Tíminn - 08.05.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.05.1966, Blaðsíða 1
BLAÐ II ‘jHÍftfWwmh.irf."; Höröustu gagnrýnendur stefnu Johnsons Bandaríkjaforseta í Víetnammálinu. 'F. v. James Gavin, hershöfðingi, George Kennan, fyrrverandi amdassador Bandaríkjanna f Moskvo, og William Fulbright, öldungadeildarþingmaSur og formaöur utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings. Bandarískir andstæðingar stefnu Johnsons í Vietnam: HVER SEGIR AÐ GUD SE BANDARIKJAMADUR Bandaríska tímaritið LIFE birti fyrir skömmu grein, þar sem lýst er skoðunum þeirra Bandaríkjamanna, sem andvíg- ir eru stefnu Johnsons forseta og ráðherra hans í Víetnam. Birtist þessi grein hér á eftir, nokkuð stytt. Vafalaust „styðja“ flestir Bandaríkjamenn forseta sinn í Víetnammálinu. Bandaríska þjóðin hefur alltaf, með örfá- um undantekningum, stutt for- seta landsins í styrjöldum og þær' erfiðu ákvarðanir, sem hann einn verður að taka sem æðsti maður herafla landsins. En þessa stundina eru að- gerðir Bandaríkjastjórnar í Víetnam aftur á móti alvarlega teknar til umræðu. Þeir, sem ekki eru sammála stefnu og markmiðum Bandaríkjastjórn- ar í Víetnam, láta til sín heyra með hárri og hvassri röddu og hafa komizt að raun um, að þjóðin öll hlustar af athygli. Aðal „leiksvið" þeirra síðustu vikurnar hefur verið Utanríkis- málanefnd Öldungadeildar Bandaríkjaþings. Á fundum nefndarinnar, sem hefur verið sjónvarpað hafa nefndarmenn tekið til rannsóknar fram- kvæmd styrjaldarinnar í Víet- nam, efast um viturleika að- gerða stjórnarinnar, dómgreind þeirra manna, sem tóku ákvarðanir um þessar aðgerðir — og jafnvel dregið í efa, að þær séu löglegar samkvæmt stjórnarskránni. Hvar, er til dæmis spurt, rekst vald forsetans tii a»? fram kvæma striðsaðgerðír á það vald, sem þingið hefur sam- kvæmt stjórnarskránni, að lýsa yfir stríði á hendur öðrum að- ila? Þingið hefur ekki lýst yfir styrjöld í Víetnam — né held- ur hefur forsetinn farið fram á, að þingið gerði það. Ætluðu öldungadeildar - þingmennirn- ir (88 gegn 2) og fulltrúadeild- arþingmennirnir (414 gegn 0), sem greiddu atkvæði með sam- eiginlegri þingsályktunartil- lögu 7. ágúst 1964, þar sem for- setanum var falið „að gera all- ar nauðsynlegar ráðstafanir . .“ að gefa forsetanum vald til þess að senda hálfa milljón Bandaríkjamanna til Víetnam? William Fulbright, öldunga- deildarþingmaður frá Arkans- as, formaður Utanríkismála- nefndarinnar, greiddi atkvæði með ályktuninni. í dag sér hann eftir því. Yfirheyrslurnar í þinginu hafa haft athyglisverðar afleið- ingar. Áður fyrr hafa forsetar landsins — Wilson og Franklin Roosevelt t.d. — valið að leiða málefni, sem varða utanríkis- stefnuna fram hjá þinginu og taka þau beint til þjóðarinnar með misjöfnum árangri. Nú hef ur Fulbright þingmaður leitt Víetnam-málið fram hjá forset- anum og tekið það beint til fólksins. Árangurinn er um- fangsmikil „lands-umræða“ um stefnu Bandarikjanna í utan • ríkismálum og í Víetnammál- inu sérstaklega. Og umræðurn- ar urðu enn heitari, þegar and- stæðingar stjórnarstefnunnar notuðu yrirheyrslurnar í sam- bandi við fjárveitingar til her- mála fyrir árið 1967 til þess að láta álit sitt á Víetnam í ljósi. Það, sem fyrirheyrslur Ful- brights hafa fært á ská — og inn f setustofur Bandarfkja- manna — er greinileg og að- gengileg framsetning þeirra efasemda, sem margar milljón- ir Bandaríkjamanna hafa um langan tíma borið í huga — þegjandi. Efasemdir um mögu- leika á sigri, um það hvort skilyrði stjórnarinnar í sam- bandi við hugsanlega friðar- samninga séu ef til vill óraun- hæf. Efasemdirnar vaxa eítir því sem listi fallinna Banda- ríkjamanna stækkar — á þriðja þúsund. bandarískir hermenn hafa þegar verið drepnir, þús- undir í viðbót særðir. f þessari grein verður ekki rætt um þá, sem öfgafyllstir eru — þá sem eru svo andvígir flest öllu í þeirra eigin landi, að þeir fagna öllu því, sem andstæðingarnir gera. Grein- in fjallar um þá þenkjandi bandaríska ættjarðarvini, sem eru andvígir stefnu stjómarinn ar í Víetnam-málinu. Skoðanir þeirra snúast að vissu leyti um yfirlýsingar velþekktra mann.a: ★ Hans J. Morgenthau, pró- fessor í stjórnmálavísindum við háskólann í Chicago og helzti málsvari þeirra menntamanna, sem andvígir eru Víetnam- stefnu Bandaríkjastjórnar: — „Þessi styrjöld hefur engan skynsamlegan pólitískan til- gang.“ ★ Walter Lippmann, dálka- höfundur. Það, sem hann skrif- ar, hefur fast að því jafn mikil áhrif í Evrópu og opinberar yfirlýsingar utanríkismálaráð- herra Bandaríkjanna: — „Ég get ekki að því gert, að mér finnst, að það væri góð sið- ferðileg fjárfesting, stoltrar og voldugrar þjóðar, að sýna al- menna skynsemi." ★ James M. Cavin, hershöfð- ingi, sem nú hefur dregið sig í hlé, lengi talinn einn bezti „hernaðarheili" þessarar þjóð- ar: — „Við höfum aukið hern- aðaraðgerðir okkar samkvæmt vilja andstæðinga okkar, frekar en í samræmi við eigin dóm- ' greind.“ ★ George Kennan, prófess- or við Princeton, verðlaunað- ur sagnfræðingur, fyrrverandi ambassadör í Rússlandi og Júgó slavíu og höfundur þeirrar stefnu, að „stöðva kommún- ismann“ í Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina: — „Ef við værum ekki svo flæktir inn í átökin í Víetnam nú og raun ber vitni um, gæti ég ekki séð neina ástæðu til þess, að við ættum að óska eftir að verða það og ég get bent á ýmsar ástæður fyrir að óska hins gagn stæða." Slíkar yfirlýsingar hafa vak- ið bál í hugum margra Banda ríkjamanna frá Capitol Hill lil Puget Sound. Hér á eftir eru skoðanir þeirra settar fram með þeirra eigin orðum. Þar sem skoðanir þeirra eru sam- andregnar, hefur slíkt verið gert á hlutlausan hátt — eins og þeir myndu sjálfir gera það. Andstaðan skiptist í fjóra þætti. „Ástandið i Víetnam hefur yfir sér blæ borgarastyrjaldar innfæddra," segir John S. Knight, 71 árs, útgefandi blaðs ins Miami Herald og íim-n annarra dagblaða. — „Það finnast kommúnistísk blæ- brigði, en Vietcong er einna helzt innblásin af þjóðernistil- finningu. Það var þessi tilfinn- ing, sem kom Víetnötnum til að berjast gegn Japönum. einn ig Frökkum . . Eg tel, að hvíti maðurinn sé ekki lengur ráðandi afl í Asíu.“ Knight telur þannig. að styrj öldin í Víetnam sé bylting, gerð af Víetnömum. Þessi full- yrðing hafnar þvi, að það sé „nakin árás kommúnista" sem sé orsök allra vandamála þar. Þessi kenning hafnar einn- ig „dómínó-kenningunni“ — þ.e.a.s., að ef Suður Víetnam fellur, þá muni öll Suðaustur- Asía falla í hendur kommúnista — og fullyrðingunni um, að nauðsynlegt sé „að draga línu í Asíu.“ því annars muni Kína leggja undir sig nágrannaríki sín eitt af öðru. Grundvallar- atriði í afstöðu Knights er að spurningin um býltingar í Asíu sem annars staðar sé frek ar komin undir ástandinu inn- anlands en þrýstingi utan að. Þýðingarmikið atriði þessar- ar afstöðu er, að Bandaríkj- unum hafi mistekizt að nota vald sitt á viturlegan hátt, tjl þess a ðstöðva kommúnisma- ann með því að bæta lífskjör- in í vanþróuðum ríkjum Asíu. „Engin mistök eru svo gagn- ger,“ segir demókratinn Frank Church frá Idaho, sem á sæti í utanríkismálanefndinni, „eins og að reyna að flytja reynslu okkar í Evrópu yfir í Asíu, þar sem nýlendukúgun hvítra manna er enn í fersku minni. Sú kenning, að kommúnismi sé einlitt kerfi, sem hat'i eitt takmark, er úrelt. Kommún- istablokkin er að klofna. Það ætti að vera stefna okkaa að flýta fyrir þeirri þróun.“ „Kenningin um. að draga eigi línu gegn kommúnistískri árás, hefur litið gildi. í Evrópu rópu stóðum við andspænis fjölmennum her Rússa. Við svöruðum með NATO og dróg- um línu. En ríkin þar — sem við eigum sameiginlegan menn- ingararf með — höfði nægilega einingu innanlands, og and- stöðu gegn kommúnismanum, til þess að mynda sameigin- lega fylkingu. í Suðaustur-Asíu stöndum við andspænis bylt- Framhald á bls 19.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.