Tíminn - 18.05.1966, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 18. maí 1966
2
TÍMINN
i
Hvað er gert fyrir unglingana ?
Með hverju ári verður það
meiri vandi að finna verkefni
handa unglingum borgarinnar
þá sumarmánaiði, sem þeir eru
ekki í skólum Fyrrum var til
á því nær algild lausn — að
koma þeim í sveit. Nú fækkar
í senn sveitaheimilum og þeim
verkefnum við landbúnaðar-
störf, sem henta börnum og
unglingum. Aðrir atvinnuvegir
geta ekki heldur tekið við nema
nokkrum hluta unglinganna og
sú vinna sem þeim býðst er
misjafnlega heppileg. Eiga
þessi ungmenni þá að ganga
iðjulaus í þrjá til fjóra mán-
uði? Eiga þau ekki að fá tæki-
færi til þess að læra og vinna
nytsamleg störf? Ég held, að
enginn dragi í efa uppeldisgildi
hóflegrar vinnu og ég tel það
mikilvægt, að fundin verði sem
fjölbreyttust og hagnýtust störf
fyrir unglingana. Það er óhjá-
kvæmilegt, að borgarstjómin
efli mjög þá starfsemi, sem
fram fer í Vinnuskóla Reykja-
víkur og að leitað verði sem
víðast eftir verkefnum við hæfi
unglinga.
Löngum var lífsbarátta á ís
landi svo hörð, að mikill hljóm
grunnur var fyrir því, að
skemmtunum manna ætti að
stilla mjög i hóf. En nú lif-
um við ekki á átjándu öld, þeg-
ar sr. Þorsteinn á Staðarbakka
skrifaði heila bók á móti viki-
vökum. Lýsing hans á dansin-
um, að hann fari fram „með
mörgum snúningum allt um
kring, með stappi aftur á'bak
og áfram, með hoppi upp og
niður, með hlaupum til og frá“
— gæti kannski enn átt við
um suma dansa, en hitt á ekki
lengur við, að banna skuli all-
an dans og gleðileiki. Sem bet-
ur fer eiga menn ennþá stund-
ir afgangs við og við frá brauð-
stritinu og flestir telja það æski
legt, að menn geti valið sér
skemmtanir og afþreyingu í
ýmsum myndum. Skemmtana-
þráin, leikþráin er eðlilega rík-
ust hjá æskunni. Nú hafa mál
skipast svo hér í Reykjavík, að
unga fólkið, einkum það, sem
hætt er í skólum og getur ekki
lengur sótt skemmtanir þang-
að með sínum félögum, það er
að verða útlægt frá þeim þætti
skemmtanalífsins, sem er hvað
vinsælastur dansskemmtunin
Langflestir samkomustaðir hafa
vínveitingaleyfi og þar er öll-
um innan tuttugu og eins árs
aldurs bannaður aðgangur. Sá
eiginlegi skemmtanaiðnaður
sér sér ekki hag í að halda
opnum skemmtistöðum fyrir
æskufólkið. Hann miðast fyrst
og fremst við hagnaðarsjónar-
mið.
Það eru léleg uppeldisáhrif
á unglinga að standa utan við
dyr samkomuhúsa og reyna að
svíkjast inn, reyna jafnvel að
falsa nafnskírteini sín til að
sýnast eldri en þeir eru. Æsk
an krefst í senn verkefna og
dægradvalar og sú borg, sem
ekki bíður henni hvort tveggja,
á mikið á hættu um þroska
hennar. Við verðum að gera
kröfur til þess, að bæði starfs
þörfin og leikþráin fái æski-
lega útrás, en umhverfist ekki
í andfélagslegar athafnir. Þess
um verkefnum getur borgar-
stjórnin ekki vikizt undan.
Og það verður að leggja
au.kna áherzlu á að laða æsk-
una til að stunda íþróttir og
bæta skilyrði tilíþróttaiðkana,
að hægt sé að kenna leikfimi
í skólum, eins og lögboðið er
Síðan Miklabrautin var mal
bikuð, er hún að sjálfsögðu
ein aðal skemmtigöngugata okk
ar Hlíðarbúa. Ennþá kemur að
Sigríður Thorlacius
vísu fyrir, að rykið gerizt helzt
til áleitið þegar vindar, bæði
þegar gengið er hjá listigarð-
inum okkar, þar sem moldin
hrannast á styttu Einars skálds
Benediktssonar, eða þar, sem
nýi miðbærinn okkar á að rísa.
Það var golugustur daginn, sem
ég mætti manninum, sem sagð-
ist ekki sjá annað en að sand-
græðslan yrði að fara að koma
til liðs við borgarstjórnina.
Sígríður Thorladus.
Orgelhljómleikar í
Kópavogskirkju á morgun
Fyrstu opinberir orgeltónleikar
í Kópavogi verða haldnir í Kópa-
vogskirkju á morgun, uppstign-
ingardag, 19. maí kl. 5 síðdegis,
og er það von forráðamanna safn-
aðarins, að þeir verði upphafið
að öflugu tónlistarlífi í tengslum
við kirkjuna, sagði frú Hulda Jak
obsdóttir formaður sóknarnefndar
við blaðið í gær
Það er Árni Arinbjarnarson,
ungur vel menntaður og snjall
organleikari, sem heldur þessa
hljómleika, og leikur á hið nýja
og vandaða orgel Kópavogskirkju.
Þegar kirkjubyggingin var vel
á veg komin árið 1962, tók safn-
aðarstjórnin þá ákvörðun að láta
smíða eins vandað orgel og völ
væri á, þrátt fyrir mikla fjárhags
örðugleika. Var ákveðið að fela
verkið orgelverksmiðju Alfred
Davies & Son í Englandi og var
organleikara kirkjunnar, Guð-
mundi Matthíassyni, falið að fylgj
ast með því. Orgelsmíðinni var
lokið í byrjun árs 1964 og kostaði
það um 600 þús. kr
Var orgelið síðan vígt við hátíð-
anmessu, sunnudaginn 26. apríl
1964 en þá lék dr. Páll ísólfsson
einleik á það.
Snemma árs 1964 var stofnaður
við kirkjuna Minningarsjóður Hild
ar Ólafsdóttur, er dó af slysförum
í Kópavogi 24 jan. 1963. Tilgang-
ur sjóðsins er að efla tónlistarlíf
við Kópavogskirkju með því að
greiða fyrir kaupum á orgeli til
kirkjunnar og með því að styrkja
tónleikahald í kirkjunni Stjóm
sjóðsins skipa skv. skipulags-
skránni formaður safnaðarnefnd-
ar, sóknarprestur og organleikari
kirkjunnar og hefur hún nú feng
ið Árna Arinbjarnarson til að
halda orgeltónleika í Kópavogs-
kirkjd.
Árni Arinbjarnarson er í hópi
færustu organleikara okkar. Hann
lærði orgelleik hjá dr Páli ísólfs-
syni við Tónlistarskólann í Reykja
vík og lauk þaðan prófi. Áður
hafði hann lokið prófi í fiðluleik
hjá Birni Ólafssyni. Var hann síð-
Framhald á bls. 11.
leiðrétting
Sú leiðinglega villa var í blaðinu
í gær í myndasíðu frá Sjómanna
deginum, að texti undir mynd af
róðrarsveit björgunarskipsins
Gfeda J. Johnsen misritaðist.
Mæðrablómið selt
á fimmtudaginn
KT-Reykjavík, mánudag
Næstkomandi fimmtudag hefur
Mæðrastyrksnefnd hina álegu sölu
mæðrablómsins og verður ágóði af
sölunni notaður til styrktar starf-
semi suimardvalarheimilisins Hlað
gerðarkots í Mosfellssveit eins og
verið hefur undanfarin ár.
Á fundi með blaðamönnum
sagði frú Jónína Guðmundsdóttir
formaður Mæðrastyrksnefndar, að
í sumar yrði væntanlega hafin
bygging nýrrar álmu við Hlað-
gerðarkot og ættu að vera þar
sex herbergi og stofa.
Hlaðgerðarkot hefur verið starf
rækt í tíu ár og hafa þar notið
sumardvalar 1640 mæður með nær
5000 börn. Auk þess hafa dvalizt
þar um 1600 konur á svonefndri
„sæluviku."
Mæðrablómið verður afhent sölu
börnum í barnaskólum borgarinn-
ar, ísaksskóla og að Njálsgötu 3
Árni Arinbjarnarson við orgeliö í Kópavogskirkju.
ENN DÆMT í MEIÐYRÐAMÁLI
Nýlega féll dómur' í bæjar-
þingi Reykjavíkur í máli, er
Benedikt Guttormsson banka-
fulltrúi höfðaði gegn Agnari
Bogasyni ritstjóra út af um-
mælum um hann í tveim blaða
agreinum, er birtust í Mánu-
dagsblaðinu hinn 7 og 21. sept
ember 1964. Þór Vilhjálmsson
borgardómari kvað upp dóm-
inn Þorvaldur Þórarinsson hrl.
flutti málið fyrir stefnanda en
Örn Clausen hdl fyrir stefnda.
Dómsorð hljóða þannig:
„Stefndi Agnar Bogason greiði
3.000 króna sekt í ríkissjóð og
komi varðhald í 7 daga í sekt-
arinnar stað, ef hún verður
ekki greidd innan 15 daga frá
lögbirtingu dómsins Ofan-
greind ummæli eru ómerk.
Stefni greiði stefnanda, Bene
dikt Guttormssyni, kr. 10000.-
í miskabætur auk 7% vaxta pa.
frá 30. desember 1964 til 1
janúar 1965, 6% vaxta frá þeim
degi til 1 janúar 1966 og 7%
vaxta p.a. frá þeim degi til
greiðsludags Þá greiði stefndi
stefnanda kr 2500- í birting-
arkostnað og kr 4.000,- í máls-
kostnað
Greiðslur þessar séu inntar
af hendi innan 15 daga frá
lögbirtingu dóms þessa að við-
lagðri aðför að lögum
Stefnda er skylt að birta dóm
þenna í Mánudagsblaðinu,
fyrsta tölublaði, sem út kemur
eftir lögbirtingu hans.“
Slæmt ástand
á Þjóðvegunum
GÞE-Reykjavík, þriðjudag
Fjallvegir eru margir ófærir
enn þá, og vegir víðast hvar í
slæmu ástandi Einna verst er
ástandið á Austurlandi, en þar er
öxulþungi takmarkaður við 5
tonn á öllum vegum utan leiðar-
innar frá Reyðarfirði til Eskifjarð
ar. Fjarðaheiði er fær öllum bíl-
um en Oddskarð er lokað.
Vegir á Suðurlandi eru í sæmi-
legu ástandi austur að Skreiðarár
sandi, en á leiðinni frá Hvolsvelli
í Skaftártungur er öxulþungi tak-
markaður við 7 tonn Snæfellsnes-
ið er fært öllum bílum, og sæmi-
leg færð er allt vestur að Þorska-
firði, en hins vegar eru vegir af-
ar Iélegir í Dölunum. Á leiðinni
frá Reykjavík til Akureyrar er að-
eins leyfður 7 tonna öxulþungi,
5 tonna öxulþungi er leyfður á
Siglufjarðarvegi, en Siglufjarðar-
skarð ófært, svo og Lágheiði. Fært
er frá Eyjafirði til Húsavíkur og
Mývatnssveitar, en vegir þar um
slóðir eru veikir og aðeins leyfð-
ur þar 5 tonna öxulþungi. Jeppa-
fært er frá Húsavík til Raufar-
hafnar.
Sjálfboðaliðar
Komið til starfa í hverfaskrifstofurnar, og á hverfamiðstöðina
á horni Laugavegs og Nóatúns í dag og næstu ddga.
Allir til starfa fyrir B-listann.