Tíminn - 02.06.1966, Síða 3
FIMMTUDAGUR 2. júní 1966
Laus ráðunautsstaða
Hjá Búnaðarsambandi Kjalarnesþings er laust
starf ráðunauts og framkvæmdastjóra. Óskað er
eftir manni með erlenda búnaðarháskólamenntun
og æskilegt er, að hann hafi góða tækniþekkingu
ásamt reynslu í rekstri hliðstæðra fyrirtækja.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist formanni sambandsins, Jóhanni
Jónssyni, Pósthólf 118, Reykjavík.
Hjukrunarkonur ðskast
í Landspítalajium er laus staða deildarhjúkrunar-
konu við lyflækningadeild. Þá er óskað eftir
hjúkrunarkonu við húðsjúkdómadeild. Allar upp-
lýsingar veitir forstöðukona Landspítalans á staðn
um og í síma 24160.
Reykjavík 1. júní 1966,
Skrifstofa ríkisspítalanna.
BYGGJENDUR - HÚSMÆÐUR
Önnur bezta eldhúsinnrétting frá Vestur-Þýzka-
landi, merki OSTA, verður til sýnis í Málaraglugg-
anum við Bankastræti dagana 1. til 13. júní.
Einkaumboð á íslandi: SKORRI HF.
Sölustjóri: Ólafur Gunnarsson.
Hraunbraut 10 — Kópavogi — Sími 4-18-58.
LÆKNARITARAR
Tvo læknaritara vantar hið allra bráðasta í Rann-
sóknarstofu Háskólans við Barónsstíg. Stúdents-
menntun eða sambærileg menntun æskileg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist forstöðumanni Rannsóknarstof-
unnar fyrir 10. júní n.k.
HÁRGREIÐS LUMEIST AR AFÉLAG
ÍSLANDS
AUGLÝSIR
Herra Egil W. Larsen, fyrrv. Evrópumeistari í
hárgreiðslu og herra H. Westergaard sérfræðing-
ur í hárlitun, koma frá L’oréal og sýna nýjustu
hárliti, vor og sumarhártízkuna í Súlnasal Hótel
Sögu.sunnudaginn 5. júní.
Matur framreiddur frá kl. 19.
Aðgöngumiðar seldir að Hótel Sögu, föstudag og
laugardag frá kl. 4—6 báða dagana.
Notið þetta einstaka tækifæri. Sýningin verður
ekki endurtekin.
Öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir
Móttökunefndin.
TÍMJNN
Auglýsing um réttindi
til hópferðaaksturs
Samkvæmt lögum nr. 73/1966 eru öll réttindaskír
teini til hópferðaaksturs, sem gefin hafa verið út
fyrir 1. júní 1966 úr gildi numin frá og með 3.
júní að telja, og falla þau réttindi, sem skírteinin
hafa veitt, niður frá þeim degi að telja.
Réttindi til hópferða'aksturs samkvæmt greindum
lögum verða veitt frá 4. júní 1966, og skulu um-
sóknir um þau sendar til Umferðarmáladeildar
pósts og síma, Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík.
í umsókn skal tilgreina skrásetningarnúmer, stærð
tegund og aldur þeirra bifreiða, sem nota á til
flutninganna. Ennfremur skal veita upplýsingar
um, hvort bifreiðarnar eru notaðar til annars en
mannflutninga.
Samgöngumálaráðuneytið,
1. júní 1966.
SKARTGRIPIR
UMW7
Gull og silfur til fermingargjafa.
HVERFISGÖTU 16A — SÍMI 21355.
Auglýsið í TlMANUM
3
Á VÍÐAVANGI
Hafís í Reykjavík
Eftir höfðinu dansa limirn-
ir. Einræðishnvigð og ofstæki
virðist nú óðum ágerast hjá
þeim, sem skrifa um stjórnmál
í Morgunblaðið.
f stjórnmálapistli Morgun
blaðsins á sunnudaginn er þetta
haft eftir „þekktum Reykvík-
ing,“ sem á máli Morgunblaðs-
ins þýðir: Kunnum Sjálfstæðis-
manni:
„Ég vil heldur sjá hafís á
Rauðarárvíkinni en þriðja
Framsóknarmanninn í borgar-
stjórn.“
Fer ekki milli mála, að
Morgunblaðið gerir þessi orð
þessa kunna Sjálfstæðismanns
að sínum og þykir sem þarna
hafi einmitt naglinn verið hitt-
ur á höfuðið.
Þetta þýðir það, að Morgu-
blaðið vill heldur að hafís verði
landfastur í Reykjavík og plág
ur, óáran og hörmungar, sem
honum fylgja leggi Reykjavík
í auðn, heldur en hlíta lýðræð-
islegum dómi meirihluta Reyk-
víkinga í almennum kosning-
um. Kjör frú Sigríðar Thorla-
cius í borgarstjóm hefði þýtt
það, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði misst mcirihluta sinn. í
stað þess að þakka fyrir, að fá
að lafa við meirihlutavöld í
borgarstjórn Reykjavíkur þótt
meirihluti kjósenda hefði lýst
sig í andstöðu við Sjálfstæð-
isflokkinn í Reykjavík í kosn-
ingunum, er Morgunblaðið fullt
hefndarhugar og óskar Reykvik
ingum alls hins versta, ef þeir
hefðu þurft að víkja frá völd-
um, því að hending eins og
heppni Sjálfstæðisflokksins réð
því, að áttundi borgarfulltrúi
flokksins náði kjöri.
Ofstæki
Þannig er hugarþelið gagn-
vart Reykvíkingunum „þeirra“
í borginni „þeirra.“ Reykvík-
ingar eru aðeins gott fólk að
áliti Morgunblaðsins svo lengi
sem valdaklíka Sjálfstæðis-
flokksins fær að vera þar ein
við völd og rázkast með fé
og málefni borgaranna. Ef lýð-
ræðislegur meirihluti Reykvík-
inga kveður upp úr um það
í kosningum, að mál sé að
valdaklíka Sjálfstæðisflokksins
taki sér hvfld, þá eiga Reyk-
víkingar allt það versta skilið
og þá leitað samlíkinga til
verstu hörmungatíma í sögu
þjóðarinnar. Þá er Reykjavík
um leið orðin að Sódómu og
Gómorru og íbúamir eiga helzt
að farast í réttlátri reiði guð-
anna.
Það er ekki víst, að Reyk-
víkingar gleymi strax þessari
sendingu, sem þeir fengu af
síðum Morgunblaðsins sem
hvítasunnuhugvekju.
Lýðræðishetjurnar
Morgunblaðið ber sér oft á
brjóst og segir Sjálfstæðisflokk
inn mesta unnanda lýðræðisins,
þótt út fyrir íslands væri leitað
og forystumenn hans einstakar
lýðræðishetjur, sem vUja allt
sitt byggja á Iýðræðisákvörð-
unum meirihlutans. Aldrei hef
ur hvinið meira i þeim skjá,
en þegar umræður um kjör-
dæmaskipan og kosningafyrir
komulag hafa verið á döfinni.
Nú sjá menn, hve djúpt þess-
ar hugsjónir rista á þeim bæ.
Meirihluti kjósenda í Reykja-
vík lýsti andstöðu við Sjálf-
stæðisflokkinn í kosningunum.
Dómur meirihlutans er réttlát-
Framhald á bls. 12.
C«Ktkú.„. .