Tíminn - 02.06.1966, Síða 16

Tíminn - 02.06.1966, Síða 16
122. tbl. — Fimmtudagur 2. júní 1966 — 50. árg. Kosningaskemmt- \ un B-listans Kosningaskemmtun B-listans 1 Reykjavík verður haldin að Hótel Sögu í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 8.30. , ☆ Ávarp flytur Einar Ágústsson, borgarfulltrúi - Framsóknarmanna. ; ☆ Karl Guðmundsson, leikari fer með nýjan kosninga- þátt. ☆ Einsöngur: Sigurveig Hjaltested. ☆ Upplestur: Baldvin Halldórsson, leikari. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi : til kl. eitt eftir miðnætti. Aðgöngumiðar verða afhent- | ir á skrifstofu Framsóknarflokksins, Tjarnargötu 26, í ; dag frá kl. 10 til 5. Símar skrifstofunnar eru 1-60-66 ; og 1-55-64. ? REIÐHJÓLA SKOÐUN HAFIN KJ—Reykjavík, miðvikudag. í morgun hófst hér í Reykja vík á vegum Umferðarnefndar innar skoðun á reiðhjólum barna á aldrinum 7—12 ára, og tók GE myndina sem hér fylgir er lögregluþjónn var að festa viðurkenningarmerki á hjól við Hvassaleitisskólann í dag. Fer reiðhjólaskoðun þessi fram á skólasvæðum borgar- innar og eiga þau yfirleitt að mæta við þann skóla, sem þau sóttu síðastliðinn vetur. en auglýsing þess efnis var í dag blöðunum í dag. Lögreglu- mennirnir sem að þessu starfa yfirfara hjólin og kanna, hvort öryggisútbúnaður sé í lagi, en auk þess er börnunum sýndar litskuggamyndir af hjólreið- um úr umferðinni í Reykja- vík þar sem því verður við komið, og talað er við þau um umferðarmál. Viðurkenningar- merki fá börnin á hjól sín. séu þau í lagi, og er það von lög- reglunnar og Umferðarnefndar innar, að merkin verði til þess að börnin hafi öryggisútbún- að hjóla sinna í fullkomnn lagi og að athygli þeirra sé vakin á umferðarreglum. Þess skal getið, að börnum innan sjö ára aldurs, er ekki leyfilegt að vera á hjólum sín- um á almannafæri og gagns- laust er fyrir þau að koma með 8 hjól í skoðun. Sigurveig Baldvin Einar •///. .;. . / .y.,"... í- ' Épi vegna klaka og aurbleytu SJ—Reykjavík, miðvikudag. — Það er lítið um það enu, að bændur séu byrjaðir á vorverkum vegna aurbleytu og klaka í jörðu — sagði Kristján Karlsson, erind reki ,er Tíminn átti tal við hann í dag. — Ennfremur hefur verið óvenju kalt í veðri í maímánuði. •í fyrra var maímánuður einnig kaldur fyrir norðan og austan en sunnnalands var þá mun betri tíð. Það er því lítill munur á ástandinu núna og í fyrra, hvað snertir Norður- og Austurland. — Hey eru nú víða á þrotum, en ekki hefur verið tilfinnanlegur heyskortur hjá bændum. Mibið var flutt af heyi í aprílmánuði til austur- og norðausturhluta lands ins, allt frá Þórshöfn suður til Geithellnahrepps í S-Múlasýslu. Einnig var flutt lítilsháttar magn vestur í ísafjarðardjúp. Rændur greiddu sjálfir allt gjald fyrir síðustu heysendingam ar, en það hey, sem kalnefndin hafði lofað að útvega, var greitt að hluta úr Bjargráðasjóði, sem greiddi flutningskostnað og bind- ingskostnað, en bændur borguðu aftur á móti sjálft heyverðið. Mest allt heyið var keypt á kr. 1.50 fcg. en hærra verð var greitt fyrir hey ið, sem selt var í vor. í fyrra var sérstaklega hentugt surnar hér suðvestan lands, heyin vora mikil og góð og heyskapar kostnaður í minna lagi vegna tíðarfarsins, þannig að heysalan hefur áreiðanlega gefið mörgum bændum talsverðar tekjur. Margir bændur seldu um 300 — 400 hesta eða fyrir 45—60 þús. kr. f það heila tekið virðist líta nokkuð sæmilega út með fénaðar höld. Annars er dálítið erfitt að segja til um hvað bændur gera í ár, þegar haft er í huga, að þeir SE-Þingeyri, miðvikudag. Um þessar mundir er óvenju mikið um að vera í flugmálum hér á Þingeyri. Það, sem af er þessu ári, eru lendingar orðnar 109 að tölu, eða jafnmargar og þær voru 30. október í fyrra. Þessi mikla aukning stafar að nokkru leyti af slæmum samgöngum á sjó og því, I hve seint vegirnir opnast hér í vor. Eins og skýrt hefur verið frá i Tímanum, varð aukning'á lend-! eru yfirleitt óánægðir yfir þeirri lækkun sem verður á mjólkurvör unum núna. Famleiðslan er of mik il, þ æ. a. s. hún yfirgengur þær tatamarkanir sem eru í verðlags ákvörðunum varðandi tryggingu á útflutningi. Ekki er vitað um að bændur hafi tekið neina saan- stillta afstöðu til þessara mála, bú- ast má þó við, að sumir reyni að breyta til og auka sauðfjárrækt, en þetta mál er nýtilkomið og Framhald á bls. 15 ingum hér 14% á síðasta ári, en fyrirsjáanlegt er, að hún verði miklu meiri á þessu ári. Þessi mikla aukning er gott dæmi um hinn aukna þátt flugs ins í samgöngum Dýrfirðinga og ýtir enn undir þá ósk okkar, að flugbrautin hér verði lengd til jþess að skapa stórum flugvélum skilyrði til þess að lenda hér. Flug brautirnar hér eru nú 600 og 480 metra langar og geta því ekki ! Eramhald á bls. 15. LENDINGAR ORÐNAR JAFN MARGAR OGI OKTÓBER S.L. Búntað tímbur frá Finniandi M.s. „Skógaíoss" kom til Reykjavíkur í morgun miðviku daginn 1. júni með 684 stand- arda af timbri frá Valkom og Kotka í Finnlandi. Áður hafði skipið komið til Þórshafnar Frá uppskipun timbursins í gær. með 63 tonn af vörum frá Os- ló. Timburfarmurinn. sem er til timburkaupmanna í Reykja vík og Hafnarfirði er fluttur í búntum. og er það í fyrsta (Timamynd GE) sinn, sem timbur er flutt til landsins í svo stórum stíl. „Skógafoss" er smíðaður til þess sárstaklega að geta flutt timburfarma og aðra stór- flutninga með sem hagkvæm- ustum hætti. Lestaropin eru Framhald á bls. 15

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.