Vísir - 10.10.1974, Síða 16
GAMLIESSEXINN A
AÐ FARA Á SAFN
„Honum er ráðstafað.
Hann á að fara á safn.
Þetta er eini bíllinn í
landinu af þessari gerð,
sem hefur verið í gangi
fram á þennan dag."
Þetta sagði Bjarni
Einarsson, járnsmiður,
þegar við spurðum hann
að því, hvort hann væri
búinn að sel ja bílinn sinn,
sem er af gerðinni Essex
'31 og nýlega var aug-
lýstur í Vísi
„Ætli hann fari ekki á
byggðasafnið í Görðum á Akra-
nesi. Þeir hafa óskað eftir þvi að
fá hann, og mér finnst það vel
við hæfi.
Annars er þetta ekki
„óbrenglaður” Essex lengur.
Það er búið aö taka aftan af
húsinu á honum og setja pall i
staðinn. Það var gert áður en ég
keypti hann fyrir 20 árum, og
þannig hef ég notað hann. Svo er
hann með Studebaker
Commander vél, sex strokka,
með nógan kraft.
Ég hef notað hann alveg fram
undir þetta, en tók hann af skrá
um daginn, af þvi ég hef nú
fengið annan bil. Annars er
hægt að setjast upp i hann og
aka honum hvert á land sem er.
Undanfarið hafa alls konar
strákar verið að fala hann af
mér, en ég hef ekki viljaö láta
þá fá hann þvi maður veit það,
að ef strákar næðu i hann, yrði
hann öskuhaugamatur á engri
stund”.
Aðeins er vitað um einn annan
bil af gerðinni Essex i landinu,
sá er frá 1929 og i.eigu Gunnars
Ágústssonar, hafnarstjóra i
Hafnarfirði. Sá bill er „óbrengl-
aður” og i öruggri geymslu.
Sögur herma að einhvers
staðar á Austurlandi liggi tvö
flök af þessari gerð, en ekki
vitað, hvar eða i hvaða ástandi.
Magnús Skaftfjeld, bifreiðar-
stjóri, sem á slnum tima rak
Bæjarbilastöðina I Reykjavik,
flutti Essex bilana inn.
„Ég flutti 87 Essex og Hudson
bila inn”, sagði Magnús. „Ég
notaði Essexana á stöðinni og
þeir reyndust vel, þóttu góðir
miöað við það, sem þá var. Ég
hef ekki lengi séð bil af þessari
gerð — kannski ég labbi að sjá
þennan”.
—SH
Enn er
leitað
að hálfu
milljón-
inni
- kaupfélagsstjórinn
hœttir
Rannsókn á hinu dularfulia
innbroti i kaupfélagshúsið á
Hellissandi fyrr I sumar hefur
ekki leitt neitt nýtt I ljós. Hálfa
milljón, sem hvarf úr pen-
ingaskáp kaupfclagsútibúsins
er jafn týnd og áöur. Kaup-
félagsstjórinn, sem bjó i hús-
inu, beið talsverðan álits-
hnekki sökum þessa máls, og
hættir hann störfum viö útibú-
ið um næstu áramót.
—ÞJM
Hann litur ekki svo dónalega út, Esscx bfllinn, þótt hann sér orðinn 33 ára. Hjá bilnum stendur Bjarni Einarsson, sem hefur átt hann og
ekið I 20 ár — í aftursæti bílsins giittir I pappakassa — það eru varahlutir, sem eiga að fylgja honum. Ljósm. Vfsis B.G.
Nú rif jum við upp söguna
— á annan hátt en í skólabókum
Meö sýningunni, tsland-
islendingar, 11 alda sambúð
lands og þjóðar, gefst mönnum
kostur á að rifja upp tslands-
söguna ef þeir eru farnir að rýðga
i henni. Liklega festist hún lfka
miklu betur i minni með þessu
móti. Skólafólki er svo gefinn
kostur á að sjá sýninguna á
vissum timum undir leiðsögn
kennara.
Sýningin verður opnuð I dag
klukkan fimm, en hún verður opin
til 24. nóvember. A sýningunni er
margt aö sjá, eins og gefur aö
skilja, en segja má að sagan sé
túlkuð svolitið öðruvlsi en I skóla-
bókunum. Minni áherzla er lögð á
einstakar persónur, en meira er
sagt frá aðstæðum i landinu.
Sýning þessi er næstsiðasti
liður I dagskrá þjóðhátiðar-
nefndar, en siðasti liðurinn
veröur sýning á þjóðháttakvik-
myndum, sem hefjast væntan-
lega I haust.
—EA
„IÆKN/R/NN AlDtlllS [KKI
SKUIDLAUS VIÐ SKATTINN!
— leiðréttir bœjarfógetaskrifstofan í Keflavík
„Ekki sagöi læknirinn ykkur
alveg rétt frá viðskiptum sinum
við skattheimtuna hér I Kefla-
vlk”, sagöi Valtýr Sigurðsson
hjá bæjarfógetanum þar syðra I
viðtali viöVisi I morgun. „Sann-
leikurinn er sá, að umræddur
læknir skuldar enn alla fyrir-
framgreiöslu þessa árs”.
„Kannski lækninum finnist
það ekki vera upphæð, sem
skipti ýkja miklu máli”, hélt
Valtýr áfram. „En okkur hér
hjá bæjarfógeta finnst þó 1,5
milljón króna vera umtalsverð
upphæð”.
„Það var þvl ekki að ástæðu-
lausu, sem menn frá okkur
heimsóttu lækninn þeirra erinda
að knýja fram greiðslu skuldar-
innar,” sagði Valtýr. „Það er
ekki rétt, sem hann segir, að
menn okkar hafi borið upp
erindi sitt I heyranda hljóði.
Þeir töluðu við hann einslega”.
„Til lögtaksaðgerða kom ekki
á þessari stundu. Læknirinn fór
með mönnum okkar á bæjar-
skrifstofurnar og greiddi þar 400
þúsund krónur — en það var þó
ekki upp I fyrirframgreiðsluna,
heldur skuld hans frá I fyrra.
Hann á með öörum orðum
ennþá eftir að greiða hin lög-
boðnu 60 prósent upp I
skattana”, sagði Valtýr að
lokum.
—ÞJM
„Al-
húsið er
ódýrt!
— segir bygginga-
fulltrúi
V
Alversins
„Við erum ekki tilbúnir að lýsa
áliti okkar á þeirri tilraun, sem
nú er verið aö gera með smiði ál-
húss. Hér hafa engar athuganir
farið fram á áli sem byggingar-
efni”, sagði Haraldur Ásgeirsson,
forstjóri Rannsóknarstofnunar
byggðingariðnaðarins, i viðtaii
við VIsi
Byggingarfulltrúi álverk-
smiðjunnar I Straumsvik var ekki
tilbúinn til að taka undir þá full-
yrðingu, sem fram kom I VIsi
varðandi álhúsið, að það sé það
dýrasta á Arnarnesinu:
„í kostnaðaráætluninni er ekki
gert ráð fyrir að smiði hússins
kosti meira en 15 milljónir”,
sagði hann þegar hann hringdi til
blaðsins eftir birtingu fréttar-
innar. „1 dag þykir það ekki vera
dýrt hús”, sagði hann ennfremur.
„Það heyrast jafnvel sögur um að
viðlika stór einbýlishús úr stein
steypu hafi kostað 25 til 30
milljónir”.
—ÞJM
KORCHNOI-
VINNINGUR,
LOKSINS?
Korchnoi á möguleika á að ná
sinum fyrsta sigri gegn Karpov i
einvlginu I Moskvu, en 10. skák
þeirra fór í bið I gær. Karpov
hefurunnið tvivegis, en Korchnoi
aldrei til þessa. Skák þeirra var
eins og hér segir, þegar hún fór i
bið:
1. e4 - e6 2. d4-d5 3. Rd2 - c5 4.
exd - exd 5. Rf3 - Rc6 6. Bb5 -
Bd6 7. 0-0 - Rc7 8. dxc - Bxc5 9.
Rb3 - Bd6 10. Rbd4 - 0-0 11. c3 -
Bg4 12. Da4 - Bh5 13. Bd3 - h6
14. Be3 - a6 15. Hfel - Dc7 16. h3 -
Ra5 17. Rh4 - Rc4 18. Dc2 -
Rxe3 19. Hxe3 - Bh2+ 20. Khl -
Bf4 21. Heel - Bg5 22. Rhf5 -
Rxf5 23. Rxf5 - Bg6 24. Rd4 -
Bxd3 25. Dxd3 - Hfe8 26. Df3 -
Db6 27. He2 - Bf6 28. Hdl - He4
29. Rf5 - Hae8 30. Re3 - De6 31.
Hxd5 - Bg5 32. Hd4 - Hxd4 33.
cxd -Dxa2 34. Rc4-Hd8 35. Dd3
- b5 36. Re3 - De6 37. d5 - Dd7
38.b4-Dd6 39. Dd4-Kf8 40. De4
- Bxe3 41. Hxe3 - Dxd5 42. biö.
VISIR
Fimmtudagur 10. október 1974.
Grillstaðurinn:
Stofn-
öryggið
fœr þrjú
líf
Grillstaðurinn I Hafnarfirði,
sem ekki gat opnað vegna raf-
magnsskorts og Visir skýrði frá á
mánudaginn, var opnaöur I fyrra-
dag.
Eftir að greinin birtist I Visi,
komst formaður Rafveitunefndar
Hafnarfj. I málið og gaf hann
heimild til að staðurinn yrði opn-
aður með þeirri raforku, sem
fyrir væri. Starfsmennirnir verða
að reyna að haga vélanotkun
sinni þannig, að of mikiö álag
skapist ekki, og hefur það gengið
vel til þessa. Ef þeir sprengja
stofnöryggi hins vegar þrisvar
sínnum verður staðnum lokað á
ný-
Starfsmaður staðarins sagði,
að það hefðu verið mikil viðskipti,
eftir að hægt var að elda.
Lögfræðingur hefur verið
fenginn til að skera úr um, hvort
það er eigandi grillstaðarins eða
nærliggjandi trésmlðaverk-
stæðis, sem greiða á kostnað af
nýrri heimtaug i fyrirtækin.
Eigandi grillstaðarins vill halda
þvi fram, að rafmagnsskorturinn
hafi verið leyndur galli á húsinu,
sem hann keypti undir reksturinn.
Þar til úr þessu fæst skorið,
verður grillstaðurinn að spara við
sig tækjanotkunina.
—JB