Tíminn - 05.05.1966, Síða 1
Augiýsing 1 Hmanuro
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda
Þessi mynd var tekin i upphafi fundarins af nokkrum hluta fundargesta í Súlnasalnum. Þá þegar var orðiS fullt út úr dyrum,
(Tímamynd GE)
EJ—TK—Reykjavík, miðv.dag.
Hinn fjöimenni og glæsilegi
kjósendafundur B-listans í
Súlnasalnum á Hótel Sögu í
kvöld, sannaði eftirminnilega,
að straumurinn liggur nú til
Framsóknarflokksins, og að
kjósendur hafa hug á að efia
hann mjög í borgarstjórnar-
kosningunum 22. maí. Á fund-
inum héldu sjö efstu framfcjóð
endur Framsóknarflokskins í
Reykjavík ræður — Einar
Ágústsson, Kristján Benedikts
son, Sigríður Thoriacius, Oð iin
Rögnvaldsson, Guðmundur
Gunnarsson, Gunnar Bjarna-
son og Kristján Friðrikssor.
Var mjög góður rómur gerður
^ að máli þeirra, og á fundinum
kom í ljós ákveðinn ásetninguv
Framsóknarmanna um að efla
flokkinn sem mest í borginni
og vinna ötullega og skipulega
að hagsmunamálum borgar-
anna í heild.
aukna varmaöflun, nýja hafnar
gerð, m. a. fyrir smábáta, á-
samt betri nýtingu og skipu-
lagi í gömlu höfninni, auknar
skólabyggingar og betra fyrir
komulag fræðslumála, sjúkra-
hús og heilsugæzlu, velferðar-
mái aldraðs fólks, aðstoð við
vangefna, öflugan stuðning við
listir, fegrun borgarinnar,
barnaheimili og leikskóla,
íþróttalíf og tómstundastarf
ungmenna, svo nokkur atriði
séu nefnd.
Einar sagði í lok ræðu sinn
ar m. a., að Sjálfstæðisflokkur
inn hefði nú stjórnað borginni
í áratugi og væri farinn að líta
á borgina sem eign sína. Svo
löng og örugg meirihlutaað-
staða gerir þá makráða og
ósamvinnuþýða, sem m. a. kem
ur fram í því að neita sjálf
sögðum kröfum minnihluta-
flokkanna um bætta vinnuað-
stöðu. Reykvíkingar eiga nú
þess kost að vekja þennan
flokk af værðarblundinum með
því að minnka meirihluta hans
og helzt eyða honum alveg. Við
sem erum í kjöri fyrir Fram-
sóknarflokkinn biðjum Reyk-
víkinga að kynna sér stefnu-
mál okkar og málflutning. Við
treystum því að heilbrigð dóm
greind fái að ráða atkvæðum
manna á kjördag og kvíðum
ekki þeim dómi.
Kristján Benediktsson, kenn-
ari, ræddi um borgarmálin al-
mennt og starf borgarstjórnar
á síðasta kjörtímabili. Hann
ságði, að greinilegt væri nú,
að Framsóknarflokkurinn hefði
mikinn byr í seglin í borginni.
Ástæðurnar fyrir því, væru
fyrst og fremst þrjár.
í fyrsta lagi, þá væri það
aukin kynning á flokknum og
baráttumálum hans meðal borg
arbúa. í öðru lagi óvinsældir
og ráðleysi ríkisstjórnarinnar,
og í þriðja lagi málefnabarátta
Framsóknarflokksins í borgar
stjórn.
Kristján vék síðan að ýmsum
borgarframkvæmdum, og benti
á það, sem fyrst og fremst
hefði farið aflaga hjá íhalds-
meirihlutanum. Hann sagði, að
mikill skortur væri nú á skóla
húsnæði í borginni, og eins á
dagheimilum og leikskólum.
Hann benti á, að Öitaveitan
væri í hinum mesta ólestri í
gamla bænum, og þar væni
ekki fyrirhugað að gera neitt
til úrbóta. Mikill hluti borgar
búa byggi enn við moldargöt-
ur, og þó væru gangstéttalagn-
ir enn skemur á veg komnar.
Þá sagði Kristján, að sam
kvæmt skýrslum borgarlæknis
væru í dag á annað hundrað
íbúðir í borginni óíbúðarhæfar,
og álíka mikið af húsnæði væri
Framhald á bls. 13.
Einar Ágústsson ræddi ai-
mennt um borgarmálin og
gerði grein fyrir stefnumálum
Framsóknarmanna. Einar
sagði, að Framsóknarmenn
myndu leggja áherzlu á að
knýja fram meiri sparsemi og
hagsýni í rekstri borgarinnar
og fyrirtækja hennar, stuðning
við atvinnuvegi borgarinnar,
skipulagsmálin og samstarf við
grannsveitarfélög um þau, hús
næðismálin með hliðsjón af
nýjungum er lækkað geti bygg
ingarkostnað, úrbætur í lóða
málum, varanlega gatnagerð
með tilheyrandi gangstígum,
endurbætur á hitaveitunni og
Ræðumenn á fundinum: Tallð frá vinstri, Guðmundur Gunnarsson, Gunnar Bjarnason, Anna Tyrfingsdóttir, fundarritari, Jóhannes Elíasson,
fundarstjóri, Kristján Benediktsson, í ræðustól, Óðinn Rögnvaldsson, Sigríður Thorlaeius, Einar Ágústsson og Kristján Friðriksson.