Vísir - 13.12.1974, Blaðsíða 12
12
Vlsir. Föstudagur 13. desember 1974.
BÆKUR
bókin af Gróski Arna Öla
greinum hans um þjóðleg fræði.
Þar reynir hann að raða saman
landnámssögu Ira á íslandi Ur
þeim brotum sem fornar sagnir
hafa að geyma þar að lútandi.
Bókin er 197 bls. að stærð og
kostar kr 1988,-
Endimork vaxtarins
Menningarsjóður og Þjóðvina-
félagið hafa gefið út bókina Endi-
mörk vaxtarins, eftir fjóra er-
lenda höfunda, þýdda af Þorsteini
Vilhjálmssyni og Finnboga Guð-
mundssyni. Undirtitill bókar-
innar er þáttur i rannsókn
Rómarsamtakanna á ógöngum
mannkynsins. I eftirmála segir,
að bókin fjalli um efni er varöar
alla: „Iskyggilegar framtiðar-
horfur mannkynsins á þessari
jörð”. Bókin er 240 bls, að stærö
og kostar kr. 1964,-
Ókindin
Ökindin heitir bók eftir Peter
Benchley, sem Isafold gefur út.
Þetta er saga um baráttu manns
og fisks — nánar tiltekið hákarls
— og hefur hlotið mikið lof þar
sem hún hefur komið út. Bókin er
228 bls, að stærð og kostar kr.
1726.-
Upphaf siðmenningar
Nýlega er út komin pappirs-
kilja frá Máli og menningu, sem
heitir Upphaf siðmenningar og er
eftir Harald Jóhannsson. A kápu
segir, að i þessari bók sé reynt aö
rekja þróun samfélagshátta á
lokaskeiðum forsögunnar á ná-
lægum Austurlöndum. Bókin er
135 bls, og kostar kr. 714.-
Grúsk IV
Komin er út hjá Isafold fjóröa
Listin að elska
Nýútkomin pappirskilja Máls
og menningar heitir Listin að
elska og er eftir Erich Fromm.
Hann er stundum talinn einn
merkasti sálfræðingur eftir daga
Freuds, segir i bókarkápu, enn-
fremur að þessa bók megi skoða
meöal annars sem gagnrýni á
ástundun ástarinnar i nútima-
þjóðfélögum Vesturlanda og þann
skilning, sem lagður er i hugtakið
ást Bókin er 124 bls, að stærð,
kostar kr. 714,- og þýðandi er Jón
Gunnarsson.
Sakaður um
skottulœkn-
ingar vegna
nálastungu-
aðferðar
Kínverska nálastungu-
aðferðin við lækningar
hefur vakið almenna at-
hygli á Vesturlöndum á
seinni árum. Hafa æði
margir sýnt henni áhuga/
og nokkrir Evrópumenn
hafa lagt hana fyrir sig.
Árangurinn hefur verið
misjafn, eins og sést á
þvú að nýlega var höfðað
mál í Halmstad í Svíþjóð f
framhaldi af þvú að þrír
„Allir velkomnir"
„Litið vib hvenær sem er. Allir velkomnir”, segir i auglýsingum trú-
flokks nokkurs i Templeton i Kanada, sem á húsið hér á myndinni.
Kannski verður auglýsingin þó endurskoðuð eftir að flugmaður
nokkur hafði litið heldur harkaíega inn.
Það var reyndar nemandi meö kennara við hliö sér, sem missti
stjórn á véi sinni og hafnaði I fundarsai trúfiokksins. Flugmennirnir
tveir siuppu heilir frá þessu ævintýri — ótrúlegt en satt. Sennilega mun
trúflokkurinn breyta auglýsingu sinni I framtiðinni og segja, „Allir
velkomnir, svo framarlega, sem þeir koma ekki I gegnum þakið.”
Umsjón: G.P.