Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 17
Vísir. Laugardagur 26. október 1974.
17
n □AG | Q KVÖLD | rj □AG 1
SJQNVARP •
Laugardagur
26. október
17.00 Enska knattspyrnan
18.00 IþróttirUmsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili
Breskur gamanmynda-
flokkur. Tekinn með trompi.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
20.50 „Milli steins og sleggju”.
Þáttur um Jóhannes úr
Kötlum. Matthias Jo-
hannessen ræðir við skáldið.
Guðrún Guðlaugsdóttir og
Jens Þórisson lesa úr verk-
um hans. Frumsýnt 8. júni
1969.
21.40 Jötunheimar. Mynd um
landslag og leiðir i háfjöll-
um Noregs. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið).
22.15 Kræfur kjósandi (Great
Man Votes) Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1939. Aðal-
hlutverk John Barrymore
og Virginia Weidler. Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
Aðalpersóna myndarinnar
er drykkfelldur rithöfundur.
Hann er ekkill, en á tvö
stálpuð börn. Yfirvöldum
barnaverndarmála þykir
hann óhæfur til að annast
uppeldi þeirra og á hann þvi
um tvo kosti að velja, bæta
ráð sitt, eða láta börnin frá
sér ella. Einnig kemur við
sögu i myndinni frambjóð-
andi nokkur, sem verið
hefur andsnúinn rithöiund-
inum en vill nú allt til vinna
að fá stuðning hans i kosn-
ingum.
23.10 Dagskrárlok
Sunnudagur
27. okt. 1974
18.00 Stundin okkar.Tóti er lit-
ill, sænskur strákur, sem
við fáum að kynnast nánar i
næstu þáttum i teiknimynd-
um fyrir minnstu börnin.
Dvergarnir Bjartur og Búi
fara i veiðiferð, og það gerir
lika Grimsi, vinur ólafs Jó-
hanns Sigurðssonar, i sögu
sem heitir „Állinn”. Þá
syngja söngfuglarnir um
Krumma, og nokkur börn
sýna fatnað úr ull. Einnig er
I Stundinni spurningaþáttur
og loks sjáum við þýzkt æv-
intýri um Margréti snjöllu
og Kobba, bróður hennar.
18.55 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Dagskrárkynning og aug-
lýsingar
20.35 „Sálin i útlegð er..”
Sjónvarpið lét geta þessa
mynd i sumar um séra Hall-
grim Pétursson.
21.50 Julie Andrews. Brezkur
skemmtiþáttur, hinn fyrsti i
flokki þátta, þar sem söng-
konan Julie Andrews og
fleiri flytja létt lög og
skemmtiatriði. Þýðandi
Heba Júliusdóttir.
22.40 Að kvöldi dags. Sr.
Marteinn P. Jakobsson
flytur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok
Sjónvarp laugar-
dag kl. 20,50:
Jóhannes úr Kötlum sést hér
virða fyrir sér silfurhestinn,
sem bókmenntagagnrýnendur
afhentu honum á sinum tima.
i sjónvarpinu i kvöld er endur-
sýnt viðtal i sjónvarpssal, sem
Matthias Johannessen rit-
stjóri átti við skáldið sumarið
1969. i þessum þætti lesa þau
Guðrún Guðlaugsdóttir og
Jens Þórisson úr verkum Jó-
hannesar.
LANDSSÖFNUN KIWANIS
MEFIKJASALA
laugardaginn 26. okt.
til styrktar geðsjúkum
X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-XX-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-XXX-X-X-X-X-X-X-X
*
k
I
t
★
★
I
m
&
Spáin gildir fyrir sunnudaginn 27. okt.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.Farðu á sædýra-
safnið eða annað safn i dag. Þú getur lært mikið
af þvi hvernig dýrin haga sér. Hafðu stjórn á til-
hneigingunni til að taka of stórt upp i þig.
Nautið, 21. april—21. maí. Verkfæri geta verið
hættuleg og ekki siður orð. Þú vilt gera einhverj-
um góðverk en ert misskilinn. Einhver óöruggur
vinur leitar til þin um hjálp.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni.Nú reynir á dóm-
greindina. Mál taka að breyta um stefnu og það
er eins gott að hafa kollinn kláran. Vertu stefnu-
fastur og hafðu lögin þin megin.
Krabbinn, 22. júni—23. júlí. I dag reynir á trú
þina og andlegan styrk. Þér er alveg óhætt að
breyta út af vananum, en reyndu að láta það
verða þér til þroska.
Ljónið, 24. júli—23. ágúst.Þú færð tækifæri til að
sýna I verki vorkunnsemi þina og góðsemi við
minni máttar. Þú verður einhverjum til hjálpar
fjárhagslega. Taktu dýrin þér til fyrirmyndar.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Hafðu vald á til-
hneigingu þinni til að vera hvassyrtur og ýfðu
ekki upp gömul sár. Framkoma þin við maka
þinn getur haft áhrif á velgengni þina i dag.
Vogin, 24. sept,—23. okt. Þú ert i framkvæmda-
skapi i dag. Hagnýtir hlutir eru þér ofarlega i
huga. Reyndu að ljúka leiðinlegustu verkefnun-
um fyrst, þá liður þér betur á eftir.
Drekinn, 24. okt,—22. nóv. Einhver fyrirlestur
eða sýning mun vekja áhuga þinn. Hafðu reynslu
annarra ihuga. tástamálum eru það virðing og
traust sem hafa mest að segja.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.Varastu að æsa
þig upp út af smámunum. Taktu tillit til óska
fjölskyldunnar en mundu að enginn á lif þitt
nema þú sjálfur. Taktu móðganir ekki nærri þér.
Steingeitin, 22. des,—20. jan.Aður en langt um
liður bætist óvenjulegur persónuleiki inn i vina-
hóp þinn. Taktu þvi rólega i dag og varastu að
lenda i rifrildi.
Vatnsberinn, 21. jan.—19. feb. Eftir að þú kemur
úr kirkju i dag gætir þú setzt niður og notið kyrr-
láts og rólegs sunnudags. I kvöld skaltu ljúka
deginum með ánægjulegu mannamóti.
Fiskarnir, 20. feb.—20. marz.Málin munu snúast
þér i hag i dag. Dagurinn er góður til að koma
skipulagi á málin. Astin kemst dýpra i dag en
nokkru sinni fyrr.
i
!
i
!
!
!
*
$
*
¥
!
i
!
$)f)t-)t-)f)«-)t-)f)t-)t-)f)t-)4->t-)»-)t-)f>»-)t->t->f>f>t-)t-)t->t-)t-)t-X-)t-X->t-)f)f)f)f)f)t-)fX-)i-X-)f)t-)t-)f)t-
fff Lausar stöður
Heilsuverndarstöð Reykjavikur vill ráða
eftirtalið starfsfólk: Ljósmóður við
mæðradeild frá 1. janúar n.k.
Vinnutimi eftir hádegi. Röntgentækni við
berklavarnadeild frá 1. febrúar n.k.
Fullt starf.
Umsóknum sé skilað til forstöðukonu fyrir
15. nóvember n.k.
íbúð óskast
l-2ja herbergja ibúð óskast til leigu sem
fyrst. Fyrirframgreiðsla möguleg. Uppl. i
sima 21705 milli kl. 6 og 8 næstu daga.
GLEYMIÐ EKKI GEÐSJÚKUM
Leggið Kiwanis lið
og beriö merki dagsins
Tekið á móti framlögum á póstgóróreikning 32331
VISIR flytur nýjar fréttir
Vísiskrakkamir bjóða fréttir sem
skrifaðar voru 2 'A klukkustund fyrr.
■ VÍSIR fer í prentun kL hálf-eliefu að
morgni og er á götunni klukkan eitt.
I' Fyi’stur með
■ '■ fréttimax
VISIR