Tíminn - 08.05.1966, Side 8

Tíminn - 08.05.1966, Side 8
SUNNUDAGUR 8. maí 1966 24 TÍMINN !?:**!*; j>Íií|jÍHl|mil 'lnn"l'H ,;i Séð af Skólavörðuholti. Tímamynd—GE „Þetta var eintómur kuldi77 Sólskinsdag fyrir skönunu lögðum við leið okkar um Skólavörðuholtið. Okkur lang- aði til að ræða við nokkrar hús- mæður, sem þar búa um líf þeirra vandamál og áhugaefni. Síðastliðinn vetur gengu í bæn um margskonar sögur um, að þeir Holtsbúar ættu yið ýmsa erfiðleika að etja. Sagt var, að fólk svæfi dúðað, klætt í peys- ur og jafnvel frakka. Enginn hiti væri húsunum, ekkert vatn í krönunum, og heimilis- aðstæður á margan hátt hin- ar erfiðustu. Sumir héldu, að þessar sögur væru úr lausu lofti gripnar og vildum við því kanna, hvað hæft væri í því. Á Baldurgötu 37 býr Hrefna Jónsdóttir. Við spyrj- um hana hvemig sé að vera húsmóðir. — Mér líkar það vel. Oft er það mjög gaman, þótt reyndar fylgi því mikið erfiði, sérstak- lega meðan börnin eru yngri. Það þarf töluverða skipulags- hæfni og eiginleika til spar- semi til að reka heimili nú á dögum. Sérstaklega er erfitt að klæða mörg börn. Fatnaður er allur mjög dýr. Ég geta varla ímyndað mér, að fólk, sem hef ur bara venjulegar tekjur og þarf að leigja sér húsnæði og þar af leiðandi að borga dýra húsaleigu, geti látið þessi laun hrökkva. Leigan er orðin hrein lega óhugnanlega há. Ungt fólk, sem stundar nám, get- ur varla haft efni á því að taka sér íbúð á leigu, ef það þá á kost á að fá einhverja. Það reynist hins vegar mörgum mjög erfitt — Hvernig fer unga fólkið þá að? — Ég veit það svei mér ekki. Námsstyrkir eru ekki miklir. Hrefna Jónsdóttir Tekjur mannanna meðan þeir eru við nám eru varla telj- andi. Flestir reyna víst að leysa málið með því að konan fer að vinna úti. Oft er hins vegar erfitt að koma því við, þar eð hvergi er rúm fyrir börnin. Bamaheimili eru fá og taka aðeins við börnum á viss- um aldri. Sumir neyðast því til að leita á náðir foreldranna. — Brást hitaveitan oft í vet- ur? — Það er nú varla hægt að segja að við hefðum neina hita veitu hér i vetur. Þetta var bara eintómur kuldi. Það er langt síðan ég hætti að búa við hitaveitu á veturna. Ég hef verið hér í 17 ár og hef alltaf þurft að stríða við kuldann á vetuma. Það er sérstaklega hugsunarlaust hjá borgaryfir- völdunum að láta þennan vatns skort alltaf koma niður á sömu hverfunum hérna og á Landa- kotshæðinni. Það má sannar- lega þgfcka fyrir, að við íbú- amir hérna á Holtinu erum hraust að eðlisfari, annars hefð um við afalaust orðið úti í kuldanum. Það er mjög alvar- legt mál, að láta barnafjöl- skyldur búa við slik skilyrði. Skortur á hita er mjög hættu- legur heilsu þeirra. Við höf- um orðið að kappklæða okkur í allt, sem við gátum fundið til að halda á okkur hita. Þar að auki urðum við svo að kynda með rafmagni. Reyndist það mjög kostnaðarsamt og dýrt til lengdar. Á Þórsgötu 17 býr Þóra Þor- valdsdóttir. Hún á við ýmsa erfiðleika að etja og fræðir okkur um nokkra þeirra. — Við verðum að hafa þvottahús upp á efstu hæð. Gallinn við það er einfaldlega sá, að nvorki heitt né kalt vatn nær upp á hæðina. Ég neyð- ist. því til að þvo ýmislegt smávegis í eldhúsinu og senda síðan hitt i þvottahús. Þeir era nú alltaf að lofa okkur bót og betran, segjast bæta úr þessu hvað úr hverju, en það virðist nú ekki ganga greitt hjá þeim. — Var ástandið slæmt í vet- ur? — Sannarlega. Um leið og frostið var orðið 2 eða 3 gráð- ur var vatnið farið. Við neydd- umst til að kolakynda, urðum að standa allan daginn og moka í ofninn. Sama daginn og þeir hvöttu fólk í útvarpiu til að kynda kolum, kom auglýsing um verðhækkun á kolum. Mér finnst þeir hefðu nú frekar átt að greiða kolin niður, fyrst Þóra Þorvaldsdóttir ástandið var svona slæmt. Það er gífurleg vanlíðan samfara þvi að sitja kulda dag eftir dag. Einnig hafa sumir orðið fyrir miklum útgjöldum vegna þessa hitaleysis, þar eð ofnar hafa sprangið. — Á ekkert að gera til úr- bótar? — Ég veit það ekki. En það þarf nauðsynlega að endur- nýja þessar elztu lagnir bæn- um. í nýju hverfunum virðist vera nægilegt vatn og góður hiti svo ég tel að við hér gömlu hverfunum ættum að geta búið við sömu skilyrði. Séu pípumar orðnar gamlar og úreltar þarf nauðsynlega að endurnýja þær. Hlín Guðmundsdóttir. Hún hef ur búið hér í rúm 3 ár. Hún ur búið hér rúm 3 ár. Hún á 2 ung börn og viS spyrjum liana, hvemig sé að koma þeim fyrir á barnaheimilum. — Mér hefur reynzt það mjög erfitt, nánast ómögulegt nema um sérstaklegar fjöl- skylduaðstæður sé að ræða. Það er mjög bagalegt og nán- ast óskiljanlegt, að borgaryfir- völdin skuli ekki sjá okkur fyr- ir svo sjálfsagðri þjónustu eins og barnaheimilum. Ég hugsa, að við konurnar neyðumst kannski fyrir rest til að koma þessu upp sjálfar. Konur í hverju hverfi gætu til dæmis lagt sjóð og varið honum til stofnunar barnaheimila. Þörf- in á vöggustofum er líka mik- il. Það er til skammar, að þjóð með eins mikið af peningum eins og raun ber vitni, skuli ekki reisa svo sjálfsagðar stofn anir. — Var ekki erfitt, að hafa hér börn kuldanum vetur? — Jú, vissulega. Við höfðum varla hita á ofnunum í mest allan vetur. Þurftum að kinda með rafmagni, sem auðvitað varð okkur mjög dýrt.. Ekki sást deigur dropi úr krönum í langan tíma. Við þurftum oftast að bera vatnið í fötum Húsfreujur ö holtinu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.