Vísir - 31.10.1974, Síða 1
VÍSIR
64. árg. — Fimmtudagur 31. október 1974 — 215. tbl.
Port Vale kominn að
Togarinn Port Vale var dreg-
inn af strandstað við ósa Lagar-
fljóts á miðnætti i nótt. Fyrr um
daginn höfðu vitaskipið Arvak-
ur og varðskipið Ægir togað I
hann i sameiningu, en slitið all-
ar taugar.
A flóðinu rétt um miðnætti
tókst þeim þó að losa um togar-
ann og draga hann á flot. Hann
var^Iðan tekinn i tog og dreginn
til Seyðisfjarðar. Þar liggur
hann nú við bryggju og verður
afhentur eigendunum.
Ekki hafa skemmdir verið
kannaðar, en er togarinn var
dreginn til Seyðisfjarðar höfðu
bryggju
dælur varðskipsins vel undan
við að dæla sjó úr togaranum.
Við strandið flæddi sjór yfir vél
ina og er hún þvl ógangfær. Trú-
lega verður togarinn dreginn ut-
an eftir helgina og er nú norskur
dráttarbátur á leið til landsins I
þeim tilgangi.
—JB
MSBB
ITALSKAR
NUNNUR
OPNA
DYRNAR
— Sjá bls. 6
LÆKNAR
NIXONS
GAGN-
RÝNDIR
— Sjá bls. 5
©
200 þúsund
krónur boðnar
í bílflakið
— baksíða
Innflutningur
ýmissa vara
frjáls frá nœstu
áramótum
— baksíða
Komu seint
og staflast
upp
- bls. 3
Kröfurnar á nœsta leiti?
— Sambandsstjórnarfundur Alþýðusambandsins um helgina,
og hœgt að boða verkföll frá og með morgundeginum
„Verkalýðsfélögin En það er sambands-
hafa ekkert tilkynnt stjórnarfundur Alþýðu-
okkur um kröfur sinar. sambandsins nú um
mánaðamótin, og þá
verða þessi mál rædd
ásamt öðrum málum,”
sagði Snorri Jónsson,
varaforseti Alþýðusam-
bandsins, i viðtali við
blaðið i gær.
Snorri sagði, að á þennan fund
kæmu 50 til 60 fulltrúar verka-
lýðsfélaga af öllu landinu. Hann
sagði, að fundurinn væri yfirleitt
haldinn um þetta leyti árs.
Um 70 verkalýðsfélög hafa sagt
samningum sinum lausum. Frá
og með morgundeginum geta þau
allflest boðað verkfall með viku
fyrirvara. En þrátt fyrir að þau
hafitryggtsér þetta tromp, bólar
ekkert á kröfugerðum.
„Nei, við höfum engar kröfur
fengið frá verkalýðsfélögunum,
og við rekurn örugglega ekki á
eftirsliku”, sagði Ólafur Jónsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, er blaðið hafði
tal af honum.
„Nú, og meðan ekkert sérstakt
gerist, þá verður unnið eftir
gömlu samningunum, með þeim
láglaunabreytingum, sem lög-
festar voru”, bætti hann við.
„En það er ljóst, að atvinnu-
vegirnir eru ekki I þeirri aðstöðu
að geta samið um launabætur
núna,” sagði Ólafur.
-ÓH.
í miðri olíukreppunni:
Hagstœðari
olíusamningar
en í ár
— Kaupum á nœsta ári olíuvörur af
Rússum fyrir nœr sex milljarða
,,l>að er óhætt að segja, að
samningarnir, sem gerðir hafa
verið við Rússa um oliukaup á
næsta ári, séu hagstæðari en áð-
ur,” sagði Björgvin Guðmunds-
son, deildarstjóri i viðskipta-
ráðuneytinu I viðtali við VIsi I
morgun.
„Eitt mikilvægasta atriðið er
það, að nú skuli falla niður hálft
prósent yfirgreiösla á gasoliu og
benzíni, sem I gildi var I ár,”
sagði Björgvin.
„Það munar um minna. Þetta
er geysilega mikill samningur,
bæöi að magni til og verömæti,”
hélt hann áfram. Og gaf síðan
upp tölur I þvl sambandi:
„1 þessum samningum milli
viðskiptaráöuneytisins og rúss-
nesku oliusölunnar, N.A.F.T.A.,
sem undirritaöir voru I Moskvu
á föstudaginn 1 siðustu viku, er
samið um kaup á 300 þúsund
tonnum af gasolíu, 100 þúsund
tonnum af fuelollu og 80 þúsund
tonnum af benzlni. Verðmæti
þessa magns erum 50 milljónir
dollara.eða lauslega umreiknað
i kringum sex milljarðar is-
lenzkra króna. Verð á öllum
tegundum er miöað við
skráningar á heimsmarkaði án
yfirgreiðslu, eins og að framan
greinir.”
Ollukaupin eru alltaf lang-
stærsti liður viðskipta okkar við
Rússa og til viðmiðunar má
geta þess að á siöasta ári flutt-
um við inn vörur frá Sovétrlkj-
unum fyrir rúma tvo milljarða á
meðan útflutningurinn nam
ekki nema rúmum 900 milljón-
um. Af tveim milljörðunum
voru liðlega 1600 milljónir
greiddar fyrir olluvörur.
— ÞJM.
Stöðumœlar aftur
á Laugaveginn?
— baksíða
Mól að huga að ís og hólku
ökumenn voru þakklátir Jóni Múla I morgun, þegar hann varaði þá
við ísingu á götum borgarinnar og i nágrenninu. Sem betur fór, var
þetta þó ekki verulegt og viða aðeins bleyta. En þegar Bj. Bj. tók
meðfylgjandi mynd fyrir VIsi, var meiri alvara á ferðum, Isinn
var andheldur og engin rigning. En nú er kominn sá timi, að huga
þarf að is og hálku, og heldur var veðurspáin kuldaleg i morgun:
skúrir eða slydduél.