Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 5
Vlsir. Laugardagur 26. október 1974.
5
1. Gyða Hafdís Margeirsdóttir
3. Helga Þórðardóttir
4. Magnea Ragnarsdóttir
5. Vala Jónsdóttir
6. Birna ólafsdóttir
Hver þeirra
kemst í suð-
rœna sól?
7. Halldóra Emilsdóttir
8. Sigríður Björg Stefánsdóttir
9. Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir
10. Kristín Erla Karlsdóttir
— Greiðið atkvœði strax í dag
Myndirnar af
stúlkunum tíu hér til
hliðar ættu að geta haft
úr lesendum mesta
kuldahrollinn á þessum
fyrsta degi vetrar. Þetta
eru stúlkurnar, sem taka
þátt í samkeppninni um
ferð með Otsýn til
sólarlanda.
Við höfum birt litmyndir af
þeim öllum og nú er komið að
þvi að greiða atkvæði. Hér fyrir
neðan er atkvæðaseðill fyrir les-
endur og er hægt að raða þar
upp þrem stúlkum, en sú sem er
sett efst á blað hlýtur 30 stig, sú
næsta 20 stig og loks sú sem sett
er i þriðja sæti 10 stig.
Frestur til að skila atkvæða-
seðlum er til 8. nóvember og
verða úrslitin kynnt i Visi
mánudaginn 10. nóvember.
Eins og við höfum sagt frá
áður, hlýtur hlutskarpasta
stúlkan að launum ferð með
Otsýn til sólarlanda. Getur hún
va’.ið um ferð til Costa del Sol
eða þá Gullnu strandarinnar á
ttaliu. Býður útsýn stúlkunni
það bezta, sem ferðaskrifstofan
hefur upp á að bjóða á þessum
stöðum — og það er töluvert.
Ef stúlkan kýs að fara til
ttaliu getur hún búið i eigin ibúð
eða á hóteli að eigin vali. Og
henni stendur til boða að taka
þátt i kynnis- og
skemmtiferðum Otsýnar.
Þannig getur hún skoðað
Feneyjar, farið að hinu heill-
andi Gardavatni, virt fyrir sér
tign Alpanna og sömuleiðis farið
til Verona þar sem eru stórkost-
legar óperusýningar undir ber-
um himni.
Nú, og ef stúlkunni okkar falla
ekki óperur, getur hún brugðið
sér á næturklúbb, en þeir eru
einir tólf við Gullnu ströndina og
auk þess er þar fjöldi annarra
dansstaða, kvikmyndahúsa og
leikhúsa.
A Costa del Sol er ekki siður
glaðvært og sólrikt. Þar getur
stúlkan einnig valiö á milli
hótelherbergis eða Ibúðar, en
þess má geta, að á
Torremolinos — þeim
geysivinsæla sólarstað — býður
Otsýn upp á ibúðir sem hver um
sig er meö sérbaði, eldhúskrók,
rúmgóðri stofu og svölum, sem
snúa að ströndinni.
Og þarna er hægt að fara i
lengri og skemmri kynnis- og
skoðunarferðir með Útsýn,
þegar maður vill gera hlé á sól-
böðum á ströndinni. t aug-
lýsingapésum ferða-
skrifstofunnar er sagt að
fjölbreytnin sé nær óendanleg,
en við látum nægja að geta hér
um fjóra möguleika: í fyrsta
lagi tveggja daga heimsókn til
hinna frægu borga Andalúsiu,
Sevilla og Cordova. 1 öðru lagi
tveggja daga ferð til Marokko i
Afriku, þá skemmtiferð til
Granada til aö skoða hinar
frægu Márahallir og yndisfögru
garða Generalife, en það er
sögufrægasti staður Spánar og
helgidómur þjóðarinnar. Og
loks má nefna kynnisferð til
Malaga, sem veitir góða innsýn
i spænskt þjóölif og sögu.
Og nú er sum sé spurningin:
Hver af stúlkunum tiu hlýtur
ferð með Útsýn i sólina syðra?
Verið ekki að tvinóna við hlutina. Fyllið út at-
kvæðaseðlana strax i dag og póstleggið þá með
utanáskriftinni: Dagblaðið VÍSIR, Siðumúla
14, Reykjavik.
Og merkið i hornið á umslaginu:
Samkeppnin 1974.
I I
I i................................................ I
I 2 I
X. ...................................•••••••••••• |
I 3................................................. I
3................................. I