst fékk hann augastað á London, því hann taldi að
lögreglan þar myndi ekki gruna sig um bankarán sem hann
háfði i hyggju. Þánnig stótT á því að hann kom inn í útibú
Midland-bankans í Brentford rétt fyrir hádegi sólbjartan laug-
ardag í ágúst. Hann var á engan hátt dulbúinn. Veifandi >
DANSAÐÁ DRAUMUM
HERMINA BLACK
9
hinu sanna, svaraði hann og lét
engan bilbug á sér finna. Og síð-
an, þegar Jill færði sig í átt til
dyranna stóð hann aftur á fætur:
— Eruð þér búnar á vakt, Syst-
ir?
— Ég ætla aðeins að fara og
fá mér te, herra, svaraði hún.
— Ég þarf að tala við yður
áður en ég fer. Ég mun hitta yð-
ur á stigapallinum eftir tuttugu
mínútur.
— Já, herra.
Þegar hún lokaði hurðinni fann
hún til skyndilegrar gremju. Ekki
vegna þess, að beiðnin líktist meir
skipun, hún var vön að taka við
skipunum og hlýðnast þeim, en
vegna þess — ja, einhvem veginn
hefði hann ekki getað verið óper-
sónulegrj þó hún hefði verið vegg
urinn. Samt sem áður var hegðun
hans lýtalaus á margan hátt.
Vertu ekki svona heimskuleg,
ávítaði hún sjálfa sig óþolinmóð.
Eftir þeim persónulega áhuga. sem
hann hefur sýnt þér eða mun
sýna þér að dæma. gætirðu alveg
eins verið veggurinn.
Og samt var þetta ekki allskostar
rétt — hann hafði þiðnað dálítið
í nokkrar vikur. Þegar það hafði
verið mjög vandasamt tilfelli í
skurðlæknadeildinni, þar sem hún
hafði nýlega verið gerð að aðstoð-
arhjúkrunarkonu, fyrir rúmlega
átján mánuðum síðan. Þetta til-
felli hafði boðið leikni hans byrg-
inn, en hann hafði verið meira
en nógu fær til að geta tekið
hraustlega á móti og hann hafði
þegið með þökkum undirgefna
samvinnu Jill. Þessar allt of stuttu
vikur hafði hún reynt þá æsingu,
sem fylgir þvi að vera meðhöndluð
sem tryggur samstarfsmaður Vere
Carrington og finna að hann taldi
samstrfið nauðsynlegt.
Og hún hafði unnið svo fúslega
—stritað svo óskaplega og lok-
að augunum fyrir þeirri staðreynd
að i fyrsta sinn á starfsferli henn-
ar var það læknirinn sem skipti
mestu máli. hún hafði unnið til
að hljóta viðurkenningu auk þess
að njóta þess að vita að hún var
að hjálpa sjúkri manneskju að
endurheimta heilsuna.
Það var ekki fyrr en seinna,
að sú uppgötvun að viðurkenning
Vere Carrington var henni mikil-
væg, kom eins og þruma úr heið-
skiru lofti. Og það hafði verið upp-
haf alls.
Eftir að þessi sérstaki sjúkling
ur hafði verið læknaður og út-
skrifaður af sjúkrahúsinu —ann-
ar minnisvarði til vitnis um stór-
kostlega leikni hr. Carrington —
hafði Jill fundizt eins og hann
hefði gert sér grein fyrir því hve
mikið hún hafði hjálpað, þó svo
hann minntlst ekki einu orði á
það, og henni fannst sem kveðja
hans, þegar hann mætti henni,
ásamt hinu sjaldgæfa brosi hans
væri merki um að hann myndi
eftir aðstoð hennar.
Hún hafði yfirgefið sjúkrahúsið
meðan hann var i sumarleyfi, en
þó hún væri einnig viss um, að
hann mundi fljótt gleyma að hún
hefði nokkru sinni verið þar, hafði
hún stöku sinnum þorað að vona,
að hann mundi furða sig á hvað
hefði orðið af henní, áður en hann
gleymdi.
En nú var hún viss um að hann
hafði ekki einu sinni þekkt hana
aftur, og hún fann til auðmýking-
ar yfir veikleika sínum. Hún sagði
við sjálfa sig, að nú væri hún far
in að vitkazt dálítið — væri hætt
að vera „svona barnaleg" eins og
hún var alltaf að brýna fyrir Judy
Hún strengdi þess heit. að venja
sig á að hitta Vere Carrington an
þess að hjartað færi að slá órar
í brjósti hennar.
Og þó — var hann raunveru-
lega svona kaldur og strangur?
Hann virtist svo sem vera nógu
mannlegur þegar Sandra St. Just
átti í hlut.
Það var gremjulegt að finna
hjartað, sem hún hafði verið svo
ákveðin á að stjórna herpast sam-
an og titra eins og opið sár.
Skyndilega fannst henni hún
hata Vere Carrington og spurði
sjálfa sig hvort það væri ekki
heppilegasta tilfinningin að bera
í brjósti til hans. Hún gleymdi
að ást og hatur eru aðeins tveir
endar á sama prikinu.
IV. kapituli.
Jill forðaðist stóra, bjarta her-
bergið, þar sem hún vissi, að eins
margar hjúkrunarkonur og kæm-
ust fyrir mundu safnast saman
til að drekka te. Svó margir af
starfsliðinu voru ballettunnendur,
að hún gat ekki mögulega forð-
ast spurningaflóð um nýja sjúk-
linginn sinn og hún hafði enga
löngun til að rökræða um Söndru,
þar sem nafn hr. Carrington
mundi áreiðanlega verða nefnt.
Hún gekk eftir ganginum til
eldhússins, sem nú var mannlaust,
fékk sér tebolla og gekk út að
glugganum með hann og vísaði
ákveðin frá sér öllum órólegum
spurningum.
Hún minnti sjálfa sig á að hún
var hér tii að vinna verk — verk
sem var henni mikilvægara en allt
annað í heiminum, bún ætti að
vera þakklát fyrir að fá að starfa
hér á þessum fallega og vel stjórn-
aða stað.
Skylda, Jill! sagði hún við sjálf
sig. Skylda — skylda!
Þetta var e.t.v. feuldalegt orð,
stundum gat það skyndilega virzt
sem lokuð gata. En þetta var að-
alatriðið — megin innihaldið í
lífi hjúkrunarkonunnar. Ekki per-
sónulegar tilfinnngar hennar.
Hvað sem öðru leið kunni hún
vel við Söndru og fann á öliu,
að hin stúlkan endurgalt tilfinn-
ingar hennar. Það var mikil hjálp.
Nákvæmlega tuttugu mlnútum
eftir að hún yfirgaf sjúkling sinn
kom hún aftur á breiða stigapall-
inn, sem var fyrir utan herbergi
Söndru. Hr. Carrington hafði sagt,
að hann myndi hitta hana á stiga-
pallinum og þar sem hún vissi,
að hann var maður sem ætlaðist
til þess að fólk færi nákvæmlega
eftir fyrirskipunum sínum, reyndi
hún ekki að berja að dyrum og
tilkynna honum að hún væri kom-
in. Hann mundi koma þegar hann
væri tilbúinn.
Hún þurfti ekki að bíða lengi.
Hún hafði gengið út að stóra
glugganum, sem lýsti upp gang-
inn, þegar hún heyrði hurð opn-
ast og hún sneri sér snöggt við.
Vere Carrington gaf henni
merki um að standa kyrr og kom
til hennar. Einhvers staðar i djúpi
hugar síns þóttist Jill viss um. að
hún gæti þekkt þetta léttilega
fótatak hvar sem væri. En hún
sóð kyrr með hendur fyrir aftan
bak og beið eftir þvi að hann
tæki til máls. '
Hún var langt frá þvi að vera
smávaxin. en hún varð að halla
höfðinu aftur á bak tii að horfa
framan í hr. Carrington, sem var
sex feta hár. Samt bar hann hæð-
ina vei eins og flestir vel vaxnir,
háir menn, ieit hann alls ekki út
fyrir að vera óvenjulega stór.
Þrátt fyrir allt gat Jili ekki
ÚTVARPIÐ
Miðvikudagur 27. aprfl
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Há-
degisútvarp 13.00 Við vinnuna
15.00 Miðdegisútvarp .16.30 Síð
degisútvarp 16,30. Síðdegisut-
varp 17 40
Þingfréttir.
18.00 Lög á
nikkuna- Franeone o. fl leika.
18.45 Tilkynningar 19.20 Veð
urfregnir 19 30 Fréttir 20.00
Daglegt mál Árni Böðvarsson
flytur þáttinn. 20.05 Efst á
baugj Björgvin Guðmundsson
og Björn Jóhannsson taia um
erlend málefni 20.35 Raddir
lækna Kar) Strand talar um
þáttaskil t sögu geðspítala 21.
00 Lög unga fólksins. Gerður
Guðmundsdóttir kynnir 22 00
Fréttir og veðurfregnÍT. 22 15\
„Bréf til H1ina“. saga eftirV
Þórunni Elfu Ma’núsdottur
Höf flytur (2) 22.35 Be.gísk
tónlist. 23.10 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 28. apríl
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádeg
isútvarp 13.00 Á frívaktinni Ey-
dís Eyþórsdóttir stjórnar óska
lagaþætti fyrir sjómenn. 15.00
Miðdegis-
útvarp 16.30
Síðdegisút-
útvarp. 17.40 Þingfréttir 18.00
Úr söngleikjum og kvikmynd
um. 18.45 Tilkynningar 1920
Veðurfregnir 19.30 Fréttr 20.
00 Dagleg mál Árni Böðvnrsson
alar. 20.05 Okkar á milli: Ham
let Jökull Jakobsson og Sveinn
Einarsson taka saman dagskrá.
21.00 Sinfóniuhljómsveit ís-
lands heldur tónleika í Háskóla
bíói. 21.45 Ljóð eftir Þorstein
Valdimarsson Elín Guðjónsdott
ir les. 22.00 Fréttir og veður
fregnir. 22.15 „Bréf til Ulinac
eftir Þórunni Elfu Magnasdfut
ur. Höfundur lýkur sögu smnj
(3) 22.35 Djassþáttur Ólafur
Stephensen kynnir. 2305
Bridgeþáttur Hialtl Etiasson og
Stefán Guðjohnsen ræðast víð
23.30 Dagskrárlok.
Á morgun