Vísir - 31.10.1974, Side 5

Vísir - 31.10.1974, Side 5
Vísir. Fimmtiidágur '31. október 1974. 5 / ^UTER í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND U msjón Haukur Helgason AUGA FYRIR AUGA Tveir menn voru myrtir og tveir unglingar særðust skotsár- um, annar alvarlega á Norður-ír- landi i gærkvöidi. Þá hafa 17 mótmælendur og kaþólikkar látið lifið, siðan IRA myrti dómara i Belfast fyrir mánuði. Lögreglan segir, að maður, sem var mótmælendatrúar, hafi veriðmyrtur i gærkvöldi i eldhús- inu á heimili sinu. Einu skoti var skotið gegnum gluggann. Kona hans var að elda kvöldmat. Lik manns iannst i London- derry i aftursæti i bifreið, sem hafði verið komið með á bensin- stöð nokkru áður. ökumaðurinn kom sér burt, og sprenging varð i bilnum. Seint i gærkvöldi var skotið á tvo kaþólska unglinga, 14 og 18 ára. Maður hringdi til blaða og sagði, að þetta hefði verið hefnd fyrir morðið á manninum i eld- húsinu fyrr i gærkvöldi. Sjóliðar gerðu órós og björguðu gíslunum 105 STUNDA VÍTI ENDAR Fimmtán sjóliðar réðust snemma i morg- un inn i kapelluna i Scheveningen-fangels- inu til að handtaka fangana fjóra og 15 gisla þeirra. Sjóliðarnir öskruðu og skutu upp i loftið til að skelfa fangana, sem voru vopnaðir. Þessu úr- valsliði hollenzka hersins tókst þannig að binda enda á 105 klukkustunda fangauppreisn án blóðsúthellinga. Kees Peyster lögreglustjóri i Haag segir, að einn fanganna hafi reynt að skjóta, en hann hafi misst kjarkinn, þegar margir sjóliðanna, sem eru hávaxnir menn sérstaklega þjálfaðir i návigi, skutu yfir höf- uð hans. Peyster sagði á blaðamanna- fundi, að sjóliðarnir mundu hafa drepið fangana, ef þeir hefðu skotið. Arásin var gerð kl. 4 að staðartima. Hermennirnir munu hafa notað logsuðutæki og soðið sundur læsinguna á kap- ellunni. Yfirmaður i lögreglunni skýrði frá þvi, að þetta hefði verið i annað sinn, sem sjóliðar reyndu að frelsa gislana. Þeir hefðu laumazt upp að hurð kapellunnar snemma á miðvikudagsmorgun og reynt að brjóta upp en flúið, þegar fangarnir heyrðu hávaða og urðu varir um sig. Hurðin var lokuð innan frá og lykillinn i. Fangarnir voru vopnaðir tveimur skammbyssum, og þeir höfðu nokkra hnifa. Gislarnir virðast hafa sætt sæmilegri meðferð. Þeir fengu mat og drykk reglulega, meðan samningaviðræður stóðu yfir milli stjórnvalda og uppreisnar- manna. Báðir aðilar lögðu jafnan áherzlu á, að þeim lægi ekkert á. Upphaflega voru gislarnir 22, en sjö voru siðan látnir lausir. Siðast höfðu fangarnir sleppt hjartveikum manni, 61s árs. Fangarnir höfðu krafizt þess að fá flugvél til að komast burt, en stjórnvöld töfðu málið, með- an árás hermanna var undirbú- in. Flugvélarræninginn Nuri vildi einnig, að fyrrum félagi hans, Tanima, slægist i hópinn. Tanima var i fangelsissjúkra- húsinu eftir að hafa verið i hungurverkfalli. Hann sagðist hins vegar vilja afplána dóm sinn. Þessi afstaða olli ringulreið hjá uppreisnarmönn- um, og við það fengu stjórnvöld meiri tima til að ráða ráðum slnum. Japönum gekk betur Þetta var annað málið af þessu tagi i Hollandi á sex vikna timabili. Þrir japanskir vinstri sinnaðir skæruliðar héldu 11 manns, meðal þeirra sendi- herra, gislum i franska sendi- ráðinu i 100 klukkustundir. Þeir fengu að fara brott i flugvél og fóru til Sýrlands. Fangarnir virðast hafa haft þetta sem fyrirmynd. FRJÁLSIR Gislarnir frjálsir og kátir I morgun. Lengst til hægri er stjórnandi kórsins i kapellunni i Scheveningen, Ton van Nunspeet. Myndin er tekin, þegar gislarnir óku brott frá fangelsinu I strætisvagni. Nixon áfram í lífshœttu Lœknar sœta gagnrýni Nixon var enn í lifshættu i morgun. Blóðþrýstingi og starf- semi hjartans er haldið í horfinu með tækjum á gjörgæzludeild Memoriai sjúkrahússins i Long Beach (Langasandi), og flokkur sérþjálfaðra hjúkrunarkvenna leggur nótt við dag til að bjarga lifi hans. Sumir telja, að Nixon skorti lifsvilja. Ron Ziegler, sem var blaðafull- trúi Nixons, er hann var forseti, og er enn starfsmaður Nixons, sagði við fréttamenn: ,,An efa var Nixon nærri látinn i fyrra- kvöld.” Margir hringdu til sjúkrahúss- ins og buðu blóðgjafir eða sendu Nixon beztu kveðjur og óskir um bata. Blóm streymdu til sjúkra- hússins og heimilis Nixonfjöl- skyldunnar við Kyrrahaf, en það er 80 km fyrir sunnan sjúkrahús- ið. Fólki var sagt, að ekki þyrfti blóð. Einungis nánustu ættingjum Nixons, svo sem konu hans og tveim dætrum, var leyft að koma inn I herbergið. Hann er eini sjúk- lingurinn á efstu hæð i sjúkrahús- inu, sem er sjö hæðir. Talsmaður einkalæknis Nixons, dr. Lungrens, varði lækna i gær fyrir gagnrýni i sjónvarpsþætti i New York. Gagnrýnendur sögðu, að læknarnir hefðu ekki skeytt um einkenni blæðinga, sem áður hefðu komið fram, og þeir hefðu sett of stóra klemmu á ranga æð til að stöðva hreyfingu blóðtappa. Talsmaðurinn sagði: „Það er mjög erfitt að taka ákvörðun i fjarlægð.” Læknarnir, sem höfðu með Nixon að gera, hefðu vitað bezt. Dr. Lungren og skurð- læknarnir hefðu haft aðgang að niðurstöðum margs konar rann- sókna og skýrslum um heilsufar Nixons. Þrir skurðlæknar stóðu að þvi á þriðjudaginn að láta klemmu á æð i vinstra læri ofarlega til að hindra rás blóðtappans, sem þeir höfðu fundið daginn áður. En einn sérfræðingur heldur þvifram, að venjulega sé klemm- an sett i æð i maga til að stöðva blóðtappa i fótum og nára. Hann segir, að með aðferð sinni hafi „það komið yfir læknana, sem þeir hafi helzt viljað varast.” Suður-Afríku bjarg- að á elleftu stundu Verður kyn- þáttastefn- unni breytt? Aðild Suður-Afrlku að Samein- uðu þjóðunum var bjargað með þreföldu neitunarvaldi, hinu fyrsta af þvi tagi i sögu samtak- anna. Ekki hefur verið bitið úr nálinni, þvi að fulltrúar Afriku- rikja á Allsherjarþinginu ætla að beita nýjum aðferðum. Meirihlutinn i öryggisráðinu samþykkti i gærkvöldi brott- rekstur Suður-Afriku, en Banda- rlkin, Bretland og Frakkland beittu þá neitunarvaldi. Fundur- inn var hinn mesti æsingarfund- ur. Tiu riki vildu brottrekstur, en tvö, Austurriki og Costa Rica, greiddu ekki atkvæði. Afrikufulltrúar voru reiðir yfir afstöðu Vesturveldanna. Þeir Ihuga, hvort bera skuli fram til- lögu á Allsherjarþinginu um að banna fulltrúum Suður-Afriku að taka þátt i störfum þess það, sem eftir er af fundartíma nú. Fund- um á að ljúka 17. desember. Allsherjarþingið hafði sam- þykkt hinn 30. september að visa á bug aðild fulltrúa S-Afriku og skjóta málinu til öryggisráðsins. Frá þeim tima hafa fulltrúarnir ekki mátt greiða atkvæði. Sendi- herra Suður-Afriku, Roelof Botha, er sagður munu fara heim til að sannfæra stjórn sina um nauðsyn á breytingum i stjórnar- fari, til að halda megi aðild að S.Þ. Nú er helzt talið, að stjórnin geti faiiizt á að breyta nokkuð til i kynþáttamálum við að halda sæt- inu. Menn óttast, að með brott- rekstri muni Suður-Afrika einangrast og samband versna jafnvel við gamlar vinaþjóðir. TÍTO FAGNAÐ Danir hafa tekið vel á móti Titó Júgóslaviuforseta, sem nú er þar I opinberri heimsókn. Blöð hafa lýst honum sem afreksmanni frá þeim timum, er hann stjórnaði skæruliðum I baráttu við nasista. Danska stjórnin vill efla samskiptin við hið óháða kommúnistariki. — Hér heilsar Margrét drottning upp á Titó við komuna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.