Vísir - 10.10.1974, Page 5
Vísir. Fimmtudagur 10. október 1974.
5
ÚTLÖND í MlORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Brýna Breta á
kjörsókn ís-
endinga
Horfur sigurstranglegar fyrir Verkamannaflokkinn
Björn Bjarnason
símar frá London:
Wilson forsætisráöherra og leiötogi Verkamannaflokksins var
sigurviss I gær.
Harold Wilson forsætisráð-
herra var sigurviss I siðustu
kosningaræðu sinni i gærkvöldi.
i öllum skoðanakönnunum er
Verkamannaflokkurinn sigur-
vegari. — Edward Heath setur
traust sitt einkum á þá, sem
ekki hafa gert upp hug sinn.
Samkvæmt könnunum hafa um
10% kjósenda eða 4 milljónir
manna ekki ákveðið, hvernig
þeir ætla að kjósa.
Kjörstaðir voru opnaðir hér i
Bretlandi kl. 7 i morgun og fram
til klukkan 10 i kvöld geta 40
milljónir kjósenda ákveðið,
hver fer með stjórn landsins
næstu 5 ár. Keppnin er hörðust
milli stóru flokkanna tveggja.
En áhrif minni flokka geta ráðið
úrslitum um það,hvort nokkur
flokkur fái hreinan meirihluta á
þingi. Skozkum þjóðernissinn-
um er spáð góðum framgangi i
Skotlandi. 1 siðustu kosningum
juku frjálslyndir fylgi sitt úr 7%
119%. Kosningaþátttakan skipt-
ir mjög miklu máli um úrslitin.
Verkamannaflokkurinn græðir
á mikilli þátttöku. Kjósendur
hafa ekki verið áhugasamir i
kosningabaráttunni. Þeir gengu
siðast að kjörborðinu i febrúar?
sl. er minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins undir forystu
Wilsons komst til valda. Þá var
kosningaþátttakan 78%. 1
forystugrein sinni i dag hvetur
blaðið The Guardian kjósendur
til að neyta réttar sins. Til
áherzlu minnir blaðið lesendur
sina m.a. á góða kosninga-
þátttöku á íslandi. „Þar láti
menn ekki vegalengdir og
leiðinlegt veður aftra sér frá þvi
að kjósa.” — Og einnig getur
blaðið um, hversu þátttakan
hafi verið mikil i kosningunum
1944, þegar kosið var um, hvort
ekki skyldi stofnað lýðveldi á ís-
landi.
Mér virðist alveg ljóst, eftir
að hafa fylgzt með siðustu viku
þessarar 3 vikna kosninga-
baráttu, að atburðir siðasta
vetrar skipta höfuðmáli i
málflutningi allra flokka. Þá
féll stjórn Ihaldsflokksins vegna
árekstra við verkalýðshreyfing-
una. Vinnuvikan hafði verið
stytt i 3 daga. Rafmagn var
skammtað og kol.—
Verkamannaflokkurinn segir,
að á 6 mánuðum hafi honum
tekizt að koma atvinnulifinu á
stað að nýju. Honum sé treyst-
andi til þess að halda vinnudeil-
um i skefjun i nánu samstarfi
við verkalýðshreyfinguna.
Ihaldsflokkurinn leggur áherzlu
á nauðsyn þjóðareiningar. Allir
flokkar eru sammála um, að
Bretar hafi aldrei staðið
frammi fyrir eins miklum
vanda frá striðslokum. Heath
segir, að þennan vanda sé
ekki unnt að leysa nema með
samstöðu allra flokka. Frjáls-
lyndir höfða til þess, að vandi
þjóðarinnar stafi af sifelldum
deilum stóru flokkanna og að
þeim hafi mistekizt að leysa
vandann, og þvi sé ekki lengur
unnt að treysta þeim.—
Kosningalöggjöfin veitir alls
ekki fullkomið jafnræði. 1 febrú-
arkosningunum fengu ihalds-
menn 38,2% atkvæða og 296
þingmenn, Verkamannaflokk-
urinn 37,2% atkvæða og 301
þingmann og frjálslyndir fengu
19,3% atkvæða og 14 þingmenn
Siðan 1935 hefur engin brezk
rikisstjórn eins flokks haft
stuðning meirihluta þjóðarinnar
i kosningum.
Samúðin með Frjálslynda
flokknum er mikil og hann á ef
til vill eftir að lenda i oddaað-
stöðu á þingi. Það mundi vafa-
litið vera gott fyrir brezkt
stjórnmálalif, ef frjálslyndir
fengju itök i næstu rikisstjórn
landsins.
Nóbels-
verðlaun-
in ekki
þýðingar-
mest
Prófessor Gunnar Myrdal,
annar hagfræðinganna, sem
fengu Nóbelsverðlaunin 1974.
segir að Nóbeisverðlaunin hafi
ekki mikla þýðingu en vill heldur
vara menn við þvi, að heimsins
biði einhver versta kreppa siðari
tlma.
Á blaðamannafundi, sem hann
efndi til i gær, eftir að til-
kynnt var, að hann og prófessor
Friedrich von Hayek frá Austur-
riki fengju Nóbelsverðlaunin í
hagfræði, sagðist prófessor Myr-
dal „aldrei hafa haft minna að
segja á blaðamannafundi”.
„Verðlaunin hafa ekki svo ýkja
mikla þýðingu. Það er hins vegar
vinnan og það, sem þú skilur
eftir, sem þýðingu hefur”, sagði
prófessorinn og vék siðan talinu
frá verðlaunaafhendingunni að
skuggum framtiðar.
Benti hann á verðbólguna,
eiturlyfjanotkunina, kynþátta-
hatrið, kaldhæöni o.fl. sem ein-
hverja verstu erfiðleika er mann-
kyn hefði átt við að striða á seinni
timum.
Ekki vildi prófessorinn segja,
hvað hann ætlaði að gera við
sinn hluta verðlaunanna. „Ef ég
geri góðverk, set ég það ekki I
blöðin”, sagði hann.
Von Hayek sagði við frétta-
menn, að honum segði þungt
hugur um efnahagslif heimsins og
að margt væri sameiginlegt með
núverandi ástandi og aðdrag-
anda efnahagshrunsins mikla
1929 — Honum kom verðlauna-
veitingin mjög á óvart.
LARSEN ENN
Bent Larsen frá Danmörku
heldur enn forystu sinni á
Marlboromótinu i Manila, en i
gær voru tefldar allar biðskákir
sem safnazt höfðu fyrir.
Larsen hefur 3 1/2 vinning, og
KONA KENNEDYS TEKIN ÖLVUÐ
VIÐ AKSTUR
Joan Kennedy, 38 ára gömul
eiginkona Edward Kennedy
öldungadeildarþingmanns, var
handtekin I gærkvöldi og kærð
EFSTUR
er hálfum vinning á undan
Eugeni Vashiukov frá Sovét-
rikjunum — t þriðja sæti eru jafn-
ir með 2 1/2 vinning hver, Torre,
Quinteros og Petrosjan.
fyrir ölvun við akstur. — Hún
hafðilent I þriggja bila árekstri
skammt frá heimili hennar.
Lögreglan skýrir frá þvi, aö
bifreið frú Kennedy hafi lent
aftan á annarri, sem stanzað
hafði við rautt umferðarljós á
fjölförnum gatnamótum. Sá bill
kastaðist svo aftan á þann
næsta fyrir framan.
Meiðsli urðu engin á fólki.
Frú Kennedy var leidd fyrir
dómarafulltrúa, formlega
ákærð, en siðan leyft á fara.
Ekki hefur verið ákveðið,
hvenær málið verður tekið
fyrir.
Eiginkona þingmannsins
hefur reynt að forðast sviðs-
ljósið, sem umlykur bónda
hennar og Kennedyfjölskyld-
una. Hún hefur átt við streitu-
sjúkdóma að striða frá þvi i
byrjun árs, þegar taka varð fót-
inn af elzta syni þeirra hjóna. —
Hefur hún siðustu mánuðina
dvalið mikið á hressingarhæl-
um. .
Joan Kennedy hefur átt við
erfiðleika að etja.
Boston logar
í kynþátta-
óeirðum
Þrjú hundruð þjóðvarðliðar
voru sendir inn I Boston i morgun,
þar sem kynþáttaóeirðir hafa
blossað upp. — Um leið barst lög-
regluliði borgarinnar 100 manna
liðsauki frá nágrannasveitum til
þess að reyna að hemja óeirðar-
seggina, en iögreglumenn segja,
að alger skæruhernaður sé hafinn
milli blakkra og hvltra.
óeirðirnar, sem staðið hafa
undanfarna daga, héldu áfram I
gærkvöldi og þá mest I Roxbury-
hverfinu, þar sem blökkumenn
búa. Eldri ökumaður, hvltur, var
dreginn út úr bil sinum og laminn
til óbóta, áður en lögreglan fékk
skakkað leikinn.
Aðrir bilstjórar hafa sætt grjót-
<1
Blökkumaður i Boston reynir aö
forða sér undan æstum múg
hvitra manna, sem réðust á
hann, þegar hann ók dóttur
sinni frá skólanum. Hundrað
hvitir menn stöðvuðu bilinn,
flæmdu hann út, og eltu hann
siðan uppi.
kasti og aðsúg og sumir verið
dregnir út úr bilunum á sama hátt
og gamli maðurinn.
Gripdeildir hafa átt sér stað i
verzlunum, og bensinsprengju
var varpað inn i eina búðina, en
eldurinn þó slökktur, áður en
verulegt tjón hlauzt af.
Lögreglan hefur sett upp vega-
tálma á götum til þess að hafa
hemil á flokkum, sem fara um
stræti til að koma illu af stað. 1
gær og i morgun voru það einkum
blökkumenn, sem létu að sér
kveða, en til þessa hafa það verið
hvitir foreldrar og skóla-
nemendur, sem vildu mótmæla
þvi, að blökkumannabörn hefðu
jafnan aðgang á við börn hvitra
að skólabilum borgarinnar. —
Höfðu hvitir gert aðsúg að svert-
ingjum, sem leið áttu hjá mót-
mælahópum.
Okumenn skólabilanna hafa
neyðzt til þess að fara fram á lög-
regluvernd við störf sin þessa
daga, en skólaráð borgarinnar
hefur hafnað tilmælum um að
fella niður kennslu.meðan heitt er
i kolunum.