Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 9
Vísir. Laugardagur 26. október 1974. SIGRAR YNGRI EÐA ELDRI KYNSLÓÐIN? Nú dregur til úrslita i meistarakeppni Bridgefélags Reykjavikur I tvimenning, en siðasta umferðin verður spiluð i dag kl. 13 i Domus Medica. A-riðillinn verður þannig skipaður: 1. Guðlaugur R. Jóhannsson Örn Arnþórsson 1027 2. Einar Þorfinnsson — Hjalti Eliasson 993 3. Guðmundur Pétursson — Karl Sigurhjartarson 954 4. Hallur Simonarson — Þórir Sigurðsson 945 5. Hörður Arnþórsson — Þórarinn Sigþórsson 938 6. Einar Guðjohnsen — Guðmundur Arnason 879 7. Simon Simonarson — Stefán Guðjohnsen 879 8. Gylfi Baldursson — Sveinn Helgason 878 9. Bragi Erlendsson — Rikarður Steinbergsson 871 10. Hermann Lárusson — Ölafur Lárusson 870 11. Gunngeir Pétursson — Viðar Gunngeirsson 843 12. Jón Gislason — Snjólfur Ólafsson 842 Baráttan stendur milli yngri og eldri kynslóðarinnar og er þáð min spá að „gömlu menn- irnir” verðir þungir á bárunni i siðustu umferðinni. Þrjátiu og fjögur stig eru hins vegar mikið forskot og allar likur á þvi, að ekkert fái ógnað öruggum sigri yngri kynslóðarinnar, enda hafa þeir haft forystu allt mótið. Unglingaverðlaunin virðast heldur ekki i óvissu, þvi menntaskólanemarnir, Einar og Guðmundur, hafa allgott forskot. Að komast i hæpin 7 grönd i tvimenning er ávallt góð skor, ef þau vinnast. Hallur og Þórir fóru engar krókaleiðir i eftir- farandi spili: Staðan var a-v á hættu og norður gaf. ♦ 4 V 6-5-2 ♦ A-K-G-9-6-5-3 ♦ 4-3 ♦ 9-7-6-5 V10 ♦ 8-7 ♦ K-D-10-9-7-2 ♦ K-D-10-8-3 VD-8-7-4 ♦ 2 ♦ G-9-6 ♦ A-G-2 VA-K-G-9-3 ♦ D-10-4 4bA-K Sagnirnar voru stuttar og óvenjulegar: Norður Austur Suður 'Vestur Hallur Þórir 3 G P 7 G P P P Þrjú grönd lofa þéttum láglit og þótt Hallur teygi sig aðeins þá er það aðeins af þvi að staðan er hagstæð. Austur spilaði út spaðakóng og Hallur gat talið 12 slagi. Það var hins vegar aðeins rútina að fá þann þrettánda með kastþröng á austur og Hallur var fljótur að þvi. AÐALSVEITA KEPPNI BR AÐ HEFJAST Næsta miðvikudag hefst aðal- sveitakeppni Bridgefélags Reykjavikur og eru allir bridge- menn beðnir um að fjöimenna. Þarna gefst tækifæri til þess að’ spila við marga bestu bridge- menn landsins, en meðal þátt- takenda eru islands- og Rey kjavikurmeistarar að ógleymdum landsliðsmönn- unum. Þátttaka er öllum opin, og þurfa þátttökutilkynningar að berast sem fyrst til stjórnar féiagsins. Tilvalið tækifæri til þess að láta skrá sig er i dag i Domus Medica og horfa jafn- framt á úrslitin I tvimennings- keppninni. Örn (snýr baki I ljósmy ndarann) og Guðlaugur aö spila við eina kvennaparið i mótinu, Vigdisi Guðjóns- dóttur (til vinstri) og Höllu Bergþórsdóttur. Frú Louise Þóröarson fylgist með af athygli. Sigra þeir I dag? HÉR GEGN VETRARRÍKI BÓNDI BARÐIST Ef ég man rétt er fyrsti vetrardagur i dag. Er þvi rétt að fara að búa sig undir vetur- inn, eins og það er kallað, huga að kuldaskóm og öðrum skjólflikum og setja nagla- dekkin undir bilinn. Þegar búið er að þessu eru allir færir i flestan sjó og þurfa ekkert að óttast nema rafmagnsleysi, sem er þó ekkert afskaplega hættulegt, og ekki laust við að sumum finnist slikt bara skemmtileg tilbreyting i skammdeginu. Þórður Einarsson yrkir fyrstu visuna i þættinum i dag. Veðurbarinn ævi alla úti gekk hann-kólguhretin létu siðan fauskinn falla fátækan og litils metinn. Ekki þurfum við, með okkar góðu lifs- kjör að óttast hretin og væri nær að likja okkur við sveru eikurnar i Hallorms- staðarskógi sem standa af sér öll veður heldur en fúna trjágrein. Jóhann i Sveinatungu kveður. Vetrinum fylgir óhjákvæmilega snjó- koma hér hjá okkur þrátt fyrir það, að veðurfræðingar hafi komist að þvi að veður fari heldur hlýnandi hér. Guðmundur Ingi yrkir. í draumi komstu nú I nótt til min og náttkjóll var það eina sem þú barst. Ég leit þig hrifinn eins og æðri sýn — svo engilbjört og mjallahvit þú varst. Af enni þér og æskuljósri kinn svo undarlega hvítum bjarma sló sem töfrar gripið hefðu huga minn. — Ég held að þetta viti á meiri snjó. 1 þeirri sveit, sem ég var I mörg sumur þurfti ekki að hugsa um rafmagnsleysi. Þar var ekkert rafmagn. Mór og tað var notaö til eldiviðar og svo seint var kveikt á ollulömpunum að nú væri það talið kol- niðamyrkur, sem þá var sæmilega les- bjart. Ekki man ég hvenær rafmagn kom I sveitina, hitt þykist ég viss um að þar væru bændur enn þótt þeir kynnu ekki að sjúga mjólkina úr kúnum með rafmagni eða þeyta heyinu upp i hlöðurnar með blásurum. Páll V.G. Kolka kveður Hér gegn vetrarriki bóndi barðist, banvæn stundum hreppti sár, þjóðar sinnar illum vættum varðist vaskra kyn I þúsund ár. Úr þvl að illum vættum tókst ekki að granda bændum i öll þessi ár, er ekki von að rafmagnsleysinu hafi tekist það. 1 Þingeyjarsýslum hefur svonefndur orku- skortur verið tilfinnanlegur undanfarin ár og er þetta nú orðið vandamál alls heimsins. En þingeyingar þurfa sitt raf- magn ekki siður en aðrir. Við getum vist ekki lifað án rafmagns nú orðið i það minnsta ekki þessu svokallaða góða lífi. Arnmundur Gislason yrkir. En vittu það, grimmlyndi vetur! og vertu ekki að hreykja þér neitt, að bliðan má hörkunni betur — og bráðum þér verður of heitt. A ævidags stund eins ertu, maður, og blómið á grund. Þitt lif er ei minna né meira, þó mælirðu fleira. Eitt af þvi sem mér fannst einkenna haustið i sveit voru fuglarnir, sem hópuðu sig til æfinga fyrir hið langa flug til heitari landa. Ingólfur Pálmason yrkir. Og þegar hregg i grasi gráu þýtur og gestir sumars flognir eru um höf, ég uni sæll við angan munablóma, við auðlegð hjartans — þina dýru gjöf. Hér I þéttbýlinu hef ég ekki tekið eftir þessu. Ég hef raunar ekki heldur tekið eftir staðfuglunum. Einu fuglarnir sem maður verður var við að einhverju ráði hér eru dúfur, og svo endur ef maður gerir sér fer niður að tjörn, fyrir utan auðvitað rjúpuna, sem maður borðar á jólunum. Hannes J. Magnússon yrkir. Þótt logi fagurt ljósin þin i kvöld, er litlum fuglum ævin býsna köld. Og minnstu þess, sem býrð við birtu og yl, að buga að þeim, sem fáir hugsa til. Þar með læt ég útrætt um veturinn. Hvert sem við litum sjáum við fram- farir. Sumar eru góðar, aðrar slæmar. Sigurður á Arnarvatni yrkir. Sá hreini grýti ’ana, herrann kvað. Þeir hikuð við að gjöra það. En seinna varð það að sannri list. — Og sá er mestur sem grýtir fyrst. Er hægt að trúa þvi, að þvi meira sem mannvitið verður minnkar manngildið að sama skapi. Freysteinn Gunnarsson yrkir. Hvitingar landa leita langt burt i suðurátt. Surtarnir viðnám veita. Vist á þar margur bágt. Hitt er þó mesta meinið, mein, sem er fornt og nýtt: sumt fólk er svart inn við beinið, en sýnist þó vera hvitt. Kannski hefur þetta alltaf verið svona. Jón frá Langey kveður. Veraldar er venjan slik að virða hinum betur þann sem undir finni flik falið úlfinn getur. Of ef til vill er það ekki nema eðlilegt að það takimannvitiðlangan tima að komast að þvi, að manngildið er miklu meira virði en það. Stephan G. Stephansson yrkir. Og villunótt mannkyns um veglausa jörð svo voðalöng orðin mér finnst, sem framfara skíman sé skröksaga ein og skuggarnir enu hafi ei þynnzt. Því jafnvel í fornöld sveif hugur eins hátt og hvort er þá nokkuð sem vinnst? Ben. Ax.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.